Pressan - 21.07.1994, Síða 2
fær
Markús ÖrnAn-
tonsson
fyrir að takast
að verða út-
varpsstjóri aftur
án þess að
neinn yrði rek-
inn.
Grætur þú ekki Kim
ll-sung, Birna?
„Nei, og ég grét ekki Kennedy
heldur. Ég svara þessu svona af
því öll persónudýrkun fer í
taugarnar á mér.“
Birna Þóröardóttir var í fimm
vikur í Noröur-Kóreu árið
1971 í boöi Ungmennasam-
taka Noröur-Kóreu.
FYRST & FREMST
Ásgeir Hannes kaupir
auglýsingastofu
Nýjir eigendur eru komnir að
Almennu auglýsingastofunni en
Ásgeir Hannes Eiríksson fyrrver-
andi alþingismaður og Valgerður
Hjartardóttir kona hans hafa
keypt reksturinn. Áður var stofan í
eigu Geirþrúðar Kristjánsdóttur.
Ásgeir kemur að rekstrinum sem
ráðgjafi en hann þekkir vel til aug-
lýsingaheimsins enda fýrsti auglýs-
ingastjóri Dagblaðsins þegar það
hóf samkeppni við Vísi árið 1975.
Rekstur Almennu auglýsingastof-
unnar er tvískiptur; annarsvegar er
almennur auglýsingastofurekstur
og hins vegar merkingar og skreyt-
ingar hverskonar...
Önundur sækir um
brauð
Séra Önundur Bjömsson er í
hópi fjögurra umsækjenda um
prestsembættið á Kolfreyjustað
sem auglýst var nýlega. Eina
brauðið sem hann hefur haft frá
því hann lauk guðfræðinámi var á
Höfh í Hornafirði en hann lét af
því fyrir um áratug og kom suður í
bisness. Um skeið rak hann bóka-
forlagið Tákn en það varð gjald-
þrota sem kunnugt er og Önundur
persónulega um leið. Nú vill hann
aftur út á land en óvíst er hvort
hann fái embættið því hann hefur
sótt um nokkur brauð á undan-
förnum árum en ekki fengið...
Uppselt á Reading
í nokkur ár hafa Rokkferðir KB
staðið fyrir hópferðum á risatón-
leika erlendis. Áhugi ungra Islend-
inga er alltaf að aukast á þessum
ferðum og þegar auglýstir voru
miðar á Reading-festivalið í Eng-
landi um síðustu helgi seldust allir
miðarnir upp á mánudaginnn,
samtals 30 miðar. Síðast þegar
spurðist til vom um 20 manns
komnir á biðlista. Reading festival-
ið hefur verið árvisst í 20 ár og í ár
koma fram ekki minni spámenn
en Primal Scream, Red Hot Chili
Peppers, Cypress Hill, Soundgar-
den og margir fleiri. I kjölfar þess-
arar miklu ásóknar ætla Rokkferð-
irnar að hafa vaðið fýrir neðan sig
næsta sumar en þá mun Hróar-
skelduhátíðin halda upp á 25 ára
afmæli sitt með miklum íburði...
Bubbi hræðir Jón Ól-
afsson
Bubbi Morthens hefur verið að
taka upp nýja plötu í allt sumar í
hljóðverinu Sýrlandi. Christian
Falk, sænskur poppari og upp-
tökumaður, hefur verið kóngnum
til halds og trausts en hann hefur
áður komið mikið við sögu á ferli
Bubba. Eyþór Gunnarsson var svo
heldur ekki langt undan. Platan,
sem bera mun sumarlegt nafn, hef-
ur verið kláruð og bíður útgáfu hjá
Skífunni í haust. Bubbi hlustar nú
á lögin og íhugar í hvaða röð þau
eiga að koma fýrir á plötunni.
Hann bauð nýlega völdum einstak-
lingum heim tii sín til að hlusta á
lögin og gerði sér þá að leik að spila
þyngstu lögin fýrst. Útgefandanum
Jóni Ólafssyni leist ekkert á það
ósölulega efni sem hann heyrði og
hvítnaði upp, en honum varð rórra
þegar popplögin tóku að hljóma.
Platan er annars í hinum ýmsu stíl-
brigðum: Bubbi rappar, spilar
reggae, ska og popp, en öll eru lög-
in þó mjög „Bubbaleg"...
Og fleiri hjá Skífunni
Sveitaballahetjurnar í SSSól eru
langt komnar með sína plötu og
Björn Jörundur einnig. Þó plata
Björns sé sögð sólóplata má eigin-
lega segja að þetta sé Ný danskrapl-
ata mínus Possibillies því bæði
Daníel og ÓU Hólm trommari
koma við sögu. Þá leikur gítarleik-
arinn fornfrægi Þorsteinn Magn-
ússon líka stórt hlutverk á plöt-
unni. Báðar spútnikksveitir sum-
arsins, Scope og Spoon, eru komn-
ar inn á gafl hjá Skifúnni. Fyrirtæk-
ið dreifir plötu Spoon í haust en
ekki verður um að ræða plötu hjá
Scope á árinu því Björgvin Hall-
dórsson umboðsmaður sveitarinn-
ar er mótfallinn öllu slíku strax. I
staðinn koma nokkur Scopelög út
á safnplötum. Þá sást tÖ Siggu
Beinteins og Friðriks Karlssonar
úr Nl+ innan veggja Skífúnnar og
voru þau með eitthvað sem líktist
útgáfusamningi í höndunum...
Keðjubréfin heilla
Ný keðjubréf eru kominn í gang
hér á landi. Það er þýsk keðja sem
svipar mjög til annarrar frá sama
landi sem hét Joker. Þessi nýja heit-
ir því hógværa nafni Fortune eða
auðlegð og er einnig peningakeðja.
Þeir sem kaupa sig inn fá tvö bréf
til að selja en hlutirnir verða að
ganga hratt fýrir sig því bréfin eiga
að fara fram og til baka á innan við
7 dögum...
Þorgeir farinn að
minna á Kató
Þorgeir Þorgeirsson rithöfund-
ur lætur ekki deigan síga í gagnrýni
sinni á Hæstarétt. Allt frá því hann
var dæmdur fyrir meiðyrði af
Hæstarétti og fékk svo uppreisn
æru hjá Mannréttindadómstólnum
hefur hann verið ólatur við að ráð-
ast á íslenskt réttarfar. I í gær birt-
ist kjallaragrein eftir hann undir
Þröstur vill verða
sendiherra í Bonn
Hrókeringar Jóns Baldvins
Hannibalssonar innan
utanríkisþjónustunnar, sem
kynntar voru starfsmönnum
þess fyrir nokkrum dögum,
hafa mælst vel fyrir innan
hennar sjálfrar. Gunnar Páls-
son þykir til dæmis vera sér-
lega vel að sendiherraembætt-
inu í New York kominn og aðr-
ar breytingar þykja yfirleitt
eðlilegar og hvetjandi. Þessu
fagna starfsmennirnnir og líta
svo á að Jón Baldvin hafi
„bætt ráð sitt". Síðustu tilfær-
ingar hans með menn orkuðu
tvímælis og á utanríksráð-
herraferli sínum hafa fjölmarg-
ir sendiherrar, sem notið hafa
virðingar, fallið í ónáð hjá
honum, verið kallaðir heim til
að sitja yfir auðu skrifborði. Þá
hafa sumar embættisskipanir
verið pólitískar, eins og þegar
hann skipaði Eið Guðnason í
embætti sendiherra í Osló og
sendi Kjartan Jóhannsson til
Genfar. En þrátt fyrir almenna
ánægju starfsmanna utanríkis-
ráðuneytisins með yfirboðara
sinn þessa dagana eru þeir þó
ekki í rónni.
Margir óttast nefnilega að
Jón Baldvin ætli aðstoðar-
manni sínum, Þresti ólafssyni
sendiherraembættið í Bonn
sem enn er óráðstafað. Hjálm-
ar W. Hannesson hefur gegnt
því en fer nú til Kína og tekur
við nýju sendiherraembætti
þar. Þar með losnaði girnileg
staða innan utanríkisþjónust-
unnar. Traustar heimildir
PRESSUNNAfí innan ráðuneyt-
isins herma að Þröstur sæki
það afar fast að fá stöðuna og
mun ráðherra ekki vera afhuga
því. Þröstur nam á sínum tíma
hagfræði við háskóla í Berlín
og Bochum og telur sig því
hafa erindi til Þýskalands.
Starfsmenn ráðuneytisins eru
því hins vegar mjög mótfallnir
að hann verði skipaður og
telja aðra eiga upphefðina
skilið eftir langt og fórnfúst
starf. Nú hefur þeim bæst liðs-
auki því að þýsk stjórnvöld
hafa sent ráðherra þau óform-
legu skilaboð að sósíalískur
uppruni Þrastar sé þeim lítt að
skapi.
fýrirsögninni „Er Hæstiréttur ís-
lands sakhæfúr“. Greinin fjallar um
málefrii Frakkans Bemards Gran-
otier, sem búið er að vísa úr landi
en varla er vikið orði að Hæstarétti
og fráleitt að greinin beri þessa fýr-
irsögn. Það er engu líkara en Þor-
geir hafi haff fýrirsögnina tengda
Hæstarétti af gömlum vana. Þrá-
hyggja hans er farin að minna á
Kató gamla sem endaði allar sínar
ræður á því að leggja til að Karþagó
yrði lögð í eyði...
Prestur skammar
biskup
Um síðustu helgi hélt séra Ing-
ólfur Guðmundsson síðustu
messu sína fýrir Seltirninga, í bili
að minnsta kosti, en hann hefur
verið starfandi prestur í Seltjarnar-
nessókn í fjarveru séra Solveigar
Láru Guðmundsdóttur. Séra Ing-
ólfur notaði tækifærið í síðustu
stólræðu sinni til að fara nokkuð
harkalegum orðum, að því er sum-
um kirkjugestum fannst, um herra
Ólaf Skúlason biskup og meint að-
gerðaleysi hans í deilu sem snertir
skilnaðarmál séra Solveigar og vís-
að var til biskups í vor. Þótti presti
sem biskupi bæri skylda til, sem
yfirmanni kirkjunnar, að taka á
málinu með formlegum hætti, en
ekkert hefúr heyrst um afgreiðslu
þess síðan því var vísað til Biskups-
stofu. Það er hins vegar af séra Sol-
veigu að ffétta að hún virðist enn
njóta sömu vinsæld meðal sóknar-
barna sinna ef marka má fjölda
gifdnga sem hún er beðin að sinna,
en þær voru hvorki fleiri né færri
en fjórar síðastliðinn laugardag...
I vikunni...
... uppgötvuðu sjómenn í Vestmannaeyjum að verið væri að leggja Ijósleiðara á blá-
löngumiðum þeirra. Ábendingar Hafrannsóknarstofnunar um þetta fyrir tveimur árum
komust ekki til skila, væntanlega vegna þess að flotinn var annars staðar á veiðum.
...kom Jón Baldvin Hannibalsson endanlega út úr Evrópuskápnum. Þá eru þeir orðnir
tveir, hann og Villi Egils.
... notfærði Jóhanna Sigurðardóttir sér þessar rósir formanns síns og hélt áfram að
plægja akurinn úti á landi við góðar undirtektir. Hún er á góðri leið með að verða fyrsti
bændaleiðtogi krata.
... viðurkenndi Dagsbrún að sennilega sé óréttlátt hjá þeim að rukka gjöld af launafólki
en veita því engin réttindi á móti. Sanngjarnir menn, verkalýðsrekendur.
... réð Guðmundur Árni Stefánsson engan nákominn sér til starfa hjá félagsmálaráðu-
neytinu. Hugsanleg skýring vartalin húsnæðisþrengsli í ráðuneytinu.
2 PRESSAN FIMMTUDAGURINN 21. JÚLÍ 1994