Tíminn Sunnudagsblað - 01.03.1964, Page 8

Tíminn Sunnudagsblað - 01.03.1964, Page 8
Kapphlaupið við tímann taugar manna fer í, og það er gamla sagan, að þá fá menn í magann alls kyns bölvaðar bólgur, sem borgar sig varla að sker' í. Fjöldinn allur af fólki öngum sínum er í út af tímahraki, sem það kemur sjálfu sér í. (Það segir sig líka sjálft, að það gerir enginn með glöðu geði að falla á tíma með svo til unna stöðu.) Og fólk er á harðahlaupum um markaðstorgið mikla til að missa ekki af góðum kaupum. Og fólk er á hörkuspretti, til að verða ekki of seint í vinnu; — (vonandi, að enginn detti). Og fjölmargir heimi hér í á hlaupunum ætla að tryllast, því að tíð er nú tekin að spillast, og menn verða, hvað sem það kostar að koma tvöföldu gler' f. Og f jöldinn allur af fólki er nú annað af tvennu: titrandi taugahrúga í tímahraksspennu, eða það alveg frá er af sprengmæði eftir allt spanið eins og spretthlaupari f K.R. En hvers vegna hverfumst vér f hringiðu slíka, í stað þess að láta oss líka vel, það sem vér höfum fengið: þrauthugsuð bjargráð að borða og skothelda viðreisn að ver' f? Það er farinn að þjá oss huglægur hlaupastingur; svo mikið er æðið á oss, að enginn veit lengur, hvað hann syngur. Og taugar manna og magi eru í miður góðu lagi, eins og ég sagði áðan. Og með tilliti til þess ástands eru margir að hugs' um að birgja sig upp af buxum, brúklegum til að ger' í. ----------------------------------- | 200 T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.