Lesbók Morgunblaðsins - 01.03.2003, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 01.03.2003, Blaðsíða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 1. MARS 2003 7 verða af fyrirætlun sinni segist hann hafa farið … en hætt við því það voru svo margir í biðröðinni til að drepa hann. Háð eða lof? Ein lúmskasta saga um afhjúpun og nið- urrif á ímynd valdhafa er að finna í Egils sögu Skalla-Grímssonar, þegar Egill lendir í klóm erkióvinar síns, Eiríks konungs blóð- axar í Jórvík. Eiríkur hefur ærnar ástæður til að taka hann af lífi strax en bíður með það í eina nótt fyrir þrábeiðni eins helsta liðsmanns síns, Arinbjarnar hersis, en hann er vinur Egils. Um nóttina yrkir Egill lof- kvæði um konung. Næsta dag hótar Ar- inbjörn konungi því að hann og menn hans muni verja Egil, láti hann verða af því að taka hann af lífi. Meðan konungur hugsar sig um flytur Egill kvæðið Höfuðlausn sem hampar mörgum afrekum konungs og er ort af mikilli fimi og orðkynngi. En það er eins og tómahljóð sé í lofinu. Ástæðan fyrir því er sú að orrusturnar sem Eiríkur á að hafa sigrað í eru hvorki staðsettar í tíma né rúmi. Því rennir lesanda grun í að þær hafi aldrei átt sér stað, að hrósið sé innantómt og að Höfuðlausn sé „háð en eigi lof“, svo notast sé við hugtök Snorra. Enda segir Eg- ill sjálfur í kvæðislok: „úr hlátra ham, hróðr bark fyr gram“. Skáldið ber lof (hróðr) fyrir konung (gram) og lofið eigi sér uppruna í brjósti hans (hlátra hamur). Kenningin um brjóstið er hins vegar ekki saklaus, því lofið er tengt hlátri og um leið verður það mark- laust. Myndin af hinum sigursæla konungi er rifin niður og Eiríkur afhjúpaður. En Eiríkur er ekki eini skotspónn kímni- gáfu Egluhöfundar. Það er mikið brosað að margvíslegum eiginleikum í fari aðalpersón- unnar, Egils, en hann virðist hvorki ráða við þá né vita af þeim. Þetta á við um fégirni hans sem skopast er að á hárfínan hátt í sögunni, þótt hún sé einnig háalvarleg. Þetta síðasta tengist enn einni hlið á fyndni sem felst í því að gera persónur kómískar með því að sýna þær þannig að þær viti ekki hvað er að koma fyrir þær. Einfalt dæmi um þetta er af manni sem hleypur í eina átt en horfir í aðra og lendir á ljósastaur. Þetta trúðsbragð getur orðið að hárfínum húmor í höndum góðs rithöfundar, eins og t.d. Snorra Sturlusonar. Ekki er ætlunin hér að blanda mér í um- ræðuna sem átt hefur sér stað í Lesbókinni undanfarið um það hvort Snorri hafi samið Egils sögu eður ei. Ég vil þó benda á að margt er skylt með kímnigáfu Egluhöfundar og Snorra, a.m.k. ef við erum tilbúin að samþykkja að hann hafi samið Eddu. Í frá- sögn síðarnefnda ritsins af ferð Þórs til Út- garða-Loka býr nákvæmlega sams konar af- staða til persónanna undir og í Eglu. Þór og förunautar hans eru stöðugt blekktir af Út- garða-Loka og fólki hans. Á sama hátt og maðurinn sem hleypur á ljósastaur eru þeir ávallt að horfa í vitlausa átt. Það er Út- garða-Loki sem beinir sjónum þeirra annað. Þeir eru beittir blekkingum og í því felst hið spaugilega í frásögninni. Tamið háð Í Egils sögu tengist þetta persónu sögu- hetjunnar á miklu nánari hátt, því þótt fé- girni Egils sé hlægileg er hún líka sá þáttur í fari hans sem hefur mestar og alvarleg- astar afleiðingar fyrir hann. Ef til vill er hún rót alls þess mótlætis sem hann verður fyrir og lykill að dýpri skilningi á sögunni sem of langt mál yrði að rekja hér. Það nægir að benda á að fégirnin er áreiðanlega fasti í skapgerð Egils, eins og sést í sögulok af því að hann vill fremur grafa silfur sitt í jörðu en að því verði skipt á milli erfingja hans eftir hans dag. Eitt af því sem gerir Egils sögu svo merkilega í menningarsögunni er að í henni birtist alveg sérstök afstaða til aðalpersón- unnar. Þessi afstaða er skyld háði en er ei- lítið frábrugðin því. Hún fellur betur undir að sem á erlendum málum er kallað írónía og Guðbergur Bergsson hefur stungið upp á að þýða sem „tamið háð“. Írónían er sam- kvæmt mörgum hugsuðum eitt af stóru ávinningum siðmenningarinnar, enda birtist hún í fjölmörgum afurðum hennar. Ef til vill kemur hún einna best fram í skáldsögunni og er Egla að því leyti forboði þess list- forms. Hið tamda háð afhjúpar manninn fyrir sjálfum sér, gerir hann meðvitaðan um lítilfjörleik sinn, breyskleika og yfirvofandi dauða. Þó er það mikilvægt að sú afhjúpun er ekki harmþrungin. Með því að líta á óbærilegan hverfulleika sinn úr fjarlægð húmorsins gefur maðurinn sér tækifæri til að fyrirgefa sjálfum sér og tilverunni fyrir að vera eins og þau eru. Þar með getur hann notið þess betur að vera hann sjálfur og að vera til. Það er heilmikið vit í því. Höfundur er prófessor og forstöðumaður Hugvís- indastofnunar. É g kynntist esperanto í mennta- skóla árið 1949,“ segir Baldur Ragnarsson, fyrrverandi menntaskólakennari. „Ég keypti kennslubók Þorsteins Þorsteins- sonar í esperanto í fornbókabúð en hún kom út 1909 og var fyrst sinnar tegundar hérlendis. Um sumarið lærði ég svo esperanto af þessari bók. Ég hafði mikinn áhuga á tungumálum sem rak mig til þess að kynna mér þetta mál en mér sýndist líka esperanto vera skynsamleg lausn á málavandanum í veröldinni. Og strax þetta sama haust fór ég að skrifast á við erlenda esperantista á málinu. Og nokkru seinna fór ég að reyna að yrkja á þessu máli.“ Baldur Ragnarsson hefur samið tvær ljóða- bækur á esperanto, auk þess sem hann hefur skrifað talsvert af greinum um bókmenntir og menningu á málinu sem birtar hafa verið í inn- lendum og erlendum esperantotímaritum. Enn- fremur hefur hann þýtt tvær ljóðabækur eftir Þorstein frá Hamri og stutta sýnisbók íslenskra fornbókmennta. Hann hefur einnig þýtt íslensk- an skáldskap í tímaritið La Tradukisto sem er eina þýðingartímaritið sem er gefið út reglulega hérlendis. Nýlega hefur Baldur lokið við þýð- ingu á Njáls sögu sem koma mun út í sumar hjá belgísku forlagi. Þýðing hans á Snorra-Eddu er í handriti og um þessar mundir er hann að ljúka við þýðingu á Sjálfstæðu fólki eftir Halldór Lax- ness. „Það er nokkuð langt síðan ég byrjaði að þýða Njálu. Ég hafði lítinn tíma vegna kennslu en fékk hvatningu frá dóttur minni Heiði en hún lá þá alvarlega veik. Mér tókst að ljúka þýðingunni áður en hún lést. Það er gott að þýða fornsögurnar á esper- anto. Hinn hreini tónn er svo tær í málinu. Það er hægt að komast mjög knappt að orði í því. Sem dæmi mætti nefna orð Gunnars á Hlið- arenda: Fögur er hlíðin. Í ensku Penguin-útgáf- unni er þetta þýtt „How lovely the slopes are“ sem mér finnst dálítið flatt. Ég þýði þetta knappt eins og íslenskan er: Belas la deklivo. „Belas“ er sögn mynduð af lýsingarorðinu „bela“, fagur. Sögnin gefur lýsingarmerking- unni virkan kraft auk þess sem orðaröðin er öf- ug eins og í íslensku. Það hefur aftur á móti ver- ið erfiðara að glíma við Sjálfstætt fólk. Orðaforði er meiri og setningabygging flóknari. En esperanto er ákaflega þjált mál og því alltaf hægt að finna lausnir. Seðlasafn Þórbergs Baldur kenndi íslensku í Menntaskólanum við Hamrahlíð og esperanto, þegar nægilega margir nemendur völdu það sem valgrein. Er það eini skólinn í hinu opinbera menntakerfi hérlendis sem hefur haft málið á kennsluskrá sinni. Esperanto hefur aftur á móti verið kennt á námskeiðum sem Auroro, esperantofélagið í Reykjavík, hefur efnt til öðru hverju. Um hundrað manns tala esperanto hérlendis nú. „Esperanto er til sem háskólagrein erlendis, til dæmis í Ungverjalandi og Kína,“ segir Bald- ur. „Menn hafa tekið doktorspróf í esperanto. En það er líka algengt að fólk læri málið af sjálfsdáðum.“ Annar helsti frumherji esperantos á Íslandi auk Þorsteins Þorsteinssonar hagstofustjóra var Þórbergur Þórðarson sem samdi kennslu- bækur í málinu og bókina Alþjóðamál og mál- leysur sem Menningarsjóður gaf út 1934 sem fjallaði um esperanto. „Þórbergur hafði fullan hug á að gerast rit- höfundur á esperanto en ekki varð úr því,“ segir Baldur. „Hann samdi samt nokkrar ritgerðir á málinu sem birtar voru í erlendum esperanto- tímaritum. Einnig þýddi hann dálítið af íslensk- um þjóðsögum á esperanto. Þórbergur vann einnig um árabil að samningu íslensk-esperan- tiskrar orðabókar um málið. Það er til mikið seðlasafn sem er afurð þessarar vinnu. Við í esperantofélaginu höfum verið að fara í gegnum þetta safn sem er gríðarlegt verk, í því eru mörg þúsund seðlar. Þórbergur naut aðstoðar nokk- urra manna við vinnslu þess, meðal annars Vil- mundar Jónssonar landlæknis sem var mikill esperantisti. En það var aldrei lokið við þetta verk. Síðar samdi Baldvin B. Skaftfell íslensk- esperantíska orðabók.“ Hugsjón Zamenhofs Upphafsmaður esperantos var dr. Lúðvík Zamenhof. Hann var pólskur gyðingur. Hann fékk hugmyndina þegar á menntaskólaárum sínum og var aðeins 28 ára þegar hann birti mál- ið opinberlega árið 1887. Í fæðingarbæ hans bjuggu fjögur þjóðarbrot sem sífellt áttu í ill- indum. Zamenhof taldi ástæðuna vera þá að þau skildu ekki hvert annað. Lausnin hlaut því að vera sú að búa til mál sem allir gætu talað sam- an á og staðið jafnfætis. „Þetta hefur verið hugsjónin á bak við esper- anto allt fram á þennan dag,“ segir Baldur, „að fólk geti mæst á jafnréttisgrundvelli, sama af hvaða þjóðerni það er. Fólk þarf ekki að vera undirorpið kröfum um að kunna þjóðmál sem það getur aldrei lært jafnvel og innfæddir. Þeg- ar maður þarf að tala annað tungumál stendur maður alltaf skör lægra en þeir sem tala móð- urmálið. En ef allir töluðu hlutlaust, tiltölulega fljótlært tungumál eins og esperanto stæðu allir jafnir.“ Aðgengilegt og fljótlært Málið breiddist út um Evrópu býsna fljótt, aðallega meðal menntamanna. Fyrsta alþjóða- þingið var haldið árið 1905 í Frakklandi. Þangað kom fólk frá mörgum þjóðum og allir gátu gert sig skiljanlega á esperanto. Þetta var fyrsta reynslan af esperanto sem lifandi máli. Baldur segir esperanto mjög aðgengilegt. Það sé fljótlært enda engar undantekningar í málfræðinni. Samkvæmt rannsóknum séu nem- endur í menntaskólum fimm til sex sinnum fljót- ari að ná tökum á esperanto en öðrum málum. „Orðstofnarnir eru að stærstum hluta indó- evrópskir, einkum rómanskir. Málfræðin er gjörsamlega regluleg og fljótlærð. Það eru sex- tán grundvallarreglur sem Zamenhof kallaði „la fundamento“ eða undirstöðuna. Hún er óbreyt- anleg sem komið hefur í veg fyrir að málið skipt- ist í mállýskur. Málið er ákaflega sveigjanlegt. Auðvelt er að búa til ný orð. Til þess eru einkum notuð að- skeyti, forskeyti og viðskeyti. Notkun aðskeyta við orðmyndun sparar stofnorðafjölda auk þess að tengja esperanto við viðskeytamál eins ung- versku, japönsku, svahili og ótal önnur mál þar sem orðmyndun byggist mjög á notkun við- skeyta. Einnig er hægt að nota allar orðflokka- endingarnar við orðmyndun. Allar sagnir enda til dæmis á -i og með því að bæta þessum staf við hvaða orð sem vera skal, jafnvel forsetningu, verður til sögn. Öll alþjóðleg orð verða sjálf- krafa hluti af esperanto. Sjónvarp er til dæmis „televido“, útvarp er „radio“ og tölva er „komputilo“ sem myndað er af sögninni „kom- puti“ sem merkir að vinna með tölvu og við- skeytinu -il- sem táknar verkfæri. Framburður er auðveldur í esperanto og stafsetning hljóð- rétt. Einföld, undantekningalaus málfræði, skap- andi orðmyndun og stafsetning í samræmi við framburð gerir málið afar aðgengilegt, einnig fyrir þjóðir sem tala mál af öðrum málaættum en þeirri indóevrópsku.“ Esperanto í alþjóðlegu samstarfi Umberto Eco kallar málfræði esperantos í bók sinni Leitin að málinu fullkomna „una grammatica ottimizzata“ sem Baldur hefur kall- að kjörmálfræði. „Það er sú málfræði sem hefur ákjósanlegast gildi við tilteknar aðstæður. Eco nefnir sérstak- lega notkun andlagsfalls í esperanto sem gefi málinu aukinn sveigjanleika í orðaröð. Þetta er sérstaklega athyglisvert þar sem ýmsir hafa gagnrýnt andlagsfallið í esperanto þar sem slíkt fall sé ekki lengur til í til dæmis rómönsku mál- unum og ensku. Andlagsfallið er reyndar ósköp einfalt, og felst í einni endingu, endingunni -n sem bætt er við nefnifallið.“ Eco leggur líka áherslu á hugsjón Zamenhofs um esperanto sem hlutlaust, alþjóðlegt sam- skiptamál í þágu mállegs jafnréttis og friðar. „Eco segir hana drifkraftinn á bak við málið, allir eigi að hafa jafnan rétt til tjáningar. Íslend- ingar ættu að skilja þetta vel. Við getum nánast aldrei notað okkar eigið mál í alþjóðlegu sam- hengi. Við sitjum alltaf skör neðar. Það hefur verið baráttumál esperantista að málið verði gert gilt í alþjóðlegu samstarfi, til dæmis hjá Sameinuðu þjóðunum. Lítill áhugi hefur verið á því hjá ríkisstjórnum aðildarríkjanna þrátt fyrir að þing á vegum Unesco hafi tvívegis hvatt til þess í samþykktum sínum.“ Unga fólkið spyr um gagnsemi Baldur segir að það verði alltaf erfiðara og erfiðara að fá ungt fólk til að læra esperanto hérlendis. „Það er svo margt annað að gera hjá unga fólkinu. Og það spyr hvaða gagn það hafi af því að læra esperanto þegar það geti notað ensku víðast hvar. Því fer þó fjarri að svo sé því að þeg- ar kemur út fyrir Vestur-Evrópu og Norður- Ameríku gagnar enskan lítt. Sjálfur hef ég not- að esperanto víðs vegar um heiminn, til dæmis í Japan, Kína og Brasilíu, og þótt esperantistar séu þar auðvitað ekki á hverju strái, hefur kunn- átta mín í málinu gagnast þar vel. Enginn veit hversu margir tala esperanto nú, að líkindum þó 1–2 milljónir. En esperanto býður upp á svo margt, veruleg bókaútgáfa er á málinu, tímarit eru fjölmörg, stór og smá, notkun esperantos á veraldarvefnum er þegar mjög mikil og mikil not má hafa af málinu á ferðalögum, einkum ef menn eru félagar í Alþjóðlega esperanto-sam- bandinu og fá þá árbók þess með nöfnum mörg þúsund fulltrúa víðs vegar um heiminn sem bjóða ferðamönnum endurgjaldslausa aðstoð.“ „BELAS LA DEKLIVO“ – FÖGUR ER HLÍÐIN Njála kemur út í esperantískri þýðingu Baldurs Ragnarssonar hjá belgísku forlagi í sum- ar. Baldur er einnig að ljúka við þýðingu á Sjálfstæðu fólki. ÞRÖST- UR HELGASON ræðir við Baldur um þýðingarstarf- ið og esperanto. Morgunblaðið/Kristinn Baldur Ragnarsson throstur@mbl.is

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.