Tíminn Sunnudagsblað - 31.10.1971, Síða 11

Tíminn Sunnudagsblað - 31.10.1971, Síða 11
Örskammt frá hverasvæðinu á Hveravöllum er hraunsprunga með lítilfjörlegri hleðslu. Þarna var eitt sinn fylgsni Eyvindar og Höllu, trúlega þó aðeins skamma hríð, því að hvorki hef- ur þar vistlegt verið né óhult á þeim tíma árs, sem hugsan- legt var, að menn ættu leið um Kjöl, er að vísu mun hafa verið fáfarinn um miðbik átjándu aldar, sem og aðrar öræfaleiðir, svo sem sjá má af því, að eitt sinn kom til tals hjá yfirvöld- unum að gefa Eyvindi upp sak- ir, ef hann gerðist leiðsögumað- ur ferðamanna á fjöllum. Hann- grímur Jónasson, sem marga stökuna hefur kveðið, orti eitt sinn, er honum varð hugsað til Höllu, sem ein kvenna hefur legið mörg ár úti á fjöllum, svo að kunnugt sé: Örlög fárra urðu svona. Undir hraunsins Skútastöllum bjó hér áður íslenzk kona útlagi — á Hveravöllum. Meiri tryggð af sönnum sefa sýnist fjarri huga mínum, að einhver vildi önnur gefa auðnulausum vini sínum. Laufey Valdimarsdóttir var aldrei í tölu þekktra hagyrð- inga. Eftir hana er þó þessi vísa: Sofðu, vinur, vært og rótt, vaki ég hjá þér þessa nótt, líður hún eins og elding fljótt, unz okkur birtan skilur. Magnús Teitsson á Eyrarbakka kvað á þennan hátt um stúlku eina, líklega á þeim árum, er sofið var í baðstofum: Er að hátta mærin mjúk, milt á sígur húmið. Augun mæna öfundsjúk upp í hjónarúmið. Einar Einarsson, sem eitt sinn var djákni í Grímsey, komst svo að orði, er hann virti fyrir sér rústir eyðibæjar: Bærinn lengi byggður var, blómleg engin þóttu. Heyjafeng á flatirnar fljóð og drengir sóttu. Veit ég prúður var hann fyrr vors í skrúði þínu. Gg þegar knúði kuldi á dyr kotið hlúði að sínu. Dalurinn gnótt af öásevid bauð dag og nótt á stumfæAi. Nú er tóttin eftir auð, orðið hljótt á grundum. Grær og týnist gata í mó, glatast stóð í haga. í leynum dalsins liggur þó lands og þjððar saga. Hæpið er, að mönnam vegni að verðleikum, og má raunar hvarvetna sjá þess dæmi, að svo er ekki. Halldór Helgason á Ásbjarnarstöðum orðaði þetta svo: Lán og gæfa gæðamanns gengur á höltum fótum, en djöfullinn og herlið hans hjálpar sínum nótum. Um duttlunga mannlífsins og viðbrögð mannskepnunnar við þeim er einnig þessi vísa Bene- dikts Gíslasonar frá Hofteigi: Margur hló og hafði ró, hvar sem bjó og fór hann, átti þó sinn auðnuskó ekki nógu stóran. Indriði Þórkelsson á Fjalli lýsti svo þrautaráði þess, sem á óhægt um vik í vosi tilver- unnar: Og þótt harðni heljartök, höfum við í draumi einhvers staðar auða vök ofan að lífsins straumi. Gnúpur. sl skammar fyrir brennivínið, alveg eins og það er til skammar fyrir þig að yrkja kvæði, án þess að kunna það. Haltu þig frá hvoru tveggja — þá verðurðu kannski að manni. Einar svaraði engu, en leit und- an, og var líkast því, sem liann beygði af. Það er svo sem ekkert undarlegt, þar sem hann ætti hvorki að drekka né yrkja, en ger- ir hvort tyeggja, hugsaði ég, og var næsta fegirin að vera ekki í spor- um Einars. Þessir verkamenn voru sjáanlega ekki beint hneigðir fyrir hugaróra, enda starfið fjarri slíku vafstri. Dagurinn leið að lokum, og við gengum stirðir og rykgráir upp að skúr á norðurbabka hafnarinnar, þar sem sett var merki við nafn okkar, sem höfðum unnið við sem- ent í þágu brezka heimsveldisins. — Fari, það bölvað — það rign- ir í norðankaldann, sagði Snorri, þar sem við urðum samferða upp Tryggvagötuna. — Rignir, svaraði ég — en það getur birt til á morgun, ef hann skefur af sér skýin. — O-jæja, obkur má standa á sama. Við verðum í þessari sömu lest út vikuna, ef við fáum ekki fleiri menn, sagði Snorri. Að svo mæltu kvaddi hann. Hann hélt í vestur en ég í austur, hvor til síns heima. ........- ■■■— Þeir, sem hugsa sér aS halda Sunnudags- blaðinu saman, ættu aS athuga hiS fyrsta, hvort eitthvaS vantar í hjá þeim og ráSa hót á því. T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 803

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.