Lesbók Morgunblaðsins - 09.08.2003, Side 2
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 9. ÁGÚST 2003
FJÖLMIÐLAR
NEÐANMÁLS
LÍFIÐ við hirð Stalíns er við-
fangsefni Simons Sebag Montef-
iore í bók hans Stalin: The
Court of the
Red Tsar, eða
Stalín: Hirð
rauða keis-
arans. Dregur
höfundurinn
þar fram lif-
andi mynd af
daglegu lífi
nánustu sam-
starfsmanna
þessa aðalritara kommúnista-
flokksins. Hvernig þeir óttuðust
Stalín sem og virtu, frömdu
jafnvel morð fyrir hann og tóku
þátt í að lyfta honum á þann
guðlega stall sem hann skipaði.
Bókin þykir varpa nýju ljósi á
þennan tíma í sögu Sovétríkj-
anna, en rannsóknir sínar bygg-
ir Sebag Montefiore m.a. á
einkaskjölum leiðtoga sovéska
kommúnistaflokksins sem ekki
voru gerð opinber fyrr en árið
2000. Auk þeirra notar hann
dagbækur og sendibréf fjölda
nánustu samstarfsmanna leið-
togans.
Í skrifum Sebag Montefiore
kemur m.a. fram að Stalín var
mikill áhugamaður um mann-
kynssögu og byggði hirð sína að
mörgu leyti upp að fyrirmynd
Rússakeisarans Ívans grimma.
Þannig kom Stalín sjálfur upp
sinni eigin hirð skósveina, til að
grafa undan gömlu elítunni, og
viðhélt tryggð þeirra með veg-
legum gjöfum auk þess sem
hann lét reglulega myrða
nokkra þeirra til að halda hin-
um á tánum.
Dulmálsfræðingurinn
ÞRIÐJA bók Tobias Hill, The
Cryptographer eða Dulmáls-
fræðingurinn, nær að mati
breska dagblaðsins Guardian að
gera skattrannsóknir að
skemmtiefni. Sagan er látin
gerast árið 2021 er pappír er
orðinn lítið annað en minning
úr fortíðinni og allar fé-
greiðslur fara fram í rafrænu
formi.
Aðalsöguhetjan, Anna Moore,
er skattrannsóknamaður sem
lendir í því að rannsaka fjármál
Johns Law, vellauðugs dulmáls-
fræðings sem á heiðurinn að
fyrsta mjúka gullinu, vefræna
gjaldmiðlinum sem tekið hefur
við jafnt af dollar, pundi, evru
og jeni. Hins vegar er ekki allt
sem sýnist og mjúka gullið og
Law sjálfur reynast ekki jafn
örugg og virtist í fyrstu.
Um leið og
hún var farin
BANDARÍSKI rithöfundurinn
Evan Hunter, sem einnig skrif-
ar undir höfundarnafninu Ed
McBain, sendi
nýlega frá sér
nýja skáld-
sögu, The Mo-
ment She Was
Gone, sem út-
leggja má á
íslensku Um
leið og hún
var farin.
Sagan er
spennandi,
líkt og fyrri verk Hunters sem á
tæplega 50 ára rithöfundarferil
að baki, en um er að ræða sál-
fræðilega spennusögu þar sem
sjónum er beint að sektarkennd
happasællar fjölskyldu í New
York. Bókin hefst á hvarfi
dótturinnar, sem stundað hefur
þá iðju áður, og beinist athygli
lesenda að ástæðum hegðunar
hennar og þeirri sjálfs-
eyðingarhvöt sem þar liggur að
baki.
ERLENDAR
BÆKUR
Hirð rauða
keisarans
Evan Hunter
Jósef Stalín
A
F tilviljun nánast sá ég helj-
armikla tónleika með Paul
McCartney í sjónvarpinu um
seinustu helgi. Þetta var
upptaka frá höfuðstað
skemmtanaiðnaðarins, rétt-
nefndri Borg englanna, eða
Los Angeles í Kaliforníu.
Á sviðinu var Sir Paul, aldrað goð með gráa
hárið falið undir dökkum lit og klæddur eldrauð-
um bol með áberandi áletrun, þar sem lesa mátti
skilaboð frá ungri eiginkonu hans. Þar stóð „No
more landmines“, eða „Aldrei framar jarð-
sprengjur“. Bandaríkjamenn, helstu framleið-
endur jarðsprengna, hafa væntanlega ekki tekið
þessa ábendingu til sín, sjá enda ekki bjálkann í
eigin auga, en fögnuðu þar á móti ógurlega frels-
issöng einum innblásnum af 11. september 2001.
Rétt eins og rússneska háðádeiluskáldið Nikolai
Erdman benti á í frægu leikriti sínu um sjálfs-
morðingja er það hverjum málstað ómetanlegt
að eignast talsmenn sem tekið er eftir.
Sir Paul var umkringdur kornungum hljóð-
færaleikurum, hreinum snillingum að því er virt-
ist, sennilega flinkari og lærðari spilurum en
þeir John, George og Ringo voru nokkurn tíma.
Flestir voru þeir sennilega fæddir löngu eftir að
The Beatles sungu sitt síðasta, en gættu þess
vandlega að fara ekki á svig við upprunalegar
útsetningar laganna. Þannig lét trommuleikar-
inn ótrúlegi sig hafa það að fikra sig að mestu
eftir slögunum sem Ringo hafði markað á sínum
tíma. Til að eftirlíkingin yrði sem nákvæmust
hvarf Sir Paul í lok myndarinnar inn í þyrlu sem
flutti hann á brott, rétt eins og í lok fyrstu kvik-
myndar Bítlanna, A Hard Day’s Night.
Á meðal áhorfenda var fjölbreytt safn aldr-
aðra engla úr Englaborginni, kvikmyndastjarna
á borð við Jack Nicholson, Michael Douglas og
ótal fleiri.
Stjörnurnar virtust þó í miklum minnihluta í
áhorfendaskaranum, því þarna voru heilar fjöl-
skyldur samankomnar, hver kynslóðin upp af
annarri, allt frá undrandi kornabörnum upp í
grátandi ömmur. Enn gat gamli bítillinn kreist
út úr þeim táravatnið.
Fyrrum voru það bara unglingar sem dáðu
Paul og hina bítlana, en sú samstaða kynslóð-
anna sem þarna gat að líta var merkileg. Börn
virtust kunna textana og sungu með, en full-
orðna fólkið kunni sér naumast læti af barns-
legri gleði. Ég á bágt með að ímynda mér mína
kynslóð sækja tónleika ásamt foreldrum hjá The
Mills Brothers.
Þvert á allar hrakspár á fyrstu árum sjöunda
áratugarins er bítlið sumsé orðið klassík og Paul
McCartney mjólkar þá stöðu mála sem mest
hann má. Hann nýtur þess að standa í sviðsljós-
inu og vera aðalmaðurinn, enda sá fjórmenning-
anna frægu sem hneigðist helst til hégómleika
og hefur oft komið kjánalega fyrir af þeim sök-
um.
Það rifjaðist upp fyrir mér gamalt viðtal frá
þeim árum er ég drakk í mig hvert orð sem
hraut af vörum The Beatles. Þar var Paul spurð-
ur hvar hann teldi að hann yrði um fimmtugt.
Ég man að mér þótti spurningin ruddaleg þar
sem það hafði naumast hvarflað að mér að þessir
menn yrðu gamlir, en svarið man ég enn. Paul
kvaðst ekki ætla að standa á sviði og spila gömul
bítlalög þegar hann væri orðinn gamall og grá-
hærður. Það þætti honum ömurlegt hlutskipti.
Það er engin leið að hætta, söng Valgeir, og gild-
ir það líka um Sir Paul sem er orðinn að stofnun.
Nú þyrfti maður bara að komast á ball með
Hljómum til þess að fullkomna þessa ferð til for-
tíðar.
FERÐ TIL FORTÍÐAR
Þvert á allar hrakspár á fyrstu
árum sjöunda áratugarins er
bítlið sumsé orðið klassík og
Paul McCartney mjólkar þá
stöðu mála sem mest hann má.
Á R N I I B S E N
UM daginn skrifaði ég grein á
kreml.is um hina sjálfhverfu sjálf-
styrkingu. Ég fékk óvenjulega mik-
ið af viðbrögðum á tölvupósti.
Margir þökkuðu mér og sögðust
vera sama sinnis. En mun fleiri
hundskömmuðu mig. Mér finnst
ágætt að ekki séu allir með sömu
hugmyndir og að fólk skiptist á
skoðunum. Til þess eru til að
mynda dagblöð og aðrir fjöl-
miðlar. Frjáls umræða er hluti af
tjáningarfrelsi og opnu, lýðræðis-
legu samfélagi. […]
Ég geri oftast hluti sem mörgum
fellur ekki. Það verður bara að
hafa það. Ég fagna rökum á móti
en ég óttast þegar sagt er við mig
að ég eigi ekki að hafa mínar
skoðanir. Ég man að þegar ég var
ritstjóri Alþýðublaðsins fyrir langt
löngu þá setti ég lit í haus blaðs-
ins. Hausinn hafði áður verið
svartur en ég breytti honum í
fjólubláan eins og hausinn á
Fréttablaðinu er núna. Næsta dag
var óvinnuhæft á ritstjórninni fyrir
alls kyns vinstri krötum sem sögðu
að við ættum ekki að hafa bláan
lit í hausnum. Heldur rauðan.
Ég man eftir konu einni í Hafn-
arfirði en fjölskylda hennar öll var
í flokkseigendafélaginu. Hún sagði
upp blaðinu þangað til rauði lit-
urinn yrði aftur settur í hausinn.
Þegar ég benti henni á að hausinn
hefði alltaf verið svartur en ekki
rauður, sagði hún að henni fyndist
að hann ætti að vera rauður. Það
var ugglaust pólitískt kórrétt í
hennar huga.
Ég varð mjög hissa á þessum
viðbrögðum; jafn hissa og þegar
ég kom í fyrstu á landsfund Al-
þýðuflokksins þar sem Nallinn var
sunginn. Gamall flokkshestur sagði
mér að Nallinn hefði alltaf verið
sunginn og það ætti að syngja
hann. Ég hafði gengið til liðs við
Alþýðuflokkinn sem frjálslyndur
jafnaðarmaður og fékk vægt lost.
Ég var ekki kominn á þennan fund
til að syngja Nallann. Og ég söng
hann ekki. Efast reyndar um að ég
kunni textann. Ég komst oft upp á
kant við flokksmenn vegna skoð-
ana minna og oft fékk ég að heyra
að það væri ekki rétt að hafa slík-
ar skoðanir og skrifa slíka leiðara
eða greinar.
Í þetta skiptið fékk ég bréf frá
vinstri maníökkum og femínista-
dólgum (ég tel mig reyndar sjálfan
hófsaman femínista – nokkuð sem
kórréttum femínistum finnst brjál-
æðislega fyndið …). Það vakti
jafnframt furðu mína að stór hluti
bréfritaranna var háskólafólk, vel-
menntað. Bréfin komu einnig frá
ýmsum öðrum sem vita hvað er
pólitískt kórrétt og hvað ekki.
Ingólfur Margeirsson
Kreml
www.kreml.is
Morgunblaðið/Ómar
„Mon Premier Voyage“.
KÓRRÉTTUR
IMargröddun er grundvallarhugtak í menningusamtímans. Það lýsir þróun lista frá eintóna boð-
un til samræðu. Kannski tekur margröddunin á sig
hvað skýrasta mynd í framsæknum djassi þar sem
ólíkar raddir kallast á og virðast engan veginn
sammála en ná samt einhverjum undarlegum sam-
hljómi sem setur hlutina í nýtt samhengi. Góð
skáldsaga orkar á lesendur með svipuðum hætti.
Og sennilega hefur hugtakið verið skilgreint með
hvað skýrustum hætti í skrifum rússneska bók-
menntafræðingsins Mikaels Bakhtins um skáldsög-
una.
IIBakhtin nefnir þrjú atriði sem skilja skáldsög-una frá öðrum bókmenntagreinum: (1) Stílleg
þrívídd sem tengist margröddun eða fjöltyngni
skáldsögunnar, margskonar orðtaki var blandað
saman, hátíðlegt skáldamál varð í raun jafnrétt-
hátt daglegu tungutaki.
(2) Nýr skilningur á sambandi fortíðar og sam-
tíðar, tímaleg samræming eins og Bakhtin kallar
það og segir afskaplega fátt, en hann á við hvernig
skáldsagan færir samtímann inn í bókmenntirnar
og litar umfjöllun um fortíðina. Og (3) nýtt svið
myndsköpunar þar sem tengsl við óreiðukenndan
nútímann eru ráðandi, nánari tengsl við veru-
leikann í myndsköpun. Skáldsagan sprettur ein-
ungis upp úr samtíð sinni, jafnvel þótt hún fjalli
um fortíðina.
IIIÖll þessi einkenni tengjast sögulegum breyt-ingum, þ.e. þróun frá félagslega einangraðri
og menningarlega daufri Evrópu til alþjóðlegra og
fjöltyngdra sambanda og tengsla. Þetta er sem sé
annars vegar Evrópa miðalda og svo hins vegar
Evrópa endurreisnarinnar og þó einkum upplýsing-
arinnar. Fjöldi ólíkra tungumála, menningar-
heima og tímabila opnaðist Evrópu á átjándu öld
og varð ráðandi þáttur í þróun hugsunar hennar.
Skáldsagan var eina bókmenntagreinin sem gat
fylgt þessari fjöltyngdu og margrödduðu Evrópu eft-
ir, segir Bakhtin.
IVHugtakið fjöltyngni eða margröddun (stund-um hefur einnig verið notað hugtakið
samræðufrásagnir eða „dialogic novels“) er mið-
lægt í hugmyndum Bakhtins. Hann stillir því upp
sem andstæðu einröddunarinnar en hún er
ríkjandi form hefðbundinna skáldskapargreina,
það er þeirra sem eiga rætur sínar að rekja til
munnmenntasamfélaga. Epíkin er gott dæmi. Í ep-
ískri frásögn eiga persónur sér ekki sína eigin rödd
sem jafnvel andmælir eða streitist á móti megin-
stefnu verksins og höfundarins, allar persónurnar
lúta rödd höfundarins, boðskap hans og hug-
myndum. Einrödduð frásögn getur innihaldið sam-
töl, eins og gerist í epískum frásögnum, en í þeim
birtist ekki hugmyndaleg togstreita eins og við sáum
til dæmis í Jakobi forlagasinna eftir Diderot, allir
samtalendur miðla sömu grunnhugmyndinni.
Þessi einröddun endurspeglast iðulega í einsleitum
stíl og heildstæðum sem ber höfundi sínum stöðugt
vitni. Ólíkt epíkinni er skáldsagan ávallt marg-
radda, að mati Bakhtín.
VSem sé: Í einradda frásögn lýtur allt vilja oghugmyndafræði höfundarins en í margradda
frásögn er teflt saman ólíkum sjónarmiðum. Hin
margradda menning er sennilega eitt af helstu af-
rekum nútímans. Hún er enn við lýði þótt einrödd-
unin sé það vissulega einnig, og er þá lituð vondri
einveldishugsun.