Tíminn Sunnudagsblað - 05.12.1965, Side 5

Tíminn Sunnudagsblað - 05.12.1965, Side 5
ur beztu áheyrendur, sem hann hefði haft, að meðtöldum stúdentum í Kaupmannahöfn. — Hvað er þá helzt til tilbreytni í vetur? — Við höfum byrjað með tvö önnur námskeið. Annað er í söng. Stýrir Hallgrímur Helgason því og hefur myndað dálítinn blandaðan kór. Ég held, að þeir séu að æfa jóla- kantötu eftir Bach og jafnvel mótett- ur. Þetta gengur ágætlega, skilst mér, og hafa ýmsir hinna tónfróðustu manna í skólanum dregizt þangað. — Fyrir svona fjölmennan skóla er skemmtilegt að hafa valinn kór. Og hvert er svo þriðja námskeiðið? — Það er myndlistarnámskeið. Slík námskeið hafa verið haldin áð- ur undir leiðsögn Benedikts Gunn- arssonar, en nú í vetur kennir Sverr- ir Haraldsson teikningu. Þetta er ljómandi skemmtilegt, heyrist mér. — Greiða nemendur nokkurt kennslugjald? — Nei, listafélagið sér um allan kostnað, jafnvel teikniáhöld. Þeir, sem annað hvort skortir tíma eða áhuga á þessum greinum, borga raun verulega fyrir hina. En öllum er vel- komin þátttaka. Annars bar það til nýlundu í myndlistarmálum skólans í haust, að við héldum sýningu á málverkum Kjarvals og fluttur var leiSþáttur eft- ir hann. — Já, ég man, að ég sá heilmikið um- þetta í blöðunum. Þetta var reglulega snjallt hjá ykkur. — Eiginlega var þetta hálfgerð til- viljun. Áður en við vissum nokkuð um afmælið, hafði einhver náungi fundið leikþátt Kjarvals heima hjá sér, kom með hann á fund og las fyrir okkur. Hann lék allar persón- urnar, og það svo skemmtilega, að við veltumst um af hlátri. Hann var svo fenginn til að leika eitt hlut- verkið seinna, og ekki minnkaði skemmtun okkar af þættinum, þegar farið var að æfa. Fóru sumar æfing- arnar alveg út um þúfur, því að all- ir voru að springa. Við höfðum ætlað að leika þetta einhvern tíma við tækifæri, en þeg- ar við fréttum af afmælinu, vorum við fljótir að ákveða okkur. Nú hag- ar þannig til f nýju menntaskóla- byggingunni, að kjallari hússins er lítið sem ekki notaður, vegna þess að heldur lágt er undir loft. En veggflæmi eru mikil og því tilvalið, að safna saman málverkum. Vopnaðir myndaskrá frá sjötugsafmælissýningu meistarans, þar sem eigendur allra málverka voru skráðir, hringdum við í allar áttir. — En að nokkur skyldi þora að lána ykkur málverk? — Það bjargaði, að flestir eig- endanna höfðu verið í menntaskól- anum sjálfir og litu til okkar með velvilja. Einn kallaði okkur meira að segja vormenn íslands. Margir hringdu þ6 til vonar og vara í rektor eða einhvern kennara til þess að spyrja, hvort við værum alvarlegir menn. Svo fengu strákarnir lánaða virðu- lega sendibíla hjá feðrum sínum til að sækja myndimar, einn var merkt- ur teiknistofu landbúnaðarins, held ég og annar gróinni veiðarfærasölu hér í bænum. Svo vátryggðum við — tryggi.ngin hækkaði dag frá degi, eft- ir því sem við fengum fleiri myndir. Ennfremur fengum við slökkviliðs- menn til að standa brunavörð meðan sýningin stóð yfir, og það kostaði okkur tíu þúsund krónur. — Það var nokkuð dýrt. — Já, við buðum borgarstjóran- um að vera við, þegar opnað var í þeirri von, að hann mundi í hrifn- ingu sinni yfir framtaki okkar gefa okkur eftir gjaldið. En þá þurfti hann endilega að fara í fermingarveizlu! Reyndar kom það ekki að sök, því að við græddum á sýningunni. Utan- skólafólk borgaði tuttugu og fimm króna aðgangseyri, og það komu nógu margir til þess, að við fengum tuttugu þúsund krónur í hreinan ágóða. Það er hálfundarlegt til frá- sagnar, að við skulum hafa grætt á listinni, en svona var það nú samt. — Svo erum við með kvikmynda- klúbb. — Hvernig datt ykkur í hug að stofna hann? — Ja, Filmía var fallin frá og eng- inn aðili til, sem sýndi klassískar myndir. Hins vegar hafði ég lesið um ýmsar myndir, sem mig langaði sjálfan til að sjá, og síðastliðið vor fór ég að þreifa fyrir mér með bréfa- skriftum og fyrirspurnum. Það væri fáránlegt að halda, að ég sé að baksa í þessu af mannkærleika. Þetta er eintóm eigingirni hjá mér. Annars er upplagt fyrir skólafólk að mynda svona klúbba, því að við fáum mynd- irnar tollfrjálst. Aðrir verða að borga fimmtíu krónur á kílóið. Kvikmynd- ir eru sem sé tollaðar eftir þyngd. — Þið hafið ekki átt í neinum erf- iðleikum að fá undanþágu með toll- inn? — Jú, við gengum frá Pétri til Páls. Fyrst sendu tollverðirnir okkur upp í fjármálaráðuneyti. Þar var okkur bent á að taia við menntamálaráðu- neytið. Þeir vísuðu okkur i fræðslu- myndasafnið. „Ja, þeir verða að sam- þykkja það í fjármálaráðuneytinu," var okkur sagt þar. Við aftur i fjár- málaráðuneytið. „Við getum ekkert samþykkt, nema þeir gefi leyfi í fræðslumyndasafninu," fengum við i svar. En nú var hringurinn að lok- ast, og eftir eina ferð til viðbótar upp á fræðslumyndasafn fengum við nauðsynleg skilríki til undanþágunn- ar. Þarna kynntumst við skrifstofu- bákninu og var það út af fyrir sig mjög fróðlegt. Nú sýnir Þorsteinn okkur vand- aðan bækling um verkefni kvikmyndaklúbbsins í vetur til áramóta. Þar er nauðsynlegur fróðleikur um kvikmyndirnar sem sýndar verða og höfunda þeirri auk fjölda skemmtilegra mynda og væri hver „fullorðinsklúbbur" full- sæmdur af þessu. Þetta er allt off- setfjölritað á góðan pappír enda var kostnaðurinn við útgáfuna um 12.700 krónur. — En kostnaðurinn við kvikmynd- irnar sjálfar er hann mikill? — Það er mjög misjafnt. Við höf- um allmikla samvinnu við danskt kvikmyndasafn ríkisrekið og þeir eru mjög ódýrar, 500—600 krónur á sýningu, þótt meðtalið sé burðargjald aðra leið. En sumar myndir verðum við að fá frá Atlas-verlei. Það er fyrirtæki, sem verzlar með kvikmynd- i,r en er þekkt fyrir að hafa góða vöru. Þá getur kostnaður farið allt upp í 5.000 krónur á mynd. Svo kemur fyrir að við fáum mynd ir ókeypis hjá sendiráðunum. Jafn- vel hjá kvikmyndahúsunum má grafa upp eintök sem búið ætti að vera að brenna fyrir löngu. — Og nægir listafélagssjóðurinn til þessara útgjalda? — Nei, við tökum 100 króna miss- erisgjald af öllum, sem eru með. Úr Menntaskólanum fengum við 200 af 1070 nemendum, en við buðum með ýmsum öðrum skólum og náðum þar 250 í viðbót: Þeir eru úr háskólan- um, Handíðaskólanum, leikskólun- um tveim, kennaraskólanum. Úr verzl unarskólanum komu víst aðeins tveir, því að það urðu einhver mistök með tilkynninguna. Þessir ungu menn eru með myndir eftir menn eins og Bunuel og Eisenstein. Rússlnn Eisenstein hefur gert einhverjar mögnuðustu myndir, sem við þekkjum. Tvær þeirra hefur klúbburinn sýnt í haust. Önnur er beitiskipið Pótemkin. Hún var tekin árið 1925, en fjallar um arburði, sem gerðust nær tuttugu ár- um áður: Sjóliðar gera uppreisn, þeg ar þeim er ætlað maðkað fæði. Bræðralagsandinn, sem síðar fæddi af sér byltinguna, hjálpar þeim til þess að vinna sigur, þótt keisarinn sendi herflokka til höfuðs þeim. Eitt frægasta atriðið sýnir hermenn þramma niður breiða borgarstiga og tortíma á vélrænan hátt konum og börnum, sem fyrir þeim verða. Öll verður myndin ógleymanleg og fer saman, að Eisenstein liggur mikið á hjarta að segja áhorfendum, og eins ræður hann yfir geysilegri tækni og notar til dæmis klippingar á snilld- arlegan hátt. Hin myndin, sem sýnd var eftir T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 1109

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.