Lesbók Morgunblaðsins - 29.03.2003, Side 11

Lesbók Morgunblaðsins - 29.03.2003, Side 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 29. MARS 2003 11 Hver er mesti hraði sem mannvera getur náð án þess að deyja? SVAR: Svarið er í stuttu máli það að hraði drep- ur engan; það er svokölluð hröðun eða hraða- breyting sem getur hins vegar vissulega verið lífshættuleg. Þegar við sitjum í flugvél sem hefur náð full- um hraða og er komin í lárétt flug finnum við yf- irleitt ekkert fyrir hraða flugvélarinnar. Engu að síður er hann mörg hundruð kílómetrar á klukkustund. Hið sama gildir ef við sitjum í góðri járnbrautarlest. Þó að hún sé á fullri ferð getum við meira að segja gengið um gólf, leikið okkur með bolta og gert hvers konar kúnstir rétt eins og við værum í stofunni heima hjá okk- ur. Þetta á líka við um bíla ef vegurinn er nógu góður og misfellulaus, en það er hins vegar sjaldgæft, einkum hér á Íslandi. Ef við færum í boltaleik inni í flugvél í flug- taki eða lendingu mundi hreyfing vélarinnar hins vegar segja til sín í undarlegri hegðun bolt- ans. Ef við sæjum ekkert út úr vélinni og viss- um ekkert um flugáætlunina gætum við snúið dæminu við og ályktað af hreyfingu boltans og öðrum fyrirbærum inni í vélinni að nú væri hún að takast á loft eða að undirbúa lendingu. Þegar bíll fer snöggt af stað finnum við hraðabreytinguna eða hröðunina með því að við þrýstumst niður í sætunum og á sama hátt leita lausir hlutir í bílnum fram á við þegar hemlað er snögglega. Í árekstrum verður hröðunin enn miklu meiri; hraði bílsins breytist þá mjög veru- lega á örskömmum tíma. Það er þessi hröðun sem veldur tjóni á mönnum og öðrum lausum hlutum í árekstrinum. Þegar við sögðum í upp- hafi máls að hraði dræpi engan var það sem sé ekki meint sem hvatning til að aka hraðar því að hraðabreytingin við árekstur, til dæmis á ljósa- staur eða vegg, verður auðvitað þeim mun meiri sem hraðinn var meiri fyrir áreksturinn. Í öflugum og hraðskreiðum flugvélum, svo sem herþotum, verður hröðun oft veruleg í flug- taki og lendingu, til dæmis þegar slíkar þotur lenda á stuttum brautum á flugmóðurskipum. Þessi hröðun getur valdið verulegu álagi á lík- ama manna og enn meiri verða þessi áhrif í geimferðum, til dæmis þegar geimför takast á loft. Þetta er ein ástæðan til þess að geimfarar þurfa að vera afar vel á sig komnir líkamlega. En sem sagt: Mikill hraði hefur í sjálfu sér engin áhrif á menn en breytingar á hraða geta verið varasamar. Og að lokum má minna á að við erum á stöðugri hringferð um sól með hrað- anum 30 kílómetrar á sekúndu, sem er ógn- arhraði miðað við flest sem við eigum að venj- ast. Engu að síður finnum við ekkert fyrir þessum hraða og leiðum örsjaldan hugann að honum! Þorsteinn Vilhjálmsson, prófessor í vísindasögu og eðlisfræði við HÍ. Hver eru sérsvið afbrotafræðinnar? SVAR: Afbrotafræðin er ein grein félagsvísinda sem styðst við viðurkenndar aðferðir til rann- sókna á afbrotum og viðbrögðum samfélagsins við þeim. Afbrotafræðin er vísindaleg rannsókn á afbrotum, afbrotahegðan og viðurlögum. Mik- ilvægt einkenni afbrotafræðinnar er þverfag- legt eðli hennar. Afbrotafræðingar koma úr ýmsum fræðigreinum, svo sem félagsfræði, sál- fræði, lögfræði, hagfræði og jafnvel úr nátt- úruvísindum. Sem dæmi má taka Ítalann Ces- are Lombroso (1835–1909) sem nefndur hefur verið „faðir afbrotafræðinnar“ en hann var læknir að mennt og starfaði sem fangelsis- læknir. Viðfangsefni og sérsvið afbrotafræðinnar eru fjölbreytt. Mælingar á tíðni afbrota (e. criminal statistics) eru þekkt undirsvið þar sem meðal annars er stuðst við gögn lögreglu eða dóma til að meta tíðni afbrota eins og hún birtist í op- inberum gögnum. Skýringar á afbrotum (e. etiology of crime) leitast við að varpa ljósi á hvers vegna afbrot eru framin. Hinn þverfag- legi bakgrunnur afbrotafræðinnar kemur hér skýrt fram. Sem dæmi má taka að sál-, líf- og læknisfræðin gefa einkum gaum að ein- staklingsbundnum einkennum brotamanna, en félagsfræðin beinir sjónum einkum að fé- lagstengslum þeirra og félagslegu umhverfi. Hvað gera eigi við lögbrjóta og hvernig bæta eigi fyrir afbrot er annað sérsvið (e. penology). Í meginatriðum snúast rannsóknir á þessu sviði um áhrif refsinga og mat á ólíkum úrræðum til að sporna við afbrotum. Fórnarlambafræði (e. victimology) er vaxandi svið innan afbrotafræð- innar sem beinir sjónum að þolendum afbrota og einkennum þeirra. Fleiri undirsvið má nefna til viðbótar eins og rannsóknir á afbrotum ung- menna, hlutdeild kvenna í afbrotum og sam- anburðarafbrotafræði þar sem leitast er við að bera afbrot saman milli landa. Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félagsfræði við HÍ. Hvernig myndaðist Hvalfjörður og hversu langt er síðan? SVAR: Hvalfjörður, ásamt dölum og fjöllum í kring, er dæmigert sköpunarverk ísaldarjökla. Við upphaf ísaldar, fyrir um það bil tveimur milljónum ára, var landslag þar líkt því sem nú er í Ódáðahrauni, flatlent hraunaflæmi og sennilega alllangt til sjávar. Smám saman surfu skriðjöklar síðan Hvalfjörðinn og dalina í kring niður í blágrýtisstaflann. Aldursgreiningar sýna að vestasti hluti Esj- unnar er um þriggja milljóna ára gamall og Hvalfjarðarströndin „yngist“ til austurs í átt að gosbeltinu. Sé gert ráð fyrir að rekhraðinn sé einn cm á ári (sem jafngildir tíu km á milljón ár- um) hefur þetta svæði (Hvalfjörður) verið ná- lægt gosbeltinu og fjarri sjó við upphaf ísaldar, en rekið til vesturs og fjarlægst gosbeltið með- an á ísöldinni stóð. Þar sem rof jökla er mest fjærst ákomusvæðum þeirra má ætla að rofið og þar með landmótunin á þessu svæði af völd- um skriðjökla hafi aukist eftir því sem svæðið rak til vesturs og verið hraðast á síðasta kulda- skeiði ísaldar, sem stóð frá því fyrir um það bil 100.000 árum til 10.000 ára. Sigurður Steinþórsson, prófessor í jarðfræði við HÍ. HVER ER MESTI HRAÐI MANNVERU? Af hverju fær maður kvef, hversu hratt breiðast áhrif þyngdarafls út, hvað eru byrkningar og út á hvað gengur réttarlíffræði? Þessum spurningum og fjölmörgum öðrum hefur verið svarað að undanförnu á Vísindavefnum. VÍSINDI Í Hvalfirði. uðu máli gegnir um flest atvikin og sagnirnar sem herma frá þeim, að þau tengjast byggða- þróun í víðum skilningi: Húsbyggingu, út- færslu bæjar- og borgarmarka, vega- og gatna- gerð, byggingu verksmiðja og öðrum framkvæmdum sem þétta byggðina eða stækka hana. Þau atvik sem hæst hefur borið á síðustu árum staðfesta þetta mynstur. Grá- steinn við Vesturlandsveg var fluttur árið 1999 vegna breikkunar þessarar samgönguæðar milli höfuðborgarinnar og bróðurparts lands- byggðarinnar, en um þann flutning spunnust miklar deilur í fjölmiðlum þótt hann gengi síð- an áfallalaust fyrir sig þegar á reyndi. Þá lentu jarðýtur og trukkar í stökustu vandræðum vegna framkvæmda í Leirdal í Smárahvamms- landi Kópavogs árið 1996, þegar tún sem áður voru heyjuð voru lögð undir verslunarmið- stöðvar, íbúðarbyggð og framtíðarkirkjugarða höfuðborgarsvæðisins. Nú nýlega hefur síðan heyrst að einhverjir húsbyggjendur í nýju hverfunum milli Reykjavíkur og Mosfellsbæj- ar hafi lent í vandræðum vegna meintra álfhóla á þeim slóðum. Sagnir af landvörnum álfa og mótspyrnu þeirra gegn framkvæmdum bera þannig vitni um yfirnáttúrulega andstöðu gegn byggðaþró- un. Álfarnir verjast semsé ásókn nútímatækni, sem birtist í mynd jarðýtunnar og skurðgröf- unnar, steypunnar og malbiksins. Í frásagn- arhefðinni standa vættirnar í reynd vörð um dreifða byggð. Af þessu má draga þá ályktun að álfasagnir samtímans beri vott um heilmikla nostalgíu í íslensku samfélagi og jafnvel vott af sektarkennd vegna þeirra miklu og öru sam- félagsbreytinga sem hér áttu sér stað á 20. öld. Sagnahefðin gefur fólki tækifæri til að fást við áhyggjur af þessum toga með því að endur- móta þær í frásagnarformi og gera þær þannig áþreifanlegar. Hjálækningar og tattú Hjálækningar eru sígilt rannsóknarefni í þjóðfræði, en þær ganga líka m.a. undir nöfn- unum alþýðulækningar og óhefðbundnar lækn- ingar (þótt þær tilheyri í mörgum tilvikum aldagamalli hefð). Til þess að skilja uppgang hjálækninga síðustu tvo áratugi er óhjákvæmi- legt að líta til kenninga um hnattvæðingu ann- ars vegar og kenninga um póstmódern menn- ingarástand hins vegar. Það gefur augaleið að samþætting manna á indverskri hugleiðslu, japönsku reiki, kínverskum nálastungulækn- ingum og íslenskum fjallagrösum verður ekki skýrð án þess að horfa til hnattvæðingar á hversdagsmenningu. Sá háttur að velja saman tákn, siði og efni úr gerólíkum áttum og ólíku samhengi og blanda þessu saman eftir smekk er síðan dæmi um þá fjölhyggju og afstæðis- hyggju sem kenndar hafa verið við menningar- ástand eftirnútímans, póstmódern ástand. Tattú eru annað afbragðs dæmi um hnatt- vædda hversdagsmenningu. Þar nægir að nefna að þau eru upprunnin í Eyjaálfu, náðu út- breiðslu á Vesturlöndum með auknum sam- göngum á tuttugustu öldinni, en síðustu einn til tvo áratugina hefur síðan orðið sannkölluð tattúvakning. Tattúkúltúr samtímans má segja að sé leikur að táknum, þar sem tákn eru valin úr ýmsum ólíkum áttum og frá ólíkum heims- hornum og þar sem mismunandi merkingar- sviðum er blandað saman eftir geðþótta – eftir því hvað hverjum og einum þykir flott. Mörg tattú sem við sjáum hér á Íslandi eru ýmist með japönsku eða kínversku letri, önnur eru svokölluð „tribal“ mynstur (sem eiga að vera „frumbyggjaleg“), enn önnur sækja í þjóðlegan arf, s.s. galdrastafir og Þórshamrar. Úrvalið er svo að segja óþrjótandi. Þessi tattú öll eru svo sannarlega til merkis um breyttan tíðaranda, en það sést best í samanburði við tattú sem menn fengu fyrir tíma þessarar vakningar. Tattú fyrri tíma tilheyrðu fastskorðuðu tákn- kerfi. Þau voru stéttbundin og tilheyrðu fyrst og fremst sjómönnum, meðlimum í mótorhjóla- og öðrum gengjum, og loks föngum. Þau mátti lesa nánast eins og stafi á bók, að því gefnu að maður skildi táknkerfið. Hérlendis þýddi tattú lengi vel einfaldlega að maður hefði verið til sjós. Þær breytingar hafa átt sér stað á síðustu árum og áratugum að þetta táknkerfi hefur lið- ast í sundur. Eftir standa stök tákn, án sam- hengis eða fastrar merkingar. Þetta er svona eins og að hafa fyrir framan sig staka stafi, en að málið sem þeir tilheyrðu eitt sinn sé liðið undir lok. Í stað þess að vera kerfisbundin og þar með skiljanleg öllum sem á hana eru læsir er merking þeirra nú orðin einstaklingsbundin. Hér er á ferðinni eins konar einkavæðing merkingarheimsins. Þessi einkavæðing helst auðvitað í hendur við einstaklingshyggju sam- tímans. Áður fyrr vildu menn sverja sig í ákveðinn félagsskap með tattúum; þau voru stéttbundin og sýndu hvað sá tattúveraði átti sameiginlegt með öðrum. Nú vilja hins vegar allir fá tattú sem er „dálítið júník“, og einstak- lingar velja sér tattú og hanna þau með tilliti til þess að enginn sé með alveg eins mynd og þeir. Í stað fastrar merkingar kemur fagurfræði. Annað samhengi sem rétt getur verið að setja tattúvakninguna í er þjónustusamfélagið, en með því hugtaki er vitaskuld verið að vísa til þess hvernig atvinnuskipting landsmanna og reyndar Vesturlandabúa allra hefur gerbreyst á síðustu áratugum. Nú vinnur drjúgur meiri- hluti fólks við þjónustustörf, sérstaklega í borgum. Þar af situr stór hluti við skrifborð all- an daginn og líkami þess, að fingrunum und- anskildum, gerir ekki mikið meir en að þvælast fyrir við dagleg störf. Samfélagsbreytingarnar sem hér um ræðir hafa með öðrum orðum gert líkamann svo að segja óþarfan fyrir mikinn fjölda fólks í daglegu lífi þess. Tattúvakningin á síðustu tveimur áratugum gerir líkamann að myndfleti sínum og hefur þess vegna verið sett í samhengi við þessar breytingar. Líkamsræktarhreyfingin sem kom fram á mjög svipuðum tíma hefur sömuleiðis verið tengd breyttum atvinnuháttum, en hvort tveggja má túlka sem tilraunir til að endur- heimta líkamann á elleftu stundu, á þeirri stundu sem hann er að hverfa sem mikilvægur þáttur í daglegu lífi í þjónustusamfélaginu. Félagsvísindi hins smáa Allt eru þetta dæmi um hversdagslegar birt- ingarmyndir stórra hugmynda. Um þessar samfélagsbreytingar er yfirleitt rætt í miklu stærra samhengi og með mun óhlutbundnari hætti. Að mínu viti helgast erindi þjóðfræð- innar í þessa umræðu einmitt af því að þjóð- fræðingar eiga gott með að hlutbinda hana, að tengja kenningar um stór ferli og breytingar við hversdaginn. Þjóðfræðin snýst um hversdagsmenningu. Hversdagsmenning er mikilvæg vegna þess að hversdagurinn er vettvangur alls þess sem gerist; hvort heldur það er stórt eða smátt í sniðum gerist hvaðeina í daglegum samskipt- um manna. Í þjóðfræðaefninu sem tilheyrir þessum daglegu samskiptum tjá hópar fólks sig um það sem er að gerast, um það sem brennur á fólki. Þjóðfræðin má þannig segja að sé félagsvís- indi þess smáa. Þjóðfræðingar tengja smáatvik og tjáningarform hversdagsmenningarinnar við stóra samhengið. En þegar grannt er skoð- að samanstendur þetta stóra samhengi auðvit- að ekki af neinu öðru en mörgu smálegu. Það er bæði gömul saga og ný að margt smátt gerir eitt stórt. Morgunblaðið/Ásdís „Það gefur augaleið að samþætting manna á indverskri hugleiðslu, japönsku reiki, kínverskum nálastungulækningum og íslenskum fjallagrösum verður ekki skýrð án þess að horfa til hnatt- væðingar á hversdagsmenningu.“ Höfundur er þjóðfræðingur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.