Tíminn Sunnudagsblað - 29.07.1962, Blaðsíða 21

Tíminn Sunnudagsblað - 29.07.1962, Blaðsíða 21
Kolkrabbar í sjón og reynd Framhald af 515. siðu. einn bátur með nokkurra manna á- höfn dregur yfir tvö þúsund kol- krabba á einni klukkustund. Mikill hluti þess magns, sem veið- ist af tíarma kolkröbbum, er notað í beitu, sem þykir með afbrigðum góð. Ein þjóð stendur öðrum framar, hvað varðar kolkrabbaveiðar. Það eru Japanir. Árið 1952 veiddu japanskir fiskimenn 600.000 tonn af kolkröbb- um, og þeir veiða að meðaltali mörg um sinnum meira en allar aðrar þjóð- ir, sem stunda þessar veiðar, til sam- ans. Það hefur aldrei verið jafnmikið vandamál og nú, að afla nægrar fæðu handa íbúum jarðarinnar. Það er varia of djarft að áætla, að færu aðr- ar þjóðir, sem ráða yfir kolkrabba- miðum, að dæmi Japana og legðu ríka áherzlu á þessar veiðar, fengist fæðutegund, sem tiltölulega lítið hef ur verið á boðstólum í heiminum fram til þessa .Það er lítil hætta á ofveiði, því að staðreyndin er sú, að mergð kolkrabba í sjónum er nokkr um sinnum meiri en núverandi magn nytjafiska. Það er vart hægt að fjalla um kol- krabba án þess að minnast á risa- kolkrabbann. Hann er stærstur allra hryggleysingja. Og það er engin þörf á að ýkja lýsinguna á honum, því að raunveruleikinn sjálfur er nógu hrollvekjandi. Stærstu risakol- krabbar hafa fálmara, sem eru um 15 metrar á lengd, sjálfur líkaminn er um 4—5 metrar, augun eins og stórar undirskálar og armarnir eru eins sverir og mannslæri. í miðj- unni, þar sem armarnir ganga út frá bolnum, er nefið, sem minnir á risa- vaxinn páfagauksgogg. Armar og fálm arar eru þaktir sogskálum, sem eru um tvo og hálfan þumlung í þver- mál. Það er álit manna, að risakol- krabbi geti orðið allt að tuttugu og fimm metra langur og um eitt tonn að þyngd. í októbermánuði árið 1873 voru tveir fiskimenn og tólf ára drengur að fiskveiðum úti fyrir Portugal Cove á Nýfundnalandi. Þá sáu þeir eitt- hvað fijóta á sjónum, sem þeir héldu að væri einhvers konar rekald. Annar maðurinn stakk gogg í það. „Rekald- ið“ brást liart við, og risavaxinn fálm ari teygði sig upp úr sjónum og greip heljartökum utan um bátinn, samtímis kom styttri, en sverari arm ur upp úr sjónum og vafðist utan um bátinn. „Rekaldið“, sem var auð- vitað risakolkrabbi, lét sig nú síga í sjó, og dró bátinn með sér. Fiski- mennirnir voru svo skelfingu lostnir, að þeir höfðust ekki að, heldur biðu dauða síns án þess að hreyfa hönd eða fót sér til varnar. Vatnið byrj- aði að streyma inn í bátinn og eftir nokkrar sekúndur hlaut hann að sökkva. En drengurinn, sem hét Tom Piccot, lét sér ekki bregða, þótt hin- um fullorðnu féllust hendur. Hann þreif litla handöxi, sem lá á botni bátsins og lét hana ríða á fálmurum og örmum kolkrabbans. Það mátti ekki seinna vera; báturinn rétti sig aftur, kolkrabbinn var enn við hlið hans og gerði örvæntingarfullar til- raunir til þess að ná undirtökunum, en það var of seint, Tom hafði lamað bardagagetu hans. Hann spýtti frá sér kolsvörtu bleki og hvarf í djúpið. Það síðasta, sem þeir sáu, var bol- ur hans, og gizkuðu á, að hann hefði verið sex eða sjö fet að þvermáli. Mennirnir reru að landi eins íljólt og auðið var. Tom tók arminn og fálmarann með sér sem sigurtákn. Hann fleygði arminum, sem hundarn ir gæddu sér á, en fálmarann varð- veitti hann og seldi hann síðan prest- inum á staðnum, sem mældi hann, — samkvæmt þeim mælingum var þessi afhöggni fálmari nítján feta langur, og ummál hans var þrír og hálfur þumlungur, og lét prestur svo ummælt, að hann væri óskaplega sterkur og þéttur í sér. Eg átti einu sinni tal við norsk- an flotaforingja, sem eitt sinn var á tankskipinu Brunswick, sem var 15.000 lestir að stærð. Hann sagði mér, að þrisvar sinnum ‘hefði kol- krabbar ráðizt á skipið á árunum 1930 —1933. Skipið var í öll skiptin stott hans var um 30 fet. T f M I N N SUNNUDAGSBLAÐ 525

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.