Pressan - 19.05.1994, Qupperneq 13
Þungt og svart
13
SALT
SPOR
★★
Hallur Ingólfsson er góður
trommari. Margir góðir
trommarar hafa ofmetnast
og fengið þá flugu i höfuðið að
fyrst þeir væru góðir trommarar
hlytu þeir að vera góðir lagahöf-
undar líka. Þessi grilla ágerðist,
Hallur gaf út „Damcrack“ undir
nafninu Bleeding Volcano, hina
þokkalegustu plötu sem lofaði
góðu, og þá einna helst ef Hallur
fengi sér þriðja eyrað til að halda
aftur af verstu grillunum. Það hef-
ur ekki gerst, enn er Hallur í eigin
heimi — sem enn er ekki fullmót-
aður — og fékk Spor nýverið til að
gefa út klukkutíma langhund, nú
undir leyninafninu 13, sem einnig
er ritað Þrettán eða XIII. Til að-
stoðar á plötunni er Eiríkur Sig-
urðsson og á tónleikum bætist Jón
Ingi Þorvaldsson við.
Eins og „Damcrack“ er Salt til-
breytingasnauð og einlit. Liturinn
er svartur eins og leðurjakki, tón-
listin þung sem dautt naut sem
dettur á hlustandann og klessir
honum við jörðina, þar sem hann
getur lítið annað en nagað negl-
urnar meðan fargið liggur á hon-
um.
Hallur var einu sinni í HAM.
Sumt á þessari plötu minnir á þá
gæðasveit nema hér eru fáar eftir-
minnilegar melódíur og lítill húm-
or, það tvennt sem hefur forðað
HAM eftirminnilega ffá því að vera
bara enn ein leiðindaþungasveitin.
Eftir stendur þokukennd rokk-
mynd, þar sem lögin renna saman
í harðan og líflausan heildarpakka.
Það er lítið gefið eftir í þyngslun-
um, en samt rofar stundum til þeg-
ar Hallur hittir á gjöfula æð. „Thir-
teen“ er ágætt lag sem minnir á Pe-
arl Jam, og „Crime" og „Family
Affairs“ eru fín rokklög þar sem
ógnvekjandi þyngslunum sleppir
og við tekur velpælt milliviktar-ról.
Hallur syngur, rymur og skrækir
— eldd slæmur gaulari en per-
sónuleikalítill. Þyngslin skapast af
níðþungum bassadrunum, sem
liggja á plötunni eins og mara, og
fjölbreyttum trommuleik Halls,
sem er taktfastur og klár að vanda.
Gítarhljómurinn er eins í gegn;
gráleitt fuss án útúrdúra.
Hallur sannar með bestu lögun-
um á plötunni að hann getur sam-
ið fínasta rokk ef hann reynir. Enn
þarf ég að stinga upp á þriðja eyr-
anu, sem gæti vinsað úr verstu
grillurnar. Best væri þó ef Hallur
færi hægar í sakirnar, lægi betur yf-
ir lögunum og tíndi út þyngstu og
einhæfustu báknin.
Það er víst sumar núna og því er
útgáfa plötunnar á kolvitlausum
tíma. Þeir sem þola ekki sumar og
vilja viðhalda skammdeginu geta
aftur á móti ekki fengið betri hjálp
en þessa plötu.
Hljómsveit með
ræpu
BLUR
PARKLIFE
★★
Liðsmenn ensku hljómsveitar-
innar Blur eru hálfgerðir
hlaupahundar, enda áhuga-
menn um það veðmálasport og
- 4 í j* a r
dr. Gunna
Magnús og Jóhann
Magnús og Jóhann
★★
„Oft fara félagamir fullnærri hættu-
mörkum væmninnar og skjóta yfir strikið
með sykurffoðu og vörumerkinu, skræku
röddunum, sem síðar urðu breskum upp-
tökumönnum ástæða til að kalla félagana
„The Girls ffom Iceland“ þá þeir reyndu að
meika það með Change.“
Reptilicus og The Hafler Trio
Designer titne
?!
„Það þarf visst hugrekki til að gera
svona plötu, en ennþá meira hugrekki, já,
beinlínis fífldirfsku, til að hlusta á hana.“
hafa slefandi hunda framan á nýju
plötunni. Það er ekki ár síðan plata
númer tvö kom út, hin ágæta
„Modem Life is Rubbish11, ein af
betri plötunum í fýrra. Á nýju plöt-
unni hlaupa þeir áffam á hring-
braut poppsins og éta upp það sem
á vegi þeirra verður. Þeir slafra í sig
Bítlana, Bowie og Kinks, og einnig
væna slummu af nýrra rokkslátri:
Buzzcocks, XTC og Jam. Síðast
runnu úr þeirn harðir og vellykt-
andi harðjaxlar, en nú vætlar út
létt, lapþunn og klístruð ræpa, sem
klínist ekki við eyrun á hlustend-
um heldur einna helst við aftur-
lappirnar á þeim sjálfum.
Meirihlutinn af þessari plötu
lendir beint í tunnu gleymskunnar
eftir örfáar hlustanir. Háu raddirn-
ar með ýkta enska ffamburðinum,
sem pössuðu einu sinni, eru nú
hjákátlegar og leiðinlegar í vemmi-
legu gutlinu. Lög eins og „Tracy
Jacks“ og „End of Century“ gösla
áffam í sífelldri sleikjukenndri
upprifjun á enskri poppsögu og
„To the End“ væri kannski flott ef
Dusty Springfield syngi það. Því
verður þó ekki neitað að sumt er
ágætt, og þá eingöngu sem
grunnristandi léttmeti. „Girls &
Boys“ er ágætur létt-Bowie, og eitt
besta lagið er titillagið „Parklife“,
sem grínistinn Phil Daniels raular,
og gefur um leið aðra vídd með
rödd sem er frábrugðin geldings-
gjamminu í Blur-plebbunum.
Ef Blur ætla ekki að renna niður
sem lífsglöð ræpa i niðurfall popp-
sögunnar þarf að beita einhverjum
meðulum. Ég mæli með verk- og
vindeyðandi-flösku af ffumleika.
I <3 I a r ú r bj'ansanum
Saktmóðígur
Fegurðin, blómin ogguðdómurinn
★★★★
Þeir spila eins og þeir eigi lífið að leysa
þótt kunnáttan sé kannski ekki upp á fjöl-
marga FÍH-fiska. Þeir leggja fram fimm
verk, hvert öðru betra, sannkölluð svöðu-
sár á eyru hvers tónelsks manns.“
„Backbeat-bandið“
Tónlistin úr Backbeat
★★
„Liðið (úr ekki verri sveitum en Sonic
Youth, Nirvana og REM) læðir engu af eig-
in íjörefnum í vellandi rokkið. Þetta er
samt allt klassískt efni og það þyrfti mikla
evróvisjón-skitu til að klúðra jafhgóðu
rokki.“
Nick Cave and the Bad Seeds
Let love in
★★★★
„Þótt Vondu fræin séu að bauka hvert í
sínu hominu sameinast þau þó alltaf í
beinskeyttri en tilraunakenndri tónsúpu.
Nick er þó aðalkokkurinn sem kemur með
uppskriftirnar og leggur línurnar fyrir
þessa tíu rétta veislumáltíð."
Morphine
Cure for pain
★★★
„Ef rokkbransinn er sjúkur er engin
lækning í sjónmáli hér. Þetta er fínt til að
hlusta á með bók í rykugum dívani eða
sem bakgrunnstónlist í spekingslegum um-
ræðuhópi.“
HAM að hætta
H I j ó m s v e i t i n
HAM hefur starfað
síðan 1988 en nú er
hún bráðum öll.
Lokatónleikar sveit-
arinnar verða 3. júní
í Tunglinu, sem
verður opnað sér-
staklega fyrir tón-\
leikana. Þessi dag-
setning er 90% ör-
ugg að sögn Sigur-
jóns Kjartanssonar
söngvara. Tónleik-
arnir verða teknir
upp og gefnir út á
geislaplötu síðar í
sumar.
„Ástæðan fyrir
því að við erum að
hætta," segir hann,
„er sú að við erum
búnir að vera að
þessu í sex ár og vorum allir sam-
mála um að þetta væri rétti tíminn.
Persónulega vil ég fara að víkka
sviðið, ekki einskorða mig við það
sem HAM hefur verið
að fástvið."
Sigurjón hefur
stofnað nýja hljómsveit,
Ólympíu, sem hann er
eini meðlimurinn í, en
þó mun Björn Biöndal,
bassaleikari í HAM,
spila með honum þegar
Ólympía hitar upp fyrir
Saint Etienne 10. júní í
Kolaportinu. Fyrsta lag
Ólympíu til að lenda á
plötu verður svo lagið
„Hvert sem er" sem
kemur út á safnplötu
Smekkleysu, „Smekk-
leysa I hálfa öld", sem
kemur út 17. júní. Sigur-
jón hefur svo fullan hug
á að koma út plötu á ár-
inu.
„í Ólympíu er feng-
ist við allt. Mér er ekk-
ert heilagt, en útgangspunkturinn er
bara að gera tónlist. Þetta er meira
óháði listinn
20 vinsælustu lögin á íslandi
Sæti i«g Hljómsveit Vikur
i. (2) So Fine 3
2. (1) Toety •••••••••••••»•»• 4
\J. £.
4. f 4 j It Ain't Hard to Tell 5
5. (5) Do You Love Me ••••••••• 4
6. (12) • Sabres of Paradise 3
7. (Q\ Thursday 2
8. (9) Up to Our Hips «»••»••••• 4
•j- y t
10. ! 16) Get Undre9sed ••••♦••••< 3
11. (3) Biack Hole Sun ••••••♦•• 6
12 Lose Your Mind • • * «Bobb fBong & Bubbleflies) 1
13. Why Do We Care •••••••• *»♦•♦ *Compuision 2
14. (2'C) Po-sitive ID ••••••••••• Peoegade Soundwave 2
15. (15) Síeep forever ••♦•♦»•••»• *•••• Rosb 4
16. Bígpímpin ♦•♦* 1
17. Jaílbtrd .»•••••.»•••••• * * * * Primal Scf'Oðrn 5
18. Obtívion •*»»•«**»*»*»•* 6
19. PrefsKle t« Fear ♦•••'••** X
20. Hop Hatíf •!>•*****»»'» • • •Tennesse Traos 1
Vinsæjdalisti X-ws
PKESSONNAft er leikínn
á X-inu khikkan tóif á
hárJe'Si á hverjuwt
fmimttideíi pflgatr
h'RfESSAM er kfMftiw
ViMi«fdavalia fer fratvt ■
ííirevís 62S977 vjrka ríaga
xiuvkan 9-17,
Vsrtu n-eó i aA ve«sa
tiittngií vineasfu'iítt !óg-
3 í'SiaslliS!.
X-?nfi Atj PWrS'SUNí'JAft /alinn irfo^i»nrfu*r' '/-tnfi. rrtkvtfiýjo'o
■ í-tmvinnu v»i> íístéfnloj; skoliium oi* noolý3lnguni .olotiv-
snúdíi díirtshiifiuni níBjartnfi om vflrtsHeiostu Ntiiher t svlga til sjRtío <
iifit'.s i A^hufito vlku
Sýrftur rjiówií
— vafasami listiran
1 ainlntm • ..............
A ★ffMXtíni
popp en hefur verið, en annars vil ég
ekkert ræða um eða skilgreina tón-
listina."
En HAM splundrast í fleiri áttir.
Funkstrasse er hljómsveit sem hefur
verið að í nokkur ár. Þar eru nánast
allir meðlimir HAM að spila flott grín-
fönk með Prófessorinn, Óttar
Proppé, fremstan í stuðflokki.
Funkstrasse verður með lag á safn-
plötu Smekkleysu og e.t.v. plötu síð-
ar á árinu.
Þriðja afsprengi HAM er eins
manns sveit Jóhanns Jóhannssonar
hljómborðsleikara, Fluxus. Jóhann
hefur þegar gert lag með Selmu
Björnsdóttur sem kemur út á „Reif í
staurinn" hjá Spori j júní. Um er að
ræða endurgerð af Þú og ég-laginu
„Dans dans dans", endurgerð sem
eflaust verður heit á diskótekum í
sumar.
FIMMTUDAGURINN 19. MAÍ1994 PRESSAN 13B