Pressan - 02.06.1994, Síða 7
Alþýðuflokkurinn titrar stafnanna á milli
LOKAUPPGJÖR
JÓHÖNNU
Kratar mæta nú á þriðja flokksþingið í röð þar sem þeir eru
beðnir að gera upp á milli ráðherra sinna. í þetta sinn verður
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
Tekur nú síðasta skrefið í langvinnum átökum sínum við Jón Baldvin.
ekki hjá uppgjörinu komizt
að eru nokkrar vikur síðan
Jóhanna Sigurðardóttir
ákvað að bjóða sig fram til
formennsku í Alþýðuflokknum
gegn Jóni Baldvini Hannibalssyni.
Þetta tilkynnti hún nánum sam-
starfsmönnum sínum og nokkrum
þingmönnum þá, en ákvað að bíða
þar til eftir sveitarstjórnarkosning-
ar með að gera málið opinbert.
Viðbrögð innan flokksins eru
þrískipt sem vænta mátti. Harðir
stuðningsmenn Jóns Baldvins segja
að það „verði að taka þennan slag“
sem lengi hafi legið í loftinu og eru
býsna sigurvissir. Stuðningsmenn
Jóhönnu segja þessa ákvörðun að-
eins rökréttan áfanga á langri leið
Jóhönnu í átökum hennar við Jón
Baldvin. „Það er ekki eftir neinu að
bíða,“ sagði lúra V. Júlíusdóttir í
samtali við blaðið. I þriðja hópn-
um eru almennir flokksmenn, en
þeirra viðbrögð eru yfirleitt von-
brigði og þreyta á sífelldum og
endurteknum átökum þeirra
tveggja á þingum flokksins.
„Eg harma að þessir tveir af-
bragðsleiðtogar skuli ekki geta snú-
ið bökum saman og fundið sátta-
grundvöll til að leiða flokkinn í
gegnum næstu alþingiskosningar,“
sagði Kristján Möller, forseti bæj-
arstjórnar á Siglufirði, og undir það
tók Guðmundur Oddsson, for-
maður framkvæmdastjórnar: „Það
er dapurlegt ef ekki er hægt að ná
niðurstöðu í þessum deilum. Þetta
verður stór skaði fýrir flokkinn,
sama hvort þeirra sigrar, og má
reyndar segja að það tapi allir, hver
sem úrslitin verða.“ Þessi ummæli
virðast endurspegla skoðanir al-
þýðuflokksfólks sem mun nú
koma í þriðja sinn í röð á flokks-
þing sem markast af deilum for-
ystumanna.
Hver styður hvern?
Annað einkenni á viðbrögðum
alþýðuflokksfólks er varkárni.
PRESSAN ræddi við fjölda flokks-
fólks eftir að Jóhanna gaf yfirlýs-
ingu sína, en enginn var reiðubú-
inn að gefa yfirlýsingu um hvort
þeirra hann styddi ef til kosningar
kæmi. „Menn eru að bíða eftir að
sjá hver gerir hvað,“ sagði einn for-
ystumaður og aðrir sögðust vilja
heyra hvað Jóhanna segði opinber-
lega um framboð sitt áður en þeir
tækju afstöðu, en það gerði hún
ekki fýrr en síðdegis í gær.
Af dyggum stuðningsmönnum
Jóhönnu er helzt vitað um afstöðu
Láru, Þorláks Helgasonar, Ólínu
Þorvarðardóttur og Sigurðar Pét-
urssonar, en aðstoðarmaður henn-
ar í félagsmálaráðuneytinu, Bragi
Guðbrandsson, hefur unnið tölu-
vert að undirbúningi ffamboðsins
og verið í sambandi við flokksfólk.
Þá er talið víst að Jóhanna eigi vís-
an stuðning a.m.k. hluta hins
gamla kjarna flokksins í Reykjavík,
sem verið hefur hennar helzta bak-
land í flokknum ffá upphafi. Sá
hópur tók formennsku Jóns Bald-
vins síður en svo fagnandi á sínum
tíma, enda kom hann til Alþýðu-
flokksins úr allt annarri átt, í gegn-
um Alþýðubandalag og Samtök
frjálslyndra og vinstri manna, og
sniðgekk gamla valdakjarnann í
Reykjavík, þótt nokkuð hafi gróið
um síðan.
Innan þingflokksins virðist Jó-
hanna ekki eiga neinn stuðnings-
mann fýrirffam visan, en þar sem
annars staðar gætir nú hver tungu
sinnar. Helzt er að ætla að þeir
bræður Guðmundur Árni Stefáns-
son og séra Gunnlaugur séu tví-
stígandi í afstöðu sinni og muni
ekki gefa sig upp fýrr en ljósara sé
hvernig landið liggur. Þá er óvíst
um afstöðu Össurar Skarphéðins-
sonar umhverfisráðherra, en hann
mun minnugur þess að það var
ráðherradómur hans sem varð Jó-
hönnu tilefni til mikillar gagnrýni
og afsagnar varaformennsku í
fyrrasumar við hrókeringar í ríkis-
stjórninni. Þau átök kunna einnig
að fæla frá suma stuðningsmenn
Jóhönnu, sem „vilja vera með
henni, en eiga erfitt með að fýrir-
gefa henni það,“ eins og einn þing-
maður orðaði það.
Rannveig Guðmundsdóttir, nú-
verandi varaformaður, hefur ekki
viljað ræða málið í fjölmiðlum, en
gert er ráð fýrir að hún muni gefa
kost á sér áffam og jafnvel lýsa yfir
stuðningi við Jón. ÁfJamhaldandi
varaformennska er talin Rannveigu
nauðsynleg í ljósi möguleika á ráð-
herradómi, sem hún missti svo
naumlega af í fyrrasumar, og ekki
hefur heldur gróið um heilt á milli
þeirra Jóhönnu síðan þá.
Þá var haldinn fundur alþýðu-
flokkskvenna þar sem Lára V. Júlí-
usdóttir lagði til ásamt öðrum að
konur í flokknum gæfu ekki kost á
sér til varaformennsku effir afsögn
Jóhönnu, heldur einbeittu sér að
því að vígbúast gegn Jóni Baldvini
á næsta flokksþingi. Llutt var tillaga
um hið gagnstæða, sem var sam-
þykkt, og Rannveig tók við varafor-
mennsku við lítinn fögnuð Jó-
hönnu og hennar fólks.
Talið er víst að nýir þingmenn
flokksins, þau Gísli Einarsson og
Petrína Baldursdóttir, styðji Jón
Baldvin, en Petrína lét einmitt eft-
irminnilega í sér heyra þegar Jafh-
aðarmannafélag íslands var stofnað
fýrir nokkrum vikum og vísaði á
bug öllu tali um málefnaágreining
og „armaskiptingu“ innan flokks-
ins.
Sighvatur Björgvinsson iðnaðar-
og viðskiptaráðherra er að öllu
óbreyttu harður stuðningsmaður
Jóns Baldvins. Hann fór reyndar í
gærkvöldi, miðvikudagskvöld, í ffí
til útlanda og er ekki væntanlegur
fýrr en rétt fýrir flokksþing. Þetta
kemur honum til góða að því leyti
að hann mun ekki blandast inn í
átökin fram að þeim tíma og ætti
því hugsanlega auðveldara með að
koma fram sem málamiðlunar-
frambjóðandi á síðustu stundu ef
það teldist nauðsynlegt.
Óstaðfestar upplýsingar innan
flokksins herma reyndar að þegar
Jóhanna tilkynnti Jóni Baldvini
ákvörðun sína á þriðjudag hafi
hann boðið henni sættir og nefnt
nafn Sighvats í því sambandi, en
hún hafi aftekið það. Hvað sem því
líður má telja ólíklegt að Jóhanna
fáist til að hætta við framboð á síð-
ustu stundu, enda hefur hún lagt
mikið persónulega í þetta uppgjör
sitt við Jón Baldvin.
75-25 eða 50-50?
Ógerlegt er að spá um styrkleika
ffambjóðendanna tveggja á þessari
stundu. Að óbreyttu má þó ætla að
Jón Baldvin hafi talsverða yfir-
burði, allt að þremur fjórðuhlutum
atkvæða að mati sumra flokks-
manna. Þau hlutföll geta þó breytzt
þegar Jóhanna gefur ffekari yfirlýs-
ingar um ástæður fýrir ffamboði
sínu og ef henni berst óvænt stuðn-
ingsyfirlýsing ffá þungavigtar-
manni í flokknum.
Sveitarstjórnarkosningar hafa
líklega ekki haft mikil áhrif á for-
mennsku Jóns Baldvins og má
segja að hann hafi sloppið þar með
skrekkinn, ef miðað er við hrak-
spár í skoðanakönnunum. „Hætt-
an er liðin hjá fýrir kallinn," sagði
einn af stuðningsmönnum Jóns.
Sveitarstjórnarmenn, sem PRESS-
AN ræddi við fýrir kosningar,
höfðu þó margir á orði að spilling-
ar- og valdhrokaímynd flokksins
hefði skaðað möguleika þeirra
verulega. Það má líka heyra á
stuðningsmönnum Jóhönnu að
þeim þyki kallinn í brúnni vera far-
inn að fiska illa og vísa þar til orða
Jóns sjálfs um að skipperinn eigi að
hætta þegar ekki veiðist lengur.
Enginn „héraðshöfðingi“ krata
hefur' þó vísað ábyrgð á gengi
flokksins í kosningum til for-
mannsins og enginn hefur enn sem
komið er lýst yfir stuðningi við
framboð Jóhönnu.
Að sögn landsbyggðarmanna
hefur yfirvofandi formannskjör
ekki haft áhrif í átt til „smölunar“
við kjör fulltrúa á flokksþingið. í
Alþýðuflokksfélagi Reykjavíkur
voru fulltrúar valdir um síðustu
helgi og verður ekki séð að þar hafi
verið kosið eftir átakalínum.
Stuðningsmenn Jóns Baldvins
fullyrða að hann hafi allt að sjötíu
og fimm prósent atkvæða flokks-
manna eins og staðan sé nú, aðrir
hlutlausari áhorfendur telja stöð-
una nær 65-35 og jafnvel er talað
um jafna skiptingu atkvæða.
Stuðningsmenn Jóhönnu eru
bjartsýnir, enda má telja víst að
hún hefði ekki ákveðið ffamboð
nema telja sig hafa töluverðan
stuðning flokksfólks.
Um hvað er tekizt á?
Það er sem fýrr sambland mál-
efnaágreinings og persónulegra
átaka sem verður til þess að Jó-
hanna fer í ffamboð nú. Ekkert
hefur gerzt upp á síðkastið til að
skerpa línur í málefhaágreiningi,
en Jóhanna hefur löngum gagn-
rýnt sinnuleysi Jóns gagnvart fé-
lags- og velferðarmálum og áherzlu
hans á efnahags- og atvinnumál
byggð á markaðsbúskap („hin
harða frjálshyggja"). Búast má við
að fátækt, langvarandi atvinnuleysi
og aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar
gagnvart því verði áberandi í mál-
flutningi stuðningsmanna Jó-
hönnu, en hún er þó því marki
brennd að vera ráðherra í þeirri
sömu ríkisstjórn og bera að
minnsta kosti að forminu til jafn-
mikla ábyrgð og aðrir á stefnu
hennar.
Öðrum þræði hafa átök
þeirra Jóns líka alltaf snúizt
um vinnubrögð. Jón Baldvin
hefúr iðulega farið fýrir
flokknum án þess að leita
mikils samráðs við aðra en fá-
mennan hóp og þetta fór sér-
staklega í taugarnar á Jó-
hönnu þegar hún var varafor-
maður. Hún hefur opinber-
lega talað um niðurlægingu,
svikin loforð og óheilindi for-
mannsins. Stuðningsmönn-
um hennar er þetta ofarlega í
huga og benda á að svipaðar
umkvartanir hafi heyrzt frá
þeim sem hafa starfað með
Jóni í ríkisstjórn. „Það vita all-
ir að það er ekki hægt að
treysta Jóni Baldvini,“ sagði
einn stuðningsmaður Jó-
hönnu.
Sem dæmi um vinnubrögð
Jóns er nefnt nýlegt viðtal við
hann í norsku blaði þar sem
haft er eftir honum að Al-
þýðuflokkurinn muni sam-
þykkja á flokksþingi sínu að
Islendingar eigi að sækja um
aðild að Evrópusambandinu.
„Það hefur engin umræða far-
ið ffam um þetta í flokknum,
en við lesum það í erlendum
blöðum hvað við erum að
fara að samþykkja. Maðurinn
lætur eins og hann hafi flokk-
inn í vasanum," sagði stuðn-
ingsmaður Jóhönnu í þessu
sambandi.
Hvað gerist ef hún
tapar?
En hvað gerist ef Jóhanna
tapar í formannskjörinu?
Stuðningsmenn hans eru sigur-
vissir.
Stuðningsmenn vilja ekki útiloka
neina möguleika: „Einn möguleik-
inn er sérffamboð,“ sagði stuðn-
ingsmaður um þetta. „Jóhanna á
miklu viðtækari stuðning bæði
innan flokks og utan heldur en
klíkan í kringum Jón Baldvin vill
viðurkenna.“
Annar áhrifamaður, sem enn
segist óráðinn, sagði að þetta kæmi
varla til greina. „Hún verður krafin
svara um þetta á flokksþinginu áð-
ur en til kosninga kemur. Hún
verður auðvitað að sýna flokksholl-
ustu ef hún er að bjóðast til að leiða
flokkinn og verður að taka niður-
stöðunni hver sem hún er.“
Það verður þingfulltrúum eflaust
ofarlega í huga í formannskjörinu
að reikna má með vinstra samstarfi
í ríkisstjórn eftir næstu kosningar,
SIGHVATUR BJÖRGVINSSON
Farinn til útlanda og kemur
aftur rétt fyrir flokksþing.
ef marka má stemmninguna effir
sigur Reykjavíkurlistans um síð-
ustu helgi. Hvort þeirra hentar bet-
ur í það fiskirí, Jóhanna eða Jón?
Að öðru jöfnu myndi Jón sækja
meira inn í lausafýlgi Sjálfstæðis-
flokksins, en á hitt er að líta að Jó-
hanna er laus við „spillingarstimp-
ilinn“ sem þykir hafa feszt við
flokkinn síðustu misserin og yrði
að því leyti „ný“ ímynd fýrir flokk-
inn. Og þótt Jón Baldvin hafi opin-
berlega verið harður stuðnings-
maður Reykjavikurlistans er óhætt
að fullyrða að Jóhanna passar betur
inn í þá ímynd, rétta eða ranga, að
nú séu að myndast ný og áður
óþekkt tækifæri til víðtæks vinstra
samstarfs í landinu eftir að Reykja-
vík féll.
Karl Th. Birgisson
FRÁ HÁSKÚLA ÍSLANDS
SKRASETNING NÝRRA
STÚDENTA
Skrásetning nýrra stúdenta til náms í Háskóla Islands skólaárið
1994-1995 fer ffam í Nemendaskrá í aðalbyggingu Háskólans dag-
ana 1.-15. júní 1994. Umsóknareyðublöð fást í Nemendaskrá, sem
opin er ffá kl. 10-15 hvern virkan dag á skráningartímabilinu.
Við nýskráningu skrá stúdentar sig jafnffamt 1 námskeið á komandi
haust- og vormisseri.
Umsókn um skrásetningu skal fýlgja:
1) Ljósrit eða staðfest eftirrit af stúdentsprófsskírteini (ath. öllu skír-
teininu)
2) Skrásetningargjald, kr. 22.975
Ljósmyndun vegna stúdentaskírteina fer ffam í skólanum í septem-
ber 1994.
Ekki er tekið á móti beiðnum um nýskrásetningu eftir að auglýstu
skrásetningartímabili lýkur 15. júní nk. Athugið einnig að skrásetn-
ingargjaldið er ekki endurkræft eftir 20. ágúst 1994.
Mætið tímanlega til að
forðast örtröð.
ÞRIÐJA ATAKAÞINGIÐ I ROÐ
„Þú ert búinn að særa mig nóg“ sagði Jóhanna í orðasennunni við
Jón Baldvin á flokksþinginu 1990.
FIMMTUDAGURINN 2. JÚNÍ1994 PRESSAN 7