Tíminn Sunnudagsblað - 07.12.1969, Qupperneq 18
Hér var eitt sinn eitt af þorpum Eiitreumanna. En
hersveit frá Etiópíu brenn di það vor.ið 1967. Eftir
liggja á sandinum brunaleifjj', leirkerabrot og brömluð
búsgögn. Þetta, sem þarna liggur, hefði eins vel getað
fundizt við fornleifagröft í Egyptalandi eða Litlu-Asíu
og verið mörg þúsund ára gamalt. Líf þessa fólks hef-
ur ekki breytzt til mikilla muna. Verkfæri og lífshættir
hafa í meginatriðum haldizt svipaðir, og samfélagsliætt-
irnir eru sennilega keimlíkir og þeir voru endur fyrir
löng j. Það verður helzt ráSið af niðursuðudósum, sem
stöku sinnum bregður fyrir, að þetta eru ekki bronsald-
arminjar.
f árásum sínum vorið 1967 notuðu Etiópíumenn meðal
annars sprengjuflugvélar, og fullyrt er, að þá hafi log-
andi bensínhlaupi verið steypt yfir varnarlaus sveita-
þorpin, hjarðmennina og fénaðinn á beit og fólkið við
vinnuna sína á akurblettunum. Meira en þrjú þorp
voru brennd til ösku í þessari lotu. En umhejmurinn
rumskaði ekki, og fólkið, sem af komst, fékk ekki aðra
hjálp en þá, sem skæruliðarnir gátu látið í té.
nú eru ekki nema þrír þeirra frjáls
ír menn. Hinir eru fallnir eða
komnir í hin iUræmdu fangelsi.
Etiópíuanenn, einhver hin miðalda-
legustu I öllum heiminum.
Etiópdumenn hafa bannað bók-
staflega allan félagskap Eritreu-
manna. Þetta gildir jafnt uim kven-
félög og æskulýðsfélög sem stétt-
arfélög og samtök, sem gætu ver-
ið stjórnmálalegs eðlis. Fólk á
hvergi að geta náð saman til þess
að bera saman ráð sín. í leyni hef-
ur það þó víða reynt að koma á
einhvers konar samtökum, og
sinna sérstakir erindrekar og trún
aðarmenn þjóðfrelsishersins þvi
hlutverki. I því efni er víða stuðzt
við konur, og annars stsðwr eru
hinir fáu og fátæklejfn skólar
landsins hafðir að yfirskini. Flug-
rit eða slíkt kemur að litlu haldi,
því að ekki er nema fáundi hver
maður læs. Tilraun, sem þjóðfrels-
isherinn gerði til þess að koma
upp skólum á yfirráðasvæðum sín-
um, fór úr skorðum árið 1967, því
að hersveitir Etiópíumanna gerðu
þá sérstakt herhlaup til þess að
koma skólunum fyrir kattarnef. f
þessari herför var flest jafnað við
jörðu á stórum svæðum.
Eritreumenn standa að mörgu
leyti í svipuðum sporum og Alsír-
búar, er þeir börðust við Frakka,
og að sumu leyti svipað þjóðffrels-
isihreyfingunni í Víet Nam f ðnd-
verðu. Hermdarverk þau, sem Eti-
ópíuher vinnur í þorpum og byggð
um, þar sem Ihann kemur, magnar
sífellt hatrið, og þjóðfrelsishern-
um verður þar jafnan bezt til
manna, er etiópskir hermenn hafa
farið um. Höllustum fæti stendur
þjóðfrelsisherinn uppi á hálend-
inu, þar sem fólkið talar eina af
tungum Etiópíumanna og aðhyllist
einnig trúarbrögð þeirra. Þó eru
bæði kristnir menn og Múíhamm-
eðstrúarmenn meðal foringja þjóð
frelsishersins. En mál Eritrea hafa
ekki enn fengizt rædd í alþjóðasam
tökum. Etiópíumenn hafa staðið
mjög fast gegn því, að atferli
þeirra í Eritreu sé hreyft hjá Sam-
einuðu þjóðunum og notið þar lið-
sinnis voldugra aðila.
Að því er keppt, að styrjaldar-
Innar í Eritreu sé helzt hvergi
getið.
1002
TfHINN — SUNNUDAGSBLAÐ