Morgunblaðið - 01.05.2004, Síða 4

Morgunblaðið - 01.05.2004, Síða 4
FRÉTTIR 4 LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Opið í dag og sunnudag frá kl. 13-16 www.netsalan.com „Alltaf með nýjungar!“ Aðeins það besta! Netsalan ehf. - Knarrarvogi 4, 104 Reykjavík - Sími 517 0220 landsins langbesta verð 695.000 með bremsum. Knaus hjólhýsi það er framtíðin Munið Viking fellihýsin - Sölusýningarhalda áfram FORSVARSMENN Norðurljósa héldu fund með trúnaðarmönnum fyrirtækisins í gær vegna þeirrar stöðu sem uppi er vegna framlagn- ingar frumvarps um eignarhald fjöl- miðla á Alþingi. Skarphéðinn Berg Steinarsson stjórnarformaður segir að rætt hafi verið um hvaða þýðingu það gæti haft yrði frumvarpið að lög- um. „Það mun örugglega koma til sam- dráttar í rekstrinum nái þetta fram að ganga, sérstaklega hjá Íslenska útvarpsfélaginu, sem leiðir til fækk- unar starfsmanna,“ segir Skarphéð- inn en ekki hafi verið tilgreint hversu víðtækar uppsagnirnar yrðu né hvenær þær kæmu til fram- kvæmda. Farið var yfir lög um hóp- uppsagnir og hvernig standa eigi að þeim. Í gær gengu um vinnustaði Norð- urljósa undirskriftalistar þar sem frumvarpinu, eins og það er lagt fram, var mótmælt. Höfðu starfs- mannafélögin frumkvæði að því og ráðgert er að afhenda listana ráð- herrum í ríkisstjórninni á mánudag- inn. Á þá að ræða frumvarp um eign- arhald á fjölmiðlum á Alþingi. Einnig á að hvetja starfsmenn til að mæta á þingpalla við það tækifæri. Á þriðjudaginn verður haldinn sameiginlegur fundur starfsfólks allra félaga Norðurljósa í Smárabíói. Rætt var um fyrirkomulag hans á fundinum með trúnaðarmönnum í gær. „Við sýndum því skilning og ætlum að greiða götu fólks svo af því geti orðið. Annars er þessi fundur á vegum starfsmannanna,“ segir Skarphéðinn Berg. Fundur með trúnaðarmönnum hjá Norðurljósum Farið var yfir lög um hóp- uppsagnir JÓN Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, segir í viðtali við Viðskipta- blaðið í gær það ekki endilega hollt að einstakir aðilar eigi meirihluta í fjölmiðlum. Það kemur til greina í hans huga að setja reglur þar að lút- andi og eins hvernig fréttastofum er stýrt. Hann segist vera tilbúinn að sætta sig við að eiga bara 25% í Norðurljósum verði engar frekari kvaðir. Hans skoðun sé sú að fjöl- miðlar eigi ekki að lúta öðrum reglum en almennum samkeppnis- reglum en hann sé hins vegar tilbú- inn að koma til móts við áhyggjur sem fólk hefur með þessum hætti. Jón Ásgeir telur að ekki sé hægt að reka DV eitt og sér en Frétta- blaðið geti hins vegar skilað ágætri afkomu. Með samruna blaðanna í Frétt ehf. var hægt að samnýta dreifikerfið. Spurður um ljósvakamiðla Norð- urljósa segir hann að reksturinn hafi staðið höllum fæti. Ekki hafi verið borgað af lánum né af vöxtum. Stöð 2 hafi verið haldið á lofti af markaðsráðandi fyrirtækjum. Lögin um eignarhald á fjölmiðlum útiloki þetta og einnig eignarhald banka og fjárfestingarsjóði. Það sé út í hött enda hafi enginn hringt í hann og óskað eftir að kaupa hlutann í Norð- urljósum. Norðurljós óbreytt Jón Ásgeir segir jafnframt í Við- skiptablaðinu að engin ákvörðun hafi verið tekin um hvort hann ætli að eiga dagblöðin áfram. Baugur ætli áfram að vera í fjölmiðlun. Það verði að koma í ljós hvort félagið hætti að vera markaðsráðandi fyr- irtæki á öðrum sviðum til þess að geta átt ljósvakamiðil eða hvort það eigi bara blöðin. Ákveðið hafi verið að Norðurljós verði í óbreyttri mynd þangað til niðurstaða fáist fyrir dómstólum. Jón Ásgeir Jóhannesson í Viðskiptablaðinu Reglur um hámarkseign koma til greina TÓLFTA fundi nefndar Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun lauk í gær í höfðustöðvum SÞ í New York. Alls sóttu eitt hundrað ráðherrar fund- inn og hafa þeir aldrei verið fleiri frá stofnun hennar árið 1993. Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra gerði grein fyrir ákvörðun íslenskra stjórnvalda um að auka þróunarframlög Íslands. Þá benti hún m.a. á nauðsyn þess að styrkja framkvæmd alþjóðlegrar áætlunar um varnir gegn mengun sjávar frá landi. Kofi Annan framkvæmdastjóri SÞ ávarpaði fundinn og sagði í ræðu að athygli heimsbyggð- arinnar hefði að undanförnu beinst frá sjálfbærri þróun að hryðjuverkum, gereyðingarvopnum og Íraksstríðinu. Þótt slíkt væri skiljanlegt mætti ekki frekar beina athygli og kröftum frá hinni víð- tækari baráttu fyrir almennri velferð mannkyns- ins. Umhverfisráðherra á fundi SÞ um sjálfbæra þróun Skýrt frá ákvörðun um aukin framlög Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ, og Siv Friðleifsdóttir um- hverfisráðherra ræðast við í höfuðstöðvum SÞ í New York. NOTENDUR mbl.is geta pant- að ókeypis smáauglýsingar á vefnum fram til 1. júní nk. Aug- lýsingarnar munu birtast á smáauglýsingavef mbl.is, og verður hver auglýsing inni í sjö daga. Að þeim tíma loknum er auglýsandanum sendur tölvu- póstur þar sem honum er boðið að framlengja birtingu um aðra sjö daga eða að bóka nýja aug- lýsingu. Auglýsing getur innihaldið allt að 160 stafi og hægt er að láta mynd fylgja sé þess óskað. Ókeypis smá- auglýsingar á mbl.is „NÝR aðili hefur kvatt sér hljóðs á sviði orkumála,“ sagði Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra þeg- ar hún gangsetti Djúpadalsvirkjun í Eyjafjarðarsveit síðdegis í gær. „Þetta er mikill gleðidagur, virkj- unin er glæsileg.“ Valgerður sagð- ist vita til þess að eigendur Fall- orku, sem reistu Djúpadalsvirkjun, hefðu farið víða um landið í leit að heppilegu virkjunarsvæði og valið Djúpadalsá í Eyjafjarðarsveit. „Við Eyfirðingar erum mjög ánægðir með það val.“ Aðalsteinn Bjarnason er for- svarsmaður Fallorku, hann er Vestfirðingur, búsettur í Reykja- vík. „Ævintýrið hefur orðið að veruleika,“ sagði hann við form- lega opnun virkjunarinnar. Tvær vélar eru í virkjuninni, smíðaðar í Svartaskógi í Þýskalandi og er hvor um sig 950 kW eða samtals 1900 kW. Aðalsteinn sagði útlitið gott en framleiðsla hefði hafist fyr- ir nokkrum vikum og verið heldur meiri en menn gerðu ráð fyrir. „Og það er bara gott,“ sagði hann. Norðurorka keypti fyrr á árinu 40% hlut í Fallorku en kaupir auk þess rafmagn frá virkjuninni og er hún afhent á Botni í Eyjafjarð- arsveit. Framkvæmdir við virkjunina hófust í apríl á síðastliðnu ári og er um að ræða stærstu einkavirkjun landsins. Djúpadalsá var stífluð of- an við gljúfrið en ofan hennar myndað uppistöðulón. Vatninu er svo veitt eftir skurði að inntaks- mannvirki og þaðan er 900 metra fallpípa að stöðvarhúsinu. Í því eru vélarnar tvær sem framleiða raf- magnið og þaðan liggur jarð- strengur að Laugalandi. Að- alsteinn sagði virkjunina alsjálfvirka þannig að ekki þyrfti að hafa vaktmann á staðnum. Alls eiga fimm landeigendur í Eyja- fjarðarsveit land að áhrifasvæði virkjunarinnar. Morgunblaðið/Kristján Djúpadalsvirkjun formlega gangsett. Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, ræðir við Aðalstein Bjarnason hjá Fallorku og konu hans, Hjördísi Sigurðardóttur, á stíflu virkjunarinnar. Djúpadalsvirkjun í Eyjafjarðarsveit formlega opnuð Ævintýri að veruleika BROTIST var inn á lager Puma-um- boðsins við Skemmuveg í Kópavogi í fyrrinótt. Hurðin var spennt upp og höfðu þjófarnir á brott með sér mikið af íþróttavörum; skóm og treyjum. „Það var stolið mikið af dökk- bláum íþróttagöllum og Puma-fót- boltaskóm,“ segir Torfi Tómasson, einn af eigendum umboðsins. Hann tekur þó fram að ekki er bú- ið að ganga úr skugga um hverju ná- kvæmlega var stolið. Þarna sé mikið af íþróttaskóm og tískuíþróttafatn- aði. Þótt málið sé alvarlegt sér hann spaugilegu hliðina á málinu og spyr hvernig menn ætli að koma þessu í verð. Torfi segir að svo virðist sem þjóf- arnir hafi bakkað bíl upp að dyrun- um og hent varningnum þar inn. Fyrirtækið sé ekki búið að vera lengi með lager á þessum stað og því ekk- ert öryggiskerfi tengt. Svo virðist sem mennirnir hafi verið búnir að kanna aðstæður áður. Lögreglan í Kópavogi rannsakar málið. Stuldurinn kemur sér illa fyrir umboðið enda var búið að selja hluta af varningnum fyrir sumarið auk þess sem fjárhagslegt tap er nokkuð. Stálu bláum Puma- íþróttagöllum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.