Lesbók Morgunblaðsins - 18.01.2003, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 18.01.2003, Blaðsíða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 18. JANÚAR 2003 15 MYNDLIST Borgarskjalasafn Reykjavíkur, Gróf- arhúsinu: Reykjavík í hers höndum: Ljósmyndasýning. Til 2.2. Gallerí Skuggi: Ásgeir Jón Ásgeirsson. Til 26.1. Gallerí Sævars Karls: Arnar Herberts- son. Til 30.1. Gerðarsafn: Hallgrímur Helgason, Hú- bert Nói og Bjargey Ólafsdóttir. Til 2.2. Gerðuberg: Ljósmyndasýning frá Bau- haus. Til 23.2. Hafnarborg: Bandaríski myndlist- armaðurinn Joan Backes. Sumarsýning Noðurlandahússins í Þrándheimi. Til 27.1. Hallgrímskirkja: Aðalheiður Valgeirs- dóttir. Til 1.3. Listasafn Akureyrar: Aftökur og út- rýmingar: Þrjár ólíkar sýningar. Til 9.3. Listasafn ASÍ: Þóroddur Bjarnason og Ívar Valgarðsson. Til 26.1. Listasafn Borgarness: Sigurður Freyr Guðbrandsson. Til 29.1. Listasafn Einars Jónssonar: Safnið er lokað til mánaðamóta. Listasafn Reykjavíkur – Ásmund- arsafn: Sýningaröðin Kúlan – Tumi Magnússon. Til 16.2. Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús: Borg – innsetning Ingu Svölu Þórs- dóttur. Nútímalist frá arabaheiminum. Til 19.1. Listasafn Reykjavíkur – Kjarvals- staðir: Miðrými: Odd Nerdrum. Til 31.1., hluti 4 – minni form. Samsýning. Til 2.3. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: And- litsmyndir og afstraksjónir. Opið e. samkomulagi í janúar. Til 30.3. Mokkakaffi: Friðrik Tryggvason ljós- myndari. Til 15.2. Norræna húsið: BókList. Finnska listakonan Senja Vellonen. Til 9.2. ReykjavíkurAkademían, Hringbraut 121: Ingólfur Júlíusson, ljósmyndir. Til 31.1. Þjóðmenningarhúsið: Íslandsmynd í mótun – áfangar í kortagerð. Til 8.8. Handritin. Landafundir. Skáld mán- aðarins: Þórarinn Eldjárn. Upplýsingamiðstöð myndlistar: www.umm.is undir Fréttir. TÓNLIST Laugardagur Hásalir, Hafnarfirði: Kristín R. Sig- urðardóttir sópran og Antonía Hevesi píanóleikari. Kl. 17. Háteigskirkja: Hamrahlíðarkórinn. Kl. 17. Salurinn, Kópavogi: Vínartónar og vin- sæl lög Jóns Múla í flutningi Hönnu Dóru Sturludóttur, Ólafs Kjartans Sig- urðarsonar og hljómsveitar. Kl. 16. Sunnudagur Bústaðakirkja: EÞOS-kvartettinn. Kl. 20. Salurinn, Kópavogi: Ljóðasöngur, strengir og píanó. Alex Ashworth bari- ton, Anna Rún Atla- dóttir píanó, Sif Tul- inius fiðla, Lin Wei fiðla, Þórunn Ósk Marinósdóttir víóla, Sigurður Bjarki Gunnarsson selló og Richard Simm píanó. Gestasöngvari er Inga Stefánsdóttir mezzósópran. Kl. 16. LEIKLIST Þjóðleikhúsið: Með fullri reisn, fös. Halti Billi, lau., fim. Jón Oddur og Jón Bjarni, sun. Með fulla vasa af grjóti, sun., mið. Rakstur, sun., fös. Karíus og Bakstur, lau. Veislan, lau., þrið, fim. Borgarleikhúsið: Sól og máni, lau., fös. Sölumaður deyr, sun. Honk! sun. Kvetch, lau. Rómeó og Júlía, lau., fim. Hafnarfjarðarleikhúsið: Grettissaga, lau., fim. Leikfél. Hafnarfjarðar: Salka miðill, frums. sun. Leikfélag Akureyrar: Hversdagslegt kraftaverk, lau. Iðnó: Beyglur, lau., fös. Hin smyrjandi jómfrú, sun. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhúsi: Dýrlingagengið, lau., sun. Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir að birtar verði í þessum dálki verða að hafa borist bréflega eða í tölvupósti fyrir kl. 16 á miðvikudögum merktar: Morgunblaðið, menning/listir, Kringlunni 1, 103 Rvík. Myndsendir: 5691222. Netfang: menning@mbl.is. MENNING LISTIR N Æ S T U V I K U Ólafur Í BÓK sinni „Fæðing harmleiksins“ teflir þýski heimspekingurinn Friedrich Nietzsche saman tveimur guðum Forn-Grikkja, þeim Apolló og Díonýsosi. Apolló, sonur Seifs og gyðjunnar Leto, er guð hinnar fögru ásýndar, en Díonýsos, sonur Seifs og Semelíu, sem var jarðnesk kona, er guð hins villta taumleysis. Samkvæmt Nietzsche eru þessir tveir guðir frumkraftar allrar listrænnar sköpunar og líka þeirra afla sem takast á í sálum manna. Í vestrænni myndlist hafa guðirnir tekist á opinberlega síðan á 16. öldinni þegar Flórens- og Feneyjamálararnir deildu um það hvort væri mikilvægara, teikningin eða maleríið. Frægust er þó deilan á milli frönsku málaranna J.A.D. Ingres og Eugéne Delacroix snemma á 19. öld- inni, þar sem Ingres var fulltrúi Apollós og hinn- ar fögru ásýndar en Delacroix fulltrúi Díonýsos- ar og hins villta taumleysis. Á 20. öldinni má svo nefna deiluna á milli bandarísku málaranna Ad Reinhardt og Philip Guston á sjöunda áratugn- um, þar sem sá fyrrnefndi vildi meina að leynd- ardómar myndlistar væru í hreinum „gestalt“- formum, en sá síðarnefndi áleit þá fyrst koma í ljós þegar hreinleikann skorti. Í dag er slík deila ekki hávær en átökin eru þó enn til staðar í myndlistarsköpuninni. Hin fagra ásýnd Á neðri hæðinni í Gerðarsafni sýnir listmál- arinn Húbert Nói Jóhannesson 13 olíumálverk. Sýningin skiptist í tvo hluta. Annars vegar eru það landslagsmyndir sem Húbert nefnir „Mál- verk af málverki“ og hins vegar rýmisbundin málverk sem nefnast „Location / Staður. Hú- bert Nóa mundi ég telja til fulltrúa Appollós. Þótt verk hans teljist ekki til klassískrar fag- urfræði í anda Ingres, fylgir þeim mjúkt róm- antískt andrúmsloft, einkum þó í landslags- myndunum. Landslagið er málað í bláum lit sem hefur einkennt landslagsmálverk Húberts um árabil þar sem samspil birtu og myrkurs skapar hugróandi og þegjandi andrúmsloft sem oft má finna í ljósaskiptunum. Verkin eru talsvert stærri en Húbert hefur sýnt undanfarin ár, allt að 230 cm á lengdina, sem vegur nokkuð upp á móti sætleika sem gjarnan er í myndum hans. Það er kannski rangt hjá mér að kalla verkin landslagsmálverk þar sem listamaðurinn er í raun ekki að eiga við landslagið sem slíkt, held- ur leitast hann við að fanga andrúmsloft eða til- finningu sem við þekkjum og notar til þess landslagsmyndina. Að auki málar hann myndir af ímynduðum málverkum á hvítum vegg, líkt og vegg sýningarrýmisins. Hugmyndarlega er hann kominn í allnokkra fjarlægð frá sjálfu landslaginu og því kann það að vera villandi að kalla verkin landslagsmálverk. Málverkin „Location / Staður“ eru máluð á smærri flöt, 40 x 50 cm, en hafa beina tilvísun í sjálft rýmið. Húbert velur sjónarhorn í rýminu sem hann afmarkar á myndfletinum sem hluta (detail) úr stærri heild. Aðeins tengingin við rýmið skýrir myndirnar fyrir okkur sem þýðir að ef þær væru sýndar annars staðar eða seldar og settar upp í heimahúsi yrði sjónrænt gildi þeirra allt annað en það sem við upplifum nú í Gerðarsafni. Á sýningunni tekst Húberti Nóa að vekja mann til umhugsunar um nálgun við málverkið á sama tíma og hann nær fram hinni fögru ásýnd. Hið villta taumleysi Hallgrímur Helgason, sem sýnir í austursal safnsins, er fulltrúi hins díonýsoska krafts. Það þýðir þó ekki að hann sniðgangi sígilda fegurð. Þvert á móti. Hallgrímur er augljóslega vel að sér í þeim efnum. Jafnframt er hann mjög hæf- ur í handverki sínu, hvort sem það er í tölvu- gerðum myndum eða olíumálverkum. Hallgrím- ur er listamaður sem fæst við manneskjuna sjálfa, samfélag hennar og „jarðneskt“ eðli. Til þess hefur hann skapað teiknimyndafígúruna „Grim“ sem Íslendingar þekkja núorðið úr viku- blaðinu Fókusi. Grim er gríma Hallgríms eða annað sjálf (alter egó) sem hann getur notað til að fremja hin ýmsu ódæði, líkt og herra Hyde gerði fyrir Jekyll lækni. Einn af kostum Hall- gríms er að hann hefur húmor fyrir sjálfum sér og þess vegna verður Grim þetta áhugaverður náungi. Við vitum nefnilega að hann er fram- lenging á Hallgrími sjálfum, þó aðrir geti vel fundið sig í honum líka. Grim er ákaflega líkur fyrstu útgáfu af vampýrunni Drakúla í kvik- myndinni „Nosferatu“ frá árinu 1922. Hvort það er meðvitað gert hjá Hallgrími veit ég ekkert um, en langar vígtennurnar segja sitt um per- sónuna. Á sýningunni eru fjögur olíumálverk og átján málverk unnin á tölvu og prentuð á striga. Í olíu- málverkunum má sjá sérlega skopleg portrett af ættingjum Grims ásamt „Grim-áhrifunum“ (The Grim Effect) í málverki af Davíð Oddssyni með Grim-andlit. Það er sennilega ekki af til- viljun að málverkið af Davíð Oddssyni hangir til hliðar við mynd af Grim með blátt glóðarauga. Grim birtist í mörgum ólíkum hlutverkum. Sér- staklega þykir mér Hallgrími takast vel upp í myndunum „Alien“, þar sem listamaðurinn virðist taka fyrir ægifegurð (Sublime) á skop- legan hátt, og „I have a dream“ sem sýnir Grim í hlutverki „gangsta“-rappara. Sýningin er reglulega ánægjuleg upplifun og á gamansaman hátt sýnir listamaðurinn okkur ýmsa vafasama kanta samfélagsins og mann- legs egós. Sniðugur dauði Gamansemi Bjargeyjar Ólafsdóttur, á sýn- ingunni „Flying / Dying“ í vestursal Gerðar- safns, er af öðrum toga en hjá Hallgrími. Á sýn- ingunni er örstutt kvikmynd, „Crash“, sem listakonan tók á 8 mm vél skömmu áður og eftir að hún lenti í bílslysi og var dregin úr bílflakinu með kvikmyndavélina í hhendi. Myndin sýnir ekki sjálft slysið heldur bílflakið, umhverfið og ástandið. Sýningargestum er gefin forsaga myndarinnar í texta við inngang sýningarinnar. Vissulega má efast um trúverðugleika sögunnar þar sem allt má skapa í kvikmyndum. Sjálfur tel ég söguna sanna, en það er kannski ekki aðal- atriðið. Það sem skiptir máli er að raunsæi myndarinnar er átakanlegt og sláandi. Auk kvikmyndarinnar sýnir listakonan tvær myndaseríur með 100 x 100 cm stórum ljós- myndum. Annars vegar eru það níu myndir af draug, eða manneskju með rósótt teppi yfir sér, og hins vegar sjö myndir af listakonunni og ung- um dreng að leika, „Hver deyr flottast?“ Bjarg- ey nálgast viðfangsefni sín gjarnan á léttum nót- um og hefur oft tekist það með prýði. En í þessu tilfelli finnst mér það ekki ganga upp. Ljós- myndirnar eru heldur „sniðugar“ og skilja lítið eftir sig. Ljósrauður plastpollur á gólfinu, sem sýningargestir mega leggjast á og þykjast vera dauðir, virkar einnig nett-fyndinn og stingur í stúf við átakanlegt raunsæi stuttmyndarinnar. Listakonan er vissulega að sýna hugrekki og gefa ríkulega af sjálfri sér með því að sýna stutt- myndina, en þessu hugrekki er ekki fylgt eftir í öðrum verkum á sýningunni. Nietzsche og gríman Arnar Herbertsson, myndlistarmaður, sýnir um þessar mundir í Galleríi Sævars Karls 32 olíumyndir sem hann málar á litla trékubba. Sýninguna nefnir hann „Sýning fyrir alla og engan“ og tileinkar hana Friedrich Nietzsche. Verkin vann listamaðurinn út frá bók Nietzches, „Handan góðs og ills“, sem kom út í íslenskri þýðingu árið 1994. Sjálfur var Nietzsche síður gefinn fyrir sjón- listir og hneigðist frekar til tónlistar, enda taldi hann þá listgrein geta hafið andann upp á æðra stig umfram aðrar listgreinar. Ekki get ég sagt að ég sjái skýra tengingu á milli mynda Arnars og bókar Nietzsches og kannski er engin þörf á að skoða þær út frá því samhengi þótt listamað- urinn sæki innblástur sinn þangað. Gríman er þó þema Arnars í nokkrum málverkunum, sem er augljós tenging í speki Nietzsches en hann gerði grímuna að einu af mörgum umtalsefnum sínum, enda taldi hann að „allt sem væri djúpt elskaði grímur“ og að „sérhver djúpur andi þyrfti grímu sér til varnar“. Leikhúsgríman var einnig algeng í málverkum módernismans í byrjun 20. aldarinnar, en verk Arnars minna mig talsvert á myndir frá þeim tíma. Andrúms- loftið er allt að því súrrealískt og rýmiskennd myndanna er ekki ólík draumsenum gamalla kvikmynda. Hlutir eins og taflmenn, skuggar, þríhyrningar, mávar o.fl. endurtaka sig á milli mynda og birtast sem tákn (symbol) sem lesa má í. Myndirnar eru hógværar og í heild sinni koma þær vel út í rýminu. Frumkraftar hinnar listrænu sköpunar „I have a dream“, tölvumálverk eftir Hallgrím Helgason, með Grim í aðalhlutverki. „Málverk af málverki“ eftir Húbert Nóa. Jón B.K. Ransu MYNDLIST Gerðarsafn Safnið er opið alla daga nema mánudaga kl. 11–17. Sýningunum líkur 2. febrúar. OLÍUMÁLVERK, HÚBERT NÓI OLÍU- OG TÖLVUMYNDIR, HALLGRÍMUR HELGASON STUTTMYND OG LJÓSMYNDIR, BJARGEY ÓLAFSDÓTTIR Gallerí Sævars Karls Sýningin er opin á verslunartíma og stendur til 30. janúar. OLÍUMÁLVERK, ARNAR HERBERTSSON

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.