Lesbók Morgunblaðsins - 02.08.2003, Side 15

Lesbók Morgunblaðsins - 02.08.2003, Side 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 2. ÁGÚST 2003 15 Carsten Süss, Helga Rós Indriðadóttir, Robin Engelen og Motti Kastón. HALDNIR verða óperutónleikar ífélagsheimilinu Miðgarði íSkagafirði í kvöld kl. 21. Þarkoma fram Helga Rós Indr- iðadóttir sópran, Carsten Süss tenór, Motti Kastón, baritón og Robin Engelen píanó- leikari, en þau starfa öll við óperuhúsið í Stuttgart, sem valið var óperuhús ársins í fyrra af tímaritinu Opernwelt. Á efnis- skránni verða bæði einsöngsaríur og dú- ettar úr óperum eftir Mozart, Puccini, Rossini og Bizet. Flutt verða lög úr söngleikjum á borð við Sögur úr Vesturbænum eftir Bernstein og Porgy og Bess eftir Gershwin, auk þess sem Helga Rós mun syngja nokkur íslensk einsöngslög. Kynnir á tónleikunum er María Ágústs- dóttir. Hvernig eru tónleikarnir til komnir? „Ég á ættir mínar að rekja hingað í Skagafjörð og foreldrar mínir búa hér. Magnús Sigmundsson í Ævintýraferðum stakk upp á því við mig að ég kæmi hingað ásamt nokkrum starfsfélögum mínum og héldi tónleika. Ég ræddi hugmyndina við Carsten, Motti og Robin og þeir tóku henni afar vel, enda fannst þeim mjög spennandi að koma til Íslands. Mér þykir sérstaklega vænt um að halda þessa tónleika hér. Bæði að fá tækifæri til þess að sýna starfs- félögum mínum heimahagana og eins að leyfa fólkinu mínu hérna að heyra í mér. Mér finnst gaman að fá tækifæri til þess að koma með þennan óperuheim hingað heim í Skagafjörðinn þar sem margir sveitungar mínir hafa fylgst með mér allt frá því ég hóf tónlistarnám mitt hér sem smástelpa.“ Hvað verður svo á efnisskránni í kvöld? „Dagskráin er skemmtilega blönduð, því við vildum að allir tónleikagestir gætu fundið eitthvað við sitt hæfi. Þetta er því góð blanda af alvarlegum lögum og létt- um.Við verðum þannig með óperuaríur, lög úr óperettum og söngleikjum auk nokkurrra íslenskra sönglaga. Meðal óp- eruperlna sem við flytjum má nefna aríu Mimi og Rodolfo úr La Boheme, Nessun dorma úr Turandot eftir Puccini, nauta- banaaríuna úr Carmen eftir Bizet og dúett Zerlinu og Don Giovanni úr samnefndri óperu Mozarts, auk þess sem ég mun syngja aríu Rosalinde úr Leðurblökunni eftir J. Strauss og aríu Greifafrúarinnar úr Brúðkaupi Fígarós eftir Mozart.“ Hvernig leggst svo í þig að syngja söng- leikjalög? „Mér finnst það afskaplega gaman, enda um mjög fallega tónlist að ræða. En vissu- lega þarf maður að beita sér á annan hátt og reyna að syngja það ekki eins „óperulega“ eða dramatískt.“ Forsala aðgöngumiða fer fram í Penn- anum - Bókvali á Akureyri, Upplýsinga- miðstöð ferðamála í Varmahlíð og Bóka- búð Brynjars á Sauðárkróki, auk þess verður hægt að kaupa miða við innganginn fyrir tónleikana. Óperuperlur í Skagafirði STIKLA Óperu- tónleikar í fé- lagsheimilinu Miðgarði í Skagafirði Næsta v ika Laugardagur Leiðsögn um sýninguna Akureyri – bærinn við Poll- inn kl. 15 Sýningarvörður veitir sýningargestum innsýn í líf bæjarbúa fyrr á tíð og bregður upp mynd af litríkum sögu- persónum úr bæjarlífi þess tíma. Aðgangseyrir 400 kr. Hallgrímskirkja kl. 12 Ítalski organistinn Giorgio Parolini. Á dagskrá eru Ciaconu í d-moll eftir Johann Pachelbel, þá Rondó í G-dúr eftir ítalska tón- skáldið Gioseppe Gher- ardeschi. Þar næst leikur hann Prelúdíu og fúgu um B-A-C-H eftir Franz Liszt og tónleikunum lýkur með Andantino eftir nú- tímatónskáldið Denis Bédard. Jómfrúin kl. 16–18 Kvartett saxófónleikarans Jóels Pálssonar. Aðrir í hljóm- sveitinni eru Dav- íð Þór Jónsson á hljómborð, Valdimar K. Sig- urjónsson á bassa og Erik Qvick á trommur. Leikið verður utandyra á Jómfrúrtorginu ef veður leyfir, en annars inni á Jómfrúnni. Aðgangur ókeypis. Sunnudagur Smábýlið Krókur, Garða- holti, Garðabæ kl. 13–17 Bærinn er gott dæmi um húsa- kost og lifnaðarhætti alþýðu- fólks á þessum landshluta á fyrri hluta 20. aldar. Í Króki var búið allt til ársins 1985. Krókur stendur ská á móti samkomu- húsinu á Garðaholti. Akureyrarkirkja kl. 17 Fimmtu og síðustu tónleikar í röðinni Sumartónleikar í Akur- eyrarkirkju. Flytjendur eru: Magnea Tómasdóttur sópran og Guðmundur Sigurðsson orgelleikari. Tónleikarnir standa í klukkustund. Guðmundur og Magnea munu einnig leika og syngja í messu í Akureyr- arkirkju kl. 11 árdegis. Gránufélagshús kl. 14 Söguganga um Oddeyrina á Akureyri. Skoðuð verða gömlu húsin í suðurhluta Oddeyr- arinnar milli Strandgötu og Eiðsvallagötu. Leiðsögumaður verður Guðrún María Krist- insdóttir. Þátttökugjald er 300 kr. Hallgrímskirkja kl. 20 Ítalski organistinn Giorgio Parolini. Efnisskrá tónleikanna er mjög fjölbreytt og hefst með tónlist barokktímabilsins. Fyrst hljóm- ar Tokkata, adagio og fúga í C-dúr, BWV 564, eftir Johann Sebastian Bach og síðan Grave og Flautusónata eftir Ítalann Giambattista Martini. Þriðjudagur Sigurjónssafn kl. 20.30 Nicole Vala Cariglia sellóleikari og Árni Heimir Ingólfsson pí- anóleikari. Efnisskráin er helg- uð spænskri og suðuramerískri sellótónlist. Meðal verkanna sem þau flytja eru Sex spænskir alþýðusöngvar eftir Manuel de Falla sem eru byggðir á þjóð- lögum frá Múrsíu, Aragon og Andalúsíu, og Spænsk svíta eft- ir Gaspar Cassadó þar sem tónskáldið notar hljóðfall spænskra dansa. Jóel Pálsson Ólafssonar: Sumarsýn- ingin Andlitsmyndir og afstraksjónir. Til 1.9. Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Gróf- arhúsi: Claire Xuan. Til 1.9. Norræna húsið: Nor- ræn fílasýning. Til 17.8. Ljósmyndir Ragnars Th. Sigurðssonar við texta Ara Guðmundssonar. Til 31.8. Safnasafnið, Alþýðu- listasafn Íslands, Eyjafirði: Tíu úti- og innisýningar. Til 14.9. Safn – Laugavegi 37: Íslensk og alþjóðleg sam- tímalistaverk. Til 10. okt. Sjóminjasafn Íslands, Vesturgötu 8, Hafn- arf.: Gripir úr Þjóð- fræðisafni Þjóðminja- safns Íslands. Til 15.9. Skálholtsskóli: Björg Þorsteinsdóttir er Stað- arlistamaður Skálholts- skóla árið 2003. Til 1.9. Þjóðmenningarhúsið við Hverfisgötu: Hand- ritin. Landafundir. Sýn- ingin á fundargerðabók Þjóðfundarins. Bókasalur Þjóðmenningarhússins er helgaður ritmenningu Ís- lendinga. Í bókasalnum hefur nú verið sett upp sumarsýning sem ber yf- irskriftina Íslendinga- sögur á erlendum mál- um. Íslandsmynd í mótun – áfangar í kortagerð. Samspil texta og mynd- skreytinga í barnabókum 1910–2002. Til 8.8. Gallerí Dvergur: Geir- þrúður Finnbogadóttir Hjörvar. Til 17.8 Dalabúð, Búðardal: Óskar Theódórsson. Ol- íupastelmyndir. Til 21.8. Lónkot: Áslaug Snorra- dóttir. Ljósmyndasýning. Stendur út ágústmánuð. Upplýsingamiðstöð myndlistar: Lista yfir fyrirhugaðar og yfir- standandi myndlistarsýn- ingar í öllum helstu sýn- ingarsölum má finna á slóðinni www.umm.is undir Fréttir. LEIKLIST Borgarleikhúsið: Grease, mið., fim., lau. Iðnó – Ofleikur: Date, þrið., fim. Iðnó – Ferðaleikhúsið. Light Nights. Þjóðsögur og íslenskt efni á ensku. Sun, mán. fös. MYNDLIST Árbæjarsafn: Daglegt líf í Reykjavík – sjötti ára- tugurinn. Á sýningunni er fylgst með sex Reykvík- ingum á ólíkum aldri í amstri hversdagsins á ár- unum 1950–1960. Til 1.9. Galleri@hlemmur.is: Hrafnhildur Halldórs- dóttir. Til 3.8. Gallerí Skuggi: Sam- sýningin Jauðhildur. Verk eiga Ragnhildur Magn- úsdóttir, Auður Sturlu- dóttir og Jóhannes Dags- son. Til 3.8. Gerðarsafn: Sýning á málverkum Jóhannesar Kjarvals úr einkasafni. Til 6.9. Gerðuberg: Til sýnis upplýsingar um Breið- holtið á 18. og 19. öld. Til 5.9. Hafnarborg: Afmæl- issýning Hafnarborgar – 1983–2003. Til 4.8. Handverk og hönn- un, Aðalstræti 12: Sumarsýning. Til 31.8. Hönnunarsafn Ís- lands, Garðatorgi: Úr eigu safnsins – Sýnishorn íslenskrar hönnunar 1952–2002. Til 1.9. Kling & Bang, Lauga- vegi 23: Snorri Ás- mundsson. Til 4.8. Listasafn ASÍ: Sum- arsýningin – Úr eigu safnsins: Nína Tryggva- dóttir, Svavar Guðnason og Kristján Davíðsson. Til 3.8. Listasafn Borgarness: Gunnar Ingibergur Guð- jónsson. Til 13.8. Listasafn Einars Jóns- sonar: Opið laugar- daga og sunnudaga kl. 14–17. Listasafn Íslands: Úr- val verka úr eigu safns- ins. Til 31.8. Listasafn Reykjanes- bæjar: Sossa Björns- dóttir. Til 31.8. Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn: Ás- mundur Sveinsson – Nú- tímamaðurinn. Til 20.5. Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús: Innsýn í alþjóðlega myndlist á Ís- landi. Til 31.8. Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir: Nýir tímar í íslenskri samtíma- ljósmyndun. Til 17.8. Listasafn Sigurjóns DOUGLAS Brotcie organisti leikur á tvennum tónleikum í Reykholtskirkju núna um versl- unarmannahelg- ina. Á efnisskránni eru verk eftir Buxte- hude, Bohm, Bach, Haydn, Jón Leifs, Messiaen og Franck. Þetta er í sjötta sinn á þessu sumri, sem Félag ís- lenskra organleik- ara og Orgel- og söngmálasjóður Bjarna Bjarnasonar á Skáney standa fyrir tón- leikum til styrktar orgelinu í Reykholtskirkju. Lokatónleikar sumarsins verða laugardaginn 9. ágúst, en þá mun Marteinn H. Friðriksson setjast við org- elið. Ágóði af tónleikaröðinni rennur óskiptur til orgelsjóðs- ins. Dr. Douglas A. Brotchie er skoskur, fæddur í Edinborg. Hann hefur lokið kantorsprófi og orgeleinleikaraprófi frá Tónskóla þjóðkirkj- unnar, var annar org- anisti Dómkirkju Krists konungs (Landakots- kirkju) í mörg ár og var organisti Hall- grímskirkju um eins árs skeið í leyfi Harð- ar Áskelssonar. Hann er nú organisti og kórstjóri Háteigskirkju og kennari við Tón- skóla þjóðkirkjunnar. Douglas hefur haldið tónleika víða um Evrópu, bæði sem ein- leikari og sem meðleikari, m.a. í Söngsveitinni Fílharmóníu, Mótettukór Hallgrímskirkju og Schola cantorum, hefur oft komið fram sem organisti í sjónvarpi og útvarpi og auk þess leikið inn á fjölda geisla- diska. Orgeltónleikar í Reykholtskirkju Douglas Brotchie AÐALHEIÐUR Ólöf Skarp- héðinsdóttir sýnir smámynd- ir unnar í þurrnál og vatns- liti í Fjöruhúsinu á Hellnum á Snæfellsnesi. Verkin eru unnin á árunum 1996 til 2003 og eru öll til sölu. Aðalheiður stundaði nám við myndlistar- og kenn- arabraut MHÍ og síðar við Konstfack í Stokkhólmi þar sem hún útskrifaðist sem text- ílhönnuður auk náms í grafík við Kollektiva Verkstad í Stokkhólmi. Hún hefur kennt börnum myndlist til fjölda ára og þróað og gefið út náms- efni í myndlist. Hún rekur gallerí Meistara Jakob á Skólavörðustíg ásamt 10 öðrum myndlistarmönnum. Vinnustofa hennar er á Garðavegi 4 í Hafnarfirði. Aðalheiður hefur haldið 9 einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga heima og erlendis. Hún sýnir einnig um þessar mundir á tveimur alþjóðlegum smámyndasýningum, á Mondiale d’estamps í Chamaliers í Frakklandi og í Cremona á Ítalíu. Sýningin í Fjöruhúsinu á Hellnum stendur frá 1. til 31. ágúst, opið er frá klukkan 10 til 22 alla daga vikunnar. Grafíkverk í Fjöruhúsinu Draumur um morgun. KATRÍN Óskarsdóttir hefur sett upp sýningu á vatnslitamyndum í Litlu Kaffistofunni í Svínahrauni. Mynd- efnið er Hekla í ýms- um blæbrigðum. Katrín er grafískur hönnuður frá MHÍ og vann áður sem teikn- ari, setti upp sýning- arbása og glugga- skreytingar. Hún lærði nudd og jóga fyrir nokkrum árum og vinnur á Hótel Hvolsvelli. Sýningin er sölusýn- ing og stendur fram eftir ágústmánuði.Katrín Óskarsdóttir Hekla í ýmsum myndum HUGI hafði rétt fyrir sér er heiti sýningar sem Hlynur Hallsson opnaði á fimmtudag Undir stiganum í i8. Sýningunni fylgir eftirfarandi texti: „Eftir sundferð í Fössebad för- um við í heimsókn til Kwan Ho og Michaels. Við borðum ljúf- fengt salat á svölunum og svo fara Hugi og Lóa ásamt Piu Mariu og Söru á leikvöllinn með stóru rólunum. Eftir smá- stund kemur Hugi hlaupandi til baka, greinilega handleggs- brotinn. Michael skutlar okkur á næsta sjúkrahús og Hugi bendir mér á að þetta hefði aldrei gerst hefðum við farið í Stadionbad eins og hann vildi.“ Sýningin stendur til 13. ágúst og er opin fimmtudaga og föstudaga kl. 11–18, laug- ardaga kl. 13–17 og eftir sam- komulagi. Hugi hafði rétt fyrir sér. Hlynur Halls- son undir stiganum

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.