Morgunblaðið - 01.05.2004, Side 60
ÍÞRÓTTIR
60 LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Langar þig í Íþróttalýðháskóla í Danmörku?
Íþróttalýðháskólinn í Sønderborg og UMFÍ hafa gert með sér samstarfssamn-
ing og gefst nú íslenskum ungmennum kostur á að stunda nám við frábærar
aðstæður í Danmörku. Veittur er styrkur til námsins.
18 vikna lýðháskóladvöl sem er skipt í tvær annir
1. önn: - 7 vikna persónuleg þjálfun í eftirfarandi íþróttagreinum:
Seglbretti, siglingar, útilífsnámskeið, strandblak, þríþraut og þolfimi/ dans.
Ein ferðavika á tímabilinu til La Santa, Suður-Frakklands eða Tékklands.
2. önn: - 10 vikna þjálfaranámskeið þar sem þátttakendur geta
fengið kennslu í eftirfarandi:
Blaki, badminton, knattspyrnu, handbolta, jaðaríþróttum (hjólreiðar,
línuskautar, kajak, klifur o.fl.), þolfimi.
Kennsla hefst 15. ágúst 2004 í Íþróttalýðháskólanum í Sønderborg.
Skráning á netinu admin@ihs.dk.
Ath! Þú verður að vera orðin(n) 17½ árs.
Sjá nánar á heimasíðu skólans www.ihs.dk.
Kynningarfundur um nám í Íþróttalýðháskólanum í Sønderborg verður
haldinn í þjónustumiðstöð UMFÍ, Fellsmúla 26, 108 Reykjavík, þriðju-
daginn 4. maí kl. 19:30.
UMFÍ hefur gert samstarfssamninga við fleiri íþróttalýðháskóla í Danmörku.
Nánari upplýsingar um íþróttalýðháskóla í Danmörku hjá UMFÍ, s. 568 2929
eða valdimar@umfi.is sem einnig getur gefið nánari upplýsingar um aðra
styrkjamöguleika til náms í íþróttalýðháskólum.
Ungmennafélag Íslands,
Þjónustumiðstöð UMFÍ,
sími 568 2929, www.umfi.is
ÚRSLIT
KNATTSPYRNA
Laugardagur
Deildabikar karla, neðri deild, undanúr-
slit:
Fífan: HK – Fjölnir ....................................15
Sunnudagur
Deildabikar karla, efri deild,
undanúrslit:
Egilshöll: ÍA – FH......................................20
Deildabikar kvenna, efri deild, undanúr-
slit:
Fífan: Valur – KR.......................................13
Fífan: Breiðablik – ÍBV .............................15
HANDKNATTLEIKUR
Sunnudagur
Úrslitakeppni karla, undanúrslit, odda-
leikir:
Ásvellir: Haukar – KA ..........................16.15
Hlíðarendi: Valur – ÍR..........................16.15
Úrslitakeppni kvenna, undanúrslit, odda-
leikur:
Vestmannaeyjar: ÍBV - FH .................16:15
HANDKNATTLEIKUR
FH - ÍBV 30:27
Kaplakriki, Hafnarfirði, undanúrslit
kvenna, föstudaginn 30. apríl 2004.
Gangur leiksins: 0:1, 3:2, 8:4, 12:6, 14:9,
14:13, 17:14, 20:14, 24:19, 27:22, 28:26,
30:27.
Mörk FH: Þórdís Brynjólfsdóttir 9/6,
Gunnur Sveinsdóttir 7, Bjarný Þorvarðar-
dóttir 5, Björk Ægisdóttir 4, Dröfn Sæ-
mundsdóttir 3,Sigrún Gilsdóttir 1, Guðrún
Hólmgeirsdóttir 1.
Varin skot: Kristín Guðjónsdóttir 15/1 (þar
af 4 til mótherja).
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk ÍBV: Anna Yakova 9/3, Guðbjörg
Guðmannsdóttir 7, Birgir Engl 5, Alla Gor-
korian 2, Sylvia Strass 2, Elísa Sigurðar-
dóttir 1, Edda Eggertsdóttir 1.
Varin skot: Julia Gantimorova 15/1 (þar af
8 til mótherja).
Utan vallar: 2 mínútur.
Dómarar: Hlynur Leifsson og Anton Páls-
son. Mistækir.
Áhorfendur: 300.
Staðan 1:1 og mætast liðin í oddaleik í
Eyjum á morgun.
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla
Efri deild, 8-liða úrslit:
KR - Valur .................................................4:0
Bjarki Gunnlaugsson, Arnar Jón Sigur-
geirsson, Kristinn Hafliðason, Kjartan
Henry Finnbogason.
KR mætir Víkingi R. í undanúrslitum á
mánudagskvöldið.
Neðri deild, undanúrslit:
Völsungur - Breiðablik ............................0:2
Kristján Óli Sigurðsson og Gunnar Örn
Jónsson.
Breiðablik í úrslitaleikinn og mætir HK
eða Fjölni.
Deildabikar kvenna
Efri deild:
Breiðablik - ÍBV........................................4:7
Lokastaðan:
Valur 5 4 1 0 22:5 13
KR 5 3 1 1 9:4 10
ÍBV 5 3 1 1 13:11 10
Breiðablik 5 1 2 2 17:18 5
Stjarnan 5 1 1 3 10:16 4
FH 5 0 0 5 3:20 0
Í undanúrslitum leikur Valur við KR og
ÍBV við Breiðablik.
Neðri deild:
Fjölnir - Þróttur R. ...................................7:6
Keflavík - HK/Víkingur ............................2:1
Staðan:
Þór/KA/KS 4 3 1 0 25:9 10
Fjölnir 4 2 2 0 19:15 8
HK/Víkingur 4 2 0 2 14:9 6
Keflavík 3 1 1 1 9:9 4
Þróttur R 4 1 0 3 15:14 3
Sindri 3 0 0 3 0:26 0
England
1. deild:
Sheffield United - Ipswich........................1:1
Staða efstu liða:
Norwich 43 26 10 7 73:35 88
WBA 43 25 11 7 63:35 86
Sunderland 43 20 12 11 58:43 72
Ipswich 44 21 8 15 82:70 71
West Ham 44 18 16 10 63:44 70
Wigan 44 18 16 10 59:43 70
Cr. Palace 44 20 10 14 70:59 70
Sheff. Utd 44 20 9 15 61:52 69
Reading 44 19 10 15 54:56 67
Millwall 44 17 15 12 54:46 66
Cardiff 44 17 12 15 66:56 63
Coventry 44 15 14 15 60:51 59
Stoke City 43 16 11 16 52:54 59
Preston 44 15 13 16 64:65 58
Nottingham F. 44 13 15 16 58:58 54
Watford 44 14 12 18 53:64 54
Burnley 44 13 14 17 59:72 53
Crewe 44 14 10 20 55:62 52
Rotherham 44 12 15 17 48:58 51
Gillingham 44 14 8 22 46:63 50
Derby 44 12 13 19 51:66 49
Walsall 44 12 12 20 42:62 48
Bradford 44 10 6 28 38:66 36
Wimbledon 44 7 4 33 39:88 25
Belgía
Germinal Beerschot - Lokeren ................2:1
Staða efstu liða:
Anderlecht 31 23 5 3 72:25 74
Club Brugge 31 19 6 6 64:31 63
Standard Liège 31 17 10 4 65:28 61
Moeskroen 31 14 13 4 60:38 55
Genk 31 15 8 8 53:36 53
Westerlo 31 13 9 9 48:42 48
Germinal B. 32 11 11 10 31:35 44
La Louviere 31 8 13 10 39:42 37
Lokeren 32 10 7 15 43:52 37
Lierse 31 7 15 9 28:35 36
Gent 31 7 14 10 29:32 35
St-Truiden 31 8 11 12 33:45 35
Beveren 31 10 4 17 37:52 34
Mons 31 7 12 12 29:40 33
Cercle Brugge 31 7 12 12 26:48 33
Charleroi 31 6 8 17 32:46 26
Antwerpen 31 7 5 19 26:59 26
Heusden-Zolder 31 6 7 18 32:61 25
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA-deildin
16-liða úrslit:
Austurdeild:
Detroit - Milwaukee ..............................91:44
Detroit vann 4:1.
Vesturdeild:
Sacramento - Dallas ..........................119:118
Sacramento vann 4:1.
Samuel Eto’o bestur í Afríku
Samuel Eto’o framherji spænska knatt-
spyrnuliðsins Real Mallorca var í gærkvöld
útnefndur knattspyrnumaður Afríku en
hann er landsliðsmaður frá Kamerún.
Næstir á eftir honum í kjörinu voru ’Jay
Jay’ Okocha frá Nígeríu en hann er leik-
maður Bolton í ensku úrvalsdeildinni og Di-
dier Drogba framherji franska liðsins Mar-
seille, en hann er frá Fílabeinsströndinni.
UM HELGINA
ALFREÐ Gíslason, Sigfús Sigurðs-
son og félagar þeirra í þýska
handknattleiksliðinu Magdeburg
eru úr leik í baráttunni um þýska
meistaratitilinn eftir óvænt jafn-
tefli við Göppingen í vikunni og
því geta þeir nú lagt allt kapp á
að sigra í bikarkeppninni en fjög-
ur lið berjast um bikarinn í Ham-
borg um helgina.
Í undanúrslitum í dag mætast
annars vegar Hamborg og Magde-
burg og hins vegar Flensburg og
Kiel og sigurliðin eigast svo við í
úrslitaleik á morgun. Löngu er
uppselt í Hamburger Arena-
höllina þar sem leikirnir fara fram
en höllin tekur um 15.000 manns.
Morgunblaðið sló á þráðinn til
Sigfúsar Sigurðssonar í gær en
hann hafði þá nýlokið við æfingu í
Magdeburg og var að ferðabúast
til Hamborgar.
„Það er ekkert sem heitir. Fyrst
meistaratitillinn er genginn okkur
úr greipum og sú staðreynd að við
komumst ekki alla leið í Evr-
ópukeppninni þá kemur ekkert
annað til greina en að taka bik-
arinn,“ sagði Sigfús. Sigfús mætir
ekki alveg heill til leiks í dag en
hann er laskaður í baki eftir leik-
inn við Göppingen en eins og Sig-
fúsi einum er lagið þá ætlar hann
ekki að láta það hafa áhrif á sig.
„Ég bít bara á jaxlinn og reyni
að gleyma bakinu. Það mörðust
nokkur rifbein en það er ekkert
hættulegt heldur bara vont. Það
er verra að við erum hálf-
skyttulausir þar sem bæði Gregorz
Tkazcyk og Perunicic eru fjarri
góðu gamni en við verðum bara
að þjappa okkur saman. Við unn-
um báða leikina á móti Hamborg í
deildinni og ég tel okkur vera með
betra lið þó svo að vanti í liðið
okkar.“
Flensburg, sem á meistaratit-
ilinn nokkuð vísan, glímir við Kiel
í hinni undanúrslitaviðureiginni.
Kiel varð fyrir áfalli í fyrrakvöld
þegar í ljós kom að sænski lands-
liðsfyrirliðinn Stefan Lövgren get-
ur ekki leikið vegna meiðsla og
það ætti að auka sigurlíkur Flens-
borgara.
Sigfús Sigurðsson ætlar sér að vinna
þýska bikarinn með Magdeburg
FÓLK
SACRAMENTO Kings vann Dall-
as Mavericks í úrslitakeppni Vest-
urstrandarinnar í NBA-deildinni í
fyrrinótt og sendi þar með Texasliðið
í sumarfrí þar sem Kings vann ein-
vígið, 4:1. Kings mætir líklega
Minnesota Timberwolves í undanúr-
slitum. Fimmta leik liðanna lauk
119:118, en Dallas fékk tækifæri til
þess að landa sigri í leiknum en Þjóð-
verjinn Dirk Nowitzki hitti ekki úr
síðasta skoti leiksins. Þetta er þriðja
árið í röð sem Kings slær Mavericks
út úr úrslitakeppni NBA.
DETROIT Pistons tryggði sér rétt
til þess að leika gegn New Jersey
Nets í undanúrslitum Austurstrand-
arinnar í NBA-deildinni en Pistons
vann Milwaukee Bucks í átta liða úr-
slitum, 4:1.
STJÓRN körfuknattleiksdeildar
Keflavíkur segir í frétt á heimasíðu
félagsins að búast megi við um 2–3
millj. kr. hagnaði af rekstri deildar-
innar á yfirstandandi rekstrarári.
Þrátt fyrir að kostnaður vegna þátt-
töku karlaliðsins í Evrópukeppni
hafi verið allt að 6 millj. kr. náðist að
reka deildina með hagnaði, fjórða ár-
ið í röð. Á aðalfundi deildarinnar
þann 11. maí nk. verða reikningar
lagðir fram.
ERLENDU leikmennirnir sem
munu leika með ÍBV í sumar komu
til landsins í fyrrakvöld. Ian Jeffs og
Matt Garner koma frá Crewe Alex-
andra og var Jeffs einnig með ÍBV í
fyrra. Þá er Bandaríkjamaðurinn
Mark Schulte kominn til Eyja.
MARADONA er laus af sjúkra-
húsi. Hann var lagður þar inn fyrir
tólf dögum vegna erfiðleika við að
anda og eins sló hjarta hans eitthvað
óreglulega. Þrátt fyrir að hann sé
kominn heim af sjúkrahúsinu er
hann undir stöðugu eftirliti lækna og
talið er að hann sé með sína lækna
heima við.
UEFA hefur stytt leikbann Marc-
els Desailly, fyrirliða Chelsea, úr
þremur leikjum í tvo en Frakkinn
gerði sig sekan um að slá til Fern-
ando Morientes, framherja Monaco,
í fyrri undanúrslitaleik liðanna í
Meistaradeildinni. Þar með er útséð
að Desailly leikur ekki síðari leikinn
gegn Monaco og heldur ekki úrslita-
leikinn komist liðið þangað.
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í
áhaldafimleikum tekur þátt á Evr-
ópumeistaramótinu sem fram fer í
Amsterdam í Hollandi. Ísland sendi
tvö landslið til keppni og í fyrradag
lauk yngra landsliðið keppni í fjöl-
þraut unglinga, en liðið endaði í 25.
sæti af alls 27 liðum. Rússar sigruðu,
Rúmenía varð í öðru sæti og Ítalía
endaði í þriðja sæti. Lið Íslands var
þannig skipað: Harpa Snædís
Hauksdóttir (Gróttu), Karitas
Harpa Davíðsdóttir, Kristjana Sæ-
unn Ólafsdóttir og Margrét Hulda
Karlsdóttir en þær eru allar úr
Gerplu.
FH-liðið kom meistaraliði ÍBV íopnu skjöldu strax í upphafi
leiks með gríðarlega öflugum varn-
arleik. FH-ingar
brugðu á það ráð að
spila vörnina fram-
liggjandi og taka
helstu stórskyttur
ÍBV, Öllu Gorkorian og Önnu Ya-
kovu úr umferð af og til. Við þetta
riðlaðist sóknarleikur ÍBV og hvað
eftir annað sigldi hann í strand. FH-
ingar léku af skynsemi í sókninni og
með Þórdísi Brynjólfsdóttur og
Gunni Sveinsdóttur í broddi fylking-
ar náði FH mest sex marka forskoti í
fyrri hálfleik, 12:6 og 13:7. Aðal-
steinn Eyjólfsson, þjálfari ÍBV, tók
leikhlé í stöðunni 13:7 og skilaboðin
sem hann gaf sínu liði virtust vekja
það eitthvað til lífsins. ÍBV minnkaði
muninn í 14:13 og héldu þá margir að
björninn væri unninn fyrir hið
reynslumikla lið ÍBV. En FH-konur
voru ekkert á þeim buxunum. Þær
komust þremur mörkum yfir áður en
fyrri hálfleikur var allur og héldu
uppteknum hætti í byrjun síðari
hálfleiks með því að skora þrjú
fyrstu mörkin. Munurinn var fimm
mörk, 28:23, þegar átta og hálf mín-
úta var eftir en ÍBV náði að hleypa
spennu í leikinn með því að minnka
muninn í tvö mörk, 28:26, þremur og
hálfri mínútu fyrir leikslok. Nær
komust Eyjakonur ekki því FH-ing-
ar, vel studdir af stuðningsmönnum
sínum, létu ekki slá sig út af laginu
og uppskáru óvæntan en sanngjarn-
an sigur.
Það er ekki annað hægt en að
hrósa liði FH fyrir frábæra frammi-
stöðu. Hver einasti leikmaður liðsins
gaf sig allan í verkefnið. Baráttan
var til fyrirmyndar og sigurviljinn
skein út úr hverju andliti. Þórdís
Brynjólfsdóttir og Gunnur Sveins-
dóttir voru fremstar meðal jafningja
í annars afar sterkri liðsheild.
Bjarný Þorvarðardóttir átti mjög
góðan leik í horninu og Kristín Guð-
jónsdóttir varði vel í markinu fyrir
aftan afar hreyfanlega vörn FH sem
tókst að brjóta niður sóknarleik ÍBV
en það hefur ekki mörgum liðum tek-
ist á leiktíðinni.
„Ég get ekki verið annað en mjög
stoltur af stelpunum. Við lékum illa í
fyrri hálfleik í Eyjum, enda stelp-
urnar ryðgaðar eftir langt hlé, en
leikurinn í kvöld var kannski beint
framhald af síðari hálfleiknum sem
við spiluðum í Eyjum. Við vorum
ákveðin í að selja okkur dýrt og
vörnin gerði líklega gæfumuninn.
Hún var frábær og sóknin lengst af
leiksins,“ sagði Sigurður Gunnars-
son, þjálfari FH.
Guðbjörg Guðmannsdóttir var
best í liði ÍBV sem virtist koma á
óvart öflug mótspyrna FH. Anna Ya-
kova átti ágæta spretti.
„Mættum ekki til leiks“
„Við mættum greinilega ekki til-
búnar til leiks. Við lentum strax
fimm mörkum undir, sem okkur
tókst ekki að vinna upp. Við nýttum
dauðafærin illa, náðum í rauninni
aldrei takti í okkar leik. FH-liðið er
sterkt og getur á góðum degi unnið
hvaða lið sem er,“ sagði Aðalsteinn
Eyjólfsson, þjálfari ÍBV, við Morg-
unblaðið eftir leikinn.
Sigurvilji og
barátta hjá
FH-ingum
FH-ingar gáfu flestum handboltaspekingum landsins langt nef með
glæsilegum sigri á Íslandsmeisturum ÍBV, 30:27, í öðrum leik lið-
anna í undanúrslitum Íslandsmóts kvenna í handknattleik sem fram
fór í Kaplakrika í gærkvöld. Með sigurviljann að vopni ásamt gríð-
arlegri baráttu tókst hinu unga liði FH að að knýja fram hreinan úr-
slitaleik við ÍBV um það hvort liðið mætir Val í úrslitum og fer leik-
urinn fram í Eyjum á morgun kl. 16:15.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
CIUDAD Real, með Ólaf Stefánsson
í broddi fylkingar, getur með sigri
á Portland San Antonio á morgun
tryggt sér spænska meistaratitilinn
í handknattleik í fyrsta sinn í sögu
félagsins. Þegar fjórum umferðum
er ólokið er Ciudad Real með sjö
stiga forskot á önnur lið. Ciudad
Real hefur 50 stig en Ademar Leon,
Barcelona og Portland koma næst
með 43 stig.
Ciudad Real tapaði fyrir Barce-
lona í úrslitum spænsku bik-
arkeppninnar fyrr á leiktíðinni og
var slegið út í undanúrslitum í
Meistaradeild Evrópu af Celje Laso
sem fór alla leið í keppninni með
því að leggja Flensburg í úrslita-
leik.
Ólafur er langmarkahæsti leik-
maður Ciudad á leiktíðinni en hann
hefur skorað 60 mörkum meira en
næsti maður. Ólafur hefur skorað
205 mörk, spænski landsliðsmað-
urinn Talant Dushjabaev kemur
næstur með 145 og egypski lands-
liðsmaðurinn Hussein Zaki hefur
skorað 142.
Ólafur meistari á Spáni?