Morgunblaðið - 16.06.2004, Page 26
DAGLEGT LÍF
26 MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Smiðsbúð 1, 210 Garðabær
Pantanir í síma: 565 7040
Laufey Þóra ValdísKatrín
Nú er rétti tíminn!
Fagleg þjónusta fyrir alla sem
vilja góðar höfuðlausnir.
Leðuriðjan ehf. Brautarholti 4 Rvk s. 561 0060
Fjóla Gullsmiður, Keflavík
Útskriftagjafi r
æsibæ
Sími 562 5110
Opið virka daga 10-18 laugardaga 10-16
Í tilefni þjóðhátíðar er
50-70% afsláttur af
drögtum og
samkvæmiskjólum
dagana 16-24. júní
1 4 4 4
w w w. g u l a l i n a n . i s
„SÚ STAÐREYND að ég hef alla tíð
verið í stjúptengslum og er sjálf
stjúpa hefur haft áhrif á val mitt á
rannsóknarefni í meistaranámi í fjöl-
skyldumeðferð,“ segir Valgerður
Halldórsdóttir félagsráðgjafi. „For-
rannsókn mín fólst í að kanna þörf ís-
lenskra stjúpforeldra og kynforeldra
á fræðslu og stuðningi við stjúp-
fjölskyldur. Þessi rannsókn var hvati
að því að ég opnaði vefinn
www.stjuptengsl.is. Það kom í ljós í
viðtölum mínum vegna rannsókn-
arinnar að stjúpforeldrar óskuðu
þess að geta rætt við aðra sem voru í
sömu aðstæðum og þeir. Ég sá að
það var mikil þörf á því að stjúp-
fjölskyldur væru sýnilegri í sam-
félaginu, enda margir með ýmiss
konar tengsl inn í stjúpfjölskyldur
þrátt fyrir að engar tölulegar upplýs-
ingar séu um þær og umræður litlar
sem engar.
Ólíkar hefðbundnum fjölskyldum
Valgerður segir ótal spurningar
vakna hjá fólki við það að stjúp-
fjölskylda verður til. Stjúp-
fjölskyldur séu stofnaðar á grunni
annarrar fjölskyldu eða fjölskyldna í
kjölfar skilnaðar eða dauða og því
ólíkar hefðbundnum fjölskyldum. Oft
flytji fólk saman áður en tengsl hafi
náð að myndast milli stjúpforeldra
og stjúpbarna. Það þurfi að huga að
mörgu, t.d. að kynforeldri verji
stundum tíma eitt með barninu sínu
og einnig að stjúpforeldrið fái tíma
með því einu, bæði til að viðhalda
tengslum og skapa tengsl. Eins þurfi
að huga að samveru allra, því hún sé
forsenda þess að væntumþykja og
umhyggja skapist. Hætta sé á óham-
ingju þegar gerðar eru óraunhæfar
kröfur og væntingarnar verða of
miklar. Margt geti haft áhrif á
hvernig til tekst, svo sem samskipti
kynforeldra og aldur barnanna.
Yngri börn eiga auðveldara með að
laga sig að breyttum aðstæðum.
„Fólk veit ekki við hverju það má
búast við stofnun stjúpfjölskyldu.
Þess vegna fannst mér nauðsynlegt
að opna umræðu um stjúptengsl. Á
vefnum fær fólk rödd til að tjá sig og
ræða saman og deila reynslu sinni.
Ég legg áherslu á að birta fræðilegar
og gagnlegar upplýsingar á vefnum
en auk þess býð ég upp á námskeið
og persónulega ráðgjöf sem hægt er
að skrá sig í þar.“
Á vefnum er sérstök barnasíða og
finnst Valgerði hún sérlega mik-
ilvæg. Hún segir börn í stjúp-
fjölskyldum oft lenda í því að stjúp-
foreldrar krefjist skilyrðislausrar
ástar og hlýðni þeirra þegar í stað.
„Þetta er dæmi um óraunhæfar kröf-
ur og væntingar í stjúpfjölskyldum,“
segir hún. „Slíkt getur orðið upp-
spretta margvíslegra vandamála og
skapað togstreitu. Það má ekki van-
meta sorg barna við skilnað og flest
eiga þau það sameiginlegt að vilja að
foreldrar þeirra taki saman á ný.
Þrátt fyrir að nýja stjúpforeldrið sé
góð manneskja og öll af vilja gerð til
að láta hlutina ganga vel er ekki
sjálfgefið að börnunum líki vel við
hana og er algengt að börnunum
finnist stjúpforeldrið standa í vegi
fyrir að draumur þeirra rætist um að
foreldrar þeirra sameinist að nýju.
Eins getur verið erfitt fyrir stjúpfor-
eldri að elska stjúpbarnið eins og sitt
eigið barn, enda oft í óvissu um hlut-
verk sitt a.m.k. í fyrstu. En þessar
tilfinningar eru eðlilegar og þetta er
reynsla sem margir ganga í gegnum
þrátt fyrir að lítið sé talað um hana,“
segir hún.
Valgerður segist gera sér vonir
um að vefurinn eigi eftir að eflast og
skapa umræðu um stjúpfjölskyldur í
þjóðfélaginu. Hún segist vonast til að
umræður verði opnar og fólk verði
duglegt að tjá sig og segja frá sinni
reynslu.
Stjúpfjölskyldur upplifa
stuðningsleysi
„Það er nauðsynlegt að styðja bet-
ur við bakið á stjúpfjölskyldum. Þeir
sem rætt var við í tengslum við for-
rannsóknina mína upplifa stuðnings-
leysi þrátt fyrir að þátttakendum í
lífi fjölskyldunnar fjölgi. Samt kann
stuðningurinn að vera fyrir hendi, en
oft er ekki leitað eftir honum, t.d. hjá
fyrrverandi tengdaforeldrum, sem
eru amma og afi stjúpbarnanna,
hvernig sem aðstæður foreldranna
breytast. Vandamálið virðist vera að
mikil óvissa er um hlutverk fólks sem
tengist stjúpfjölskyldum. Húmor,
sveigjanleiki og fordómaleysi eru
eiginleikar sem koma öllum að gagni
í samskiptum – og ekki síst í stjúp-
fjölskyldum.“
FJÖLSKYLDUR|Nýr vefur þar sem hægt er að fræðast um stjúptengsl
Óraunhæfar væntingar
geta skapað vanda
Umræða um stjúp-
fjölskyldur hefur verið
lítil hér á landi þrátt fyr-
ir að stór hluti íslensku
þjóðarinnar búi við slík
tengsl. Ásdís Haralds-
dóttir hitti Valgerði
Halldórsdóttur fé-
lagsráðgjafa að máli, en
hún opnaði nýlega vef
um stjúptengsl.
asdish@mbl.is
1. Stjúpfjölskyldur eru ólíkar hefðbundnum fjölskyldum
2. Unum því að allir í stjúpfjölskyldum elski ekki hver annan
3. Látum kynforeldra annast agamál í byrjun
4. Sýnum börnunum sveigjanleika í umgengni
5. Finnum okkur hlutverk en ofleikum ekki
6. Tökum ekki hlutina persónulega
7. Komum á skipulagi sem skapar samkennd
8. Verum opin og hreinskilin um stöðuna í fjármálum
9. Munum að hafa parasambandið í fyrirrúmi
10. Þakklæti frá stjúpbörnum okkar er bónus!
Íhugunarefni
BESTA te í Bretlandi fæst í Bird on
the Rock Tea Room í Clungunford,
þorpi í Shropshire, nálægt landa-
mærum Wales. Þetta eru nið-
urstöður Teráðsins sem heimsækir
yfir hundrað testofur og hótel í því
skyni að veita Douglas og Annabel
Hawkes verðlaunin, að því er fram
kemur í fréttabréfinu Britain call-
ing. Besta síðdegisteið í London að
mati ráðsins er að fá á Ritz-hótelinu
á Piccadilly. Bretar drekka 165
milljónir tebolla á hverjum degi, að
því er fram kemur í fréttabréfinu.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
SÆLKERAR
Besta te í
Bretlandi
TENGLAR
..............................................
www.tea.co.uk
HJÁ STÆRSTA tóbaksframleið-
anda Bretlands er nú íhugað hvort
bragðbæta eigi vindlinga t.d. með
súkkulaði- eða kirsuberjabragði, að
því er m.a. kemur fram á vefútgáfu
Aftenposten. Hugmyndin vekur and-
úð hjá þeim sem berjast gegn reyk-
ingum og þeir telja að bragðefnin geti
vakið áhuga barna á reykingum og
þannig leitt til aukinna reykinga.
British American Tobacco (BAT) hef-
ur prófað 482 efni sem geta gefið
vindlingum bragð. Fyrirtækið fram-
leiðir m.a. vindlingategundina Lucky
Strike og aðrar tegundir sem þegar
eru bragðbættar með lakkrís og
kakói. Fyrrverandi heilbrigð-
isráðherra Bretlands, Frank Dobson,
gagnrýnir hugmyndina í samtali við
The Independent og finnst sem til-
raun BAT sé að hefja markaðs-
setningu gagnvart börnum, þar sem
tölfræði sýni að næstum enginn byrj-
ar að reykja á fullorðinsárum.
BAT vísar gagnrýninni á bug og
talsmaður fyrirtækisins segir að
vindlingar bragðist eins og vindling-
ar. Hann útilokar ekki að fyrirtækið
muni nota einhver af bragðefnunum
sem prófuð hafa verið. Prófanirnar
fóru fram með tilraunum á dýrum í
Kanada þar sem slíkar tilraunir hafa
verið bannaðar í Bretlandi frá árinu
1997.
Súkkulaði-
vindlingar
REYKINGAR
TENGLAR
..............................................
www.stjuptengsl.is