Lesbók Morgunblaðsins - 18.01.2003, Síða 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 18. JANÚAR 2003 13
VATNSLITAMYNDIR breska
listamannsins David Hockney,
sem nú eru til sýnis í National
Portrait Gallery og Annely Juda
Fine Art galleríinu í London,
hafa vakið töluverða athygli í
heimalandi hans. Verkin voru öll
unnin á árinu 2002, og er það
ekki hvað síst miðillinn sem vak-
ið hefur áhuga breskra list-
gagnrýnenda, en Hockney hefur
aldrei áður notað vatnsliti og
viðurkennir sjálfur að hafa til
þessa litið niður á miðilinn.
Notkun hans á vatnslitum á þó
að sögn gagnrýnanda Times lít-
ið skylt við slikjukennda og
gagnsæja áferð hefðbundinna
vatnslistaverka. Þess í stað beiti
Hockney litnum fyrir sig í gegn-
heilum litablokkum, sem minnir
meira á akrýl- og olíumálun.
Hver portrett-myndanna var
unnin á aðeins einum degi og
segir gagnrýnandinn hæfni
Hockney ótrúlega, ekki hvað síst
þegar haft sé í huga yfirstærð
verkanna. Tveir einstaklingar
sitja fyrir á hverju verki og nær
hann „djúpum tengslum við kar-
akter fyrirsætnanna og sam-
bandinu þeirra á milli.
Landslagsmyndirnar tilheyra
hins vegar allt öðrum heimi.
Litanotkunin þykir allt að því
expressjónísk að styrkleika og
leitar í landslagsmyndir Hockn-
ey frá Yellowstone þjóðgarð-
inum,“ segir í dómi Times.
„Hockney var heillaður fyrst af
hugmyndinni og síðan hinum
raunverulegu björtu nóttum
norðursins og útkoman líkist að
vissu leyti Munch og jafnvel enn
meira Nolde. Djúpir fjólubláir,
vínrauðir, dökkir, skærgrænir
sem og jökulgráir litir veita
dimma og þunga sýn fjarri skín-
andi tónum Mulholland Drive
mynda Hockney, sérstaklega ís-
lensku myndirnar sem eru allt
að því draugalegar: jökullinn
minnir á hala liggjandi risaeðlu
og foss líkist möttum haddi,“ er
mat gagnrýnandans sem segir
Hockney sífellt geta komið list-
unnendum á óvart.
Deilt um Raphael
HERTOGINN af Northumber-
land sakaði á dögunum safna-
yfirvöld National Gallery í
London um að reyna að neyða
sig til að selja safninu verk eftir
ítalska endurreisnarlista-
manninn Raphael með afslætti.
Deilan snýst um verkið Madonna
of the Pinks
eftir Raphael
sem er í eigu
hertogans –
eins af efna-
mestu lista-
verkasöfn-
urum Breta.
Verkið hefur
verið í láni
hjá National
Gallery sl.
áratug, en
hertoginn tók
á dögunum tilboði Getty-
safnsins í Los Angeles, sem bauð
fjóra milljarða króna í verkið.
Safnayfirvöld róa því nú öll-
um árum að reyna að halda
verkinu í Bretlandi og segir her-
toginn þau reyna að beita sig til-
finningalegum þvingunum til að
verkið verði frekar selt breskum
kaupanda. Að sögn forsvars-
manna National Gallery hafði
hins vegar síðasti hertogi af
Northumberland heitið þeim
forkaupsrétti á verkinu, en nú-
verandi hertogi neitar að nokkr-
ar upplýsingar um slíkt sam-
komulag finnist.
Búist er við að sex mánaða út-
flutningsbann verði sett á mynd-
ina, en safnið hefur sótt um 3,8
milljarða króna styrk úr breska
lotteríssjóðnum til kaupa á verk-
inu.
Hockney kemur
sífellt á óvart
ERLENT
Madonna
Raphaels.
TVEIR frægustu slagverksleik-arar Evrópu, Evelyn Glennieog Gert Mortensen, frum-flytja nýjan konsert fyrir tvo
slagverksleikara og sinfóníuhljóm-
sveit eftir Áskel Másson í Vejle í
Danmörku laugardaginn 25. janúar.
Að svo þekktir snillingar í slag-
verksleik leiði saman hesta sína í
samleik, er engu minni heimsvið-
burður í heimi slagverksins en fyrir
söngunnendur þegar tenorarnir þrír
stigu á stokk um árið. Það eru dönsk
menningarsamtök sem kenna sig við
22. mars 1985 sem standa að við-
burðinum og pöntuðu konsertinn hjá
Áskeli, með þau Glennie og Morten-
sen í huga, en Áskell hefur áður
samið verk fyrir báða slagverksleik-
arana og unnið með þeim að flutn-
ingi verka sinna.
„Verkið verður frumflutt á árleg-
um nýárstónleikum í stórri höll í
Vejle, og það er svo skemmtilegt, að
það eru skólakrakkar í nágrenni
Vejle sem taka þátt í tónleikahald-
inu og undirbúningnum. Ég var
þarna fyrir ári, þegar Gert flutti
verk mitt, Kím, fyrir trommu, og þá voru það
rúmlega þúsund skólakrakkar sem voru með,
og annað eins af fullorðnum áheyrendum,
þannig að það er gert ráð fyrir því að vel á
þriðja þúsund gesta sæki tónleikana. Þetta eru
maraþontónleikar, hefjast klukkan tíu að
morgni laugardagsins og lýkur ekki fyrr en á
miðnætti. Þarna verður allt mögulegt á dag-
skrá: Schubertsönglög, Gershwin og sönleikir,
Duke Ellington og djass, Sjostakovistj, óperu-
tónlist, Beethoven, Mozart, þjóðlög og geysi-
lega góður úkraínskur kór, Dumka-kórinn.
Kórinn söng á hátíðinni í fyrra líka, og flutti þá
Ödipus Rex eftir Stravinskíj. Það var magn-
aður flutningur og stórar grímur hengdar upp
alls staðar í salnum, en þær höfðu krakkarnir
einmitt búið til fyrir tónleikana – þau eru með
langtímaverkefni í skólunum fyrir tónleikana.
Tónleikunum lýkur með Sigurmarsinum úr
Aidu eftir Verdi, en á miðnætti er öllu slegið
upp í ball.“
Börnin mikilvægir þátttakendur
í tónleikunum
Áskell segir að þátttaka barnanna í tónleik-
unum sé sérstaklega skemmtileg. „Þetta er
ákaflega frjálslegt; krakkarnir taka mikinn
þátt í undirbúningnum, og geta gengið inn og
út allan daginn eftir því hvað þeir vilja hlusta á.
En af reynslunni í fyrra að dæma, er áhuginn
svo mikill, að fólk situr tímunum saman að
hlusta, og krakkarnir eru glaðir og ánægðir.
Þetta eru krakkar allt frá sex ára og upp í
átján ára.“
Höllin í Vejle er að sögn Áskels mjög stór,
eða um nítján þúsund fermetrar. Þar er hægt
að halda þrjú þúsund manna matarboð, og því
enginn vandi að halda tónleika fyrir þrjú þús-
und manns. „Þarna er hægt að hýsa allra
stærstu heimsviðburði.“ Nýi konsertinn, sem
Áskell kallar Crossings, verður ekki eina verk
hans á nýárstónleikunum í Vejle, því þau Gert
og Glennie leika einnig saman verk hans
Rhythm Strips – eða hjartalínurit. „ … það er
byggt á hjartalínuriti.“
En konsertinn er stóra málið fyrir Áskel og
hann fer utan á þriðjudag til að fylgjast með
æfingum, og aðstoða við lýsingu verksins, því
Evelyn Glennie vill jafnan hafa flotta lýsingu á
sviðinu þegar hún spilar. „Ég hlakka mjög til
að lýsa verkið, en við Gert og Evelyn ætlum að
gera það í sameiningu.“
Það verður pólsk hljómsveit, Zielona Góra-
sinfóníuhljómsveitin, sem leikur með einleik-
urunum, og Czeslaw Grabowski stjórnar. Það
er líka mikið við haft í Vejle, og margir gestir
tónleikanna þekktir alþjóðlegir listamenn, fáir
þó jafnþekktir og Gert Mortensen og Evelyn
Glennie. „Það er orðið fastur liður á þessum ný-
árstónleikum að Gert er með sérstakt prógramm
með slagverkssveit sinni, Gruppo Pergorama,
sem í eru allt að tíu manns. Þeir spila um miðjan
dag, en þar á eftir koma einleiks- og kammer-
verk í eftirmiðdaginn, en verkið mitt verður
frumflutt klukkan hálfátta um kvöldið.“
Þjóðlög þriggja landa tvinnuð
saman í lok verksins
Áskell segir að aðstandendur tónleikanna hafi
ekki einungis pantað verk hjá sér, – þeir panti að
jafnaði verk frá nokkrum ólíkum tónskáldum, og
þannig sé það einnig í ár. En er það hlýtur að
vera gaman að fá tækifæri til að semja verk fyrir
jafnfæra einleikara og þessa. „Jú, það er meiri-
háttar. Ég hef unnið mikið fyrir þau bæði í mörg
ár hvort í sínu lagi, og samið mörg af mínum
mest fluttu verkum fyrir þau. En það er sérlega
gaman að það skuli ganga upp að fá þau bæði í
flutning á einu verki eftir mig, og að þetta skuli
hafa gengið svona vel upp. Ég nota ýmis hljóð-
færi í verkið, og sum frekar óvenjuleg. Ég er
meðal annars með leirtrommur, svokallaðar údú-
trommur sem eru skinnlausar – bara leir. Aðal-
hljóðfærin eru þó tveir víbrafónar. Hins vegar
endar verkið á tveimur sneriltrommum í mikilli
kadensu, og þar spilar Evelyn á ekta skoska há-
landatrommu og Gert á pikkoló sneriltrommu.
Ég kalla verkið Crossings, vegna þess að í því
mætast ýmsir straumar. Ég nota meðal annars
þjóðlög frá öllum þremur löndum okkar, ís-
lenskt, danskt og skoskt. Ég bræði stefin þrjú
saman og læt spila þau öll í einu í lok verksins
Danska lagið er Lille Peder edderkop. Skoska
stefið er bræðingur af tveimur þekktustu þjóð-
lögum þeirra, Amazing Grace og Scotland the
Brave. Íslenska lagið er svo Austan kaldinn á oss
blés. Það er svo merkilegt að það, og Lille Peder
edderkop hafa sama rytma og þau hljóma alveg
saman. Annað er þó lítið barnalag, en það ís-
lenska um íslenska sjómenn í sjávarháska.“
Áskell segir að nýárskonsertinn sé að stækka
að umfangi ár frá ári og fái talsverða umfjöllun í
dönskum fjölmiðlum, enda sé óvenjuvel staðið að
öllu skipulagi og framkvæmd tónleikanna
sjálfra.
Tveir heimsþekktir slagverksleikarar, Evelyn Glennie og Gert Mortensen,
frumflytja Crossings, nýjan slagverkskonsert eftir Áskel Másson, í Dan-
mörku á næstunni. BERGÞÓRA JÓNSDÓTTIR ræddi við Áskel, sem segir
það heimsviðburð að fá þessa tvo snillinga til að leika saman í einu verki.
Evelyn Glennie og Áskell í Háskólabíói fyrir fáeinum árum.
Áskell Másson og Gert Mortensen bera saman bækur sínar á æfingu.
Meiriháttar að vinna með
Glennie og Mortensen
begga@mbl.is