Vísir Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Vísir Sunnudagsblað - 13.08.1944, Qupperneq 7

Vísir Sunnudagsblað - 13.08.1944, Qupperneq 7
VISIR SUNNUDAGSBLAÐ 7 ^mmmmm^^^ma^^m^^mmm^^^Kmm^mmmi^^^^mmmt^^mtmmm^m mannleg snilli og tækni að forða eyðileggingu og dauða. Þær hamfarir náttúruaflanna valda ógn og dauða, án þess að hægt sé að koma i veg fyrir það. - Eldgos hafa frá ómunatíð verið hin mikla gáta sem enn- þá hefir aðeins verið leyst að litlu leyti. Flest starfandi og mikilvh’k- ustu eldfjöllin eru á helti, 40° (stig) fyrir norðan og sunnan miðjarðarlínu. Auk þess eru miklar gosmiðstöðvar í Alaska, á Aleuteyjum, Kamtschatka, Is- landi og ókönnuðum og lítt könnuðum héruðum Mið-Asíu ,og í suðurheimskautslöndunum. Engin eldfjöll eru í Norður-, Mið- og Austur-Evrópu, norður- hluta Asíu, að undanskildum Kamtschatka, Ástralíu, Græn- landi, Norður- og Suður-Amer- íku, að undanskilinni vestur- strönd álfunnar, sem er eins og perlufesti af eldfjöllum, eða eld- stöðvum frá Alaska allt suður á Eldland. Eldfjöll eru mörg við Kyrrahafið, eða í því, á Japan, Filippseyjum og Austur-Indí- um. Aðeins Borneo er laus við eldfjöll. Þar sem mestur liluti eldf jalla og eldstöðva í hieminum er fram með ströndum hafanna, myndaðist sú skoðun, að eld- gosin orsökuðust af því, að sjór rynni gegnum rifur á jarðskorp- unni og lenti á glóandi efni i iðruin jarðar, við þáð gerðust sprengingar af gufuþaystingi, og ryddu sér braut gegnum gíga, er mynduðust á yfirborði jarðarinnar. Nú hafá menn horfið frá þessari trú, eða þessu áliti, um orsakir eldgosa. Vér getum tek- ið sem dæmi til að afsanna þessa kenningu, að hin voldugu eldfjöll Andesfjalla liggja margra mílna fjarlægð frá sjó og 5—6000 metra yfir sjávar- mál. Þrýstingurinn eða þykktin af slíku heljarfargi útilokar sprungumyndanir undir þvi. Það hefir verið afar miklum • erfiðleikum hundið að rannsaka ,L eldstöðvar, sem liggja Iangt frá ^ mannahyggðum, eða vera sjón- W,arvottur að mikilfenglegum eld- ^gosum. Eldfjöllin auglýsa ekki ^eldgosin fyrirfram. En síðan flugvélar komu til sögunnar, . hefir orðið hægra um vik. Marg- ' ar myndir hafa verið teknar úr '. Iofti af eldfjöllum og eldgos- i um á síðari tímum. ’ Eldgos og jarðskjálftar efga ^rót sína að rekja til afla niðri í jörðinni. Þessi öfl leysast ekki fúr læðingí nema undir vissum kringumstæðum. Spumingin er um Tþftöí, þv<e djúpt í iðrum jarðar eru eld- stæði þau, eða sprengjustöðvar, sem þessu valda. Hér reka menn sig á hið óleysta verkefni: Eru iður jarðar fljótandi, fyllt gasi, eða að meira eða minna leyti föst? Um þetta hafa jarðfræð- ingar og eldgosafræðingar mjög skiptar skoðanir. Frá yfirborði jarðar að jarð- armiðju er h. u. b. 6400 km. Memi hafa aðeins borað fáa km. niður. Hve lítið þetta er til að kynnast iðrum jarðar sést á þeim samanburði, er hinn þýzki jarðfræðingur Wilh. Meyer ger- ir um þetta mál. Hann segir: Ef menn hugs- uðu sér jörðina hnött, sem væri einn metri í þvermál, væru þess- ar holur hlutfallslega álíka djúpar og gat í gegnum pappír- inn á jarðlíkaninu. Eftir að komið er 20—30 metra niður fyrir yfirborð jarð- ar, stígur hitinn um 1° á hverj- um 30 metrum. Samkvæmt þessu yrði hitinn 2000° á 60 km. dýpi. En við þann hita bráðna nær því öll föst efni. Á 2000 km. dýpi yrði hitinn þá líkur og hiti sólar, sem er um 7000°. Menn vita að fastir líkamir, sem verða fyrir of háum þiýst- ingi (þunga), geta haldizt í föstu ástandi við hitá, sem þeir mundu bráðna við undir eðli- legum kringumstæðum. Á hverju 3—4 metra dýpi í stein- efnum eykst þrýstingur um eina lofteind (einingu). I 60 km. dýpt er því h. u. b. 15 þúsund lofteinda (atmosfære) þrýsting- ur. Og það er ekki óhugsandi, að þessi feikna þungi geti haldið iðrum jarðar í föstu ástandi, þrátt fyrir hinn ógurlega hita. Alit lærðra manna um þessi mál eru á ýmsan hátt. Við þessa miklu gátu glíma vísindamenn enn. I margar aldir álitu menn að eldgosin kæmu djúpt úr iðrum jarðar, frá insta kjarna hennar. En nú er það skoðun margra, að eldgosin eigi sér stað í hol- rúmum all-ofarlega í jörðunni. Menn hrekjast enn á hafi get- gátanna . En hitt vita menn, hvaða efni undirdjúpin senda upp á yfir- horðið. Það, sem eldfjöllin gubba upp, hafa menn rann- sakað kostgæfilega. Sumir álíta eldgosin stafa af gassprengingum. En við sum eldgös verða menn ekki varir við neift gas. Annars er talað um hraungos (lava) og sprengi- gos. 'Ýmsir álíta hrærlngar i jörðunni orsök eldgosa. Og standi þær hreyfingai’ í sam- handji við fellingamyn<janir fi yfirhorði jarðar og brotnun þeirra. Loks má geta síðustu til- gátunnar, og þeirrar sennileg- ustu, að fljótandi efni séu í holrúmum jarðarinnar, þar sem eldgosin koma frá. Við storknun og samdrátt jarð- skorpunnar þrengist um þessi efni og verða þá að fá útrás á þennan hátt, að þau þeytast upp á yfirhorðið. Það, sem kemur við eldgos upp úr jörðunni, er lava (hraun), tufsteinn, pimpsteinn og aska. Ilraunleðjan kemur ýmist sem þunn, straumhörð leðja eða hægt rennandi klump- leðja. Við smásjárrannsóknir þessara efna kemur i ljós, að í þeim eru sömu efni eins og í skorpu jarðarinnar. Af ösku myndast tufsteinn. En pimp- steinn myndast af sérstakri, blöðrukenndi hraunleðju. Gas- ið, sem í leðjunni var, hefir rok- ið á burt. Eldblossarnir, sem sjást er eldgos fara fram að næturlagi, stafa af logandi gastegundum. Hið vanalega máltæld: Eldgjós- andi fjöll, eða eldfjöll, á aðeins við um sum eldgos. Það er um þau, þar sem gosið fer fram um gíg. Mörg eldgos fara fram þar sem engin fjöll eru. Þannig var það með hið mannskæðasta gos, er sögur fara af. Það er gosið á Mont Pelé á Martin- ique. Mörg eldgos koma úr rif- um, er myndast í jarðskorp- unni, án þess að um fjöll sé að ræða. Dæmi þessa eru Skaftár- eldagosin 1783, er 24 kílómetra rifa kom í jörðina ofan við byggð á Síðunni og eyðilagði að meira eða minna leyti 30 jarð- ir. En af þeim stöfuðu Móðu- harðindin. Þekktasti eldgígur er Vesú- víus á Italíu, sem er í grennd við Neapel. Gos úr honum eyði- lagði bæinn Pompeiij árið 79 fyrir Krist. Hann hefir verið iðnastur allra eklgíga í heimi. Þó tekur hann sér hvíld annað slagið. Vesúvíus er lítill eld- gígur. Hann er um 1300 metra hár. Hið fagra, snævi þakta Fusijama, þekktasta eldfjall Japans, er 3780 metra hátt. Það er hæsta eldfjall jarðarinnar. Hefir það myndazt af sínum eigin gosum. Kljutschewskaja Ssopka í norður Kamtschatka er 4916 metra liá. Áður en Vesúvíus gaus 1906, var þvermál gígsins 60-metrar. Eftir gosið var það 650 metrar. Stærsti eldgígur í heimi er Mauna Loa á Hawaii. Er hann 4200 metra hár. Lengd gigs þcssa er um 6000 metrar, þreiddin 2800 metrar. Fyrsta skjalfest lýsing á eld- gosi er eftir Pliníus eldri, af gosi Vesúvíusar árið 79 f. Kr. Hann var þá flotaforingi hins keisaralega flota í Neapel. Og Plinius yngri jók við frásögn frænda síns, Plínusar eldra. Skal hér gefinn útdráttur úr skýrslu þessari, eða lýsingu. Pliníus var nærri Neapel, þeg- ar menn sögðu honum að voða- legt og einkennilegt ský lægi yfir Vesúvíusi. Menn sögðu skjr- ið líkjast tré með beinum stofni, er risi upp af fjallinu, en ofar greindist stofninn og myndaði krónu. Plinius lét strax manna tvö skip og stýrði í áttina til þessa furðuverks. En skipin höfðu stutt farið, er rigna tók yfir þau ösku og svörtum, brunnum steinum. Urðu sldpin því að hætta við að lenda nærri fjallinu. Þau héldu í áttina til hafnarinnar í Stahiæ. Menn sáu nú eldtungur hátt uppi yfir tindi Vesúvíusar. Þær klufu hið svarta, ógnþrungna slcý eins og geysimiklar eldingar. Plinius hélt kyrru fyrir í Stabiæ um stund. En sá staður eyðilagðist síðar gersamlega í þessu hræðilega eldgosi. Pliní- us bjó hjá vini sínum. Þegar hann ákvað að yfirgefa húsið, var dauðinn fyrir dvrum. Og •hann fórst á leiðinni til Neapel. Voðalegir jarðskjálftar hristu húsin í hænum. Og er íbúarnir yfirgáfu þau, rigndi steinum og ösku úr loftinu. Löngu eftir sól- arupprás var kolniðamyrkur, og einungis hjármi frá hinu mikla báli Vesúvíusar lýsti mönnum. Loftið fylltist af kæf- andi brennisteinsgufu. Hafið ýtlist frá ströndinni. 1 sandin- um lágu dauðir fiskar. Hafið varð tryllt, svo hátar og skip fengu ekki bjargað sér. Vagn- arnir, sem ekið var út úr hæn- um, veltust til allra hliða, vegna þess hve jörðin var ökyr. Plin- íus sá úr vagni sínum eitthvað svart renna niður hlíðar fjalls- ins. Menn flýðu af þjóðvegiftum út á mörkina. En þá féll myrkr- ið yfir þá. Menn kölluðu, kon- ur hörmuðu sér og böm grétu hástöfum. Flestir álitu að heimsendir væri kominn. Allt Imldist af öskuregninu. Alltaf jnirftu menn að vera að berja það af sér, svo þeir ekki köfn- uðu í þvi. Loksins sást sólin aftur. En sólarljósið var hleikt. Allt var ösku hulið. „Vér óðum ösku eins og snjó“, segir Plinius. Árið 1631 gaus Vesúvíus ofsa- lega. Gos hans 1906 var ekkert hjá því. Á Tslandi eru eldgos marg- brevHleg. Á Tslandi kvislast jarðskorpan fyrir ðllum aðferð-

x

Vísir Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.