Pressan - 21.07.1994, Blaðsíða 28

Pressan - 21.07.1994, Blaðsíða 28
Innan Alþýðuflokks- ins í Reyjavík virðist andstaða fara vaxandi við það að Jóhönnu Sig- urðardóttur verði leyft að bjóða fram AA-lista til hliðar við Alþýðuflokkinn í alþingiskosningum. Sá listi hefði þann kost íyrir Alþýðuflolddnn að at- kvæði honum greidd myndu nýtast flokknum við úthlutun uppbótar- sæta, en það virðist ekki duga krötum í Reykjavík. Forystumenn þar segjast líta á deilurnar við Jó- hönnu eins og slæmt hjónaband, sem fyrr en síðar verði að ljúka, en ekki reyna að halda lífinu í. Á meðan er Jóhanna í liðskönnun sinni um landið ein á ferð og hefur tekið stirt í samstarf við krata á landsbyggðinni. Þannig buðust alþýðu- flokksmenn á Austurlandi til að skipuleggja fyrir hana fundi um kjördæm- ið, en hún vildi ekkert með það hafa og heldur enga formlega fundi á ferð sinni... Ivangaveltum um haustkosningar eru menn farnir að velta fýrir sér framboðsmálum. Spurst hefur að Vilhjálm- ur Egilsson íhugi að færa sig til á milli kjördæma, úr Norðurlandi vestra til Reykjavíkur, og fetaði þar í fótspor nestorsins Eyj- ólfs Konráðs Jónssonar. Við sæti Vilhjálms nyrðra tæki þá séra Hjálmar Jónsson. Innan Álþýðu- flokksins eru stærst spurningamerki sett við framboð á Reykjanesi, þar sem miklar breytingar hafa orðið frá síðustu kosningum. Innan flokks- ins hafa áhrifamenn nú nokkrar áhyggjur af því að vanti „þungavigtarmann" ofarlega á listann, en efstu menn að óbreyttu yrðu Rannveig Guðmunds- dóttir, Guðmundur Ami Stefánsson og Petrína Baldursdóttir. Það minnkar ekki áhyggjurnar að við fljótlega yfirferð er enginn sjáanlegur líklegur kandídat... VIÐ HLUSTUM ALLAN SÓLAR- HRINGINN 643090 PRESSAN/31/V3

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.