Lesbók Morgunblaðsins - 09.08.2003, Blaðsíða 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 9. ÁGÚST 2003 11
Hversu margir lítrar af olíu
eru til í heiminum?
SVAR: Olía er fitukennt efni, yfirleitt fljót-
andi við herbergishita og leysist ekki í vatni.
Henni er skipt í þrjá meginflokka: órok-
gjarnar olíur (jurtaolíur og lýsi), ilmolíur og
jarðolíu. Jarðolía (hráolía) er seigfljótandi
vökvi, dökkgrænn eða brúnleitur á litinn,
margþætt blanda miðlungsþungra og eld-
fimra kolvatnsefna, meðal annars brenni-
steins, köfnunarefnis og súrefnis.
Flestir jarðfræðingar eru sammála um að
jarðolía hafi myndast úr plöntu- og dýraleif-
um sem einkum hafa safnast saman á sjáv-
arbotni, enda er hana nær eingöngu að finna
í sjávarseti, oft í tengslum við saltmyndanir.
Plöntuleifar í kolum benda eindregið til upp-
runa þeirra, en í jarðolíu eru engir stein-
gervingar og þar að auki finnst hún aldrei í
þeim jarðlögum þar sem hún hefur myndast.
Líklega er hún fyrst og fremst mynduð úr
leifum sviflífvera sem hafa fallið til botns og
safnast fyrir í leirkenndu botnseti.
Leifarnar hafa síðan tekið ýmsum efna-
breytingum í setlögunum fyrir tilstuðlan
gerla og hvata, vaxandi þunga efri jarðlaga
og hækkandi hitastigs. Jarðlagafargið þrýsti
olíunni úr setlögunum sem hún myndaðist í,
hún leitaði upp á við eftir sprungum og
gropnum jarðlögum, til dæmis kalksteini eða
sandsteini, og safnaðist síðan fyrir undir
þéttum jarðlögum sem hún komst ekki í
gegnum.
Jarðolía hefur verið notuð að minnsta
kosti frá því á fjórða árþúsundi f. Kr., en þá
nýttu Súmerar hana við múrsteinagerð. Um
miðja 19. öld hófst hins vegar olíuvinnsla í
stórum stíl þegar farið var að bora eftir
henni í Titusville í Pennsylvaníu í Banda-
ríkjunum. Olíunotkun hefur á undanförnum
árum verið um og yfir 40% af allri orkunotk-
un í heiminum, einkum á sviði samgangna,
iðnaðar og upphitunar. Heimsframleiðsla
jarðolíu árið 2000 var um 75 milljónir tunna
á dag (27 milljarðar á ári). Þá hafði olíu-
framleiðsla vaxið um allt að því 1,5% á ári í
nokkur ár, en raunar gera Samtök olíu-
útflutningsríkja, OPEC, ráð fyrir að fram-
leiðslan verði komin í um 100 milljónir
tunna á dag árið 2020.
Um það bil 90% af allri jarðolíu sem nú er
dælt upp úr jörðinni, kemur frá færri en 30
olíusvæðum. Mestu framleiðslulöndin eru
Sádi-Arabía með 8 milljónir tunna á dag,
Bandaríkin með 6,5 milljónir, Rússland með
5,9 milljónir, Íran með 3,5 milljónir tunna og
Kúveit með svipað magn. Gera má ráð fyrir
að Írakar auki verulega framleiðslu sína á
næstu árum.
Flestum er ljóst að olíubirgðir í jörðu eru
takmarkaðar því að olía er ekki endurnýj-
anleg orkulind. Samkvæmt upplýsingum frá
OPEC, er talið að olíubirgðir í jörðu séu nú
alls um 1.000 milljarðar tunna. Þar á Sádi-
Arabía mest, um 260 milljarða tunna, Írak
um 110 milljarða, Sameinuðu arabísku
furstadæmin og Kúveit 95 milljarða tunna
hvort um sig, Íran 92 milljarða, Venesúela
66 milljarða, Rússland 49 milljarða, Mexíkó
27 milljarða, Kína 24 milljarða, Bandaríkin
23 milljarða, Kasakstan 14 milljarða og Nor-
egur 10 milljarða tunna. Önnur ríki eiga
minni birgðir í jörðu.
Hefð er fyrir því að mæla jarðolíumagn í
tunnum en hver olíutunna tekur 159 lítra.
Ef upplýsingar OPEC standast, eru því um
159.000 milljarðar lítra til af olíu í jörðu.
Samkvæmt mati OPEC ættu þessar
birgðir að endast í um 80 ár miðað við nú-
verandi notkun. Hins vegar má benda á að
hér er um álit seljanda að ræða, en ýmis
umhverfissamtök eru ekki eins bjartsýn og
telja að olía í jörðu muni aðeins endast í 40-
50 ár, sem er vissulega mun styttri tími. Á
síðustu árum hafa nýfundin olíusvæði gefið
af sér um það bil fjórðung af olíuframleiðsl-
unni.
Allt virðist því benda til þess að á næstu
áratugum verði reynt að finna nýja orku-
gjafa sem geta komið í stað olíunnar. Meðan
hún er ódýrasti kosturinn verður það þó lík-
lega ekki gert af fullum krafti fyrr en verðið
hefur hækkað talsvert vegna þverrandi
birgða í jörðu og þar af leiðandi minna
framboðs.
Leifur A. Símonarson, prófessor
í steingervingafræði við HÍ.
Hvað geta margir samhljóðar
komið fyrir í röð í einu orði?
SVAR: Hversu margir samhljóðar fara sam-
an í einu orði fer eftir því hvort um grunn-
orð er að ræða, það er ósamsett orð, eða
hvort það er samsett. Ef orð er ósamsett
eru ekki fleiri en þrír samhljóðar í fram-
stöðu, það er fremst í orðinu. Orð sem byrja
á sp-, st-, sk- geta til dæmis bætt við sig
þriðja samhljóða og þeim fjórða ef hann er
-j-. Dæmi: sprengja, spranga, strákur, stríð,
skjóta, skrifa, strjúka, skrjóður. Sama er
segja um orð sem byrja á sl-, þau geta bætt
við sig -j-. Dæmi: sljákka, sljór. Í bakstöðu
geta líka lent saman þrír samhljóðar ef orð-
ið stendur í eignarfalli. Dæmi: rusls, hopps,
grunns, bruðls.
Sé orðið samsett er fjöldi samhljóða í röð
nokkuð oft fimm. Dæmi: handsprengja (-
ndspr-), jarðskjálfti (-rðskj-), jarðsprengja (-
rðspr-), landssjóður (-ndssj-), harðstjóri (-
rðstj-). Til er að saman fari sex samhljóðar
en þau orð eru ekki algeng. Dæmi: hákarls-
skrápur (-rlsskr-). Enn sjaldgæfari eru orð
með sjö samhljóðum. Dæmi: hundsstrjúpi (-
ndsstrj-).
Oftast er við orðmyndun reynt að koma í
veg fyrir of marga samhljóða í röð með því
að mynda fremur stofnsamsett orð en eign-
arfallssamsett, nota til dæmis fremur orðið
kjólfaldur en kjólsfaldur þar sem saman
færu þrír samhljóðar, borðplata fremur en
borðsplata með -rðspl-. Önnur leið er að
nota bandstaf eins og í orðunum ruslafata,
dótakassi, þar sem -a- er bandstafur milli
tveggja samsetningarliða og gerir orðin
þjálli í framburði en ruslfata eða dótkassi.
Guðrún Kvaran, prófessor og
forstöðumaður Orðabókar Háskólans.
Hvernig virka lygamælar, hvað er riðuveiki í
sauðfé, af hverju eru salerni oftast úr postulíni og
hver er merkasti leiðtogi breska Íhaldsflokksins? Þessum spurningum
og fjölmörgum öðrum hefur verið svarað að undanförnu á Vísindavefn-
um og hægt er að nálgast svörin á slóðinni www.visindavefur.hi.is.
VÍSINDI
HVERSU MARG-
IR LÍTRAR AF
OLÍU ERU TIL
Í HEIMINUM?
Eiríksjökull eftir Tolla.
Ljósmynd/Hreinn Magnússon
Ari Trausti og Tolli á leið á Skessuhorn.