Lesbók Morgunblaðsins - 12.04.2003, Side 16

Lesbók Morgunblaðsins - 12.04.2003, Side 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 12. APRÍL 2003 Í TILEFNI þess að Gerður Helgadóttir hefði orðið 75 ára í gær, 11. apríl, verður í dag opn- uð yfirlitssýning á verkum hennar í Gerð- arsafni, sem dregur heiti sitt af listamann- inum. Gerður lést úr krabbameini árið 1975, aðeins 47 ára að aldri, og skildi hún eftir sig umfangsmikið ævistarf sem varðveitt er í safninu. Gerður Helgadóttir var fjölhæfur mynd- listarmaður og á sýningunni nú gefur að líta um 150 verk úr hennar smiðju, höggmyndir úr margvíslegu efni, steinda glugga, mósaík- myndir og teikningar – jafnt sjálfstæð verk sem frumdrög að öðrum verkum – auk skart- gripa úr bronsi og steinum og þrívíðra frum- gerða að stórum útilistaverkum. „Á sýning- unni gefur að líta verk frá öllum tímabilum í listsköpun Gerðar. Verkunum er raðað upp í tímaröð og þannig vonumst við til að draga upp sem skýrasta mynd af hinni ótrúlegu fjölhæfni hennar,“ segir Guðbjörg Kristjáns- dóttir, forstöðumaður Gerðarsafns. Þetta er fimmta sýningin sem haldin er á verkum Gerðar frá því að safnið opnaði árið 1994 og segir Guðbjörg sýninguna nú vera þá stærstu sem haldin hefur verið. „Auk þrí- víðra verka, mósaíkverka og glugga, sýnum við vinnuteikningar hennar á þessari sýn- ingu, sem eru listaverk útaf fyrir sig vegna þess hve vel þær eru unnar. Hér má því líka sjá verk Gerðar sem teiknara, auk högg- myndanna, sem sýnir fleiri hliðar á henni sem listamanni.“ Gerður var þó fyrst og fremst þekkt fyrir skúlptúra sína, mósaíkmyndir og steinda glugga. Meðal verka hennar sem flestir kannast við er stóra mósaíkmyndin á Toll- stöðvarhúsinu við Tryggvagötu í Reykjavík, og steindir gluggar Skálholtskirkju. „Eitt af því sem einkennir verk Gerðar er að skúlp- túrinn er alltaf undirliggjandi í verkum hennar, þó að um tvívíð verk sé að ræða. Hún aðlagar þrívíðu listina tvívíðu verkunum sín- um og fellir bæði prisma og steina inn í gler- gluggan, sem verða þá að einskonar lág- myndum,“ segir Guðbjörg og bendir á prisma sem felldir hafa verið inn í einn af gler- gluggum hennar. Á sjötta áratugnum vakti Gerður mikla at- hygli er hún kvaddi sér hljóðs sem frum- kvöðull þríðvíðrar abstraktlistar hér á landi. „Hún tilheyrði auðvitað allt öðrum tíma en við lifum á nú. Þegar poppið kom inn í mynd- listina í kring um 1960, hafði hún megnustu óbeit á því og það varð aldrei hluti af list- sköpun hennar. Hávaðinn sem því fylgdi og það að draga hversdagslega hluti inn í verk- in, var gersamlega andstætt henni og list hennar. Ef ég væri spurð hvað einkenndi verk hennar fyrst og fremst, myndi ég segja að þau væru andlegs eðlis,“ segir Guðbjörg. Hún segist telja að Gerður sé ástsæll lista- maður hér á landi og fólki þyki mikið til verka hennar koma. „Ég held að það sem heilli fólk sé vandvirknin sem er augljós í verkum hennar, og þessi mikla fegurð sem í þeim býr. Hún hafði mjög fína tilfinningu fyr- ir rými og þrívídd og jafnframt fágaðan litas- mekk. Það er ekki hægt annað en fyllast að- dáun þegar verk hennar eru skoðuð, enda tel ég að Gerður hafi verið einn af okkar mik- ilhæfustu listamönnum á 20. öld.“ Sýningunni lýkur 17. júní. Morgunblaðið/Jim Smart Í MINNINGU MIKIL- HÆFS LISTAMANNS NÝR kammerhópur, blásaraoktettinn Hnúkaþeyr kvaddi sér hljóðs í Dómkirkj- unni á sunnudag og „blés til sumars“ eins og sagt var í tónleikaskrá. Það er óhætt að segja að Hnúkaþeyr hafi komið með sumar og sól inn í íslenskt tónlistarlíf, því tónleik- arnir voru ákaflega skemmtilegir og vel heppnaðir. Verkefnavalið var hefðbundið fyrir þess háttar flokk, Oktettar eftir meistara mið- evrópsku klassíkurinnar, Hummel og Beethoven fleygaðir með oktett enska tón- skáldsins Gordons Jacobs, sem var uppi á síðustu öld. Það er einföldun að segja að tónlist af þessu tagi – í divertimento stíl, sé eingöngu skemmtimúsík, þótt vissulega sé hún skemmtileg. Öll bjuggu verkin yfir einhverju dýpra og meira en einskærri léttúð. Oktett Hummels – eðalklassík, var heiðríkur og tær og alveg feiknar vel spilaður. Strax í upp- hafsmarsinum var ljóst að spilamennskan hér var engin meðalmennska. Hvert and- artak mótað af músíkölskum þokka, og snerpa í hryn og dýnamík ríkuleg og inn- blásin andagift. Miðþátturinn, mjúkur og lýrískur í moll, var fallega mótaður í and- stæðu við ytri þættina. Einkenni á tónlist Gordons Jacobs er hans sérstaka tónmál. Hann fer ekki langt útfyrir hefðbundið tónmiðjukerfi dúrs og moll, en „skekkir“ það þó svo um munar með kadens- um sem rata ótvæntar hljómaslóðir áður en heimahöfn er náð. Tónlist hans er gleðirík, full af húmor, og tilfinning hans fyrir hverju og einu hljóðfæri hópsins er einstök. Hér reyndi sannarlega á hvern og einn. Hraðir tónstigar í fyrsta þætti voru fantavel spil- aðir, hornin voru frábær í þrælerfiðu hlut- verki sínu. Þau fengu líka að njóta sín vel í miðþættinum, þar sem Anna Sigurbjörnsótt- ir varpaði grunnstefinu mjög fallega fram, og Eydís Franzdóttir henti það á lofti, þar til hin hljóðfærin bættust smám saman í hópinn. Þetta var listilega gert. Beethoven er óneitanlega mestur og dýpstur þessara tónskálda, og Oktett hans yndisleg tónsmíð, þó ekki væri nema fyrir hæga þáttinn, sem lyftir hug í hæðir í fegurð sinni. Í þessu verki reyndi vel á hópinn bæði í rytmískri samstillingu og lýrískum samleik. Allir litlu núansarnir sem skipta svo miklu máli voru fallega útfærðir og leikurinn litrík- ur og góður. Það verður að játast að við það að heyra þennan nýja blásaraflokk datt gagnrýnandi væmnislaust niður í vangavelt- ur um það hvað við eigum gott tónlistarfólk. Það er bara blákaldur veruleikinn. Þeir sem hér léku eru allt fólk sem lætur alla jafna mikið til sín taka í tónlistarlífinu, virðist vera í margföldu starfi í spilamennskunni, og leikur ýmist með Sinfóníuhljómsveitinni eða fjölda annarra kammerhópa, og kemur oft fram á tónleikum. Það er enginn einn vinnuveitandi sem það starfar hjá, og maður spyr sig hvort þessu fólki sé nokkurn tíma þakkað fyrir þann óhemju dugnað og elju sem það sýnir. Launin eru varla góð í þess- um bransa en einhvers konar umbun hlýtur að felast í ánægju tónleikagesta. Það sprett- ur enginn kammerhópur svo fullskapaður fram á sjónarsviðið með einn, tvo eða þrjá góða tónlistarmenn innanborðs. Það sem skipti máli með Hnúkaþey er að hér eru allir góðir, og hver einasti einstaklingur skiptir máli fyrir heildina og það hversu vel tókst til. Tónleikarnir voru ekki fullkomnir, en ein eða tvær falskar nótur og eitt eða tvö slys í hraðferð um brotna hljóma Beethovens verða auðveldlega fyrirgefin, fyrir þann sterka heildarsvip og músíkalska leik sem Hnúkaþeyr lagði í frumraun sína. Músíkalsk- ur blástur Hnúka- þeys TÓNLIST Dómkirkjan Blásaraoktettinn Hnúkaþeyr lék verk eftir Johann Nepomuk Hummel, Gordon Jacob og Ludwig van Beethoven. Oktettinn skipa þau Peter Tompkins og Eydís Franzdóttir á óbó, Ármann Helgason og Rúnar Óskarsson á klarinettur, Kristín Mjöll Jakobsdóttir og Darri Mikaelsson á fagott og Anna Sigurbjörns- dóttir og Ella Vala Ármannsdóttir á horn. Sunnudag 6. apríl kl. 17.00. KAMMERTÓNLEIKAR Bergþóra Jónsdóttir HUGSANLEGA mætti fremja svona „anti- pasti“ tónleika, er gætu verið lystaukandi með for- eða eftirrétti, eða viðeigandi hádegissnarli, ef til væri nægilega stórt kaffihús hér í bæ. Slík- ir tónleikar sem haldnir eru í Íslensku óperunni undir nafninu „antipasti“, eru hins vegar eins konar megrunartónleikar og til þess jafnvel fallnir að halda fólki frá mat, sem er hið besta mál. Smáréttartónleikarnir sem haldnir voru í Ís- lensku óperunni sl. þriðjudag hófust með því að Sesselja Kristjánsdóttir söng þrjár „antikarí- ur“, Se tu m’ami, eftir Pergolesi, Se Florindo é fedele, eftir Alessandro Scarlatti og Intorno all’idol mio eftir einn af fyrstu óperutónskáld- unum sögunnar Pietro Antonio Cesti (1623– 1669), Hann var prestlærður en lærði tónsmíði hjá Carissimi og var tenorsöngvari í capellu páfa um skeið. Hann var einn af upphafsmönn- um í „belcanto“ söng, ásamt Francesco Cavalli en þeir voru fyrstir til forma hina eiginlegu aríu, auk þess sem Cesti var frumkvöðull í notkun stórrar hljómsveitar, sem vakti mikla athygli og skipar t.d. stór-óperunni Il Pomo d’oro, sem uppfærð var í Vínarborg 1668, sérstaka heið- ursstöðu í sögu óperunnar. Sesselja, sem hefur sérlega fallega rödd, söng þessar ljúfsáru antik- aríur mjög fallega og á músíklaskan máta, við þýðan og nákvæman undirleik Pollards Jóhann Friðgeir Valdimarsson söng tvo söngva, eftir Paolo Tosti, þann fyrri, Mare- chiare, með töluverðum tilþrifum og þann seinni, Ideale, af tilheyrandi fínleika. Sesselja söng svo þrjár aríur eftir Donizetti, La lont- ananza, Amor e morte og Me voglio fa’na casa. Þar sýndi hún hversu létt henni er að útfæra flúrleik Donizettis á einstaklega fallegan máta. Jóhann Friðgeir setti endahnútinn á þessa há- degistónleika með tveimur knalllögum, Non ti scordar di me, eftir Curtis og hinu sígræna O sole mio, eftir Capua, sem hann söng með mikl- um „bravúr“ og lauk svo tónleikunum með Con te partiro, dægurlagi, sem hefur náð töluverð- um vinsældum, sérstaklega fyrir sérkennilega lokastrófu. Lagið er ekta dægurlag að formi til, forspjall og viðlag, sem Jóhann skilaði ágætlega en ekki á sannfærandi máta. Þetta voru góðir tónleikar, þar sem saman fór fallegur og þýður söngur Sesselju í samræmi við þá söngva sem hún valdi sér til flutnings og bravúr tilþrif Jóhanns Friðgeirs, þar sem glæsi- leg rödd hans fær hvað best notið sín. Clive Poll- ard átti sinn þátt í að gera þessar andstæður sannfærandi, með hófstilltum leik sínum í við- fangsefnum Sesselju og svo með því að „gefa í“ í viðfangsefnum Jóhanns Friðgeirs, og má segja að tónleikarnir hafi því verið sambland af bragð- mjúkum og bragðsterkum en bragðgóðum smá- réttum. Jón Ásgeirsson TÓNLIST Íslenska óperan Sesselja Kristjánsdóttir, Jóhann Friðgeir Valdimarsson og Clive Pollard fluttu músíkalska „smárétti“ eftir ítölsk tónskáld, frá upphafi óperunnar til dagsins í dag. Þriðjudagurinn 8. apríl. 2003. SÖNGTÓNLEIKAR Í HÁDEGINU Bragðmjúkir og -sterkir smáréttir Sesselja Kristjánsdóttir Jóhann Friðgeir Valdimarsson

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.