Pressan - 21.07.1994, Blaðsíða 10

Pressan - 21.07.1994, Blaðsíða 10
flp GUÐMUNDUR ARNI STEFÁNSSON Vinur hans Steen Johansen fékk um 3,7 milljónir frá heilbrigðisráðu- neytinu fyrstu sex mánuði ársins. Viðskilnaður Guðmundar Árna við heilbrigðisráðuneytið 600 ÞUSUND A MANUÐI TIL EINKAVINARINS Sighvatur hefur hugleitt að setja Ríkisendurskoðun í málið. Ekki hefur verið gripið til sparnarráðstafana sem ákveðnar voru við fjárlagagerð. Sighvatur Björgvinsson heil- brigðisráðherra hefur hugleitt alvarlega að biðja Ríkisendur- i skoðun um úttekt á fjármálum heilbrigðis- og tryggingaráðuneyt- isins eftir að upplýsingar eru fram komnar um fjárhagsstöðu þess að loknum valdatíma Guðmundar Áma Stefánssonar. PRESSUNNI er kunnugt um að óformleg samtöl hafa farið fram á | milli Sighvats og Ríkisendurskoð- I unar, en engin ákvörðun hefur ver- I ið tekin né heldur hefur formleg l beiðni enn borizt Rikisendurskoð- un. Ef til þessa kemur er það for- dæmislaust, að einn ráðherra biðji um slíka úttekt á verkum sam- í flokksmanns síns. I Eins og PRESSAN greindi frá í | síðustu viku kom Sighvatur að I sjóðum ráðuneytisins svo tO tóm- I um þegar hann tók við af Guð- ^ mundi Árna á miðju þessu ári. Þar er um að ræða það fé sem ráðherra hefur nokkuð frjálsar hendur um I að ráðstafa og er ekki bundið við I tilteknar ríkisstofnanir eða lög- I bundin útgjöld. Samtals eru þetta I 86 mifljónir, sem skiptast í „ráð- I stöfunarfé ráðherra“ (8 milljónir), I áfengis- og bindindismál, þ.e. fé til einkastofnana og frjálsra félaga- samtaka sem ekki eru á fjárlögurn (20 milljónir), og „hagræðingarfé" (58 milljónir). Öllu þessu fé hefur þegar verið eytt, samkvæmt upplýsingum blaðsins, ýmist með greiðslum sem þegar hafa verið inntar af hendi eða með bréflegum loforðum um fjár- framlög, án þess að tilgreindur sé greiðsludagur. Að auki hefur ráðuneytið farið ffarn úr fjárheimildum sem nemur um hálfum öðrum milljarði. Þá hefúr kostnaður við rekstur aðal- skrifstofu ráðuneytisins farið ffarn úr heimildum sem nemur á annan tug mifljóna það sem af er árinu, samkvæmt heimildum innan stjórnkerfisins. Meðal annarra útgjalda, sem vakið hafa athygli innan stjórnkerf- isins, eru greiðslur til upplýsinga- fúlltrúa ráðuneytisins, Steen Jo- hansen, en hann hefur fengið sam- tals um 3,7 milljónir greiddar fýrir sex mánaða starf það sem af er ár- inu. Það eru rúmlega sex hundruð þúsund á mánuði. 3,7 milljónir á hálfu ári Þegar Guðmundur Árni tók við sem ráðherra réð hann gamlan kunningja sinn, Steen Johansen, í nýja stöðu upplýsinga- og kynn- ingarfulltrúa ráðuneytisins. Steen hafði áður starfað fýrir Hafnar- íjarðarbæ að svipuðum verkefnum 10 PRESSAN FIMMTUDAGURINN 21. JÚLÍ 1994 þegar Guðmundur Árni var bæjar- stjóri. Gerður var við Steen Johansen sérstakur verktakasamningur sem hljóðaði upp á um 220-230 þúsund á mánuði, að viðbættum virðis- aukaskatti. Ofan á þessi föstu laun bætist meðal annars yfirvinna og PRESSAN hefur fýrir því staðfestar heimildir að Steen hafi fengið greiddar ffá ráðuneytinu samtals um 3,7 milljónir króna fyrstu sex mánuði þessa árs eða sem nemur rúmlega sex hundruð þúsundum á mánuði. Að ffádregnum virðis- aukaskatti gera það tæplega fimm hundruð þúsund í tekjur á mán- uði. I samtali við blaðið sagði Guð- mundur Árni þessa tölu „út í hafs- auga“, en vildi ekki ræða önnur efnisatriði málsins, sagði þau „vit- leysu, rugl og óhróður“. Hann neitaði því einnig að það ráðstöf- unarfé, sem að ofan greinir, væri upp urið. Fyrir hvoru tveggja hefúr blaðið þó traustar og óyggjandi heimildir úr stjórnkerfinu. Fjármálaráðuneytið í málið Þegar upplýsingar lágu fýrir um útgjöld heilbrigðisráðuneytisins á árinu var skipuð samstarfsnefnd sem vinnur með fjármálaráðuneyt- inu að því að leita leiða til að draga úr útgjöldum það sem eftir lifir árs, svo minnka megi fýrirsjáanlegan framúrakstur. Sú nefnd hefur ekki skilað af sér. Um hálfur milljarður af fýrirsjá- anlegri eyðslu umffam fjárlaga- heimildir á rætur að rekja til ákvarðana ríkisstjórnar í tengslum við kjarasamninga, en eftir stendur um það bil milljarður sem eytt hef- ur verið án áður gefinna heimilda. Að sögn embættismanna í fjár- málaráðuneyti skiptir þar mestu að ekki hefur verið gripið til sparnað- arráðstafana sem ákveðnar voru við fjárlagagerð. Samtals áttu að sparast 500-600 milljónir í lægri lyfjakostnaði og minni kostnaði vegna aðkeyptrar vinnu sérffæðinga í heilbrigðis- og tryggingakerfinu. „Það er ekki farið að hreyfa legg né lið í þessu,“ sagði embættismaður í fjármálat'áðu- neytinu um þennan lið. Heilbrigð- isráðuneytið fór í sérstaka auglýs- ingaherferð til að hvetja lækna og sjúklinga til að nota ódýrari sam- heitalyf, en sú herferð skilaði engu í lægri þ'fjakostnaði, að sögn þeirra sem til þekkja. (Ranghermt var í ffétt í síðustu viku að kynningar- fýrirtækið Athygli hefði unnið að þeirri herferð fyrir ráðuneytið; At- hygli tók að sér verkefni í kynning- ar- og útgáfumálum fýrir ráðu- neytið nokkru síðar, en ekki er vit- að hvort eða hvernig þau mál tengdust störfum upplýsingafull- trúans.) Rekstur sjúkrahúsa á höfuðborg- arsvæðinu hefúr orðið mun dýrari en ráð var fýrir gert og tekjutrygg- ing ellilífeyris hefúr ekki orðið að veruleika eins og ákveðið hafði ver- ið. Að viðbættum öðrum „smærri“ liðum þurfa embættismenn nú að takast á við um það bil milljarð í umffameyðslu frá því sem fjárlög gera ráð fyrir. Ekki er margra kosta völ í spam- aði eða niðurskurði þegar komið er ffam á seinni hluta árs, en nefndin vinnur nú að hugsanlegum lausn- um. Heimildir í stjómkerfinu herma að Sighvatur hafi hugleitt að afturkalla einhver af þeim bréflegu loforðum um fjárútlát, sem Guð- mundur Árni hafði sent ffá sér, en ólíklegt er að af því verði. Ekki eru fordæmi fyrir því að nýr ráðherra hafi afturkallað bréfleg loforð fýrir- rennara síns með þeim hætti og er mat embættismanna, sem PRESS- AN ræddi við, að ráðuneytið gæti með því átt yfir höfði sér skaða- bótakröfur. Töluverður titringur Töluverður titringur er nú innan stjórnkerfisins vegna þessara mála allra og bætir ekki úr skák að á sama tíma berast upplýsingar um úttekt á fjárreiðum Hafnarfjarðar- bæjar, sem nú er unnið að. Þar þykist nýr meirihluti hafa rekizt á eitt og annað sem þarfnist ffekari skoðunar, svo sem PRESSAN greindi ffá í síðustu viku. Niður- staðna úr þeirri úttekt er að vænta um mánaðamótin ágúst-septem- ber. Málið hefur ekki verið rætt formlega innan Alþýðuflokksins, en Jóni Baldvin Hannibalssyni formanni flokksins er kunnugt um það og hafa þingmenn rætt það sín á milli. Af stuttu samtali PRESS- UNNAR við Guðmund Árna mátti ráða að hann teldi að upplýsingar um fjárreiður heilbrigðisráðuneyt- isins væru af pólitískum rótum sprottnar og ætlaðar til að koma höggi á sig. Karl Th. Birgisson ásamt Siguröi Má Jónssyni

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.