Lesbók Morgunblaðsins - 01.03.2003, Síða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 01.03.2003, Síða 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 1. MARS 2003 Þ AÐ má segja að boðið verði upp á perlur bestu tónskálda sög- unnar á tónleikum sem Þor- steinn Gauti Sigurðsson heldur í Ými, húsi Karlakórs Reykja- víkur við Skógarhlíð, á morgun, sunnudag. Á tónleikunum, sem hefjast klukkan 16, leikur Þor- steinn Gauti Arabesque nr. 1, Arabesque nr. 2 og Clair de Lune eftir Debussy, Liebes- traume eftir Liszt, Vals í a-moll op. Post, Prelúdíu op. 28. nr. 4, Etýðu op. 12 nr. 1 og Pólónessu í As-dúr op. 53 eftir Chopin fyrir hlé. Eftir hlé eru þrjár Prelúdíur eftir Gersh- win, Gymnopedia nr. 1 eftir Satie, Prelúdía í cís-moll op. 3 nr. 2 og Prelúdía í g-moll op. 23 nr. 5, eftir Rachmaninoff, Pavane eftir Ravel og Sónata nr. 3 op. 28 eftir Prokofiev. Þorsteinn hefur verið nokkuð iðinn við tón- leikahald í vetur. Lék í Salnum í nóvember, með Caput í haust, í Lugano í Sviss í fyrra- vetur, leikið tónleika með Kristjáni Jóhanns- syni í desember og hefur í vetur leikið á þrennum FÍT-tónleikum úti á landi. Efnis- skrá þeirra tónleika hefur verið æði fjöl- breytt en nokkur af verkunum sem Þor- steinn lék í þessari miklu tónleikasyrpu verða á efnisskrá tónleikanna á sunnudaginn. Verk sem allir vilja heyra „Mig langaði til þess að setja saman efnis- skrá með verkum sem fólk þekkir og vill hlusta á,“ segir hann og bætir við. „Það verða engar langlokur á tónleikunum, heldur eru þetta allt verk í styttri kantinum og eiga það sameiginlegt að vera meðal vinsælustu verka þessara tónskálda.“ Hvers vegna ákvaðstu að leika þau núna. „Ég hef verið í miklu stuði í vetur og leikið á fjölmörgum tónleikum og eftir þessa tón- leika ætla ég að taka mér hvíld þar til í vor þar sem við Steinunn Birna Ragnarsdóttir munum spila á tvö píanó í Salnum. Í sumar held ég svo einleikstónleika á tónlistarhátíð í Frakklandi. Tónleikarnir í Salnum og tón- leikarnir með Caput voru mjög flóknir og erfiðir og mig langaði til þess að spila núna það sem alla langar til að heyra og enginn þreytist á að spila. Annars er ekkert auð- veldara að koma þannig efnisskrá saman. Maður er kominn á þann aldur að kunna svo mikið að maður lendir í vandræðum með að velja.“ Mikill áhugi á píanónámi Hvert er tilefni tónleikanna? „Ég vil með tónleikunum vekja athygli á píanóskólanum sem ég stofnaði um áramótin. Þetta er hugmynd sem ég hef gengið með í dálítið langan tíma. Ég var búsettur á Ítalíu í fyrra og þegar ég kom heim var ekkert svo mikið að gera hjá mér. Þá ákvað ég að láta til skarar skríða og stofnaði Píanóskóla Þor- steins Gauta.“ Í píanóskólanum eru enn sem komið er að- eins tveir kennarar, Þorsteinn og tónfræði- kennarinn Sigríður Friðjónsdóttir. Hann segist hafa byrjað mjög smátt en ásóknin sé slík að hann verði líklega að ráða annan pí- anókennara næsta vetur. Í skólanum eru núna um tuttugu nemendur og eru þeir á aldrinum frá fimm ára til um það bil fimm- tugs. „Það er gríðarlegur áhugi á píanónámi,“ segir Þorsteinn. „Ég er með nemendur sem eru byrjendur, sem eru lengra komnir og svo fullorðið fólk sem hefur lært á píanó en vill koma sér í betri æfingu. Sem dæmi um áhugann, þá er ég með nemendur sem hafa verið í allt að fjögur ár á biðlista eftir að komast inn í tónlistarskóla. Ég hafði heyrt að fólk biði í tvö ár, jafnvel þrjú, en fjögur held ég að sé metið.“ Langir biðlistar í tónlistarskólum Þorsteinn Gauti kennir einnig í Nýja tón- listarskólanum og í Tónlistarskólanum í Reykjavík. Í sínum eigin skóla er hann með um tuttugu nemendur og segist hreinlega ekki komast yfir meira; hjá sér séu byrjaðir að myndast biðlistar – sem verði vonandi hægt að kippa í liðinn í haust. „Ég veit svo sem ekkert hvernig þetta þróast,“ segir hann, „en byrjunin lofar góðu. Ég hef mikla ánægju af því að kenna, þeg- ar nemendur eru áhugasamir og sýna fram- farir og ég er með mjög skemmtilega nem- endur.“ Flosna hinir ekki bara upp úr náminu? „Það er langtíma verkefni að læra á hljóð- færi og ekkert óalgengt að krakkar fái nóg á einhverju stigi. Sumum finnst þeir vera að læra fyrir foreldrana og hætta – en það er svo merkilegt að það er oft tímabundið.“ Sjálfur byrjaði Þorsteinn að læra á píanó þegar hann var níu ára og segist hafa verið mikill dellustrákur og hafi tekið píanóið dellutökum. Um fjórtán ára aldurinn hafi hann verið búinn að ákveða að verða tónlist- armaður. Hann viðurkennir að í gegnum árin hafi hann stundum verið hálfleiður þegar hann hafi verið að æfa þung og erfið verk og veit hvað hann þarf að æfa margar klukku- stundir, en þegar upp sé staðið, geti hann ekki annað en sagt að hann hafi verið ótrú- lega heppinn með ævistarf; í fyrsta lagi að fá að spila öll þau verk sem heilla hann – og að fá að miðla þeirri þekkingu sem hann hefur aflað sér. Gott að spila úti á landi Það er dálítið langt á milli Lugano og tón- listarhátíðar í Frakklandi, annars vegar, og tónleika á landsbyggðinni, hins vegar. Hvað eru FÍT-tónleikar? „Félag íslenskra tónlistarmanna velur nokkra tónlistarmenn á hverju ári til þess að spila á þremur stöðum úti á landi. Ég er bú- inn að fara í Reykholt og á Hvammstanga og fékk að vígja nýja flygilinn í kirkjunni á Hólmavík. Það var mjög gaman að fara í þessar tónleikaferðir, sérstaklega fannst mér gott að spila í Reykholti. Þar var mjög vel mætt og ég fékk svo hlýjar móttökur.“ Hvað tekur svo við eftir tónleikana á sunnudaginn? „Ætli ég taki það ekki rólega eins og hægt er, einbeiti mér að kennslunni, þar til ég fer að æfa fyrir tónleikana í Salnum í vor og tón- listarhátíðina í Frakklandi.“ Og sem fyrr segir hefjast tónleikarnir í Ými klukkan 16 á morgun. PRELÚDÍUR, ETÝÐUR, SÓNÖTUR OG VALSAR Þorsteinn Gauti Sigurðs- son heldur tónleika í Ými á morgun. SÚSANNA SVAVARSDÓTTIR ræddi við hann um efnisskrána, nýjan píanóskóla sem hann hefur stofnað og annríki í tónleikahaldi. Morgunblaðið/Kristinn Þorsteinn Gauti Sigurðsson í Ými. LEIKHÓPURINN Perlan fagnar 20 ára leik- afmæli sínu með hátíðarsýningu í Iðnó í dag kl. 15. Sýningin nefnist Afmælis-Perlur, brot af því besta og samanstendur af 6 dans- og leikverkum, „brotabroti af því besta“, segir Sigríður Eyþórsdóttir leikstjóri sem stýrt hefur Perlunni frá upphafi. „Boðskapurinn er kærleikur, friður og gáski. Auk þess höf- um við sett upp sýningu á ljósmyndum, vegg- spjöldum, blaðaúrklippum og ýmsu fleira er tengist sögu og ferli Perlunnar.“ Í Perlunni eru 12 leikendur og koma allir fram í sýningunni í dag. „Þrír í hópnum hafa verið með frá upphafi og það er því mikil og fjölbreytt reynsla sem hópurinn býr að. Gildi þessa starfs er ótvírætt. Ég bað meðlimi hópsins að skrifa í leikskrána okkar hvað þeim þætti skemmtilegast við að leika og þau segja að því fylgi bæði gleði og gaman og sér- staklega sé gaman að skemmta öðrum. Þetta gefur þeim einnig tilfinningu fyrir því að vera einhvers virði og geta gefið af sér í leik og söng.“ Kynnir á sýningunni í dag er leikarinn Björgvin Franz Gíslason og Lára Stef- ánsdóttir og Ívar Örn Sverrisson dansa við tónlist eftir Eyþór Arnalds, Mána Svavarsson og Þorvald Bjarna Þorvaldsson. Aðeins verður þessi eina sýning á Afmælis- Perlum en yfirlitssýningin mun standa áfram í Iðnó. AFMÆLIS- PERLUR Í IÐNÓ Morgunblaðið/SverrirLeikhópurinn Perlan sýnir í Iðnó í dag.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.