Tíminn Sunnudagsblað - 01.03.1964, Síða 13

Tíminn Sunnudagsblað - 01.03.1964, Síða 13
andi til þess að tala máli hans við sjálfan konunginn og umboðsmenn hans. Þess var og skammt að bíða, að vegur hans ykist sem ættir og mægðir stóðu til. Sýslumaðurinn í Vaðlaþingi (Eyjafjarðarsýslu), Hannes Schev- ing, andaðist 1. maí þetta sama vor. Með fráfalli hans losnaði álitleg sýsla og Jóni Pálssyni Vídalín var af Fuhrmann amtmanni fengið bréf fyrir henni. Líður svo fram sumarið. En um haustið þarf Jón að vitja sýslu sinn- ar og heilsa upp á undirsáta sína austan fjalla. Steinn biskup slóst i för með honum. Meðreiðarsveina hafa þeir og að sjálfsögðu haft. Heimildir herma, að þessi ferð legðist strax illa í Jón og hafi hann kveðið svo við konu sína, þegar hann kvaddi hana á Hólahlaði, en hann var hagmæltur vel, eins og hann átti kyn til: Ykkur kveð ég öll í senn, af því nú verð fara, hingað kem ég aftur enn, ef mig guð vill spara. Og enn er sagt, að hann kvæði við hana: Fyrir mig ber hún þungan þrótt, þrifleg menjagerður; hesturinn kemur heim í nótt, hvað sem um mig verður. Aðrar heimildir segja, að Jón kvæði þessa vísu í draumi við konu sina siðar um haustið, og er það senniiegra, eftir efni hennar. Þá held ég einnig, að vísan hafi upp- haflega verið svona: Fyrir mig ber hún þungan þrátt, þrifleg menjagerður, hesturinn kemur heim í nátt, hvað sem um mig verður. Verður hún þannig skiljanleg, þar sem Helga var langt gengin með írumburð þeirra. Og enn er sagt, að Jón Vidalin kvæði þessa alþekktu stöku, þegar þeir tengdafeðgar riðu fram Hjalta- dalinn og upp á Hjaltadalsheiðina: Far vel, Hólar fyrr og síð, íar vel, sprund og halur, far vel, Rafta- fögur- hlíð, far vei, Hjaltadalur. ★ Nú segir ekki annað aí ferðum embættismannanna fyrst um sinn en að þeir riðu til Möðruvalla og Munkaþverár. Steinn biskup lauk erindum sínum fyrr en Jón og hélt aftur vestur á undan honum. Jón þurfti að þinga á nokkrum stöðum og „birta Eyfirðingum bréf sitt fyr ir sýslunni". Það var ekki fyrr en undir miðj- an októbermánuð, að sýslumaður gat haldið heim til Hóla. Síðustu nóttina, sem hann dvaldist í sýslu sinni, gisti hann á Möðruvöllum, en lagði fram Hörgárdalinn tíman- lega daginn eftir, sem var laugar- dagur, 12. október. Hann hafði fengið til fylgdar við sig ungan og ötulan mann úr Eyjafirði, Jón, son Þorláks Grímssonar, prests í Mikla- garði. Jón var tæplega tvítugur. Þriðji maðurinn i ferðinni var 13 eða 14 ára unglingur, Hans Þor- láksson Londemann, og hafði hann fylgt sýslumanni að vestan. Þegar þess er gætt, að liðið var langt á haust, allra veðra von á fjöllum og sýslumaður sjálfur ó- kunnugur og óreyndur ferðamaður, var þarna vissulega teflt á tæp- asta vað. Þess er líka getið, að sýslumaður hafi ætlað sér að fá einhvern vaskan Hörgdæling til fylgdar við þá vestur yfir heið- ina og treyst á, að sú fylgd fengist á efstu bæjunum. Hvernig sem það var, brást sú fyrirætlan, og þrír einir lögðu þeir upp frá Flöguseli um kvöldið. Húsbændur löttu þá þó fararinnar og buðu fram gist- ingu, en sýslumaður vildi ekki tefja. Fljótlega eftir að þeir kvöddu í Flöguseli, tók veður að ýfast af norðvestri, og fylgdi bleytuhríð fyrst, en síðar frost og fannkoma. Hörgárdalsrunan er ærið löng ög ekki greiðfær, þegar veður stendur í fang og fönn fyrir fótum. Útlit er fyrir, að færðin hafi verið orðin svo þung, þegar þeir komu undir heiðina og jökulinn, að þeir hafl þá afráðið að skilja hestana eftir og freista að ganga vestur yfir. Veit nú enginn með vissu, hvað næst gerist. ★ Þessa nótt og hinn næsta solar- hring var versta veður í sveitum beggja vegna fjaligarðsins, en fann 205 T I M1 N N - áUNNÚDAUSJJLAD

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.