Pressan - 02.06.1994, Side 3

Pressan - 02.06.1994, Side 3
h Sem kunnugt er hefur meið- yrðamál Skipatækni gegn Sigurði Ingvasyni skipa- verkfræðingi velkst fyrir dóm- stólum landsins um langt skeið. Fyrir skömmu var telun fyrir frávísunarkrafa lögmanns Sig- urðar, Hreins Loftssonar hæsta- » réttarlögmanns, en hann hafði ^ farið fram á að málinu yrði vísað frá. Byggði hann það meðal ann- ars á því að málatilbúnaður Skipatæknimanna væri nánast óbreyttur frá því í þau tvö skipti önnur þegar málinu var vísað frá dómi. Einnig var því haldið ffarn að ekki væri hægt að reka málið á þeim forsendum að Sigurður hefði staðið fyrir einhvers konar „rógsherferð“ eins og Skipa- tæknimenn hafa haldið fram, mun fleiri hefðu tjáð sig um mál- ið og þar að auki væri engin H trygging fyrir því að rétt hefði verið eftir Sigurði haft þegar vitnað var til orða hans í fjöl- h' miðlum. Eitt þeirra orða sem tekist verður á um er „mann- drápsfleyta“, góð og gild íslenska nema annað verði sannað fyrir dómi... • ___________________________________ Nokkrar breytingar eru fyrirsjánlegar hjá Stjórn- unarfélagi íslands og ljóst að á aðalfundi félagsins 14. júní verða menn að taka ákvörð- un um framtíð félagsins. Sem kunnugt er hefur Ami Sigfússon i i Í boðað að hann ædi ekki að hverfa aftur til starfa hjá félaginu eftir stutt stopp í borgarstjóra- stólnum. Eftirmaður hans er Sig- urður Ágúst Jensson en hann mun heldur ekki æda að starfa þar lengi. Þá hefur sú örlagaríka breyting orðið á starfi félagsins að Fanný Jónmundsdóttir hefur flutt sig frá félaginu en hún hefur haft yfirumsjón með Brian ■ Tracy-námskeiðunum „Leiðin til . árangurs“. Einkaumboð þeirra á Islandi er í höndum Þráins Krist- inssonar, veitingamanns og kaupsýslumanns í Kanada, og mun Fanný sjá um námskeiðin héðan í frá. Þessi námskeið hafa verið mjög stór þáttur í starfi Stjórnunarfélagsins þannig að það hefúr töluverð áhrif á starf > félagsins að missa þau... LAGIÐ SKIPTIR EKKI ÖLLU MÁLI e n þ a ð v e r ð ur a ð v e r a lambakjöt - nú m e ð a . m . k . 15% grill afs l œ tti Lagið eða stærðin á grillinu þínu hefúr engin úrslitaáhrif fyrir árangurinn af matreiðslu við glóð. En það skiptir öllu máli að vera með rétta kjötið. I næstu verslun færðu nú lambakjöt á afbragðstilboði, - tilbúið beint á grillið, - með a.m.k. 15% grillafslætti. Notaðu lambakjöt á grillið, meyrt og gott - það er lagið. FIMMTUDAGURINN 2. JÚNÍ1994 PRESSAN 3

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.