Lesbók Morgunblaðsins - 28.06.2003, Side 16

Lesbók Morgunblaðsins - 28.06.2003, Side 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 28. JÚNÍ 2003 L ÍFSHLAUPIÐ, eitt merk- asta verk Jóhannesar Kjarval, er meðal verka á sýningu sem opnuð verður í Gerðarsafni í Kópavogi í dag kl. 15. Á sýningunni verða eingöngu málverk eftir Kjarval og öll eru þau úr einkasafni Þorvaldar Guðmunds- sonar og Ingibjargar Guðmundsdótt- ur, en Gerðarsafn varðveitir einka- safn þeirra hjóna. Guðbjörg Kristjánsdóttir, forstöðumaður Gerð- arsafns, segir að tilurð einkasafns Þorvaldar og Ingibjargar megi rekja allt aftur til ársins 1930 þegar Þor- valdur starfaði í matardeild Slátur- félags Suðurlands í Hafnarstræti. „Hann kynntist Kjarval þegar hann var að sendast með mat til hans og þeir urðu fljótt góðir vinir. Kjarval gaf honum mynd sem var sú fyrsta sem Þorvaldur eignaðist. Þorvaldur varð tíður gestur á vinnustofunni, sem var í Austurstræti 12, og segir sjálfur í ævisögu sinni að Kjarval hafi opnað augu hans fyrir myndlist. Upp úr þessu kviknaði löngun Þorvaldar til að safna listaverkum og seinna á ævi hans varð þetta að hreinni ástríðu. Hann dró aldrei neina dul á að hann mat Kjarval mest allra ís- lenskra listamanna og verk meistarans í safni þeirra hjóna skipta hundruðum. Það lætur nærri að þar megi finna myndir frá flestum ef ekki öllum árum Kjarvals, svo mikið er þetta safn að vöxtum.“ Í Gerðarsafni er nú unnið að tölvuskráningu á einkasafni Þorvaldar og Ingibjargar og segir Guðbjörg að ákveðið hafi verið að byrja á Kjar- valsverkunum. „Þorvald hefur alls ekki órað fyrir því þegar hann var að heimsækja Kjarval á vinnustofu hans á þessum árum að hann ætti seinna eftir að kaupa myndirnar sem voru á veggjunum, en það gerði hann skömmu eftir 1980 og það er merk- asta og dýrmætasta verk Kjarvals.“ Þetta verk, veggirnir sjálfir úr vinnu- stofu meistarans í Austurstræti 12, kall- aði Kjarval Lífshlaupið. Hann málaði það og sýndi árið 1933 um þær mundir sem Þorvaldur var þar tíður gestur. „Við sýnum þessa veggi núna í Vest- ursalnum. Þeir eru stórir og miklir, sjö flekar og taka upp allan salinn. Þar gefst mjög gott færi á að grandskoða mynd- irnar. Þegar við sýndum Lífshlaupið síð- ast, þá settum við það upp eins og það hefði verið vinnustofan sjálf á sínum tíma. Það gefst betra tækifæri núna til að grandskoða verkið og velta fyrir sér merkingu þess. Þetta eru merkilegar myndir og einstakar í íslenskri mynd- listarsögu og sannarlega þess virði að koma hingað og skoða þær.“ Í Austursal verða sýndar fantasíur og portrettmyndir frá árunum 1930–65. „Þorvaldur taldi Kjarval með réttu stór- kostlegan portrettmálara og í safni hans eru nokkrar af bestu andlitsmyndum Kjarvals. Þorvaldur á andlitsmynd af Ásu dóttur Kjar- vals og aðra af Þórarni Olgeirssyni, skipstjóra og frænda Kjarvals. Hann átti líka mjög skemmtilega mynd af Erró sem er ein magnað- asta mynd hans – málaði hana á síðasta lífs- skeiði sínu. Portrettverk Kjarvals hafa kannski ekki verið metin sem skyldi, en þau eru frábær, – hann var frábær teiknari og hafði teiknað fínar mannamyndir strax á árunum 1926–7 og jafnvel fyrr. Portrettin hans eru þó afar athyglisverð og frábærlega gerð. Í þessum sal eru líka mörg öndvegisverk frá síðustu starfsárum Kjarvals, 1960–65, meðal annars verk sem við höfum sýnt margoft, Fyrstu tunglfararnir – mjög falleg mynd, mynd af litaspjaldi og fleira og fleira.“ Á neðri hæðinni verða sýnd ellefu málverk frá Þingvöllum, sem unnin eru á þrjátíu ára tímabili, auk tveggja mynda af Esjunni og einni úr Skagafirði. „Skömmu fyrir Alþingishátíðina 1930 fór hann að mála Þingvelli af hreinni ástríðu. Þetta tengdist að einhverju leyti sjálfstæðisbaráttu landsins. Þingvellir eru helgur staður og Kjar- val vildi leggja sitt af mörkum í baráttunni fyr- ir sjálfstæði með listsköpun sinni. Hann sagði að andinn kæmi yfir alla sanna listamenn á helgum stöðum. Hann málaði ótal myndir á Þingvöllum, allt fram á síðustu ár. Í safni Þor- valdar og Ingibjargar eru um tuttugu Þing- vallamyndir og við sýnum ellefu þeirra. Þær eru ólíkar innbyrðis, birtuskilyrðin og verður- farið margbreytilegt. Allt ber þetta þó að sama brunni; þetta er glíma Kjarvals við litaspjald náttúrunnar. Það var hans mikla glíma í lands- lagsmálverkinu.“ GLÍMAN VIÐ LITASPJALD NÁTTÚRUNNAR Lífshlaupið, Þingvallamyndir og portrett eru meðal verka Kjarvals á sýningu sem opnuð verður í Gerð- arsafni í dag. BERGÞÓRA JÓNSDÓTTIR ræddi við forstöðumann safnsins, Guðbjörgu Kristjánsdóttur, um verkin á sýningunni, en öll koma þau úr einka- safni hjónanna Þorvaldar Guðmundssonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur. Mynd Kjarvals af dótturinni Ásu. Erró með augum Kjarvals. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Einn veggjanna úr Lífshlaupi Kjarvals. Þarna má sjá hvar dyr voru í veggnum vinstra megin. begga@mbl.is

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.