Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 29.07.1962, Qupperneq 13

Tíminn Sunnudagsblað - 29.07.1962, Qupperneq 13
-OFTSYN YFIR HAFNIR (Ljósmynd: *>•*«♦ °;nr Jóseo^son). þeim hætti brúði, er hann hefði ekki annars átt kost á. Dæmi voru líka um það, að feður kúguðu unga syni sína til þess að gerast snápar fyrir sig, en heldur mun það hafa mælzt illa fyrir að jafnaði og spratt iðulega af því fjandskapur á milli feðga. Ekki voru menn síður óbágir á að sverja fyrir börn, og virðist rík bók- stafstrú fólks ekki hafa staðið hið minnsta í vegi fyrir eiðum, er áreiðan- lega hafa oft ekki verið særir. í öll- um gömlum þingabókum er krökkt af slíkum svardögum. Þessa eiða sóru jafnt ríkir menn og fátækir, bændur, vinnumenn og prestar. Virðist al- menningi ekki hafa þótt þess háttar neitt tiltökumál, en var þó illa látið, ef minni háttar menn sóru fyrir börn, er lentu fyrir þær sakir föðurlaus á sveitarframfæri. Það kom nefnilega við pyngju hinna dyggðugu samþegna. Það var þó ekki nema stundum, að þessir eiðfúsu menn neituðu ~Sam- blendi við stúlkurnar, heldur var hitt jafntítt, að því væri borið við, að nokkru skeikaði um róttan meðgöngu- tíma, og var þá háð mati sýslumanna, hvort þeim var leyfður eiðurinn. Er jafnvel ekki grunlaust um, að stund- um. hafi sýslumenn þegið nokkra þóknun fyrir greiðvikni í þessum efn- um, þegar þeir áttu í hlut, er gátu látið eitthvað af hendi rakna. Að minnsta kosti lék það orð á, að surnir þeirra hefðu útsjón til þess að láta sér margt verða að féþúfu. Það var því síður en svo, að for- ráðamenn þar á Suðurnesjum stæðu andspænis fáheyrðum vanda, þótl þeir, sem Guðrún Björnsdóttir til- greindi sem feður að barni sínu, synjuðu þess þverlega. Og hún var stúlka af því tagi, er menn kinokuðu sér ekki svo mjög við að sverja fyrir. Ekki varð heldur neinn uppnæmur, þegar það fór að kvisast og var jafn- vel haft eftir barnsmóðurinni sjálfri, að Jón í Kirkjuvogi hefði farið þess á flot við vinnumann sinn, Eirík Gunnlaugsson að nafni, að hann tæki að sér faðernið. Þess konar hafði oft spurzt áður i öllum sveitum á íslandi. Samt voru þeir margir, sem ekki iétu sig einu gilda, hvernig þetta mál leystist. Þar stóðu fremstir hrepp stjórarnir í Rosmhvalaneshreppi og Hafnahreppi. Hreppstjórar Iandsins vissu enga plágu ægilegri en sveitar- þyngsli. Öld fram af öld var háð linnulaust stríð sveitarstjórna um ómaga og framfærslueyri, og engra bragða var svifizt i þeirri viðureign. Ómagar, sem urðu þrætuepli, voru fluttir fram og aftur milli sveita, jafnt kornbörn sem karlæg gamal- menni, fátækt fólk var hrakið úr ein- um hreppi í annan, svo að það yrði ekki sveitlægt utan fæðingarhrepps síns, einkum ef atorka þess svaraði ekki frjóseminni til, giftingaráform voru bönnuð eða komið i veg fyrír þau eftir geðþótta, margvíslegum brögðum var beitt til þess ag sveit- festa þá í öðrum byggðarlögum, er grunsamt þótti, að yrðu ósjálfbjarga, og tregðazt við að greiða áfallnar skuldir áratugum saman. Mest orð fór af þeim hreppstjórum, sem harð- skeyttastir voru í þessum efnum. skuldseigastir og afskiptasamaslir urn annarra hagi. Nú stóð svo á um Guðrúnu Björns- dóttur, að varla leyfði af, að húu gæti séð sjálfri sér farborða, og engar líkur voru til þess, að hún gæti fóstrað Solveigu litlu, án þi-ss að fullt meðlag kæmi til. Sjáif st'.i hún sveit í Rosmhvalaneshreppi, ,jr Hafnamenn grunaði sterklega, : ð hreppstjórar þar hefðu hug á þvi v ’ koma framfærslu barnsins á 'p«. ekki gengist við því faðir. er fyrir uppeldi þess. Áttu Ilafnamervr þar ótrauðan fyrirliða í sUknm sok um, þar sem var Jón í Junkaragerð: í Rosmhvalaneshreppi voru einkum til forsvars Þórður Gissurárson i Flankastöðum, Jón Eyjólfsson á OG BARN VAR FLUTT SVEITARFLUTNINGI ELLEIU SINNUM T I M 1 N N S UNNUD AGSBLAÐ 517

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.