Tíminn Sunnudagsblað - 26.03.1967, Síða 13

Tíminn Sunnudagsblað - 26.03.1967, Síða 13
Úr Þverárhlíð — stórbýlið Norðtunga. Ljósmynd: Páll Jónsson. bróðir Jósefs skólastjóra á Hólura. Var kona hans Guðrún Gunnlaugs dóttir frá Öspaksstöðum í Ilrúta firði, og fylgdi þeim tvö ungbörn og ein vinnukona. Dótturdóttir þessara hjóna er Halla Markúsdótt ir, kona Guðmundar fræðimanns Illugasonar, en sonur Halls og síð ari konu hans, Valgerðar Konráðs- dóttur, er Hallur tannlæknir. Vel virðist hafa farið á með þeim Halli og Jóni í tvíbýlinu á heiðinni, og reyndi Jón að tjá sambýlismanni sínum góðan hug í bundnu máli, er honum virtist þó ekki hafa verið tamt. Er enn í minnurn visugrey, er hann klambraði saman af lítilli getu: Hallur Björnsson hagmælti, hans svo gæfu guð blessi við ýmsa viðburði vel sá rekur erindi. Tvíbýlið varð skammvinnt, því að Hallur fluttist brott. En Jón Brandsson og kona hans voru þeim mun þaulsætnari 1 heiðinni. Þau þraukuðu þar hátt á annan tug ára óslitið, að því undanskildu, að þau.voru eitt ár á Hömrum í þver- adhlíð. II Nú er frá því að segja, áður en lengra er haldið, að í Neðra-Nesi í Stafholtstungum hafði lengi búið bóndi, er hét Helgi Jónsson, sonur Jóns Jónssonar, sem um skeið bjó á Hofsstöðum, og Guðrúnar Helga dóttur frá Hafþórsstöðum í Norður árdal. Hann var einn hinn efn- aðasti bóndi í sveitinni, ráðsettur og gætinn, en nokkuð dulur og myrkur í skapi á köflum. Hann var leitarforingi Stafholtstungna- manna á afrétt og réttarstjóri löng um í Fiskivatnsrétt, vörpulegur maður og karlmenni hið mesta og svo vel íþróttum búinn, að hann var vart talinn eiga sinn jafningja um Borgarfjörð og þótt víðar væri leitað. Var mælt, að hann hefði stokkið yfir tíu álna breiða gröf al volur, og í glímu stóðst honum eng inn snúning. Helgi í Neðra-Nesi áttu mörg börn með konu sinni, Katrínu Ásmundsdóttur, og voru þau upp- komin orðin upp úr 1860. Hafði hann þá misst konu sína og hugð ist festa ráð sitt að nýju. Nú gerð ist það vorið 1866, er hann var á ferð sjóleiðis af Brákarpolli inn Borgarfjörð, að hann fékk aðsvif og féll útbyrðis. Náðist hann þó, en aðþrengdur mjög, og er máí manna, að hann yrði ekki samur eftir þetta. Ilann gekk þó að eiga konuefni sitt í lok júlímánaðar um sumarið og var manna glaðastur í brúðkaupsveizlunni. En aðeins tólf dögum síðar hvarf hann. Haíði fólk tekið sér hádegisblund eins og þá var venja, en sjálfur gekk Helgi suður að Hvítá, kvaðst ætla að skoða slægjur og lézt myndi koma brátt aftur. Þegar fólkið vaknaði, var Helgi ókominn, og fór þá son ur hans einn, Ásmundur, að hyggja að honum. Gekk hann um stund með Hvítá, unz hann kom þar, sem Hörðuhólar heita. Sá hann þá orf föður síns í ánni, og var orfhæll inn eða ljárinn fastur á steini. Þótti sýnt, að Helgi hefði drukkn að þarna, og kom upp sá kvittur, að hann hefði gengið í ána í þung lyndiskasti eða einhvers konar ráð- leysu. En ekki er ein báran stök. Rúm um tveim árum síðar, fám dögum fyrir jólin 1868, drukknaði Ás- mundur sonur Helga, efnismaður talinn og atgervi búinn, niður um ís á Þverá, og lék einnig orð á, að það hefði ekki með óvilja verið. III. Þessu næst er að víkja aftur á heiðina, þar sem þau Jón Brands son og Kristín Jónsdóttir bjuggu T í 1M II N N — SUNNUDAGSBLAÖ 253

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.