Lesbók Morgunblaðsins - 24.05.2003, Side 4

Lesbók Morgunblaðsins - 24.05.2003, Side 4
4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 24. MAÍ 2003 N Ý húsakynni Nýlista- safnsins við Vatnsstíg bergmála af hamars- höggum, skellum og köll- um. Mikið gengur á því verið er að setja upp sýn- inguna Cremaster Plate, hugarsmíð Matthews Barneys, „listamanns augnabliksins“, manns sem aðalgagnrýnandi The New York Times segir mikilvægasta bandaríska listamann sinn- ar kynslóðar. Á efri hæð safnsins er búið að rífa út alla ofna, þar er verið að smíða eitthvað í öllum hornum og verið er að rúlla út bláu gervigras- teppi, en það kemur víða fyrir í verkum Barn- eys. Verkið sækist vel enda margar hendur á lofti. Barney er heldur ekki óvanur því að stýra stórum hópi; við uppsetningu yfirlitssýningar- innar í Guggenheim unnu um hundrað manns og svo hafa tugir unnið að kvikmyndunum fimm sem mynda Cremaster-hringinn. „Á morgun förum við að hella vaselíninu. Það er mikið af því,“ segir Barney og brosir þegar ég hef á orði að verkið gangi vel. Og næst þegar ég lít upp eru komnar upp á vegg fimm stórar ljósmyndir sem sýna Barney í afar ólíkum gervum karaktera í verkinu. Nýtt verk fyrir Nýlistasafnið Þetta viðamikla verk Matthews Barneys sækir heitið, „cremaster“, í samnefndan vöðva í kviðarholinu sem dregur upp eða slakar niður eistum karlmanna, eftir ytri áreitum eða hita- stigi. Útgangspunktur verksins er einnig innan líkama mannsins, eða hið óvissa stig eftir nokkrar vikur á fósturstigi, þar sem enn er ekki víst í hvaða átt kynfærin þróast; hvort þau tog- ist upp og myndi eggjastokka eða sígi niður og verði að eistum. Í kringum þessa hugsun hefur Barney skapað einstakan myndheim, sem er blanda af mörgum ólíkum þáttum. Í fyrsta lagi gerði hann fimm mislangar kvikmyndir, sem eru samtals um sjö klukkustunda langar. Hann gerði þær í „rangri“ röð, ef svo má segja, byrj- aði á Cremaster 4, þá komu 1, 5, 2, og loks 3 sem er langlengst, eða um þrjár klukkustundir. Kvikmyndirnar eru frásögn sem hann vinnur fjölbreytilega skúlptúra inn í, hann sýnir líka ljósmyndir af karakterum sagnanna, teikning- ar sem tengjast frásögninni og gefur út bækur um verkið. Sýning Barneys er rós í hnappagat Nýlista- safnsins, enda listamaðurinn einn sá vinsælasti í listheiminum í dag. En hann tengist Íslandi traustum böndum, er sambýlismaður og barns- faðir Bjarkar Guðmundsdóttur, og segir að sig hafi langað til að gera eins konar ágrip eða yf- irlit yfir Cremaster-hringinn hér á landi. „Þetta ár hefur farið í að ferðast um og setja upp þessa yfirlitssýningu“ – á undan Guggen- heim í New York, var hún sett upp í Köln og í París – „og mér þótti því freistandi að gera stakt verk hér í Nýlistasafninu. Verk sem um leið er einskonar yfirlit yfir heildina. „Eins og Cremaster-hringurinn er byggður upp, með hlutunum fimm, þá hefst hann í Boise í Idaho, þar sem ég ólst upp, á leikvanginum þar sem ég lék ruðning sem unglingur. Þaðan færist hann austur á bóginn, um Klettafjöllin, um New York þar sem ég bý nú, og þaðan áfram til eyjarinnar Manar og Búdapest. Og þar sem hringurinn fer frá Norður-Ameríku, þá skiptir hann í raun um svið; fer frá sjálfs- ævisögusviði til goðsagnalegs. Sjálfsævisögu- legi þráðurinn liggur áfram gegnum hringinn, en þessir goðsögulegu þættir taka eins og að þykkna kringum hann. Og eftir að hafa eytt töluverðum tíma hér á Íslandi og kynnst land- inu, hugsaði ég um gjána og landsigið á Þing- völlum. Þar eru flekaskilin, þar skiljast Norð- ur-Ameríka og Evrópa að; það mætti túlka eins og þröskuld í Cremaster-hringnum. Þetta verk sem ég er að gera hér hef ég ekki gert áður. Ég tek ákveðið grunntákn sem ég nota í Cremaster, skipti því í tvennt – eins- konar flekaskil – og við steypum hvorn hluta fyrir sig í sitthvorum hluta rýmisins. Verkin eru mótuð í vaselín sem er blandað með svolitlu vaxi. Þegar mótin verða fjarlægð ætti formið að gefa sig á einhverjum stöðum; verkin ættu þá að renna út. Ég hef einu sinni áður gert verk á þennan hátt, í London, og það endaði með því að skríða töluvert út og gefa ekki ólíka tilfinn- ingu og skriðjökull. Í miðju rýmisins verður standur með flötum skjám þar sem allar fimm myndirnar verða sýndar. [Myndirnar verða einnig sýndar í Regnboganum] Og allar hljóðrásirnar verða á samtímis. Það verður vissulega einskonar kakófónía á stundum, en þótt hljóðið verði stundum kaótískt, þá koma líka augnablik þar sem samruninn verður furðulega fínn. Þá mæt- ast hljómar frá ólíkum verkum og skapa næst- um kórus. Þar koma saman hljóð sem ættu ekki að eiga saman en eiga það samt, eins og óp- eruröddin, sekkjapípuleikararnir og kántrís- öngvarinn; að heyra þetta þrennt á sama tíma finnst mér afar áhugavert. Þegar frásagnar- hlutarnir fimm eru þannig leiknir saman færir maður saman hluti sem ættu ekki að hæfa hver öðrum en gera það samt. Á sýningunni er ég líka með bláa gervigrasið sem ég hef talsvert notað, en það kemur frá leikvanginum sem ég lék á í Boise, og svo tvö ljósmyndaverk sem tengjast öllum fimm köfl- um verksins. Þau sitja yfir skúlptúrunum.“ Kraftmikið samfélag listamanna Hvernig datt honum í hug að setja upp þetta sérstaka yfirlit yfir Cremaster verkið hér í Ný- listasafninu. „Þetta kom út úr samræðum við nokkra listamenn hér,“ segir Barney. „Það væri allra best ef maður gæti bara ferðast um heiminn og haft samskipti hvar sem væri á sínu eigin tungumáli. Það eru forréttindi að geta gert það og þetta er sú besta leið sem ég hef til að hafa samskipti við fólkið hér. Og geta um leið tekið þátt í samræðu við aðra sem eru að gera svip- aða hluti. Mér finnst vera hér mikilvægt og kraftmikið samfélag listamanna sem áhugavert er að eiga samræðu við.“ Þrátt fyrir margbreytileika miðlanna sem Barney vinnur í segist hann vera skúlptúristi. En skyldi kvikmyndaformið vera leið fyrir hann til að losna undan hefðbundnu samhengi listasafna og sýningarsala? „Það er freistandi að gera eitthvað sem nær sambandi við fólk. Og að sjá verkin fara yfir einhver mörk, til stærri hóps áhorfanda, eins og þeirra sem sækja kvikmyndir, það er vissu- lega spennandi. En það var aldrei markmiðið. Alveg frá upphafi ætlaði ég að skapa ákveðið frásagnarkerfi, kerfi sem ég gæti gert skúlp- túra út frá. Þetta byrjaði því og endaði sem skúlptúrverkefni og þetta frásagnarkerfi, þess- ir fimm textar – fimm kvikmyndir – urðu sífellt vandvirknislegri og sjónrænni. Ég hætti á að sýnast fullur lotningar gagnvart skúlptúrunum þegar ég segi að kvikmyndirnar séu eiginlega aukaafurð; þær mega næstum missa sín. Þetta frásagnarkerfi býður upp á næringu sem þessi frásagnakenndi skúlptúr sprettur af. Verkin sem ég gerði áður en ég fór í Cremaster-verk- efnið virkuðu á annan hátt, þá byrjaði ég að gera hluti og sagan spratt svo út frá þeim. Cre- master sneri því við, byrjaði með sögu og út frá henni kom heil fjölskylda af hlutum.“ Barney sló í gegn strax og hann kom fram á sjónarsviðið árið 1991 með einkasýningar í virt- um sýningarsölum í Bandaríkjunum. Þá var hann 24 ára gamall og hafði útskrifast frá myndlistardeild Yale-háskóla nokkru áður. Barney er framúrskarandi íþróttamaður og hafði stefnt á feril sem atvinnumaður í ruðn- ingi. Í listinni nýtti hann sér strax styrk sinn og fimi á sérstakan hátt. Í einu af fyrstu verkum sínum, sem voru sýnd sem vídeó, sést hann klifra um loft og veggi salar, nakinn fyrir utan reipi og klifurbúnað, og síga svo niður að vasel- ínskúlptúr, en vaselínið bar hann á op líkam- ans. Í öðru verki kleif hann um loft sýning- arsalar og seig síðan niður og hvarf inn í stóran ísskáp sem innihélt furðulega skúlptúra. Þessi verk hans vöktu mikla athygli, hann vann til virtra verðlauna, og árið 1994 hóf hann gerð Cremaster-hringsins. Í eldri verkunum framkvæmdi hann atburði í kringum hluti en það breyttist í Cremaster, þá urðu myndirnar líka vandaðri og afar rík áhersla lögð á hvers kyns smáatriði, eins og í gervum og öllu útliti. En hvers vegna skyldi frásögnin vera svo mikilvæg fyrir Barney? „Verkin í Cremaster-hringnum urðu sífellt háðari frásögn og það fólst sífellt meira frelsi í því fyrir mig. Þetta varð að leið sem skúlptúr- gerðin gat þróast eftir. Vinnan fylgdi nýjum reglum. Skúlptúrinn hætti að fara eftir hefð- bundnum leiðum þar sem unnið er með þyngd- araflið og sannleikann.“ – Var hefðin heftandi? „Mér fannst alltaf áhugavert að hafa þetta kerfi af reglum, ég er þónokkuð háður þeim, en síðan hafa þessar reglur vikið fyrir reglum frá- sagnarinnar. Sagan tók að þróast og hlutirnir þurftu að svara þeim reglum sem sagan krafð- ist. Ég held það hafi verið frelsandi.“ Margir áhorfendur tala um frelsun þegar þeir upplifa þennan nýstárlega myndheim – en aðrir skilja hvorki upp né niður. Barney hefur Gagnrýnendur hafa sagt hann mikilvægasta bandaríska listamann sinnar kynslóðar. Matthew Barney hefur nýlokið við stórvirki sem tók hann átta ár að gera; Cremaster-hringinn, sem þessa dagana er efni yfirlits- sýningar í Guggenheim-safninu í New York. Þar bíður fólk í löngum röðum eftir aðgöngumiðum, en lista- manninn sjálfan er þar hvergi að finna, hann er upptekinn við að setja upp sýningu í Nýlistasafninu við Vatns- stíg. Þar sýnir hann Cremaster-kvikmyndirnar fimm, skúlptúra og önnur verk sem tengjast hringnum. EINAR FALUR INGÓLFSSON ræddi við Barney og reyndi að setja sig inn í frásagnarheim sem er engum líkur. Morgunblaðið/Einar Falur „Mér þótti freistandi að gera stakt verk hér í Nýlistasafninu, verk sem er einskonar yfirlit yfir heildina,“ segir Matthew Barney. LÍKAMINN ER MITT TÆKI

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.