Tíminn Sunnudagsblað - 01.03.1964, Síða 14
burður til fjalla. Á mánudag, 14.
október, rofaði svo til, að byggða-
menn gerðu leit að þeim félögum,
því að strax var óttazt um afdrif
þeirra. Fundust þá hestar þeirra
allir við Sandá, en það er þvergil
efst í Hörgárdal. Bendir það til
þess, að þeir hafi aldrei á heiðina
farið. Næstu daga var svo leitinni
haldið áfram af fjölmenni, þótt ó-
hægt væri bæði færi og veður. Fund
ust smám saman hnakkar þeirra
þremenninga og fleira af farangri.
svo og vettlingur Jóns Vídalíns og
einhverjar aðrar flíkur. Mikill snjór
var á heiðinni, og tók hann ekki
upp fyrr en löngu seinna. Þá var
enn mögnuð leitin, en kom þó fyr-
ir ekki. Leið svo veturinn, og vissu
allir, hver örlög þeir félagar hefðu
hreppt á Hialtadalsheiði.
Hin sviplegu afdrif sýslumanns-
ins unga voru hvarvetna hörmuð,
en þó hvergi eins og heima á
Hólum og í Víðidalstungu. Ekkjan,
Helga Steinsdóttir, varð kona létt-
ari skömmu eftir helför Jóns, 29.
október. Hún eignaðist sveinbam,
og var því vitanlega gefið Jóns-
nafnið. Sá Jón Vídalín lifði og varð
nýtasti maður og klerkur. Hann
þjónaði lengi í Laufási við Eyja-
fjörð. Kona hans var Sigríður, syst-
irSkúla landfógeta, en sonur þeirra
Geir biskup Vídalín.
Veturinn eftir slysið var harður.
og leysti snjóa seint um vorið.
Steinn biskup var á varðbergi og
lét hefja leit að afgangi þeirra
þremenninga strax og tök voru á
og tilgangur einhver. Svo var það
loksins „degi fyrir Jónsmessu" 23.
júní, að lík þeirra fundust vestan
til á heiðinni, nærri vegarslóðan-
um, „við varða lítinn, heii og ó-
skert“. Menn þóttust sjá merki
þess, að Jón Þorláksson frá Mikla-
garði hefði veitt sýslumanninum og
sveininum unga hinzta umbúnað.
lagt buru ofan á lík þeirra og brot-
ið hana svo vel að allt í kring, að
ekkert hafði rótazt. En sjálfur lá
hann þar skammt frá undir síð-
hempu sinni. Líkin voru flutt til
Hóla og jarðsett þar.
Þannig segir Gísli Konráðsson frá
líkafundinum. En heimildum ber
elcki í smáatriðum saman, hvað það
atriði sögunnar snertir, en að mestu
þó. Þá segir G.K. einnig: „Mörgum
þótti undarlega aðberast, ei á
lengri leið, því þaðan er þeir
fundust er ei langur vegur ofan i
Hjaltadal og yfir að Reykjum,
íremsta bæ í dalnum að vestan.“
Hefur svo og löngum viljað verða,
að mönnum komi margt á óvart um
tildrög lífs og dauða. Hitt er víst,
að ekki hafa þeir félagarnir linnt
göngu þarna nema fyrir það eitt,
að fjör og máttur hefur verið þrotið
eftir löng fangbrögð við vályndar
veðurnomir Hjaltadalsheiðar.
★
Svo sem áður segir hefur ferðin
frá upphafi vega lagzt illa í Jón
Vídalín. Enn eru til sagnir um það,
að síðasti áfangi hennar hafi ekki
hvað sízt valdið honum ugg og
angri, enda ekki ólíklegt, að hon-
um hafi hrosið hugur við að leggja
á Hjaltadalsheiði undir nótt í tví-
sýnu útliti, og hafa ekki traustari
fylgd en hann hafði. Heimildir eru
fyrir því, að þeir komi að Myrká á
leið sinni fram Hörgárdalinn, og
falaði sýslumaður þar fylgd vest-
ur yfir, sem ekki var unnt, af ein-
hverjum ástæðum, að veita hon-
um. Þegar hann reið frá Myrká,
kvað hann:
Ó, hve tíminn er að sjá
undarlega skaptur.
Hvað mun dagur heita sá,
að hingað kem ég aftur?
Einhvern tfma um veturinn, eftir
að lengi hafði verið leitað að þeim
þremenningum án árangurs, vitr-
aðist Páli lögmanni það í draumi,
að lækur rynni undir hnésbætur
Jóns sonar hans, þar sem hann
væri niðurkominn. Sagði lögmaður
ýmsum nákomnum frá þessu, en
þegar líkin fundust stóð það heima,
sem hann hafði sagt. Þá er það
og í annála fært, að Jón heitinn
hafi af forsjálni stungið fingur-
gulli sínu upp í sig, áður en hann
sofnaði svefninum langa, en fing-
urgull það var bæði fagurt og dýrt
sem siður var með heldrimönnum
á þeirri tíð. Líkræningjar hafa ver-
ið til á voru landi, Islandi, og sann-
aðist það eftirminnilega hálfri öld,
seinna, við aldurtila þeirra Rejmi-
staðarbræðra á Kili, þótt engra lík-
ur bendi til að slíkt hafi komið fyrir
á Hjaltadalsheiði annó 1726.
(Helztu heimildir: Húnvetningasaga G.
K. (handrit), Annálar Hins íslenzka
bókmenntafélags, Vísnakver Páls lög-
manns Vídalíns, Manntal 1703, íslenzk-
ar æviskrár, Sýslumannsævir B.B. og
fleira).
OFT HANGIR LÍFIÐ
Á MJÓUM ÞRÆÐI
Á Vestfjörðum eru brött fjöll,
og hefur margur maður komizt
þar í hann krappan. Hér fer á
eftir ein saga af fjallaferð.
Það var um haust. Snjór var
kominn niður fyrir miðjar hlíð-
ar. Þetta fjall er afarklettótt og
varð að þræða eftir mjóum kletta
syllum til þess að komast í smá-
gilflesi, þar sem fimm kindur
voru tepptar. Það var búið að
bíða nokkra daga eftir þíðu veðri
svo að hægt væri að komast að
þeim. Svo illt sem það var að
klifra þetta í frostleysu, var það
helmingi verra, þegar snjór var
og frost.
Við fórum tveir í fjallið, Guð-
jón og ég. Guðjón var talinn
hættulega djarfur. Hann skreið
það, sem kindur komust ekki.
Þegar við komum upp í mitt
fjallið, harðnaði snjórinn. Það
reið á að sparka sig niður í fönn
ina til þess að geta staðið. Efst
var talsvert þétt skel, og hana
varð að brjóta. Nú fylgdumst
við að fram undir gilið. Þar átti
ég að bíða í ganginum og stugga
kindunum niður með gilinu, þeg-
ar Guðjón kæmi með þær. Nú sá
ég Guðjón hverfa inn fyrir gilið
sem Idndurnar voru í, og
heyrði hann hóa. Um leið sé ég,
hvar hann rennur niður gilkinn-
ina og hverfur. Ég vissi strax,
að hann mundi ekki hafa sporað
niður úr hörðu skelinni. Ég þótt-
ist vita, að þetta hefði orðið hans
síðasta för og bjóst ekki við að
sjá hann í lifandi manna tölu
meira.
f þessu komu kindurnar stökkv
andi heim klettaganginn og ég
stugga á móti þeim, svo að þær
fara beint niður með gilinu. Ég
vogaði mér ekki að fara inn
fyrir gilið að leita að Guðjóni.
Það var svo tæpt. Stökk heldur
niður fyrir klettana á eftir kind-
unum. Sé ég þá, hvar Guðjón
kemur þar óhaltur og óbæklaður
Komumst við svo alla leið niður
með kindurnar. Hafði Guðjón
runnið niður fyrir klettabeltið og
komið á endann ofan í snjóskafl
og sat þar fastur. Varð það hon-
um til lífs, að snjórinn var svona
mikill. Annars hefði þetta verið
ógurlegt fall. Ég sagði strax við
hann:
„Þetta skaltu nú iáta þér að
kenningu verða“.
Guðjón svaraði engu í fyrstu.
Segir svo eftir nokkra stund:
„Ég var orðinn smeykur“.
Jón Arnfinnsson.
206
TtHlNN - SUNNUDAGSBLAÐ