Tíminn Sunnudagsblað - 03.09.1967, Síða 5
sem umboð heíur heilagrar Skarðs
kirkju eða hans umlboðmanni full-
an og allan reikningsskap.“
Séra Jón Egilsson nefnir tvær
dætur Eiríks, Ingibjörgu og
Ragnheiði. Ingibjörg giftist Jóni
ólafssyni í Klofa og síðar Ormi
Jónssyni. Ragnheiður var þrígift,
fyrst Þorsteini Helgasyni á Reyni
í Mýrdal, þá Magnúsi Jónssyni á
Krossi í Landeyjum og síðast Eyj
ólfi Einarssyni, lögmanni í Dal
undir Eyjafjöllum.
Auk þessara tveggja dætra, sem
séra Jón nefnir, virðist Eiríkur
hafa átt einn son, Hinn 18. júní
Stóri-Klofi í Landsveit.
1457 var gerður í Kloía próventu-
samningur Böðvars Eiríkssonar við
Jón Ólafsson. Handlagði Böðvar
Jóni hálfa jörðina Þrándarholt,
sem liggur í Núpssókn í Árnes-
þingi, til ævinlegrar eignar, en á
móti áskildi Böðvar sér ævin-
legt framfæri og borðhald sæmi-
legt heima í Klofa og þjónustu,
sem dandimanni ber að hafa í
sinni próventu, og þar til vaðmál
til vosklæða og skæði, sem hann
þarfnast, og skyrtuléreft upp á
hvert ár. „Skyldi fyrrnefnd-
ur Böðvar fá sér sjálfur sæng og
kistu, en Jón Ólafsson skyldi
halda sænginni upp til vaðmála,
en fallin sængin og kistan Jóni
til erfðar eftir Böðvar látinn.“
„Var þessi gjörningur gjörður
með upplagi og samþykki Ingi
bjargar Eiríksdóttur, kvinnu
Jóns Ólafssonar, en ef Jóns Ólafs-
sonar missir við og á hann ekki
skilgetið barn eftir með Ingi-
björgu kvinnu sinni, þá skyldi hún
eiga áðurgreinda jörð til ævilegr-
ar eignar og Böðvar Eiríksson
hjá henni til framfæris eftir öll-
um þeim skildaga, sem þetta bréf-
ið útvísar.“
Ef svo er, sem líklegt sýnist,
að Böðvar þessi sé sonur Eirí.ks
Krákssonar, hefur hann ekki ver-
ið gamall maður, er þessi samn-
ingur var gerður, og má ætla, að
líkamlegur krankleiki hafi valdið
því, að hann gerðist próventumað-
ur hjá Jóni, mági sínum.
II.
Jón Ólafsson, maður Ingibjargar
Eiríksdóttur, var af kunnum hMð-
ingjaættum _ kominn. Eoiefarar
hans voru Ólafur í Reykjahlíð í
Mývatnssveit, sonur Lofts ríka á
Möðruvöllum í Eyjafirði, Guttorms
sonar í Þykkvaskógi, Ormssonar
lögmanns á Skarði á Skarðsströnd
Snorrasonar, og kona hans, Guðrún
Hrafnsdóttir lögmanns á Rauðu-
skriðu, Guðmundsson.ar. Móðir Ól-
afst Loftssonar er ókimn, en móð-
ir Guðrúnar var Margrét Björns-
dóttir á Hvalsnesi, Ólafssonar hirð-
stjóra Björnssonar, og Salgerðar
Svarthöfðadóttur á Hvaisnesi,
Haukssonar lögmanns Erlendsson-
ar.
Jóns Ólafssonar er fyrst getið
4. september 1449 á Hólum í
Hjaltadal. Fyrir 18. júni 1457 er
hann kvæntur og kominn suður
að Klofa, en iíklega fyrir skömmu,
því að 29. ágúst það sama ár tek-
ur hann við föður- og móðurarfi
sínum af foreldrum sínum, sem
Ljósmyndir: Páll Jónsson.
þá eru bæði enn á lífi. Hann var
ráðsmaður í Skálholti árið 1467
og sýslumaður í Árnessýslu árið
1471. „Auðugur maður, stórbrot-
Inn og fégjarn.“ Jóns er síðast
getið á i&i 21. janúar 1472. Þá er
hann ginn dómsmanna í dómi, er
gókk á Hlíðarenda í Fljótshlið um
nandtöku Eyjólfs Gunnarssonar lás
ara, sem var einn Krossreiðar-
manna.
Jón og Ingibjörg áttu tvo sonu,
sem kunnir eru, Torfa, er bjó í
Klofa, og Eirík. Hinn 8. janúar
1467 gáfu Jón bóndi Ólafsson og
Ingibjörg Eirí'ksdóttir, Eiríki heitn
um, syni sínum, til friðar, farnað
T I M I N N - SUNNUDAGSBLAÐ
749