Tíminn Sunnudagsblað - 31.10.1971, Page 8

Tíminn Sunnudagsblað - 31.10.1971, Page 8
Kristinn E. Andrésson er einn þeirra manna sem mestan svip hafa sett á íslenzkt menn- ingarlíf þessarar aldar. Hvern- ig sem menn líta' á pólitískan boðskap lians verður því ekki haggað að áhrif hans í bók- menntum á fjórða áratug aldar- innar og reyndar lengur voru afar glögg og djúptæk. Segja má að rit Kristins, íslenzkar nú- tímabókmenntir 1918—1948, marki lok þess skeiðs er rót- tækir vinstri menn mótuðu öðr- um fremur stefnuna á þeim vettvangi. Þetta mikla vérk hef- ur vitaskuld orðið umdeiit, en það er samið af hrífandi rit- snilld, yfirsýn og víða skörpum skilningi. Þar birtist lesandan- um livarvetna brennandi trú höfundar á mátt orðsins listar til baráttu fyrir félagslegum markmiðum sósíalista. Það ligg- ur að visu í augum uppi að pólitísk stefnufesta, ,,kredda“ Kristins, setur bókmenntamati hans ströng takmörk, en um leið gerir hún túlkunina bein- skeyttari og áherzluþyngri en ella. Og nú þegar baráttuár Kristins heyra sögunni til ættu menn að geta lagt nokkurn veg- inn hlutlægt mat á starf hans. í blóma aldurs gerðist hann leið- togi fylkingar sem brátt varð voldug: það er sú sveit sem kennd hefur verið við rauða penna. í vor sendi Kristinn E. Andrésson frá sér á vegum Máls og menningar stóra bók um tíma rauðra penna, Enginn er eyland. Hún fjallar um árin fyrir seinni heimsstyrjöld, uppgang sósíalista á tíð kreppu og sívaxandi skugga af fasismanum. Aflvaki þessarar alþjóðahreyfingar sósíalista var bundinn dæmi- Sovétríkjanna og vonum manna um sigur kommúnism- ans vítt um lönd, heimsbylt- ingu. Þetta var tími glæstra hug- sjóna, sjö sólir á lofti, — og elömóður manna og atorka í störfum fyrir málstað sinn var mikil. Nú kann okkur að þykja menn á þessum árum íurðu rómantískir og nánast barna- legir í pólitískum hugmyndum sínum. En baráttugleði þeirra og ósérplægni vekur aðdáun, svo mjög sem þeir eiginleikar hafa látið undan síga meðal vor í seinni tíð. Af þessum sökum meðal annars eru tímar rauðra penna girnilegir til fróðleiks. Og nú hefur Kristinn E. Andr- ésson fyrir sitt leyti endurvak- ið þá í hinni nýju bók sinni. Ilún er álitsgerð höfundar um þessi ár, og verður ekki betur skilgreind en með orðum hans sjálfs i inngangi: „Ég sit.hér ekki í stóli sagn- fræðings. Ætlun mín er ekki að rita sögu þeirra ára sem hér verður fjallað um. Frásögn mín takmarkast við að bregða upp mynd, einni af mörgum, endur- vekja áhrif hennar, rekja sam- an í heild einstaka drætti henn- ar og eins að greiða þá sundur. Mig langar til að geta leitt mönnum fyrir sjtnir eða látið menn finna hver var kjarninn eða inntakið í baráttu þessa tíma, eins og hún 'var háð og skilin af þeim er nefnast „rauð- ir pennar“, og þá einskoi’ða ég mig ekki við ársritið með því nafni né rauða penna hér heima, heldur reyni jafnframt að bregða ljósi á hliðstæða bar- áttu erlendis eins og ég tel nauðsynlegt til að fylla upp myndina“. Af þessum orðum er fullljóst hvers eðlis bók Iíristins er. Vera má að sumir heíðu frem- ur kosið annars konar verk frá hendi hans, minningar frá starfsferli höfundar eða sögu þeirra samtaka þar sem hann var í fyrirsvari. En fráleitt er að láta slikar óskir villa sér sýn við lestur bókarinnar: vitanlega ber að meta hvert ritverk í ljósi þess hlutskiptis sem höf- undur ætlaði því. Og þótt Eng- inn er eyland sé aðeins að nokkru leyti minningabók er hún mjög persónulegt rit eins og allt sem Kristinn E. Andr- ésson liefur samið. Bókin er full af lífi, rituð af mikilli mælsku og rómantískum and- hita: höfundur er jafn trúr mál- stað sínum og fyrrum, — og bjartsýnn á framgang hans þrált fyrir allt. Það er alkunna hver áföll hafa riðið yfir pólitiskan átrún- að Kristins og samherja hans frá dögum rauðra penna. Upp- víst varð um stórfelldar kúgun- araðgerðir á valdaárum Stalíns í Sovétríkjunum og annað misferli í framkvæmd kommún ismans þar og gegn öðrum þjóðum. Þegar menn gerðu sér þetta almennt Ijóst um síðir linuðust ærið margir í trúnni, einnig þeir sem harða’st höfðu gengið fram í áróðri fyrir Sovétríkjunum. En Kristinn lætur ekki bilbug á sér finna: ANDI BARÁTTUSKEIÐS 800 T I M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.