Morgunblaðið - 01.05.2004, Page 1
Punktar úr
ljóðum
Ljóð Laxness kveikjan að verkum
Kristjáns | Listir
Lesbók og Börn í dag
Lesbók | Þýðinguna eða lífið? Santeria og sósíalismi á Kúbu
Konunglegir söngvarar Börn | Spennandi sumarsamlokur
Fjör í frjálsum íþróttum Krakkar á ferð og flugi
STOFNAÐ 1913 118. TBL. 92. ÁRG. LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
FRÆÐSLA til neytenda og frysting
á smituðu kjúklingakjöti hefur leitt
til fækkunar á kamfílóbaktersmiti í
mönnum. Smituðum kjúklingum hef-
ur þó ekki fækkað.
Jarle Reiersen, dýralæknir og sér-
fræðingur í alifuglasjúkdómum,
greindi frá því í erindi sem hann hélt
á Vísindadegi að Keldum í gær að á
árunum 1998–2000 hefði blasað við
kamfílóbakterfaraldur í mönnum
vegna neyslu ferskra kjúklinga.
Honum hefði hins vegar náðst að af-
stýra. Þrátt fyrir að neysla á fersk-
um kjúklingum hérlendis hafi aldrei
verið meiri en nú hafi kamfílóbakter-
smit í mönnum á árinu 2003 aðeins
verið 16% af þeim sýkingum sem
greindust 1999.
Stóra gátan óleyst
„Það eru ansi miklar breytingar
sem hafa átt sér stað. Við teljum
þetta vera eftirliti með kjúklinga-
framleiðslu að þakka. Við könnum
hvern einasta fuglahóp 2–5 dögum
áður en hann fer í slátrun. Ef það
greinist sýni úr þeim hópi þá er allur
hópurinn frystur,“ segir Jarle.
Hann segir að í byrjun árs 2000
hafi embætti yfirdýralæknis hafið
víðtækt, reglubundið eftirlit með ali-
fuglum. „Þetta skilar sér í færri til-
fellum í mönnum. Stóra gátan núna
er að finna út af hverju kjúklingar
smitast og finna markvissar aðgerðir
til að stöðva smit inni á kjúklingabú-
unum,“ segir Jarle.
Kamfíló-
bakter
á undan-
haldi
Morgunblaðið/RAX
1. maí – baráttudagur
verkalýðsins
FRAMINN og frægðin hafa aldrei
verið takmarkið í sjálfu sér, segir
rússneska óperusöngkonan Olga
Borodina í viðtali
í Lesbók í dag en
hún heldur
tvenna tónleika
með Sinfón-
íuhljómsveit Ís-
lands á Listahá-
tíð í Reykjavík í
maí.
„Það sem
skiptir mig
mestu máli, og
hefur alltaf gert, er að sjá ánægt
fólk í salnum, andlit sem eru ham-
ingjusöm.“
Borodina segist alltaf hafa stefnt
að því að verða best en hún er álitin
ein af fremstu söngkonum heims
um þessar mundir. Talað hefur ver-
ið um Mokka-röddina og Ferrari
óperunnar í því sambandi.
Frægðin
aldrei tak-
mark hjá
Borodinu
Hef alltaf stefnt/Lesbók
Olga Borodina
ljós reiði og hneykslun yfir framferði varðanna.
„Hernámsliðið kemst upp með hvað sem er,“
sagði Faez Ahmed, verslunareigandi í borginni,
eftir að hafa séð útsendingarnar. Ungur súnní-
múslími, Akil Taleb, sagðist hafa orðið mjög
reiður vegna myndanna. „Ég er furðu lostinn
vegna þess að ég hélt ekki að þeir myndu gera
svona hluti. Þeir komu til að frelsa Írak og lof-
uðu okkur öryggi,“ sagði Taleb.
gær hafa mikla andstyggð á framferði banda-
rísku varðanna og hét að þeim yrði refsað.
Bresk heryfirvöld sögðu í gær að verið væri að
rannsaka hvort breskir hermenn hefðu misþyrmt
íröskum fanga. Dagblaðið Daily Mirror birti í
gær myndir af manni sem segist hafa sætt mis-
þyrmingum af hálfu breska hermanna.
Arabískar sjónvarpsstöðvar sýndu í gær
myndir af nöktum föngum sem fangaverðirnir
neyddu til að vera í ýmsum auðmýkjandi, kyn-
ferðislegum stellingum. Íbúar í Bagdad létu í
TALSMAÐUR Kofi Annans, framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna, sagði í gær að Annan væri
felmtri sleginn vegna mynda af illri meðferð
bandarískra hermanna á íröskum föngum í Abu
Ghraib-fangelsi í Bagdad. „Hann vonar að um
einangrað tilfelli hafi verið að ræða og fagnar því
sem virðist vera einbeitt ákvörðun bandaríska
hersins um að draga þá sem ábyrgðina bera fyr-
ir rétt og hindra að afbrot af þessu tagi geti end-
urtekið sig,“ sagði talsmaðurinn.
George W. Bush Bandaríkjaforseti kvaðst í
Annan fordæmir pynt-
ingar á íröskum föngum
SÞ, London, Bagdad. AFP, AP.
Öllum múslímum/18
HÁTÍÐARHÖLD voru í gær í Evr-
ópusambandinu öllu og ekki síst
nýju ríkjunum 10 sem fengu í gær-
kvöld aðild að sambandinu. Á mynd-
inni sést er menn slepptu blöðrum
við Brandenborgarhliðið í Berlín.
Ráðamenn sambandsins komu sam-
an í Dyflinni en Írar eru forystuþjóð
sambandsins þetta misserið. Var
mikill öryggisviðbúnaður í borginni,
að sögn fréttavefjar breska rík-
isútvarpsins, BBC.
Í Eystrasaltslöndum tóku menn
forskot á sæluna þegar í gær og
sungu tugþúsundum saman á götum
úti til að fagna þessum sögulegu
þáttaskilum en löndin voru fram til
1991 hluti sovétveldis kommúnista. Í
Litháen báðu þeir sem skipulögðu
hátíðarhöldin alla um að láta innreið
Litháens varpa birtu á ESB í orðsins
fyllstu merkingu með því að láta öll
ljós loga í fimm mínútur þegar að-
ildin tæki gildi kl. 10 að ísl. tíma,
sagði í frétt AP.
Ekki voru samt allir sáttir. „Það
er ill nauðsyn að ganga í ESB,“
sagði Zsolt Meszaros, 35 ára læknir í
Búdapest í Ungverjalandi. „Það eru
hins vegar of margir óvissuþættir í
þessu til að ég geti lýst meiri hrifn-
ingu en þetta.“
Prodi býður ný ríki velkomin
Romano Prodi, forseti fram-
kvæmdastjórnar ESB, fagnaði tíma-
mótunum í gær. „Eftir að hafist var
handa við að sameina Evrópu fyrir
50 árum, má segja að við stöndum í
dag nær því en nokkru sinni fyrr að
búa í sameinaðri heimsálfu fjarri
gömlum landamærum kalda stríðs-
ins,“ sagði Prodi. „Sem forseti fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins vil ég leggja áherslu á að
framkvæmdastjórnin er til staðar til
að þjóna borgurum Evrópusam-
bandsins. Það er okkar að tryggja að
Evrópusambandið starfi fyrir borg-
arana. Það er okkar að skapa fleiri
störf fyrir borgarana og bæta starfs-
umhverfi þeirra.“
Fagnað í nýjum ríkjum ESB
AP Stækkun ESB/16/19/36
♦♦♦