Tíminn Sunnudagsblað - 05.11.1967, Blaðsíða 10

Tíminn Sunnudagsblað - 05.11.1967, Blaðsíða 10
Svelt kvennaherdeildar, sem átti a5 verja ráðherrana í stjórn Kerenskís i Vetrar höilinni ( Pétursborg. og hermanna á verði. Ungir ör- eigar munda riffla, og sumir hafa kastað skothylkjabeltum í vélbyss ur yfir öxl sér. Varðflokkar hafa kveikt elda til þess að verma sig við. Öll 'mannleg fyrirhyggja í höf uðborginni, sem þessa haustnótt kveður gamlan tíma og hverfur á vit nýrrar aldar, er saman kom- in í kringum eitthvað tuttugu síma tól.“ Allt fór eins og ætlað hafði ver- ið. Bolsivíkkar mættu nær engri mótspyrnu. Þeir náðu járnbraut- arstöðvum, símastöðvum, herskál um, byggingum dagblaða og ráðu neytum á sitt vald. Það kom varla til þess, að skoti væri hleypt úr byssu. í dögun voru bolsivíkkar teknir við völdum í höfuðborg Rússaveldis. Það var einungis í Vetrarhöllinni, að nokkrir ráð- herrar og embættismenn héldu velli. Þar voru til varnar Kósakka- sveitir, herskólasveinar og ein kvennasveit, dauðafylkið svo kall- aða. Þessar síðustu leifar hins hins gamla valds í höfuðborginni gáfust þó upp eftir eitt dægur. En með viðureigninni um Vetrar- höllina má samt segja, að borgara- styrjöldin í Rússlandi hæfist. Þar var sjóliðið að verki. Fáir höfðu sofið í Krónstadt þessa nótt, og húsakynni sjóliðs- ins voru troðfull af sjómönnum, Lögfræðingurinn Kerenskí — málskrafsmaður meiri en hvað hann var forsjáll. sjóliðum og verkamönnum, sem biðu fyrirmæla. Þau komu um morguninn. Samstundis réðist fjöl- mennur, vopnaður flokkur til upp- göngu á tundurduflabátinn Amúr, sem var nýkominn til hafnar, þeirra á meðal hermenn úr setu- liði borgarinnar. í einn í hópnum, ívan Fleroffskí, hafði orð fyrir þeim: „Þegar ég fann öll þessi þúsund augna hvíla á mér“, segir hann, „skynjaði ég betur en nokkru sinni ’fyrr þá þræði, sem bundu mig þessum sæg augna og andiita. Ég hefði, í stað þess að ávarpa þá, viljað faðma að mér ai hjartans lyst þennan margeygða og marg- höfðaða mannsöfnuð — tákn þess afls, sem i öreigabyltingunni bjó, og hinna miklu drauma, sem senn áttu að verða að veruleika. Þessi stund, síðustu mínúturn- ar áður en ég ávarpaði liðssöfnuð- inn, er mér jafnfersk í minni sem ég hefði þetta allt enn fyrir aug- um mínum. Enginn þeirra, sem lengra lífi áttu að fagna, gat »/Sle translt gloria mundi". Viðnám var hvergi veitt f Pétursborg, nema í Vetr- arhöllinnl. Þó var llðið ekki nema eltt dægur, er byltingarmenn höfðu náð henni á vald sitt. 970 T t M l N N — SUNNTJDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.