Pressan - 19.05.1994, Side 19
Lifið eftir vinn
Eins og
óskýrar
hugsanir
I raíhhildur Amardóttir
opnar íýrstu einkasýn-
I ingu sína í Gallerí Greip
við Hverfisgötu, Vitastígsmegin,
nú á laugardaginn. Sýningin
stendur til íyrsta júní. Hrafn-
hildur lauk námi við málara-
deild MHÍ 1993 og hefur tekið
þátt í nokkrum samsýningum.
Hvað ertu að sýna?
„Myndverk unnin með blý-
anti á striga og með öðrum efn-
um. Þetta eru allt verk ffá þessu
ári.“
Er eitthvert meginþema í
myndunum?
„Þetta eru rólyndisverk úr af-
kimum hugans, þar sem karakt-
erar eru á ferðalagi á milli svefns
og vöku, svona eins og óskýrar
hugsanir.“
Ertu búin að skipuleggja næsta
skref?
„Já, ég fékk pláss í School of
Visual Arts í New York og fer
þangað í mastersnám í haust.“
Er eitthvert pláss fyrir unga
myndlistarmenn á íslandi í dag?
„Hver og einn ákveður
hvernig hann spilar úr þessu.
Það er mjög erfitt að stunda ein-
göngu rnyndlist en jafnframt
vont að þurfa að vinna mikið
með.“
Með hvelfdan barm
SIRENS
LAUGARÁSBÍÓI
★★★
Sí
I
inemma á öldinni. Málar-
kinn Norman Lindsey (Sam
'Neill) er um það bil að
opna sýningu í Ástralíu sem síðar á
að senda til Englands. Meðal
mynda á sýningunni eru málverk
af lostafullum nöktum konum og
ein af Venusi krossfestri, sem fara
fýrir brjóstið á kirkjunnar mönn-
um. Þeir hafa reynt að fá lista-
manninn til að skipta þessum
myndum út fyrir einhverjar aðrar,
en hann þvertekur fýrir það og
hótar að gera usla í blöðunum
verði hann þvingaður til þess. Þá
gera þeir út Anthony Campion
(Hugh Grant) sem sendimann
sinn til að reyna að telja Lindsey
hughvarf. Kona Anthonys, Estella
við. Eins og t.d. í túlkun sinni á
Anthony kallinum sem er jafnvon-
laus í tilraunum sínum til að fá
Lindsey til að skipta um myndir
eins og í að halda innilegu sam-
bandi við konuna sína. „Sirens“ er
erótísk, seiðandi mynd með þungri
undiröldu. Mynd sem er sérlega
vel til fallið að njóta nú, þegar nótt-
in er orðin svona björt.
Bíó
• Fúll á móti ★★★ Gömlu jaxlamir
Walther Matthau og Lack Lemmon em
stórskemmtilegir. Heilsteypt og skemmti-
leg gamanmynd.
Sögubíói
0 Ace Ventura ★★ Jim Carrey er lunk-
inn, en sagan er þunnur gelgjusmellur.
Sambióunum
0 Hetjan hans pabba ★ f tvennu höfðu
framleiðendumir eitthvað fyrir sér: þetta er
efui í gamanmynd og helvíti væri gott að fá
Gérard í hana. Svo gleymdu þeir sér við
hitt. Bióhöllinni
0 Óttalaus ★★ Eins og ekki sé pláss
fýrir allt sem þarf að segja. Þess vegna verð-
ur það sem gerist frekar yfirborðskennt.
Bíóborginni
0 Systragervi 9 Eins og enginn sem
vann við þessa mynd hafi haft nokkum
áhuga á henni og menn fyrst og fremst
hugsað um að drífa þetta helvíti af.
Sambíóunum
0 Listi Schindlers ★★★★ Hrikalega
áhrifamikil og laus við væmni, þótt hún
fjalli um atburði sem vel er hægt að gera
kröfu til að maður felli tár yfir.
Háskólabíói
0 í nafhi föðurins ★★★★ Þessi
skrípaleikur er sönn saga. Eitthvert mesta
hneyksh sem riðið hefirr breskum réttar-
farshúsum frá því pyntingar og limlesting-
ar voru stundaðar í Tower of London.
Háskótabíói
(Tara Fitzgerald), fer með honum
á búgarð Lindseys þar sem þau
komast meðal annars í kynni við
þrjár þokkadísir sem starfa við það
að sitja naktar íýrir hjá málaran-
um. Við kynni sín af þeim sem á
búgarðinum dvelja og starfa verð-
ur Estella fýrir miJdum áhrifum og
fljódega segja hvatirnar til sín og
erótískar hugsanir sækja á, bæði í
svefni og vöku. Söguþráðurinn í
Sirens er ekki flókinn og á ekki að
vera það. Sirens er ein af þessum
seiðandi myndum sem virka á
tíðnisviði sem maður skilgreinir
ekki með einföldum orðum.
Vissulega gerist hún í ramma með
vel afmörkuðu upphafi og enda og
plottpunktum á sínum stað en hún
snýst ekki um það. Hún snýst um
fantasíur og strauma sem liggja
undir yfirborðinu og eru túlkaðar í
myndum, máluðum og kvikmynd-
uðum, og í augngotum þar sem
leikararnir segja mest þegar þeir
segja ekkert. Ekki svo að skilja að
samtölin séu óþörf hér. Þau krydda
einmitt frásögnina með vísan í
kristnina, Atlantis og Sírenurnar
sem sátu á klettunum og lokkuðu
til sín sæfara svo skip þeirra steyttu
á skerjunum og þeir dóu unaðsleg-
um dauðdaga í faðmi hafsins.
Fyrirsæturnar eru einmitt dísir
sem lokka og seiða á kynngimagn-
aðan hátt. Ekki einasta eru kon-
urnar gyðjum líkastar með sína
hvelfdu barma og frjósemdarlegu
mjaðmir, heldur eru þær líka ágæt-
ar leikkonur. En í þessu tilfelli eru
það ekki sjómenn sem eru dregnir
á tálar heldur eiginkona sendifull-
trúa kirkjunnar. I eggjandi leik
með léttlesbísku ívafi ýta þær
ímyndunarafli konunnar og áhorf-
andans í gang.
Ástralanum John Duigan, sem
er bæði handritshöfúndur og leik-
stjóri, hefúr teldst vel að skapa
seiðandi andrúmsloft, fúllt af litl-
um vísbendingum um alls konar
hluti en blátt áfram þar sem það á
„Þetta er erótísk, seiðandi mynd með
þungri undiröldu. “
Á Café París þessa sömu helgi voru
KK, Svava Johansen, Róbert Árni Hreiðars-
son, vinkonurnar Kristín Ólafsdóttir og
Helga Thors, Fjölnir Bragason hinn sterki, Jón St.
Kristjánsson leikari, Björgvin Gíslason, Lilja í Cos-
mó og Júdó- Bjarni.
Sigurður Gísli Pálmason, eitt Hagkaupssystk-
ina, sást ásamt fleirum sem tilheyra þeirri elítu á
Kaffibarnum um helgina.
Á lokasýninguna á Sumargestum í Nemenda-
leikhúsinu í síðustu viku komu m.a. Sveinn Einars-
son leikritahöfundur, Pétur Einarsson leikari, Sig-
rún Waage leikkona
ásamt móður sinni,
Andrés Sigurvinsson
leikstjóri og fleira
innanbúðarfólk úr
leikhúsunum.
Þá fréttist af næturpartíi aðfaranótt sunnu-
dags á Venus-Bóhem; stað unga fólksins, sem í
voru m.a. félagarnir úr Bubbleflies Davíð Magnús-
son og Páll Banine. Reyndu heimsfrægu bresku
klúbbdiskótekararnir hvad þeir gátu til að fremja
tónlist en illa gekk. Það ku víst hafa gengið betur
fyrr um kvöldið.
Þá má geta þess að Hilmar Jónsson, hinn upp-
rennandi leikari, hélt stórveislu í Borgartúninu á
laugardag í tilefni þrítugsafmælis síns, sem í voru svo að segja allir efnilegustu
ungleikarar þjóðarinnar auk sumra sem þegar eru búnir að meika það, allt í allt
hundrað manns þegar best lét.
_______ fidvétríkin ★★★★ USSR á RÚV á
föstudagúm. Léttur og leikandi
'*^J*®**^* transkur fræðsluþáttur um sögu Sov-
étríkjanna. ( þessum öðrum þætri af
þremur er ÍJallað um harðstjómarar Stalíns.
Si j O l'B £1 W §9
Fegurð 1994 ★★★★ á Stöð 2 á föstudagskvöld. Tuttugu
gullfállegustu og greindustu stúlkur landsins ganga fram á
sundbolum og síðkjólum, tjá síg um stjórnmái, heimspeki og útivist og falla svo ailar í
tárvota kös þegar stóra stundin rennur upp. Frábær skemmmn fýrir konur og kalla,
herra og perra.
Fiauel ★★★ á RÚV á laugardag. Steingrímur
Dúi kannar það heitasta í poppinu og ber það á
borð án allra stæla. Langbesti poppþátturinn! At-
hugið bre)4tan sýningartfma!
Rósastríðið ★★1/2 War ofthe Roses á Stöð 2 á
laugardagskvöld. Ágæt gamanmynd með Michael
Douglas, Kathleen Tumer og feita dvergnum,
Danny DeVito.
Dómsdagur nú ★★★★ Apocalypsc Now á
RÚV á laugardagskvöld. Francis Ford Coppola
leikstýrir Martin Sheen, sem leikur bandarískan
sérsveitarforingja sem sendur er til að drepa sköll-
óttan Marlon Brando í frumskógum Víetnam. Sheen iendir í ýmsu, m.a. Robert Du-
vall, sem elskar anganina af napaim á morgnana. Klassísk mynd og bönnuð innan 16
— bara vonandi að hún sleppi framhjá HeimL
Kalli kanína fimmtíu ára ★★★ Happy birthday Bugs á
Stöð 2 á hvítasunnudag. Upprifjunarþáttur tneð hinni öldnu
skrípókanínu. „What’s up Doc?“ líkiega sagt finnntíu simtum.
Norðan við stríð ★*★* á RÚV á hvítasunnudagskveldi.
Baidur Hermannsson spjallar við Indriða G. Þorsteinsson um
fólk og hross, og þekktustu persónumar úr skáldskap Indriða
eru kynntar. Þegar tveir snUlingar leggja f púkk er útkoman al-
gjör sniild, það þarfvarla að nefna það...
Músíktilraunir 1994 ★★★ á RÚV á annan í hvitasunnu.
Enn poppar Steingrímur Dúi og nú sýnir hann okkur það
sem bílskúrsböndin voru að bedrífá á sviðinu á Tónabæ 25.
mars sl., þegar úrslitakvöld Músíktilrauna fór fram. Fimmtíu
mínútur af kraftmiklu fröri.
Dagsvcrk *★★ á RÚV að
kvöldi annars f hvftasunnu. Kári
G. Schram gerði jietta portrett af
skáldinu Degi Sigurðarsyni
nokkrum mánuðum fýrir andlát
hans. Þetta er sannur þverskurð-
ur af meistaranum og hráasta
uætnrlíltnu i ReyKjavík. ý'.
Fcðgar 9 Frasier á RÚV á föstudagskvöld. Slappur og
VanSIl ófýndinn framhaidsþáftur um sálfræðinginn úr Staupasteini.
Hann er ekkert fyndinn, greyið, þegar bargengið er ekki með
honum. Bara tuttugu þættir eftir af þessu drasli — voff voffl
Jólatöfrar ★ One Magic Cltristmas í Stöð 2 á laugardag. Hailó, er ekki maí núna?
Trúður vill hann verða 9 Clowning around II á RÚV á sunnudag. ömurlegur ástr-
alskur unglingaþáttur um versta skemmtiatriði sögunnar, franska látbragðslisL Bót i
máli að það er bara einn þáttur effir.
Gangitr lifsins 99 Life goes on II á RÚV að kvöldi annars í hvítasunnu. Korkí og
fjöLskylda lufcast uni á náttfötunum í vaiiumkenndri hryggðannynd af amerískri
kjamafjöLskyldu. Hundurinn á heimiliuu er eini fjölskyldumeðlimurinn sem virðist
hafa fulla greind. Langversti framhaldsþáttur sem sést hefur í íslensku sjónvarpi, en bið-
um við, er clcki innkaupadeildin búin að kaupa 22 nýja þætti — 22 nýja þætti! — nú
getur maður ælt á hvetju mánudagskvöldi f ailt sumar!
Sækjast sér uni líkir 9 Birds of a Feather á RÚV á eftir Korkí og DagsverkL Hörmu-
lega fuil breskur framhaldsþáttur um tvær leiðinlegar systur. Hver stjómar þessu eigin-
lega? Reka innkaupadcildina ekki seinna en í gær, takk fyrir!
f~T
FIMMTUDAGURINN 19. MAI 1994 PRESSAN 19B