Morgunblaðið - 01.05.2004, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 01.05.2004, Blaðsíða 28
LANDIÐ 28 LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Húsavík| Í vetur hefur staðið yfir á Húsavík nýstárlegt verkefni sem lýtur að starfsmenntun öryrkja. Verkefnið, sem vakið hefur mikla athygli og þótt takast vel, er sam- vinna Félags- og skólaþjónustu Þingeyinga, Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga og Framhaldsskólans á Húsavík. Þessir aðilar hafa nú fengið sem nemur 40 milljónum króna, svo- nefndan Leonardo da Vinci-styrk frá Starfsmenntunaráætlun Evr- ópusambandsins. Sótt var um styrkinn til þriggja ára í samvinnu við Holland, Ítalíu, Litháen og Slóv- eníu. Þetta þróunarverkefni um end- urhæfingu öryrkja hófst á Húsavík í ágúst síðastliðnum. Þá hófu sextán einstaklingar níu mánaða endur- hæfingu á sviði menntunar, heil- brigðis- og félagsþjónustu með það að markmiði að fara í vinnu eða halda áfram í námi að endurhæf- ingu lokinni. Árangurinn af verk- efninu er góður, en 75% þeirra sem hófu endurhæfinguna munu ljúka henni með virkri þátttöku í skóla- og eða atvinnulífi. Styrkurinn skiptir miklu máli Verkefnið hefur eins og áður seg- ir fengið mikla athygli, en það þykir m.a. sérstakt fyrir það að einstak- lingarnir eru heima hjá fjölskyldum sínum á meðan á endurhæfingu stendur. Þeir eru byggðir upp fjár- hagslega, félagslega, heilsufarslega og menntunarlega samfellt í níu mánuði sem skilar sér síðan í virk- ari þjóðfélagsþegnum. Soffía Gísladóttir, félagsmála- stjóri Þingeyinga, var að vonum ánægð þegar styrkurinn var í höfn. „Styrkurinn skiptir verkefnið miklu máli, en viðurkenning sem þessi er líka mjög mikilvæg. Þróunarstarfi því sem hófst fyrir tæpu ári verður fram haldið með stuðningi Evrópu- sambandsins næstu þrjú árin og munu þessar húsvísku stofnanir halda áfram að þróa og útfæra verkefnið. Þá er einnig mikilvægt að inn- lendir aðilar komi áfram að verk- efninu því vissulega fara talsverðir fjármunir af þessari upphæð í þró- unarstarf í hinum löndunum fjór- um,“ sagði Soffía að lokum. Verkefni um endurhæfingu öryrkja fær 40 milljóna Evrópustyrk Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Soffía Gísladóttir félagsmálastjóri. Nýr Landbúnaðarháskóli | Eft- irfarandi samþykkt var nýlega gerð á fundi skólanefnar Garðyrkjuskól- ans vegna frumvarps landbún- aðarráðherra um sameiningu Rann- sóknarstofnunar landbúnaðarins og Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri í Landbúnaðarháskóla Íslands. „Skólanefnd Garðyrkjuskólans fagnar þeim skrefum sem er verið að stíga til sameiningar mennta- og rannsóknastofnana landbúnaðarins. Skólanefndin telur hins vegar að starfsemi Garðyrkjuskólans eigi margt sameiginlegt með starfsemi Rannsóknarstofnunar landbúnaðar- ins og að mörgu leyti Landbún- aðarháskólans á Hvanneyri. Því tel- ur nefndin einsýnt að sameina eigi nú þegar Rannsóknarstofnun land- búnaðarsins, Landbúnaðarháskól- ann á Hvanneyri og Garðyrkjuskól- ann undir hatti Landbúnaðarháskóla Íslands sem yrði deildaskiptur. Nefndin bendir einnig á að Garðyrkjuskólinn hefur nú þegar leiðbeiningaþjónustu í garðyrkju í náinni samvinnu við fræðslu og rannsóknir á Reykjum. Því telur nefndin að hugsa þurfi mál- ið í víðu samhengi til að fræðsla, rannsóknir og leiðbeiningar gagnist landbúnaðinum sem best.“ Ólafsfjörður | Hið árlega fyrirtækjamót í bandý var haldið í Íþróttamiðstöðinni í Ólafsfirði fyrir skömmu í fimmta sinn. Þátt taka félög og fyrirtæki í bænum sem hafa það að markmiði að efla liðsandann og skemmta sér ræki- lega einn dag. Í þeim tilgangi eru hannaðir nýir bún- ingar fyrir hvert mót, hvatningarhróp æfð, inngangan skipulögð og ýmislegt fleira sem ætíð vekur gleði. Mótin síðustu ár hafa tekist frábærlega, og var mótið núna engin undantekning, enda þátttaka mikil og lífsgleðin á háu stigi. Mótinu lýkur alltaf með skemmtun í félagsheimilinu Tjarnarborg um kvöldið, þar sem skrautleg skemmtiatriði voru flutt og sitt- hvað fleira. Verðlaun voru veitt einstaklingum fyrir allt mögu- legt og ómögulegt en einnig voru veitt liðaverðlaun- :Litríkasta liðið: Úrvalslið Valbjargar; flottustu leiknu eftirhermuna: Sparisjóðurinn; flottustu búninga: Tækjasalur; sigur: Sjópullur; draumaliðið: Leikskól- inn Leikhólar; og að lokum er það sjálft lið mótsins: Múlatindur. Efldu liðsandann á bandýmóti Morgunblaðið/Helgi Jónsson Lið ársins: Starfsmenn á bifreiðaverkstæðinu Múlatindi og makar þeirra mynduðu lið ársins að þessu sinni, sem var í meira lagi vígalegt.Laugavegi 32 sími 561 0075 Banki allra landsmanna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.