Pressan


Pressan - 19.05.1994, Qupperneq 8

Pressan - 19.05.1994, Qupperneq 8
 Gleymdu rokki og róli, poppi og rappi. Dr. Gunni kafaði í plötuhaugana og dró upp nokkrar af afbrigðilegustu og al- furðulegustu plötum íslandssögunnar. Hér segir af blöðru- plötum, dónaplötum og flippplötum; leyniplötum og fót- boltaplötum. íslenska poppsagan eins og þú hefur aldrei séð hana fyrr, gjörðu svo vel! Leyndardómsfyllsta pla Á íslandi er hellingur af fólki sem hlustar á dauðarokk og þungarokk og hefur ágæta þekkingu á sögu þeirrar tónlistar. Enginn þekkir þó plötuna „Fire and steel“ sem hljómsveitin Flames of Hell gerði 1987 og fyrirtækið Draconian gaf út sama ár. Allt í kringum þessa hljómsveit er mjög leyndar- dómsfullt. Hún hefur aldrei leikið opinberlega á Is- landi og platan hefúr aldrei sést í íslenskum plötu- búðum. Hljómsveitin er skipuð tveimur bræðrum, þeim Sigurði og Steinþóri Nicolai. Þeir eru báðir síð- hærðir risar sem klæðast eingöngu svörtu og þeysa um á svörtum köggum, eins og riddarar aftan úr svartri forneskju. Þeir syngja og spila á bassa og gít- ar en þriðji maðurinn er trommarinn Jóhann Ri- chards, betur þekktur sem Jói Motorhead. Þriðji Nicolai-bróðirinn heitir Kristinn, er þekktur lista- maður úti í Frakklandi og teiknaði umslag plötunn- Sparibaukaplatan Góðkunningi allra barna á árunum upp úr 1970 var sparibaukurinn Trölli, sem Utvegsbankinn hafði á sín- um snærum. Seinna eign- aðist hann unnustu, Trýnu. Fígúran var finnsk að upp- runa en Útvegsbankanum þótti hún tilvalin sem baukur og var gerð auglýsing 1970, sem Hörður Haraldsson, spretthlaupari og kennari, kvikmyndaði. Guð- bergur Auðunsson var fenginn til að semja lag fyrir Trölla og samdi meistaraverldð „Tröllasöngur“ — í kolli mínum geymi éggullið... o.s.frv. Textinn var eftir Sigurð Hreiðar og Jónas Friðrik. „Ég fékk myndina af Trölla og textann upp í hendurnar og var 2-3 daga að semja lagið,“ segir Guðbergur. Sex árum síðar ákvað bankinn að gera plötu til að gefa góðum börnum sem lögðu mikið inn. Guðbergur var aftur kallaður til og tók upp aðra útgáfu af Tröllasöngnum, sem að vísu var lakari en sjónvarpsauglýs- ingarútgáfan, og á hinni hliðinni söng Trölli „Allir kátir krakkar“, lag eftir Guðberg við texta Jónasar Frið- riks. Nú er bara að vona að íslandsbankinn taki Trölla í gagnið á ný — Bubbleflies gætu t.d. samið nýtt lag, „Trölli reifar“ — það væri að minnsta kosti flottara en þessi vemmilega UK-17-auglýsing sem þeir hafa ver- ið með síðustu árin. Eftir mikla leit hafðist upp á eintaki af plötunni. Það er í eigu Eyþórs Arnalds, sem tók plötuna upp í Gnýs-hljóðverinu, en í þann tíma leigði hljóðverið húsnæði af KFUM við Holtaveg. „Við vorum allir góðir drengir þarna í hljóðverinu,“ segir Eyþór, „en þá kom Sverrir Stormsker og tók upp Guðspjöllin og lét taka myndir af sér í predikunarstólnum hans séra Friðriks, sem var í geymslu þarna. Þá fóru eigendurnir að athuga hvað væri á seyði og hittu akkúrat á stúdíóið þegar Nicolai-bræður voru að hljóðrita plöt- una sína. Skömmu seinna flutti Stúdíó Gnýr í nýtt húsnæði.“ Eftir mikla leit náðist í Steinþór Nicolai. „Þessi plata var aldrei seld hérna því við álitum að hér væri ekki nógu stór markaður," segir Steinþór, „en hún fékkst víða um heim. Það var mikil vinna í þessari plötu, við höfum verið að gera tónlist síðan ’82.“ Hafið þið þá gefið útfleiri plötur? „Já, bæði og.“ Eitthvað þá sem íslendingar fá aldrei að heyra? „Ég segi það nú kannski ekki. Það er alveg möguleiki á því.“ Þetta er dnhvers konar málmur sem þið spilið? „Ja, hvað viltu flokka þetta undir, úraníum? Það er eini málmurinn sem kæmi til greina.“ Draconian heitir fyrirtœkið sem gafplötuna út, hefurþað gefið eitthvað fleira út? „Þú verður að spyrja þá.“ Hvar nœ ég sambandi? „Ef þú ert með samband beint niður ættirðu að ná sambandi við þá.“ Bannaða barnaplatan í:íYKinA:BO'T» JAO s Olíklegasta söluplatan wasstH Árið 1975 voru Change-strákarn- ir orðnir leiðir og pirraðir á heims- frægðinni, sem lét ekki sjá sig. Þá fengu þeir þá hugmynd að gera eins konar barnaplötu og útkoman varð ein skringilegasta barnaplata sem sögur fara af. Magnús Þór Sig- mundsson segir í dag að þessi plata hafi verið „smásýruflipp", enda hafi menn verið „útúrskakkir og vitlaus- ir“, eins og poppara var siður á þeim árum. Þetta var þó ekki fýrsta barna- plata Changeliða. Áður en þeir lögðu í Bretlandsferðina hafði Jón Ólafsson gefið út fjögurra laga plötu með Change, sem m.a. innihélt lag- ið „Litla mús — herra Jón“, sem vakti mikla lukku. Þetta var fýrsta platan sem Jón Ólafsson græddi milljón á, eða svo sagði hann sjálfur í sjónvarpsviðtali, en Magnús segist aldrei hafa séð krónu af útgáfunni. „Allra meina bót“ var um margt furðuleg. Skrækar raddir Magnúsar og Jóhanns nýttust vel að þessu sinni og vinsælasta lagið varð „Mamma gefðu mér grásleppu", sem tröllreið óskalagaþáttunum. Eitt lagið var svo bannað í Ríkisútvarpinu, lagið „Nag (Vonakona)“, sem tileinkað var Konuárinu. Textinn hefur líklega farið fyrir brjóstið á útvarpsskriffinnunum, en þar mátti m.a. finna þessar línur: „Karlskratti komdu bílnum í lag við þurfum að komast strax íferðalag komum austur við komumst ekki á Spán því France hann kyrkirfólk og hengirþar. Platan seldist í 2-3.000 eintökum og er í dag ófáanleg. Engar áætlanir eru uppi um endurútgáfu. Árið 1976 kom til landsins Japaninn Yos- hiyuki Tao og hélt námskeið í Orgelskóla Yamaha á mikinn galdragrip, risavaxna tækniundrið Yamaha E-5 með tveimur R-60 B-konserthátölurum. Gripurinn var undan- fari skemmtarans. Tao var mikil poppstjarna í heimalandi sínu og flinkur á orgelið, en hafði aftur á' móti litla tilfinningu íyrir tón- listinni. Hann var settur í hljóðver og tók þar upp „vinsæl íslensk og erlend lög“ í tilfinn- ingasnauðum útgáfum. Platan seldist ótrú- lega vel, 2.000 eintök á örfáum mánuðum, og var kaupendahópurinn aðallega miðaldra húsmæður í Hagkaupssloppum. Upptöku- maður var Jónas R. Jónsson en Ólafur Þórð- arson stjórnaði upptökum á verkinu, sem tóku nokkra klukkutíma, enda þurfti bara að stilla upp hljóðnemum fýrir framan hlun- kinn. Tao sneri til Japans skömmu síðar og hefúr ekkert spurst til hans síðan. F ótboltaplöturnar I gegnum tíðina hafa íjölmörg íþróttafélög ákveðið að rífa upp félagsmóralinn með því að gefa út hvatningarsöngva þar sem félagið er hafið til skýjanna með jafh kraftmiklum og inn- blásnum setningum og „Við eigum þennan leik“, „Hverjir eru bestir?“ eða „Ólei-ólei-ólei-ólei“. Hér eru aðeins teknir fýrir fótboltasöngvar, en aðrar íþróttagreinar hafa einnig getið af sér plötur, þá sérstaklega handboltinn. KR-ingar hafa verið duglegir við útgáfur af þessu tagi. Árið 1979 komu út tvö lög á lítilli plötu eftir Árna Sigurðsson, „Áfram KR!“ og „Mörk“, sem hann söng einnig. Fyrir þremur árum kom svo út lagið „KR-ingar, hverjir eru bestir?“ eftir Pétur Hjaltested. Bubbi Morthens er harður KR- ingur og samdi tvö lög fýrir síðustu árshátíð. í sumar er von á geislaplötu þar sem nýju Bubba/KR-lögin verða auk gömlu laganna. I sumar er líka von á fótboltalagi sem Rúnar Júlíusson hefúr samið fýrir Keflvík- inga. Elsta fótboltalagið er líklegast „Skagamenn skora mörkin“ sem Skaga- kvartettinn gaf út á plötu 1976. Lagið er tékkneskt þjóðlag en textinn eftir Ómar Ragnarsson. Fram, Valur og FH hafa öll gefið út hetjuplötur og KA-menn drifu sig í að gera plötu árið 1989 þegar ljóst varð að þeir myndu vinna deildarkeppnina. Bjarni Hafþór Helgason samdi lagið, sem heitir því skáldlega nafúi „Áfram KA-menn“. En það eru ekki bara sigursæl lið sem gefa út. Árið 1991 gerði Val- garður Guðjónsson, Fræbbblameðlimur fýrrverandi, lag fýrir Breiða- blik. Hljómsveitin Glott, núverandi band Valgarðs, sá um undirleikinn og fótboltaliðið tók undir, eins og alvanalegt er á fótboltaplötum. Þegar Knattspyrnufélagið Víðir frá Garði komst í úrslit bikarsins á móti Fram 1989 var gert sigurvisst stuðlag sem kom út á snældu nokkru fýrir úr- slitaleikinn. Það kom þó að engu gagni og Fram burstaði Víði 5—0! 8B PRESSAN FIMMTUDAGURINN 19. MAÍ 1994

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.