Tíminn Sunnudagsblað - 31.10.1971, Page 19

Tíminn Sunnudagsblað - 31.10.1971, Page 19
BRÉFRITARINN — bóndinn i Nesi í Höfðahverfi, Einar Ásmundsson. Bréf það, sem hér birtist, skrif- aði Einar Ásmimdsson í Nesi í Höfðahverfi séra Sigurði Gunn- arssyni á Hallormsstað árið 1878. Það er dagsett í Nesi 2. apríl það ár. Það sannar í fyrsta lagi, að menu kveinkuðu sér ekki við að skrifa löng og rækileg bréf í þá daga, en í öðru lagi vitnar það fag- urlega um það, að þá voru uppi menn sem hugsuðu margt og nenntu að brjóta það til mergjar, er þeir hugsuðu um. Vissulega var Einar í Nesi í fremstu röð. En til er gnægð gamalla bréfa, sem ber því órækt vitni, hversu margir af þeirri kynslóð, er uppi var fyrir hundrað árum, héldu vöku sinni af mikilli gerhygli. Bréf Einars, sem varðveitzt hef- ur að Stafafelli í Lóni, mun hai|a orðið þar eftir, er Arnór Sigmunds VIÐTAKANDI — presturlnn á HallormsstaS, séra Sig- uröur Gunnarsson. son fékk þaðan önnui' bréf hans vegna söguritunar sinnar. Það er á þessa leið: „Elskulegi fornvin! Þó öllum sé ennþá huliö, hvenær pöstur gengur austur, þá ímynda ég mér, það verði innan skamms, og því vil ég ekki draga að hripa þér nokkrar línur, en þær eiga eingöngu að vera til að færa þér beztu þakkir fyrir vinarbréf þitt hið síðasta, sem var eins og svo mörg önnur bréf þín, ágætt í alla staði og fullt skynsamlegra skoð- ana. Já, ég þakka þér kærlega fyrir allar þínar góðu bendingax- og skýringar bæði um kirknaskipun og klerkalaun og svo um veginn milli Norðurlands og Austurlands. Við Þingeyingar áttum nú í fcbr- úar allrækilegan sýslunefndar- fund eða liéraðsþing, sem ég vil heldur kalla þessar samkomur. Þar sátum við 5 daga og héldum vel áfram flestir Þar var meðal annars samþykkt tii fulls að brúa Skjálfandafljót að Goðafossi, afla sér grjóts og útvega steinlím í sumar, aka því að brúarstæðinu næsta vetur og hlaða vorið eftir stöplana við brúarsporðana, fá það sumar öll önnur efni til brúarinn- ar, aka þeim veturinn eftir og koma brúnni á vorið 1880. Þann- ig var sú ráðagerö Hætt þykir mér nú við, að lengi dragist brúargjörðin á Jökul. h í Axarfirði, einkum ef Þingeyjar sýslu verður skipt í tvö héruð um Reykjaheiði, eins og alþingi samdi lög um í sumar. Skipting sú hefir nokkra kosti, en einnig ókosti. Þó eystri hlutinn beiddist hennar, þá er ég hræddur um, að hún verði honum meira í óhag, þegar öllu er á botninn hvolft. Ég þykist sjá, að Smjörvatnsheiði verði illur þrösk- uldur á þjóðveginum, sem við höf- um talað um, öðrum torfærum má bægja frá. En hvernig mundi að leggja þjóðveginn héðan til Aust- fjarða yfir Fljótsdalsheiði, þar sem þú bendir á? Verður ekki nærri því eins greiðfær og skammur vegur úr Ljósavatnsskarði austur í Seyðisfjörð, ef Fljótsdalsheiði er farin frá brú hjá Grund á Jökul- dal að Bessastöðum og svo innan við botninn á Lagarfljóti? Ég tel sjálfsagða brú á Fljóts- dalsá, Gilsá og Eyvindará. Beinast liefði verið að geta komizt yfir Jök- ulsá nálægt Skjöldólfsstöðum eða Hjarðarhaga yfir Fljótsdalsheiði upp frá Hnefilsdal og beint það- an að Einhleypingi, en þar hefði átt að brúa fljótið, þar er gott að hlaða stöpla í það. Brú sú mundi sjálfsagt kosta mikið en meira held ég kostaði að brúa Jökulsá á Fjöllum, þar sem Mývatnsvegur- inn liggur, en tækt er það. Það er annars líklega fullsnemmt að tala um þetta ennþá, en efcki kostar um- talið fé, og menn tala um margt óþarfara hvort sem er. Eitt atriði er það í kirkjumál- inu, sem ég man nú ekki hvort við höfum borið saman skoðanir okkar um, það er um fjárhald og bygging kirknanna. Einhver skrif- aði um það fyrir skemmstu í „Skuld“, og virðist mér hann álíta ranglátt, að söfnuðirnir kostuðu viðhald kirknanna. Þó vildi hann 811 Ur gomlum kistuhandraða: Sendibréf frá Nesi til Hallormsstaðarprests t t M 1 N N SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.