Tíminn Sunnudagsblað - 26.03.1967, Side 21

Tíminn Sunnudagsblað - 26.03.1967, Side 21
StöSugt leitar maSurinn iengra út í geiminn. Svo getur fariS, aS innan einnar aldar verSi sumarleyfisferSir til annarra reikistjarna jafn vinsælar og páskaferSir til Mallorka nú í dag. — Ef til vill verSa slíkar ferS- ir flótti úr þröngbýli jarSarinnar. un. Aðrir óttast, að erfðaþekking verði misnotuð í þágu valdfíkinna landsdrottnara og henni beitt til framleiðslu á vígdjörfum, en sauð- heimskum hermönnum, og sljóum, en kappsfullum verkþrælum. Og áfram mun þekking okkar vaxa, og við sjáum hálfmennið, óskilgetið afkvæmi líftæknifræð- inga á tuttugustu og fyrstu öld. Hálfmennið er sumpart maður og sumpart vél, og er því falið að starfa við erfið lífsskilyrði, svo sem í himingeimnum og í bækistöðv- um á fjarlægum hnöttum. Blóð hálfmennisins er kalt, dælur sinna öndun og elektrónuheili stjórnar blóðrás og efnaskiptum. Við sjáum heitustu ósk mannsins rætast, óskina um ódauðleikann. Líkur benda til, að um næstu alda- mót geti vel efnaðir góðborgarar keypt sér djúpfrystingu. Þeir verða frystir í íshólfum við mínus 196 gráður á Selsíus, og hvíla svo, unz eftirkomendum þykir henta að vekja þá aftur til lífsins, óskaddaða á sál og lí'kama. Árið 1964 stofn- uðu nokkrir Bandaríkjamenn „L4fstreiningarklúbbinn,“ en víg- orð hans eru: „Freeze — Wait — Reanimate“ eða „Frjós- ið — bíðið — brjótið híðið.“ Nú þegar hafa sexhundruð og fimmtíu meðlimir látið skrá sig til frystingar. Áætlaður kostnaður við sérhvern einstakling er 374 þúsund krónur. Árið tvöþúsund og fimmtíu mun vísindamönnum hafa tekizt að lengja líf okkar um fimmtán ár.. Þegar sigur verður unninn á öll- um sjúkdómum og ellinni að auki, mun „homo sapiens,“ spakmenmð, geta glaðzt yfir ævarandi brauð- striti. Við sjáum furðuveröld. Eng- inn deyr nema sé hann myrtur eða fremji sjálfsmorð. Himnariki og hreinsunareldur gleymast. Bros barna eru sjaldfundnar perlur á götum milljónaborga. Hugtökin „móðir“ og „faðir“ heyra fortíðinni til. í gömlum kirkjugörðum rísa nýjar rannsóknastofur. „Mun engi maðr öðrum þyrma.“ Hin geigvænlega fjölgun jarðar- búa vekur með okkur skelfingu. Syndafíóð holds og beina ógnar u!- veru mannsins, ef tekst ekki að hefta kviknun nýrra einstaklinga. Á jörðunni lifa nú 3,4 miljaröar manna. Nær 500 miljónir þjást af hungri og hörgulsjúkdómum, og hálfur annar miljarður fólks er van- nærður. Samkvæmt útreikningum okkar mun fjölgunin nema 200 þúsund einstaklingum á degi hverj- um næstu tuttugu og fimm ár, ef ekki verður ráðizt til atlögu gegn henni og beitt getnaðarvörnum. Um næstu aldamót mundu þá hrær- ast hér á jöfðunni helmingi fleiri en nú lifa eða 6,8 miljarðar fólks. Þessi tala er uggvæn. Enskur eðlisfræðingur hefur rei'knað út, hversu margir einstakl ingar geti rúmazt á jarðkringlunni. Höfin yrðu þakin flotborgum, en feiknstórir speglar efldu sólarljós- ið í þeirra stað. Hvergi sæist til jarðar millum himinhárra íbúðar- turna. Á sérhverjum fermetra hefð- ust við 120 manns, og með því móti gætu tuttugu-milljónir-sinnum fleiri einstaklingar notið lífsins á jörðinni en nú. Haldi fjölgunin áfram að vera hin sama, þ.e. 200 þúsund einstaklingar á degi hverj- um, verður þessu marki náð á 900 árum. Þýzkur vísindamaður hefur bent á, að í slíku þéttbýli væri tíðni kynmaka á mínútu hverri orð in svo há, að hætta væri á ofhitun jarðarinnar. Hin gífurlega fólksfjölgun skap- ar ótal vandamál, og ber þá fyrst að nefna fæðuskort. Eins og við sögðum, hrjáir fæðuskortur tvo miljarða fólks. Einkum verður þessa vart í hinni svokölluðu þróunarlöndum, og þá ekki sízt í Indlandi og Egyptalandi, og alger T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 261

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.