Lesbók Morgunblaðsins - 24.05.2003, Side 16

Lesbók Morgunblaðsins - 24.05.2003, Side 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 24. MAÍ 2003 J OHN Culver hefur gegnt embætti sendiherra Breta á Íslandi frá jan- úar 2001. Starf hans í utanríkisþjón- ustunni hefur borið hann víða, en áður en hann kom hingað hafði hann dvalið í ýmsum löndum Suður-Am- eríku, þar á meðal Bólivíu og Nic- aragua; Rússlandi, Bangladesh og Ítalíu. Það hefur vakið eftirtekt hve ötull hann hefur verið á sviði menningarmála og unnið af kappi að auknum samskiptum þjóðanna á þeim vettvangi og liðkað fyrir komu breskra lista- manna hingað til lands. Það þykir sennilega sjálfgefið að sendiherrar leggi áherslu á aukin viðskipti þjóða og það gerir John Culver að sjálfsögðu einnig. En hvers vegna hefur hann kosið að leggja þessa áherslu á menninguna? „Ætli það sé ekki vegna þess að við teljum það góða stefnu að sinna menningarsamskipt- um vel. Það er þó mikilvægt að sinna viðskipt- um af öllu tagi og það gerum við til að tryggja sem best samskipti á öllum sviðum. Við leggj- um til að mynda mikla vinnu í að liðka fyrir við- skiptum og nú á tímum er líka mikilvægt að þjóðirnar skilji hvor aðra þegar að varnar- og öryggismálum og stjórnmálum kemur. Það eru hlutir sem taka mikinn tíma af starfi sendi- herrans. En þegar horft er til þess hvers konar tengsl Bretar og Íslendingar hafa og hlutverks þjóðanna beggja í stærra samhengi má segja, að við höfum komið okkur upp margbrotnari og þróaðri samskiptum en var áður fyrr. Á því stigi er mikilvægt að samskipti í menningar- málum séu góð, vegna þess að þegar allt kem- ur til alls skilja þessar þjóðir hvor aðra vel. Bretlandseyjar eru enn stærsti markaðurinn fyrir íslenskar vörur, fjöldi Íslendinga stundar nám á Bretlandseyjum, um 250 Íslendingar eru í breskum háskólum á hverjum tíma og fyrir mörg ykkar eru Bretlandseyjar fyrsti áfangastaðurinn á leið út í heim. Tengsl okkar byggjast því engan veginn á fáfræði, heldur á þekkingu og skilningi og þegar svo er háttað og þessi skilningur er til staðar er tilhneigingin sú að samskipti þjóða þróist upp á hærra plan ef svo má segja. Þannig sé ég þetta í það minnsta og tel það hlutverk okkar að efla sam- skiptin á fleiri sviðum en þeim er lúta að grundvallarsamskiptum. Þar er menningin og þar er hægt að auka samskipti þjóðanna enn frekar og þar höfum við tækifæri til að höfða beint til sálar þjóðarinnar og um það snýst allt menningarstarf.“ Ávinningurinn snýst um skilning John Culver segir að þjóðirnar græði margt á menningarsamskiptum og að þau snúist ekki eingöngu um að vekja athygli þjóðanna hvorr- ar á annarri. Hann segir að ávinninginn af menningarsamskiptum megi greina í þrennt. „Í fyrsta lagi nefni ég ávinninginn fyrir okkur hér á Íslandi. Hér virðist listsköpun og hvers konar menningarstarf svo óháð stöðu fólks og mikill almennur áhugi á menningu og listum. Listin talar til okkar á svo margan veg, – hún getur angrað okkur, menntað okkur og gefur okkur alls konar hugmyndir og örvar okkur. Hér á landi býr listin við almenna velvild. Hér er hefðin sterk bæði í tónlist og bókmenntum. Ég hef misst töluna á þeim fjölda Íslendinga sem ég hef hitt og ýmist syngja í kór, yrkja ljóð, eða taka þátt í listum á annan hátt. Fyrir okkur er mikilvægt að horfa til þeirrar menn- ingar sem við ætlum að reyna að höfða til með okkar menningu og það er augljóst að jarðveg- urinn hér er góður. Ég lít svo á að grundvall- armarkmið með diplómasíu tveggja þjóða sé að skapa skilning og skilja og að meta hvora aðra, meðal annars til að koma í veg fyrir skelfileg vandamál eins og við sjáum víða milli þjóða í heiminum í dag. Það er reyndar hinn flöturinn á starfinu að takast á við slík vanda- mál; en grundvallarþátturinn er að skapa þennan skilning og ég held að það sé óumdeilt, að aðferðin til að skapa hann í þróuðu sam- bandi eins og okkar sé að fást við þá hluti sem höfða til þjóðarsálarinnar. Ég vona að við höf- um sýnt því skilning hve listir og menning eru mikilvægir þættir í lífi Íslendinga.“ Aðra hlið ávinnings af menningarsamskipt- um hefur John Culver þegar nefnt að hluta, en það er að viðhalda skilningi milli þjóðanna. Hann segir Íslendinga búa að arfleifð sem þeir séu stoltir af og það sama eigi við um Breta. Heimurinn horfi til Bretlandseyja til að leita þess besta á mörgum sviðum. Þar nefir Culver fyrst dægurtónlistina sem hljómar víðar en dægurtónlist annarra þjóða. Það nýjasta í myndlist má finna í borgum á borð við London og Glasgow. Leikhúshefð er sterk, einnig bresk sjónvarpsmenning sem þykir sú besta þótt víða væri leitað. Hann nefnir fleiri svið, svo sem hönnun, kvikmyndagerð, ýmiss konar tækni, menningarstjórnun, safnarekstur og fleira. „Við höfum af miklu að miðla og viljum gera það og teljum það viðhalda skilningi og geta orðið ávinning fyrir ykkur.“ Þriðja atriðið sem John Culver leggur áherslu á tengist hinum tveimur. Hann segir Breta sem vilja kynna sína menningu hér knýja á dyr sem þegar séu opnar. „Mér finnst það alltaf stórmerkilegt þegar ég opna menn- ingarblaðið ykkar á laugardögum, að sjá hve mikla athygli menning fær, – bæði þjóðlegur menningararfur en líka það sem nýjast er í list- um og menningu erlendis. Þetta lýsir því sem ég nefndi áðan, hve mikinn áhuga þið hafið á listum og menningu. Þetta er auðvitað ein af höfuðástæðunum fyrir því að við Bretar viljum tengjast ykkur á þessum vettvangi.“ John Culver segir að menningarsamskipti þjóðanna verði að ganga í báðar áttir, rétt eins og viðskiptin, sem stöðugt er unnið að að efla. „Því betur sem okkur gengur að hvetja Íslend- inga til að selja vörur sínar á Bretlandseyjum því líklegri erum við að geta selt þeim eitthvað á móti. Þetta er nokkuð einfölduð mynd en þannig gengur þetta fyrir sig. Það er þó ekki beinlínis í mínum verkahring að kynna ís- lenska menningu í Bretlandi, til þess eru ykkar sendimenn þar. Þó verð ég jafnan glaður að vita af því þegar íslensk menning nemur land þar. Það á móti hjálpar mér óneitanlega í starfi mínu hér, til dæmis er auðveldara að sannfæra fólk um að koma hingað ef það hefur fengið innsýn í þann menningarheim sem hér er. Pen- ingar eru svo auðvitað eitthvað sem við þurfum stöðugt að hugsa um. Þó reyndist auðvelt að fá mann eins og Graham Swift til að koma til Ís- lands fyrir litla peninga. Hann sagði: Auðvitað fer ég til Íslands. Ef ég hefði verið að reyna að fá hann til að fara til Ítalíu, Frakklands eða staða sem hann hefur oft komið til hefði þetta sennilega ekki verið svona auðvet. Það er ein- hver neisti hér sem heillar fólk og ég held að hann hafi mikið með það að gera hvaða orð fer af íslenskri menningu, hvort sem það er svo- kölluð dægurmenning eða hámenning. Mitt starf felst líka í því að fylgjast með því hvað ís- lenskir kollegar mínir eru að gera úti. Ein ástæða heimsóknar breska menntamálaráð- herrans Tessu Blackstone hingað í maí í fyrra var að koma á Listahátíð í Reykjavík. Henni þótti mikið til þess koma sem ég nefndi áðan, hve almenn þátttaka Íslendinga er í menning- arlífinu, burtséð frá stétt, stöðu og uppruna. Þetta endurspeglast líka í menningu ykkar þegar þið berið hana á borð erlendis, hún er lit- rík og fjölbreytt.“ Vel heppnuð bókmenntahátíð John Culver kveðst stoltur af þeim verk- efnum sem sendiráðið hefur tekið þátt í að styðja á sviði menningarsamskipta þjóðanna og víst er að sá stórhugur sem þar hefur ríkt hefur verið eftirtektarverður. Hann tekur þó fram að yfirleitt sé sendiráðið ekki eitt um þessi verkefni, frumkvæði komi oft frá öðrum og að mörg verkefnanna séu unnin í samvinnu við aðra og auðvitað eigi ýmiss konar samskipti sér stað án hlutdeildar sendiráðsins, og það segir hann gott. En stundum getur stuðningur sendiráðsins skipt sköpum, ekki síst þegar um stærri verkefni er að ræða. Í fyrrahaust var haldin hér á landi bresk-íslensk bókmenntahá- tíð, þar sem fjórir úr hópi þekktustu rithöf- unda Breta sóttu okkur heim og töluðu um verk sín. Þetta voru þau Bernadine Evaristo, Ian McEwan, Michele Roberts og Graham Swift. Frumkvæði að komu rithöfundanna kom frá íslenskum bókmenntafræðingi sem hafði stundað nám í Bretlandi, en sendiráðið greiddi götu þeirra og tók þátt í undirbúningi hátíðarinnar. „Þetta var sérstaklega ánægju- legur viðburður, ekki síst vegna þess að þetta eru afburða rithöfundar sem njóta mikillar við- urkenningar og vinsælda. Ég man að ég sagði við þau öll áður en þau komu, að þau myndu skemmta sér vel, hér væri vingjarnlegt fólk og að þau myndu fá góðan mat. Ég sagði líka að þegar að pallborðsumræðum á hátíðinni kæmi og spurningum gæti þetta orðið svolítið erfitt. Íslendingar væru svolítið til baka og það gæti orðið erfitt að halda umræðum gangandi. Ian McEwan sem hefur farið víða að tala um skáld- skap sinn sagði við mig eftirá að eitthvað hlyti að hafa gerst, því þeir áheyrendur sem tóku þátt í umræðum eða báru upp spurningar hefðu verið þeir ræðnustu og áhugasömustu sem hann hefði fyrirhitt á ferðum sínum. Hon- um þótti ekki ólíklegt að flest af þessu fólki hlytu að vera rithöfundar eða ættu eftir að verða það. Það kom því á daginn að það sem ég hafði sagt við þau áður var algjör della. Þetta var vissulega gaman og skapaði umræður sem teygðu sig inn á síður Morgunblaðsins og víð- ar, meðal annars umræða um það hvernig rit- höfundar í dag geta stuðlað að betra samfélagi. Ég vona að heimsókn þessa fólks hafi virkað hvetjandi og að þær umræður sem spunnust á hátíðinni haldi áfram í báðum löndunum.“ Margir fleiri listviðburðir hafa orðið að veru- leika fyrir tilstuðlan sendiráðsins. Þegar Anna Bretaprinsessa heimsótti landið í fyrra fékk John Culver landa sinn, Óliver Kentish tón- skáld, til að semja tónverk sem leikið yrði fyrir hana af þeim bresku tónlistarmönnum sem hér búa. Óliver Kentish hefur búið hér um árabil og verkið hans var frumflutt þegar við komu Önnu prinsessu og Ólafs Ragnars Grímssonar á sýningu í Listasafni Íslands. Í tilefni af krýn- ingarafmæli Elísabetar Bretadrottingar pant- aði sendiráðið verk af Hannesi Lárussyni myndlistarmanni og skyldi það gert úr enskri eik. John Culver kveðst sérstaklega ánægður með það, að hafa getað stuðlað að því að verk Ólivers og Lárusar urðu til. Enn er ótaldur sá hópur annarra listamanna úr ýmsum greinum sem komið hafa hingað fyr- ir atbeina sendiráðsins og haldið hér tónleika og sýningar. Forstöðumenn breskra menning- arstofnana hafa líka átt þess kost að heim- sækja íslenska kollega sína með stuðningi sendiráðsins. John Culver segist vonast til og reyndar trúa því að menningarsamskipti af þessum toga geti haft góð áhrif til langs tíma litið og að vonandi verði hægt að hafa framhald á ýmsu því sem þegar hefur verið gert. „Þetta er auð- vitað alltaf spurning um peninga og hvernig okkur tekst að fjármagna þessi verkefni. Stak- ir menningarviðburðir geta lifað í minni okkar lengi og auðgað líf okkar til lengri tíma. Það eru líka ýmis verkefni sem gætu með beinni hætti haft áhrif til lengri tíma. Við viljum til dæmis gjarnan aðstoða við samskipti á sviði menningarstjórnunar og stefnumótunar á sviði lista. Mér finnst mikilvægt að fólk á því sviði fái tækifæri til að bera saman bækur sín- ar og nema það besta hvert af öðru. Þar gæti ýmislegt gerst sem hefur lengri tíma áhrif. Við viljum líka styrkja efnilegt fólk til náms og það gerum við; til dæmis tónlistarnemendur sem vilja stunda nám í breskum skólum. Slíkt skap- ar líka ávinning til lengri tíma. Námsstyrkirnir sem hér um ræðir, Chevening Scholarship, eru veittir árlega og ég reikna með því að í ár verði tveir listnemar, ung söngkona og ungur mynd- listarmaður, styrktir til náms ásamt nemum úr öðrum greinum. Í mínum augum er mikilvægasti þáttur þessa starfs að skapa tækifærin. Við þurfum öll á þeim að halda. Segjum sem svo að við kostum sýningu hér sem 3.000 manns sækja. Ef hún hefur þau áhrif á tíu manns úr þessum hópi, að líf þeirra og hugsun breytist á ein- hvern hátt til góðs er það að minni hyggju gott. Þá skynjar maður að allt er þetta mikils virði.“ Sýning á verkum Erics Ravilious John Culver hefur nokkrum sinnum nefnt peninga og að margt ráðist af því hvernig til tekst með fjármögnun einstakra verkefna. Það vekur eftirtekt að breska sendiráðið nýtur ekki stuðnings British Council sem er opinber mennta- og menningarstofnun sem ætlað er að stuðla að menningartengslum Breta og ann- arra þjóða með það að markmiði að efla vitund umheimsins um breska menningu á öllum stig- um. „Ég er mikill aðdáandi British Council og vil ekki heyra því hallmælt. Samt sem áður er það reyndin, að ráðið styrkir ekki starfsemi hér á landi en gerði það þó á árum áður. Það eru því miður nokkur lönd sem ekki njóta starfsemi ráðsins og það er sárt. Því miður eru bara ekki til þeir peningar sem þarf til að hægt sé að ráðið starfi alls staðar. Þeir hafa þó ekki alveg sniðgengið okkur og á næsta ári kosta þeir sýningu á verkum listamannsins Erics Ravilious. Hann er ekki vel þekktur í dag en á fjórða áratugnum var hann vel kunnur. Ravil- ious kom til Íslands í seinni heimsstyrjöldinni sem stríðslistamaður og dó hér árið 1942. Á stríðslistasafninu Imperial War Museum er verið að undirbúa sýningu á verkum hans og sýningin kemur hingað vonandi um mitt næsta ár. British Council hjálpar okkur á ýmsan hátt þótt við njótum ekki beinna styrkja þaðan. Eitt af þeirra markmiðum er að styrkja ensku- kennslu víðsvegar um heim og með þeirra hjálp stöndum við fyrir ráðstefnu og námskeið- fyrir enskukennara 4. október í haust. Við fáum þessa hjálp frá þeim en ég yrði þó himin- lifandi ef British Coucil ákveddi að ganga alla leið og opna hér skrifstofu á nýjan leik. Ég myndi glaður sinna þeim verkefnum sem fyrir okkur liggja á menningarsviðinu ef við fengj- um þeirra hjálp við að borga reikningana.“ John Culver er bjartsýnn á framtíð menn- ingarsamskipta Breta og Íslendinga. Hann segist þó vonast til þess að þegar fram í sækir verði minni þörf fyrir afskipti sendiráðsins og að samskiptin gangi fyrir sig milliliðalaust. Hann telur líka þörf á að fyriræki styðji mun betur við menningarstarf af þessum toga, slíkt sé eðlilegt í samfélagi nútímans og örvi jafn- framt listamennina til að gera jafnan sitt besta. „Framtíðin er björt, þessar þjóðir eiga nú þeg- ar í góðu og hollu sambandi. Við Bretar njótum þess að hafa mikil tengsl við umheiminn en einnig þess að til okkar leitar fólk hvaðanæva úr heiminum. Menning okkar er fjölþjóðleg og gróskan mikil. Við búum að löngum hefðum en viljum líka vera í fremstu röð í nýsköpun. Það er allt þetta sem ég vil geta miðlað til Íslend- inga og þið hafið tekið okkur vel.“ NEISTI SEM HEILLAR John Culver er sendiherra Breta á Íslandi og hefur vakið athygli fyrir óbilandi áhuga á menningarsamskiptum þjóðanna. BERGÞÓRA JÓNSDÓTTIR heimsótti hann í húsnæði hennar hátignar við Laufásveginn. Morgunblaðið/Jim Smart John Culver, sendiherra Breta á Íslandi. begga@mbl.is

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.