Lesbók Morgunblaðsins - 08.03.2003, Qupperneq 10
10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 8. MARS 2003
Þ
AÐ var nokkuð óvænt sjón þegar
Mrs. Dalloway, skáldsaga eftir
Virginu Woolf frá árinu 1925,
skaut upp kollinum á kiljumet-
sölulista New York Times í febr-
úar síðastliðnum. Þó svo að Virg-
inia Woolf hafi, allt frá því að
fræðimenn tóku að gefa henni
gaum á sjöunda og áttunda áratugnum, öðlast
þann sess í virðingarstiga bókmenntanna sem
æviverk hennar á skilið, er Mrs. Dalloway
áreiðanlega ekki þekktasta bók höfundarins, og
verður nýfenginn áhugi bandarískra lesenda á
verkinu að teljast nokkuð ánægjulegur.
Í tilfelli sem þessu verður kynningarmáttur
kvikmynda seint ofmetinn, en Mrs. Dalloway er
fyrirmyndin sem rithöfundurinn Michael Cunn-
ingham byggði skáldsögu sína The Hours á, bók
sem hlaut Pulitzer-verðlaunin árið 1999 og hef-
ur nú verið kvikmynduð í leikstjórn Stephens
Daldry. Í kvikmyndinni, sem keppir um fjöl-
margar Óskarstilnefningar í ár, lifna hinar
sterku kvenpersónur úr bók Cunninghams við á
tjaldinu, þar á meðal sjálf Virgina Woolf sem í
upphafi myndarinnar gengur sín hinstu spor út
í ána Ouse, þar sem skáldkonan drekkti sér árið
1941.
Lífshlaup, skáldskapur og skörp þjóðfélags-
gagnrýni Virginiu Woolf hefur lengi verið
fræðimönnum, femínistum og bókmenntafólki
áhugaefni, en með frumsýningu kvikmyndar-
innar The Hours, þar sem hin þekkta leikkona
Nicole Kidman túlkar Woolf á eftirminnilegan
hátt, virðist almennur áhugi hafa vaknað fyrir
því að grafast fyrir um sifjafræði verksins, hver
er þessi frú Dalloway og hver var Virginia
Woolf, þessi mikilvirki höfundur sem endaði
ævi sína á svo sviplegan hátt?
Stormasamt æviskeið
Ævi Virginu Woolf hefur reyndar fengið á sig
goðsagnakenndan blæ. Í umfjöllun um vandaða
ævisögu Virginiu Woolf eftir Hermonie Lee,
sem út kom árið 1997, bendir greinarhöfundur
New York Times á hversu vandkvæðum bundið
það sé að fjalla um ævi Woolf og varpa á það
nýju ljósi á einhvern hátt. Svo oft hafi verið sögð
sagan af „hinni fögru en afskiptu móður sem
lést þegar Virginia var 13 ára, sorgmædda föð-
urnum sem sökkti sér í vinnu, kynferðislegri
ágengni hálfbræðra Virginiu, samkeppnis-
þrungnu en nánu sambandi við systurina Van-
essu, andlegu niðurbroti á unglingsaldri og síð-
ar á ævinni, hjónabandinu með auralausum
heimspekingi, nánum samböndum við konur,
þar á meðal ástarsambandi við skáldkonuna
Vita-Sackville-West og að lokum sjálfsmorðinu
árið 1941, þegar Virgina var 59 ára að aldri.“
Virginia (þá Stephen) fæddist árið 1882 inn í
menntafjölskyldu. Að loknu háskólanámi flutti
hún ásamt fjórum systkinum sínum í Blooms-
bury-hverfið í London, þar sem þau komust í
kynni við hóp rithöfunda, listamanna og heim-
spekinga, sem mynduðu náinn vinskap og voru
kenndir við Bloomsbury-hópinn. Í þessum hópi
kynntist Virginia eiginmanni sínum, útgefand-
anum og blaðamanninum Leonard Woolf.
Leonard var dyggur vinur Virginiu, og studdi
hana í gegnum veikindin, sem settu mark á and-
legt líf hennar alla tíð, og drógu hana að lokum
til dauða. Í kveðjubréfi sínu til Leonards segir
Virginia m.a: „Ég finn fyrir víst að ég er að
verða veik aftur: Ég held að við munum ekki
höndla enn eitt af þessum hræðilegu skeiðum.
Ég mun ekki ná mér aftur í þetta skipti. Ég er
byrjuð að heyra raddir, ég get ekki einbeitt
mér. Ég geri því það sem virðist réttast í stöð-
unni …“
Í ævisögunni segir Lee það nær ómögulegt
að vita fyrir víst hvort Virginia varð í raun fyrir
kynferðislegri misnotkun og að hvaða leyti and-
leg barátta hennar var aðstæðubundin, og að
hvaða leyti afleiðing illvígs geðsjúkdóms. Mich-
ael Cunningham tekur afstöðu til þessa vafa-
máls í skáldsögulegri nálgun sinni á Woolf þeg-
ar hann beinir sjónum að þeirri stund í lífi
hennar er hún tók þá ákvörðun að flytja úr út-
hverfinu Richmond aftur til London þrátt fyrir
ráðleggingar lækna um að slíkur flutningur
myndi valda henni andlegu álagi, sem hún vart
mætti við.
Virginia ólst upp á tímum gríðarlegra sam-
félagslegra breytinga, og gagnrýni hennar á
breska heimisveldið var bæði skörp og framsýn.
Hún fjallaði ekki síst um stöðu kvenna í sam-
félaginu, hlutverk og stöðu kvenna í skáldskap,
og rígskorðaða hlutverkaskipan kynjanna. En
hin víðsýna og yfirvegaða leið Virginiu til að tjá
þá gagnrýni í skáldskap sínum og ritgerðum, á
borð við hina frægu A Room of One’s Own,
mætti oft vanskilningi, jafnvel meðal hennar
nánustu vina sem þó efuðust ekki um að hún
væri snjall hugsuður og hæfileikaríkur rithöf-
undur. Umsvif hennar á skáldskaparsviðinu
mörkuðu hins vegar mikilvæg spor í módern-
ískri umbyltingu bókmenntalegrar tjáningar á
20. öldinni þar sem rannsóknir hennar á mögu-
legum bókmenntalegum framsetningaraðferð-
um sjálfsvitundar og flókinna tilfinningatengsla
áttu margt sameiginlegt með starfi rithöfunda á
borð við James Joyce og Marcel Proust.
Verkefnið sem Micheal Cunnigham leggur
upp með í skáldsögunni The Hours er áhuga-
vert, bæði í ævisögulegu tilliti og skáldskap-
arlegu. Cunningham leitast við að nálgast Virg-
iniu Woolf, tilvist hennar, innra stríð og
skapandi hugsun, í gegnum eitt af skáldverkum
hennar, hina margræðu Mrs. Dalloway. Til að
geta notið skáldsögu Cunninghams, og kvik-
myndarinnar nýju, til fulls er því nauðsynlegt
að kunna nokkur skil á sögu Woolf því að að-
ferðafræði Cunninghams einskorðast ekki við
lauslegar vísanir eða hefðbundin textatengsl
heldur er um að ræða innlimun, endurvinnslu
og opinbera lofgjörð til skáldskapar Woolf;
Cunningham skrifar sig inn í skáldsöguna um
Dalloway og skáldskapararfleifð Virginiu Woolf
samhliða því sem hann færir hvort tveggja inn í
samtímann með nýstárlegri túlkun sinni og
formgerð skáldverksins. Hin órjúfanlegu tengsl
verkanna eru innsigluð með nafngift nýju bók-
arinnar, The Hours, en það var einmitt vinnutit-
illinn sem Woolf studdist við þegar hún var að
skrifa Mrs. Dalloway.
Frú Clarissa Dalloway
Mrs. Dalloway er fjórða skáldsaga Woolf sem
jafnframt er af mörgum talin ein af hennar
merkustu verkum. Þar þróaði Woolf áfram að-
ferð sem hún kenndi sjálf við „tunnelling“, eða
að grafa göng, og miðaði að því að miðla innra
lífi persónanna; innra lífi sem flæddi handan við
þann stað og þá stund sem hinn ytri heimur af-
markar svo skýrt. Þannig er ytra tíma- og
rúmsvið sögunnar mjög afmarkað, það lýsir
degi í lífi Clarissu Dalloway þar sem hún und-
irbýr og heldur veislu á fyrirmyndarheimili
þeirra hjóna, en hugleiðingar Clarissu um stöðu
sína, dauðann og fortíðina, veita mun dýpri inn-
sýn í tilveru hennar og það samfélag sem hún
býr í en dagurinn spannar.
Reyndar fer frásögnin eins og kvikmynda-
tökuvél um sögusviðið, og fangar hugsanir
óþekktra og þekktra persóna, vegfarenda,
Richards eiginmanns Clarissu, hins ógæfusama
Septimusar Smith og eiginkonu hans, róttækr-
ar kennslukonu, Peters Walsh, fyrrum vonbið-
ils Clarissu og annarra persóna sem við sögu
koma. Og umfram allt fangar frásögnin iðandi
borgarlífið og skoðar það frá ólíkum hliðum,
innan frá og utan.
Með því að gera hina fremur yfirborðs-
kenndu þingmannsfrú Clarissu að aðalpersónu
sögunnar, kannar Woolf tilveru og skilyrði
hinnar góðborgaralegu eiginkonu og tilvistar-
legan grunn hjónabandsins í bresku samfélagi.
En um leið tekur Woolf þá meðvituðu ákvörðun
að fjalla um hina tíðindalausu hversdagsveröld
konunnar, veröld sem bókmenntasagan hafði
ekki hirt um að gefa gaum, nema ef vera skyldi í
afstöðu við miðlæga karlpersónu.
Clarissa Dalloway hefur verið fræðimönnum
og lesendum nokkur ráðgáta, en köld og glað-
beitt yfirvegun hennar í ákvörðunum er miðar
að því að tryggja stöðu hennar í virðingarstig-
um samfélagsins, gera hana ekki að sérlega við-
kunnanlegri persónu. Með því að hafna vonbiðli
sínum og elskhuga, hinum skáldlega sinnaða
Peter Walsh, og velja sér traust eiginmanns-
efni, hefur hún fórnað andlegum gæðum fyrir
hin veraldlegu. Þegar fundum þeirra Peters ber
saman, íhugar hún val sitt og telur sig, þrátt
fyrir allt, hafa valið rétt. Það er líklega þetta
sjálfsöryggi Clarissu sem gerir hana að svo eft-
irminnilegri persónu. Hún stendur við val sitt,
því það hefur gefið henni færi á að ná hámarks-
árangri á því valdsviði sem henni er markað,
hún er hinn fullkomni gestgjafi, fullkomna
heldri kona, hin fullkomna húsmóðir. Clarissa á
sér hins vegar skugga, sem holdgerður er í per-
sónu Septimusar Smith, fyrrum hermanns sem
barðist í heimsstyrjöldinni fyrri og hlaut heið-
ursmerki fyrir. Eftirköst stríðsins gera hins
vegar vart við sig þegar Septimus verður sífellt
þunglyndari og verður að lokum fullkominni ör-
væntingu að bráð, en ástand þetta, er síðar var
greint í tengslum við andlegt áfall stríðsupplif-
unar og hlaut sjúkdómstitil, var á þessum tíma
álitið hálfgerður kveifarháttur. Á meðan Clar-
issa táknar og athafnar sig innan hins rígskorð-
aða og staðnaða hefðarveldis samfélagsins, er
Septimus holdgervingur alls þess sem er óstöð-
ugt og breytingum háð, dauða, umbyltinga og
óröklegrar hugarstarfsemi. Clarissa er tákn
þeirrar sem lifir af, þolir við, Septimus þess sem
tortímist.
Lifandi textatengsl
Skáldsaga Cunninghams, The Hours, hefst
líkt og Mrs. Dalloway á kafla þar sem Clarissa
nokkur Vaughn, ritstjóri í New York, heldur út
í iðandi borgarlífið til þess að kaupa blóm fyrir
veislu sem hún hyggst halda um kvöldið. Hér er
það hin lífræna heild New York borgar við ár-
þúsundamótin 2000 sem mætir lesendum í stað
Lundúna millistríðsáranna. Þegar í upphafi
bókarinnar má greina þau fjölmörgu þemu, frá-
sagnaraðferðir, persónuheiti og umfjöllunar-
efni sem Cunningham tekur úr Mrs. Dalloway
og setur í nýtt samhengi.
Sögunni er skipt í þrjár sjálfstæðar frásagn-
ir, en tengjast þær þó bók Woolf á einn eða ann-
an hátt. Fyrrnefnd saga Clarissu er eins konar
nútímavæðing skáldsögu Woolf en þar koma
fyrir persónur er bera tengd eða sömu nöfn og í
Mrs. Dalloway, en birtast þó í yfirfærðri og dá-
lítið breyttri mynd. Annað frásagnarsvið bók-
arinnar lýsir persónu sem er mun óskyldari
frumverkinu, óhamingjusamri húsmóður sem
reynir að gæða tilveru sína merkingu með því
að leita í skáldskap, m.a. títtnefnda bók Woolf
um Dalloway. Þriðji hlutinn fjallar síðan um af-
markað tímabil í lífi Virginu Woolf, nefnilega
tímabilið þegar hún glímir við hugarfóstur sitt,
Mrs. Dalloway. Sjálf hélt Woolf dagbækur á
þessu tímabili og sækir Cunningham markvisst
í þær heimildir við smíð skáldsögu sinnar.
Hugleiðingar um dauða, geðveiki og sköpun
merkingarbærrar tilveru eru miðlægar í Mrs.
Dalloway, og í endurvinnslu sinni tekst Cunn-
ingham ekki aðeins á við það verkefni að fanga
og endurvinna andrúmsloft, ritunarhátt og um-
fjöllunarefni skáldsögunnar heldur gerir hann
spurninguna um sköpun að þungamiðju eigin
bókar með tilvísun sinni til Woolf sjálfrar, og
ritunarferlis hennar verks. Veitt er innsýn í
hina átakasömu daglegu veröld Woolf, þar sem
hún barðist við sjálfsefasemdir, skapsveiflur og
þunglyndi, en kafaði jafnframt djúpt í vanga-
veltum sínum um möguleika skáldskaparins og
þess verks sem hún var að vinna að. Með hinum
frásagnarsviðunum er Cunninghams hins vegar
að halda áfram með það verkefni Woolf að fjalla
um tilvist og innri veröld kvenna, óháð þeim
staðalmyndum sem litað hafa bókmenntasög-
una. Það er engin tilviljun að leikkonur í Holly-
wood hafa tekið kvikmyndaaðlögun þessarar
sögu fagnandi, og verður forvitnilegt að skoða
kvikmyndina The Hours sem frumsýnd er um
þessar mundir hér á landi í samhengi við þann
marglaga bakgrunn sem þar er unnið með.
Höfundur er bókmenntafræðingur.
MÖRG
ANDLIT
VIRGINIU
WOOLF
Lífshlaup, skáldskapur og skörp þjóðfélagsgagnrýni
Virginiu Woolf hefur lengi verið fræðimönnum, fem-
ínistum og bókmenntafólki áhugaefni, en með frum-
sýningu kvikmyndarinnar The Hours, þar sem hin
þekkta leikkona Nicole Kidman túlkar Woolf á eft-
irminnilegan hátt, virðist áhugi á höfundinum
hafa gengið í endurnýjun lífdaga.
E F T I R H E I Ð U J Ó H A N N S D Ó T T U R
Reuters
„Í ævisögunni segir Lee það nær ómögulegt að vita fyrir víst hvort Virginia varð í raun fyrir kyn-
ferðislegri misnotkun og að hvaða leyti andleg barátta hennar var aðstæðubundin, og að hvaða
leyti afleiðing illvígs geðsjúkdóms.“ Nicole Kidman í kvikmyndinni The Hours.