Tíminn Sunnudagsblað - 05.12.1965, Blaðsíða 9

Tíminn Sunnudagsblað - 05.12.1965, Blaðsíða 9
Séð inn í konunnar. mynni Tálknafjarðar. Á þessum slóðum var æskuheimkynni gömlu Ljósmynd: Þorsteinn Jósepsson. ■;> y v. >’ 1 > þó, ef betur er að gáð — og það í fleiri en einum skilningi. Unamennin með hraðstreymið, ólg andi æskufjör í æðum una lítt innan veggja heimila sinna, þegar glaum- urinn iðar fyrir utan: „Út vil ek,“ var eitt sinn sagt — orðin eiga enn- þá við, en merking þeirra er breytt. Skemmtistöðum fjölgar stöðugt, og þeir fyllast einnig stöðugt. Hinir eldri og gætnari furða sig á því fjár- magni, sem sumir geta séð af í slíkt — margir muna þá tíð, að nægju- semi og sparsemi voru meðal þeirra dyggða, sem voru í hávegum hafðar, — og reyndar lífsnauðsyn, ef fólk vildi sjá sér og sínum farborða. Aðr- ir líta ennþá lengra til baka, þegar jafnvel þessar góðu dyggðir dugðu ekki alltaf til þess að bægja skorti frá dyrum. Þeim fækkar þó óðum, sem muna slíka tíma, en ýmsir hafa haft af þeim sannar og greinagóðar sagnir frá foreldrum sínum eða afa og ömmu, sem lifðu æskuár sín við lifnaðarhætti, sem eru svo ólíkir því, er nú tíðkast bæði til sjávar og sveita, að furðu gegnir. Varla er þess von að unga fólkið geti skilið það, að slíkar sagnir eru bláber sannleikur og ískaidar staðreyndir — og ekki lengra en rúmlega mannsaldur að baki. Hún amma mín, sem dó fyrir tólf árum og lifði næstum eitt ár umfram heila öld, hafði sannarlega reynt tím- ana tvenna. Frásagnarhæfileika hafði hún góða, og minnið sveik hana lítt fram undir hið síðasta. Þannig sá ég sveitir og kynntist fólki, sem var uppi tveimur kynslóðum á undan mér, lifði mig inn í ævi þess, leið með því og gladdist. Marga .stundina sat ég við hlið ömmu á rúminu hennar og hlýddi á fróðleik um fyrri Drungalegt skammdegismyrkrið læðist yfir landið. Ég lít yfir bæinn — ,.l>orgina“ Reykjavík, sem óðfluga breiðir nú úr sér, hefur lagt undir sig öll fallegu túnin. sem forfeður okkar erjuðu, allar mómýrarnar, sem eitt sinn voru aðalhitagjafi höf- 1 I VI I \ \ - SliN'IVUDAUMKI.AH uðstaðarbúa, og teygir nú arma sína út um holt og hæðir, laðar til sín fólk utan af landsbyggðinni og tælir það með margvíslegum munaði og þægindum Einmitt þegar dimmir að kvöldi, nýíur borgin sín bezt, ljóm- andi í marglitu ljósaskrauti, skín- andi og saklaus að sjá, en viilugjörn tíma. Hún opnaði mér svo glögga sýn inn í gamla tímann, að oft fannst mér nær því, að ég hefði sjálf úpp- Iifað hennar ævi. Og því verður mér það svo eiginlegt, er ég lít yfir okk- ar ljósum prýdda bæ, sem geymir þúsundir ríkmannlegra heimila, að hugsa heila öld aftur í tímann. Þá 1113 v

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.