Pressan - 21.07.1994, Blaðsíða 21

Pressan - 21.07.1994, Blaðsíða 21
Draumurinn raumur minn er nú loks- ins að rætast. Mig langar að búa úti og vinna þar og því verður þetta góður undirbún- ingur“ sagði Maríus Sverrison sem nú ætlar að kveðja landann og halda utan til náms. Hann mun stunda nám í söngleikjadeild lista- háskólans í Vínarborg (Hoch- schule fur Musik und darstellende Kunst) en þessi skóli nýtur mikillar virðingar og til gamans má geta þess að móðir hans, Margrét Pálmadóttir, stundaði þar nám í klassískum söng. „Tónlistardeildin sérhæfír sig í söngleikjum en þarna er rosalega mikil danskennsla og að sjálfsögðu leiklist og söngur. Eg er núna að fara útí músíkal söng sem er öllu léttari en klassíski söngurinn. Maður er búinn að vinna svo mik- ið við þetta að smátt og smátt hef- ur maður sogast nær þessu“. Mar- íus hefur tekið þátt í söngleikjum hér heima og má þar nefna My fair lady og Skilaboðaskjóðuna en einnig var hann hluti af Óska- bömunum sem tróð upp í Þjóð- leikhúskjallaranum. Hann hefur stundað nám við Söngskóla Reykjavíkur í 3 ár og við Tónlistar- skólann í Reykjavík í eitt og hálft Maríus ætlar, ásamt nokkrum vinum, að fagna þessum merka áfanga í lífi sínu með því að halda styrktartónleika fimmtudaginn 21. júlí, kl.21.00. Tónleikarnir hafa hlotið vinnuheitið Bamið burt! og verða þeir haldnir í húsnæði Kvennakórs Reykjavíkur. Þeir sem koma fram ásamt Maríusi verða: Páll Óskar og Milljónamæring- arnir, Steinunn Ólína Þorsteins- dóttir, Ragnheiður Ámadóttir, Aðalheiður Þorsteinsdóttir, Dav- id Knowles og Felix Bergsson auk þess sem hann verður kynnir kvöldsins. Miðaverð er 1000 krón- ur og mun allur ágóði renna í Námsstyrktarsjóð Maríusar (Mar- íus’ Scholarship Fund). „Tónleikarnir verða á léttari_ nótunum, voða mikið djass en einnig verður þetta í söngleikja- og kabarett stíl. Palli og Steinunn verða í latín fíling og svo munu Millarnir taka lög af nýju plötunni. Þetta verður líflegt“. Maríus ædar sjálfur að taka ein- sog 2 lög í klassískum dúr og eru allir að sjálfsögðu velkomnir. Heitir hönnudir I Þetta er búið að vera lengi í maganum á okkur en það eru tveir mánuðir síðan mennirnir okkar samþykktu þetta og við fengum okkur húsnæði. Þetta virðist æda að takast hjá okk- ur“, sagði Bára Hólmgeirsdóttir sem ásamt Alfreð Kristinssyni, Sigrúnu Guðnýju Markúsdóttur og Gísla Þór Gíslasyni er að opna verslunina Flauel, Tískumiðstöð, í húsinu númer 1 við Laugaveginn. Þessar ungu dömur eru ekki alls óreyndar í bransanum því báðar störfuðu þær áður sem verslunar- stjórar, Sigrún í versluninni Sautj- án en Bára í Spútnik. „Okkur fannst tími til kominn að það kæmi ferskt ungt fólk inn í verslunarrekstur hér í miðbænum. Við erum með ferskar og góðar hugmyndir og reynslunni ríkari ffá fýrri störfum. Gamla Skósalan var hérna til húsa í 40 ár þannig að hérna eru góðir andar“ bætti Bára við. Það má með sanni segja að ný kynslóð sé að ryðja sér til rúms í verslunarrekstri bæjarins en ekki alls fýrir löngu voru opnaðar versl- anirnar NOI og Frikki og dýrið. Þar eru einnig á ferð ungir verslun- areigendur sem bjóða uppá allt það nýstárlegasta í tísku unga fólksins í dag. í Flauel, Tískumiðstöðinni verða tU sölu notuð og ný föt, gott úrval af herra- og dömufatnaði og meðal annars Burro herrafatalínan sem ekki hefur fengist hérlendis áður. „Burro línan inniheldur mjög sérstök föt í breskum stfi. Burro er mjög heitur hönnuður um þessar mundir og á mikilli uppleið. Við verðum líka með skó, töskur og skartgripi,“ sagði Bára að lokum, en almenningur fær að berja dýrð- ina augum föstudaginn 22. júlí. Sigrún og Bára fyrir utan verslun sína. Á Simmtudag ...Barninu burt! en það nefnast styrktartónleikar Maríusar Sverrrissonar sem kveður landann að sinni. Haldnir í húsnæði Kvennakórs Reykjavíkur. ...að fólk fylgist með hala- stjörnuárekstrunum á Júpiter. Þetta er auðvitað geimsögulegur stórviðburð- ur og hægt er fylgjast með honum á tölvunni sinni, þ.e.a.s. ef maður er tengdur tölvunetinu VWVW, The World Wide Web, og þá j forriti sem heitir Mosaic. í dag er mikið um læti og spáð er að þrjú fjögur brot hrapi niður. ...að leigubfistjórar haldi kjafti þegar maður notar sér þjónustu þeirra. Hvað varð- ar mann um það sem þeim finnst um Jón Baldvin og EES og EB eða hvað sem þetta heitir? Maður er ekki að borga fyrir speki þeirra og ef maður vill heyra hvað leigubíistjórum landsins finnst hlustar mað- ur bara á Þjóðarsálina. FIMMTUDAGURINN 21. JÚLÍ 1994 PRESSAN 21

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.