Vísir Sunnudagsblað - 27.09.1942, Síða 4

Vísir Sunnudagsblað - 27.09.1942, Síða 4
4 VlSIR SUNNUDAGSBLAÐ í VÍKING VIÐ STRENDUR AMERÍKU, EFTIR LOWELL THOMAS. Það, sem menn frétta nú um kafbátaliernað Þjóðverja við Ame- ríku, er yfirleitt af mjög skornum skammti, en í síðustu heims- styrjöld voru kafbátar Þjóðverja einnig sendir í víking vestur um haf. Ameríski blaðamaðurinn Lowell Thomas hefir ritað bók um þátttöku þýzku kafbátanna í þeirri styrjöld og eru hér teknir upp nokkrir kaflar, sem fjalla um hernað þeirra við strendur Ameríku. í byrjun júnímánaðar árið 1918 fluttu blöð um öll Banda- ríkin miklar og ískyggilegar fregnir af styrjöldinni í Evrópu. Þjóðverjar ruddust suður Frakkland og virtust óstöðv- andi, en Bandarikjaherinn var á leið til vígstöðvanna til að taka þátt í bardögum. Spurning- in, sem var á allra vörum, var sú, hvort bandamenn hefði nœgilegt þol til að standast hina ægilegu sókn Þjóðverja, þangað til þeir yrði örmagna. Þá kom allt í einu fyrir atvik, sem yfírgnæfði allt annað. Blöðin notuðu stærstu fyrirsagnaletur sín við frásagnir af þessu: ÞÝZKUR KAFBÁTUR HERJAR VH) STRENDUR BANDARÍKJANNA. Skipum var sökkt rétt við hafnarmynni helztu hafnar- borganna á Atlantshafsströnd- inui. Styrjöldin var komin heim að bæjardyrum Bandaríkja- manna. Þjóðverjar höfðu greitt högg þvert yfir Atlantshafið. Það högg var þungt og olli miklu tjóni. Vegna þess, að þessi hluti kafbátahernaðarins hlaut að vera Bandaríkjamönnum minn- isstæður, lék mér mikill áhugi á að kynnast honum meira og þeim mönnum, sem höfðu af- rekað það, er hafði verið talið ómögulegt. Eg leitaði því á náð- ir flotamálaráðuneytisins þýzka. Þar fékk eg þær upplýsingar, að sjö af stærstu kafbátum Þjóðverja hefði fengið skipun um að fara vestur um haf og leggja tundurduflum og herja á skip milli Cod-höfða og Kay West. Þessir sjÖ voru: U-151 undir stjórn von Nost- itz und Janckendorf, skipherra, sem fór frá Þýzkalandi 18? ap- ríl 1918, kom heim aftur seint í júlí og var i viking við Ame- AMERÍSK SKONNORTA BRENNUR EFTIR SPRENGINGU. KÖRNER, STÝRIMAÐUR. ríkustrendur frá 15. maí til 1. júlí. U-156 undir stjórn Richard Feldt, skipherra, sem fór að heiman um 15. júni, herjaði við Ameríku frá 5. júlí til 1. sept- ember, en rakst á tundurdufl í varnabeltinu mikla milli Skot- land og Noregs á heimleiðinni og fórst með allri áhöfn. U-140 undir stjórn Kopham- els, skipherra. Þessi kafbátur fór frá Þýzkalandi 22. júní 1918, var við Ameríku frá 14. júlí til 1. september og kom. heim aftur í októbermánuði. U-117 undir stjórn Drösch- Qrs, skipherra, sem fór frá Þýzkalandi í júlí 1918 og varð U-140 samferða heim. U-155, sem áður hafði verið flutningakafbáturinn „Deutsch- Iand“. Skipherrann hét Eckel- mann og fór hann að heiman í ágústmánuði, herjaði frá 7. september til 20. október og kom heim skpmmu eftir að vopnahléð hafði verið samið. U-152, er var undir Franz, skipherra. Hann var við strend- ur Ameríku frá 20. september til 20. október oig kom heim eftir að hætt var að berjast U-139, undir stjórn Lothar von Araauld de la Periéxe, skip- herrfti Hann var frægasti kaf- bátsforingi Þjóðverja í síðustu heimsstyrjöld, því að hann kom alltaf upp á yfirborðið til þess að sökkva skipum, nema mörg herskip væri á næstu grösum. Von Arnauld lét úr höfn i sept- ember, en var kallaður heim rétt á eftir, þegar byrjað var að semja um vopnahléð. I Berlín var mér sagt, að skip- herrann á U-151 mundi hafa skemmtilegustu söguna að segja. Hans bátur var sá fyrsti, sem sendur var vestur um haf og kom þvi Bandaríkjamönn- um alveg á óvart. En mér tókst ekki að finna skipherrann, von Nostitz und Janckendorf, svo að eg snéri mér til þess foringja hans, sem hafði gengið honum næstur að völdum, dr. Fredrick Körners, og hann sagði mér frá ævintýrum þeirra. Eg hafði upp á honum í Slesíu, þar sem hann sat umgefinn af fjölskyldu sinni og blómabeðunum sínum. Það er rétt að geta þess, að einn af hinum amerisku föngum. á U-151, W. H. Davis, skipstjóri á kaupskipinu Jacob M. Hask- ell, sagði um Körner, að hann talaði góða ensku og væri svo kurteis, að það tæki á taugarnar. Iíörner fann dagbækur sínar og fyllti upp í eyður þeirra með skemmtilegum smáatriðum, svo að úr þessu varð eiginlega gamansaga um víkingaför til Ameríku; i Kafbátur okkar var systur- skip „Deutschland“, sem fóx* tvær friðsamlegar ferðír 'með vörufarm vestur um haf, áður en Bandarikin gerðust styrjald- araðíli. Þegar þið sðgðuð okk- ur stríð ^ þendur, var þessfim flutningakafbátum breytt þann- ig, að þeir gæti lagt tundurdufl- um og bitið frá sér. U-151 hét i fyrstu Oldenburg og haustið áður hafði hann farið í lengstu för, sem nokkur kafbátur hafði verið sendur í. Þá var hann lát- inn fara til Vestur-Afríku undir stjórn Kophamels, skipherra. Von Nostitz und Janckendorf fékk skipun um að safna skips- höfn, þar sem hver maður værí þekktur fyrir dirfsku og hug- rekki, og útbúa þenna risakaf- bát okkar til fimm mánaða far- ar. Við fengum ekkert að vita, hvert.við ættum að fara, en eft- ir öllum sólarmerkjum að dæma máttum við búast við ferð, er líktist helzt ævintýri eftir Jules Verne. Ágætt! Við vorum til í allt slíkt. Hin mikla sókn í Fralddandi neyddi fjand- mennina til undanhalds og við bjuggumst alls ekki við því, að Bandarikjamenn yrðu nokkuru sinni tilbúnir að taka þátt í stríðinu. Þar skjátlaðist okkur þó, en um þetta leyti vorum við þó allir vissir ’um sigur. Loks komu þó skipanir flota málaráðuneytisins. Þær fóru fram úr öllu, sem við liöfðum búizt við. Okkur var ætlað að gera árásir á skip við strendur Bandarikjanna. Deutschland hafði að vísu farið þessa leið, en það var meðan við lifðum enn í friði við Bandaríkin, og hafið'imdan ströndum þess var friðsælt og rólegt. Bremen, enn pitt systurskip, hafði líka verið sent i slilca ferð, en hafði farizt, Ferð okkar hlaut að verða all- frábrugfSin ferð þeirra, því að, við gátum hvergi fengið elds- peytisbirgðir á leiðinni eða tel^

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.