Pressan


Pressan - 21.07.1994, Qupperneq 6

Pressan - 21.07.1994, Qupperneq 6
Ekkert hefur enn spurst til Valgeirs Víðissonar sem hvarf í skyndingu frá heimili sínu 19. júní síð- astliðinn. Kunningjar hans segja hann hafa verið í klandri og skuldað umsvifamiklum fíkniefnasöl- um fúlgur. í undirheimum Reykjavíkur tengja allir hvarf hans fíkniefnaviðskiptum. Margir fíkni- efnasalar hafa hægt um sig vegna þess að lögreglan beinir sjónum sínum að þeim við rannsókn málsins. „Umtalao að búið sé að drepa Valgeir" — segir kunningi hans í samtali við PRESSUNA Eg er hræddur um að það sé búið að drepa hann,“ sagði gamall kunningi Valgeirs Víðissonar í samtali við PRESSUNA á þriðjudag. Valgeir er þrítugur Reykvíkingur sem saknað hefur verið frá 19. júní síðastliðnum án þess að nokkrar áreiðanlegar vís- bendingar hafi borist um ferðir hans. „Það er umtalað að búið sé að kála Valgeiri þótt ég geti ekkert fullyrt um það,“ sagði sami maður. Af samtölum við fólk sem þekkir vel til í fíkniefnaheimi Reykjavíkur má greinilega ráða að flestir ganga að því sem vísu að hvarf Valgeirs tengist viðskiptum með fíkniefni. Einn heimildarmanna PRESS- UNNAR fullyrti að Valgeir hefði verið í klandri og það væri út- breidd skoðun að hann hefði verið drepinn vegna þess að hann skuld- aði umsvifamiklum fíkniefnasölum sem svifúst einskis stórar fúlgur. Fleiri höfðu sömu sögu að segja. Hvort sem það reynist rétt eða ekki er ljóst að harkan í undir- heimum glæpa og fíkniefna í Reykjavík er komin á nýtt stig. f nokkur ár hefur þekkst að mönn- um sé misþyrmt ef þeir standa ekki skilum við stóra innflytjendur og sölumenn fíkniefna. Sú þróun hef- ur gengið svo langt að sérstakir menn eru jafhvel fengnir til slíkra verka. Og nú er óttast að fíkniefha- salarnir grípi jafnvel til morða í innbyrðis deilum sínum. Hvarf Valgeirs kom ekki á óvart vegna lífsmáta hans Kona sem þekkti Valgeir fyrir nokkrum árum segir að hvarf hans hafi ekki komið neinum á óvart sem þekkti til lífsmáta hans. „Ég veit að hann hefur ekki breytt um líf og hann var fastur í sarna mynstrinu," sagði hún. „Það virtist því ekki koma neinum á óvart þeg- ar hann hvarf.“ Hún og fleiri heimildarmenn sögðu að Valgeir hefði verið um- fangsmikill í sölu fíkniefna. Bæði hefði hann verið stór milliliður, með því að kaupa fíkniefhi í stór- um skömmtum af innflytjendum og selja áfram til smásala, einnig hafi hann flutt inn efni sjálfur og selt beint til fíkniefhaneytenda. Langur afbrotaferill Valgeirs styður þær fullyrðingar. Greinilegur ótti er meðal fólks sem lifir í þessum heimi. Þótt sumir væru tilbúnir að tjá sig nafnlaust um hvarf Valgeirs var greinilegt að enginn þorði að gefa upp nein nöfh sem tengst gætu hvarfi hans af ótta við viðkomandi. Og þar sem fíkniefhalögreglan tengist leitinni hafa margir hægt um sig þessa dagana. Margir hafa verið yfirheyrðir vegna málsins og ótal fíkniefnasalar eru undir smá- sjánni. „Það er útilokað annað en að fíkniefnalögreglan sé á kafi í rannsókninni,“ sagði heimildar- maður. Rannsóknin beinist í aukn- um mæli að fíkniefna- heiminum Faðir Valgeirs, Víðir Valgeirs- son, unnir sér ekki hvíldar við leit- ina að syni sínum. f samtali við PRESSUNA í gær sagðist hann vera orðinn óttasleginn. „Ég get ekki útilokað neitt,“ sagði hann að- spurður um möguleikann á því að Valgeiri hafi verið unnið mein. Víðir hefur rætt við vini og kunn- ingja Valgeirs en einskis orðið vís- ari. Þegar hann var spurður hvort meiri líkur væru til að finna vís- bendingar um hvarfið á einum stað en öðrum var svarið: „Ef ég vissi það væri ég að leita þar.“ Ekki var tilkynnt til lögreglunnar að Valgeirs væri saknað fyrr en um síðustu mánaðamót. Faðir Valgeirs hafði heyrt af ferðum hans nokkr- um dögum effir að hann hvarf frá heimili sínu og hafði því ekki telj- andi áhyggjur þegar hann fór til sjós. Þegar ekkert hafði hins vegar spurst tU Valgeirs viku síðar þegar Víðir kom í land leitaði hann til lögreglunnar. Um tíma var talið að Valgeir hefði farið í felur og jafnvel farið til útlanda undir fölsku nafni. Sá möguleiki þykir langsóttur. Bæði var Valgeir auralítUl og hvarf í skyndingu af heimili sínu sem marka má af því að hann skyldi eft- ir kveikt á sjónvarpi og loftljósi, að sögn föður hans. Þá er talið fúllvist að það hefði spurst út effir allan þennan tíma, en hvorki faðir hans né aðrir ættingjar hafa heyrt frá honum. „Ég tel útilokað að hann hefði komist úr landi án hjálpar," sagði einn heimUdarmaður. „Og ef það hefði gerst væri það ábyggilega komið í ljós við rannsóknina. Það gæti ekki farið svona leynt.“ Fram að þessu hefur lögreglan í Reykjavík farið með rannsókn málsins. Opinberlega er rannsókn- inni háttað eins og um hvert annað mannshvarf sé að ræða og ekkert er útilokað. Vegna tengsla Valgeirs við fíkniefnaheiminn hefur fíkni- nefnadeildin þó tekið þátt í rann- sókninni. Frá upphafi hefúr því verið gert ráð fyrir þeim möguleika að hvarf hans tengist fíkniefnavið- skiptum og þungamiðja rannsókn- arinnar hefur í auknum mæli beinst að þeim möguleika, sam- kvæmt heimildum PRESSUNNAR. Jafnframt hefur Rannsóknarlög- regla ríkisins fylgst vel með gangi mála. Á þriðjudag var svo tilkynnt að lögreglan í Reykjavík og Rann- sóknarlögreglan færu sameiginlega með rannsóknina og er búist við að Rannsóknarlögreglan taki hana al- farið yfir á næstu dögum. Þær regl- ur gilda við rannsókn mannshvarfa að ef viðkomandi er talinn látinn þá tekur Rannsóknarlögreglan við henni af viðkomandi lögregluemb- ættum. Lögreglan og björgunarsveitir hafa gengið fjörur, kannað eyjar á Sundunum og kannað aðra þá staði í Reykjavík sem blasa ekki við vegfarendum. Slíkri formlegri leit hefúr nú verið hætt en allar hugs- anlegar vísbendingar kannaðar. Sjónir rannsóknarmanna beinast þessa dagana fyrst og fremst að þeim heimi sem Valgeir lifði og hrærðist í. Hefur farið illa út úr fíkni- efnunum Síðustu vikurnar fyrir hvarfið hafðist Valgeir við í íbúð ofarlega á Laugaveginum ásamt vini sínum en lengi vel bjó hann með föður sínum. Hann vann tilfallandi störf en þó ekki reglulega. Þeir sem til þekkja segja að hann hafi að mestu haft sitt lifibrauð af sölu fíkninefna. Um tíma braskaði hann með bíla, seldi veiðimönnum ánamaðka á sumrin og greip svo annað veifið í störf sem buðust. Sem unglingur var hann eitthvað í Eyjum og stundaði þá sjó um tíma. „Ég veit hins vegar ekki til þess að hann hafi nokkum tíma verið í fastri vinnu,“ segir gamall vinur hans. Á unglingsámnum og ffarn yfir tvítugt tilheyrði Valgeir klíku sem var á kafi í neyslu fikninefna. I dag eru flestir hættir neyslunni. Einn úr hópnum sagði að Valgeir hefði far- ið í meðferð inn á Vog fyrir nokkr- um árum en honum hafi ekki verið mikil alvara með því. „Hann var frekar að reyna að ná sér niður eftir mikla neyslu,“ sagði hann. Valgeiri er lýst sem lágvöxnum og ffernur hæglátum manni. Sá sami og vitnað er tO hér að ofan segir að Valgeir hafi alla tíð átt erf- itt uppdráttar. „Fíkninefnin vom hans leið út úr því, þau voru hans töffaraskapur. Þegar ég umgekkst Valla var hann aUt í lagi en síðustu árin hefur hann umgengist meiri krimma og harðara lið.“ Annar gamall vinur tekur í sama streng. „Fyrst þegar ég kynntist Valgeiri var hann ósköp venjulegur strákur og mér kom ekki til hugar að hann væri í þessum bransa. Hann var fínasta grey og aldrei langt í góðmennskuna hjá honum. En hann fór illa út úr fikninefnun- um og með tímanum varð hann brjálaðri í skapinu svo að það var orðið erfitt að umgangast hann.“ Viar hann hœttulegur? „Nei, ætli það.“ Hann hefur ekki hlotið tieina dóma fyrir ofbeldisverk. „Menn fá einhverja aðra í svo- leiðis.“ Áttu við að Valgeir hafi einhvern tímafengið menn tilslíkra verkafyr- ir sig? „Nei, ég er ekki að segja það.“ Valgeir var lítt áberandi en í undirheimum Reykjavíkur vissu allir hver hann var. „Hann var aldrei mjög áberandi og fór ekki mikið út á meðal fólks,“ sagði einn um hann. Langur afbrotaferill Valgeir á sér langan afbrotaferil þrátt fyrir að hann sé ekki nema tæplega þrítugur að aldri. Flest þessara brota tengjast neyslu fikni- nefha, innflutningi þeirra og sölu. Auk þess hefúr hann orðið uppvís að þjófnuðum og fleiri afbrotum. Fjöldi afbrotanna hleypur á nokkr- um tugum en dómar og dómsáttir eru miklu færri þar sem dæmt hef- ur verið samhliða í mörgum mál- um. Samtals hefúr Valgeir verið dæmdur til fangelsisvistar í eitt ár og níu mánuði. Nú á hann svo yfir höfði sér nokkurra mánaða dóm ef að líkum lætur. Á þriðjudag var þingfest hjá Héraðsdómi Rcykjavíkur ákæra yf- ir Valgeiri og íslenskri stúlku fyrir að hafa reynt að smygla 267 grömmum af amfetamíni tO lands- ins í desember síðastliðnum. Sam- kvæmt heimOdum PRESSUNNAR mun stúlkan hafa tekið að sér að smygla fikninefnunum til landsins fyrir Valgeir gegn þóknun, verið svonefnt burðardýr. Auk þess er hann ákærður fýrir sjö minni brot á fikniefhalöggjöfinni sem rekja má til þess að fundist hafa minni skammtar af fíkninefnum hjá hon- um á undanförnum misserum. Að vonum hefur ekki verið hægt að birta Valgeiri ákæruna og því ekki búið að skipa honum verjanda í málinu. Valgeir komst fýrst í kast við lög- in snemma árs 1980, þá aðeins fimmtán ára að aldri, fýrir þjófnað. Hann gekkst undir dómsátt í formi sektar en ákæru var frestað skil- 6 PRESSAN FIMMTUDAGURINN 21. JÚLÍ1994

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.