Vísir Sunnudagsblað - 10.11.1940, Side 7
VÍSIR SUNNUDAGSBLAÐ
7
KOLBEINN KARLSSON:
JAÐAR
i.
í fyrnsku, eldar eyddu
svo iðjagrænni hlíð.
Og háð var dauðans dökka
og dapurlega stríð.
Þá týndu lífsins ljósi
hin ljúfu blómin fríð.
Og allt varð auðn, og myrkur
um apalhraunið seig.
Og fölnað strá á foldu,
að faðmi jarðar hneig.
— Þar kenna mátti kala
og kvíðafullan geig.
II.
En þegar árin ófust
í aldaraðir þétt.
Þá kom hann blærinn blíði,
og bærðist undur létt.
— Á bjarta framtíð frjálsa,
var fyrirheitið sett.
Og mosinn hafði mildað
þau mein, er landið bar.
Og svo fór gras að grænka,
er gréri hér og þar.
Það vakti margar myndir,
og minnti’ á það sem var.
Þá birtust ljúfir litir,
og ljós frá morgunsól.
Hinn nýi, glaði gróður,
í geislum, vonir ól.
— Já, harmsagan var horfin;
en hilling drauma fól.
III.
Á ný var landið numið,
og nöktum stöðum breytt
í gróðurreit. Af gleði
var glæstu afli beitt,
svo landið bjarta, besta,
þá blómin gætu skreytt.
Nú vex þar víðihrísla,
mót vorsins sólu hlær.
Á blóðrót og á birki,
þau blika tárin skær.
■— Já, moldin hún er máttug.
og myrkrið þokast fjær.
Þitt iand er ljósi stafað,
og laugað daggarhjúp.
Þar ríkir háleit hugsjón,
og heilög kyrðin djúp.
— Þar hefir sókndirfð sigrað.
Þín sál er hrein og gljúp.
—• Jæja, kunningi! Þá ertu nú
búinn að reyna sætleik hjóna-
bandsins.
7- Jú-jú. Sætabrag'ðið stoð nú
ekki lengi. —
— Jæja. Er jDað fariS að dofna?
•—• Og meira en þaS, lagsma'ður!
Fyrstu vikurnar var hún sæt eins
og rauður kandís, en nú er hún
oröin beisk og römm eins og
djöflarót!
Hann: Gefið mér koss, kæra
ungfrú!
Hún: Eg hefi aldréi nokkurn-
tima kyst karlmann!
Hann: Sama segi eg. Eg hefi
að minnsta kosti ekki gert það sith
an eg var smá-patti!
Kontrakt-Bridge
___ Eftir frii Kristínu Norðmann _
Fimmlitaspil.
Reglur um Auktionsbridge.
Spilin eru gefin eins og
venjulega og byrjar sá sögn, er
gefur. Fær liver spilari 16 spil.
Verður þá eitt spil afgangs og
er það lagt á borðið. Sá, sem
að lokum ræður sögn, fær þetta
spil. Eftir fyrsta útspil, er lion-
um lieimilt að skjfta á því og
sérhverju öðru spili, sem hann
vill, frá sjálfum sér eða blind-
um,. Spilið, sem hann lætur af
hendi, leggur liann hægra meg-
in við sig á borðið, og er það
lagt í fyrsta slag.
Hin svokallaða bók eru 8
slagir, og þarf þá 9 slagi lil þess
að vinna t. d. 1 lauf, 10 slagi til
að ,vinna 2 lauf, en 11 slagi til
að vinna 3 lauf o. s. frv.
Gildi litanna í sögn er sem
hér segir: Kóróna er hæst, þvi
næst spaði, svo lijarta, þá tíg-
ull, en laufið lægst.
Gildi slaga er:
Grand ......... 12
Kóróna ........ 10
Spaði .......... 9
Hjarta ......... 8
Tigull ......... 7
Lauf ........... 6
Til þess að vinna i game
þarf 36.
Vinningur fyrir rúbertu er
250, en hvorirtveggja spilar-
anna fá 100 fyrir fyrsta game.
Vinningur fyrir hálfslem er
100, en fyrir alslem 200. Til
þess að vinna hálfslem þarf 15
slagi, en 16 slagi til þess að
vinna alslern.
Vinningur fyrir sagt og unn-
ið hálfslem er 300, en vinning-
ur fyrir sagt og unnið alslem
500.
Háspil: Vinningur fyrir 4 ása
eða 4 háspil á einni hendi er 50,
en fyrir 5 ása eða 5 háspil á
einni hendi 100.
1
* \
Fimmlitaspil.
Reglur um Kontraktbridge.
Spilin eru gefin eins og
venjulega og byrjar sá sögn,
er gefur. Fær hver spilari 16
spil. Verður þá eitt spil afgangs
og er það lagt á borðið. Sá, sem
að lokum ræður sögn, fær þetta
spil. Eftir fyrsta útspil, er hon-
um heimilt að skifta á þvi og
sérhverju öðru spili, sem hann
vill, frá sjálfum sér eða blind-
um. Spilið, sem hann lætur af
hendi, leggur hann hægra meg-
in við sig á borðið, og er það
lagt í fyrsta slag.
Grand er hæsta sögnin, þar
næst kóróna, síðan koma hinir
fjórir litirnir: spaði, hjarta,
tigull og lauf.
Gildi slaga er:
Grand .......... 50
Kóróna ......... 40
Spaði .......... 30
Hjarta ......... 30
Tígull ......... 30
Lauf ........... 30
Hin svokallaða bók eru 8
slagir. Ef sagt er t. d. 1 lauf,
þýðir það 1 fram yfir 8, eða
9 slagir, 2 lauf eru þá 10 slagir,
3 lauf 11 slagir o. s. frv.
Til þess að vinna hálfslem
þarf 15 slagi, en 16 slagi til þess
að vinna alslem.
í einni rúbertu eru tvö game,
og þeir spilaranna, sem fyrr
verða til að vinna þau, vinna
rúhertuna. Til þess að vinna 1
game þarf 150, en það eru 5
í fjórum litunum, laufi, tigli,
hjarta og spaða (13 slagir), í
kórónu þarf 4 (12 slagir) og
í-grandi aðeins 3 (11 slagir).
Vinningur fyrir rúbertu et-
750, auk þess fá livorirtveggja
spilaranna 250 fyrir fyrsta
game. Er þá vinningur fyrir
rúhertu i tveim gam,eum 1000,
en í þrem 750.
Vinningur fyrir hálfslem er
500 utan hættu, en 1000 i hættu.
Vinningur fyrir alslem er 1000
utan hættu, en 2000 i hættu.
Tapslagir: Utan hætlu í hættu
1 tapsl. 50 100
2 — 100 200
3 — 150 300
og svo framvegis.
Tapslagir: Doblað Doblað
1 tapsl. 100 200
2 — ^ 200 400
3 — 300 600
og svo framvegis.
Háspil:
5 ásar á einni liendi í
grandi .................. 300
4 ásar á einni hendi i
grandi ................. 150
5 háspil á einni hendi 150
4 háspil á einni hendi 100
i
Spilið úr síðasta Sunnudags-
blaði (3. nóv.):
Suðuk spilar út tígulás, og
þar næst tíguldrotningu. Aust-
ur tekur með kóngnum. Nú
verður austur annaðhvort að
spila út laufaníu eða frá hjarta-
drotningunni. Norður kemst
inn t. d. á laufagosanri, suð-
ur kastar tíguláttu. Þá spilar
norður tveimur lágtiglum, en
suður kastar lijartatvisti og
fjarka. Á hánn þá aðeins eftir
kóng og tíu i hjarta; spilar
hjarta frá norðri, austur kemsl
í milliliölld með drotninguna,
en suður á báða slagina.
Hittog þetta
UmljoðsmaSur líftryggingarfé-
lagsins var kominn og vildi fá hús-
bóndann til þess aS tryggja líf
sitt.
— Eg ráSlegg ySur aS taka svo
sem 20 þúsund króna tryggingu.
Minnist þess, aS þér eigiS íyrir
konu og börnum aS sjá.
— Eg skal segja yður rétt eins
og er, svaraSi maSurinn. Eg þori
þaS ekki. Konan mín hefir þríveg-
is reynt aS ráSa mig af dögum —
og átti þó ekki von á einni ein-
ustu krónu!
— ÞaS sér á, aS nú erum viS
gift, sagSi Karen viS manninn
sinn. Þú varst öSru vísi, meSan eg
lét þig ganga á eftir mér meS gras-
iS í skónum.
— Gættu aS þvi, væna mín,
sagSi maSurinn hennar, aS maS-
ur hleypur ekki á eftir þeim spor-
vagni, sem 'maSur situr í! MaSur
bíSur þess meS óþreyju, aS hann
nemi staSar!
Hann: Eg hefi lengi veriS aS
hugsa um aS bi'Sja ySar, mín kæra
Salóme, en eg veit ekkert hvernig
hvernig eg á aS fara aS því!
Hún: Þetta nægir. Og nú skulu
þér tala nánar um þaS viS hann
pabba!
Hún (meS ákafa) : Þess vildi eg
óska, þaS segi eg satt, aS hann
Önundur þar í GerSi færi nú aS
herSa sig upp og biSja hennar
Stebbu okkar hreinlega! Mér er
ekki um þetta gauf og hangs i
þaS óendanlega!
Hann (hægur): Eg er nú orS-
in heldur vonlítill, síSan hann gisti
hér í vetur, skinniS aS tarna, og
heyrSi lætin í ykkur mæSgunum !
— Ó — herra læknir! Eg er svo
hræddur um, aS eg eigi skamt eft-
ir ólifaS.
—• Og hvers vegna haldi þér
þaS ?
— Gullpenninn minn er brotinn.
En þegar eg keypti hann, var mér
afhent skrifaS skjal, þar sem á-
hyrgS var tekin á því, aS penninn
entist mér til æviloka!
Forstjórinn hrekkur upp af vær-
um blundi og fórnar höndum í
skelfingu, því aS innbrotsþjófur
meS grímu fyrir andliti og byssu
í hendi stendur yfir honum og
miSar á hann.
Innbrotsþjófurinn: Engin köll
eSa hávaSa, herra rninn! Eg full-
vissa ySur um, aS þetta er bara
draumur! — SýniS mér seSla-
„veskiS“ ySar rétt sem snöggvast
og svo er eg farinn!