Lesbók Morgunblaðsins - 09.08.2003, Page 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 9. ÁGÚST 2003
Í
NÝLISTASAFNINU verða opnaðar
þrjár einkasýningar í dag, laugardag.
Um er að ræða sýningu Gjörninga-
klúbbsins, „Á bak við augun“, „Endur-
gerð“ Péturs Arnar Friðrikssonar og
sýningu Heimis Björgúlfssonar, „Gott
er allt sem vel endar“.
Gjörningaklúbburinn hefur starfað
saman frá 1996 en hefur ekki haldið einkasýn-
ingu hér á Íslandi í tvö ár. Meðlimir klúbbsins
eru þær Eirún Sigurðardóttir, Jóní Jónsdóttir
og Sigrún Hrólfsdóttir og eins og segir í sýn-
ingarskrá, þá hafa þær „í sameiningu skapað
undraverðan heim sem þær bjóða þér að vera
þátttakandi í“.
Á bak við augun
Á sjö ára starfsferli sínum hefur Gjörninga-
klúbburinn tekið þátt í margvíslegum samsýn-
ingum og haldið einkasýningar bæði heima og
erlendis og hlotið fjölda viðurkenninga. Og
þótt ekki hafi þær haldið einkasýningu hér
heima á síðastliðnum tveimur árum, hafa verk
þeirra verið sýnd á samsýningum, auk þess
sem þær hafa flutt gjörninga og unnið mikið
erlendis. „En núna langaði okkur til þess að
sýna hér heima hvað við höfum verið að gera,“
segja þær, „og sýnum verk sem ekki hafa verið
sýnd hér áður. Við notum vídeó, innsetningar,
teikningar og ýmislegt fleira.
Tæknilega vinnum við í alla miðla en titill
sýningarinnar er „Á bak við augun“. Augun
sjá, en það sem skiptir máli er það sem gerist á
bak við augun. Það útskýrir ólíka upplifun
fólks. Þegar þú, til dæmis, horfir á eitthvað,
segjum bíl eða blússu, getur þú ekki verið viss
um að þú sjáir hlutina sömu augum og sá sem
er við hlið þér. Augun nema, heilinn vinnur úr.
Úrvinnslan byggist á þér.
Síðan erum við líka að vinna með yfirnátt-
úrulega hluti; það sem augað sér í rauninni
ekki, til dæmis drauga og tilfinningar. Það er
húmor, jafnvel kaldhæðni, í því vegna þess að
fólk skiptist í marga póla þegar andlegir hlutir
eru annars vegar. Og til þess að kóróna hin
ólíku sjónarmið, þá erum við þrjár að búa til
hlutina og sjáum þá með ólíkum augum. Við
tölum mikið um hvern hlut sem við búum til,
þangað til við erum komnar að niðurstöðu.“
Hvernig verk búið þið til?
„Við erum að búa til hluti sem okkur langar
til að sjá. Í mörgum verkanna eru tákn, sum
táknin eru sótt í barnslega heima. Samt skín í
gegnum sýninguna að það er gömul sál í henni
sem er orðin þroskuð og búin að ganga í gegn-
um margt. Amman er með okkur og hún veit
meira en við. Hún veitir okkur öryggiskennd,
auk þess sem það er svo ótrúlega mikil fegurð
á milli þess barnslega og þess aldraða.
Við leggjum áherslu á að skírskota til áhorf-
andans; að hann taki þátt í sýningunni. Hann
þarf að klára hana. Við erum að vinna með okk-
ar hugmyndir og sýn en viljum halda marg-
víslegum túlkunarmöguleikum opnum.“
Stórisar og sokkabuxur
Í sýningu Gjörningaklúbbsins kennir væg-
ast sagt margra grasa þegar kemur að efni
sem nota skal í sýninguna. „Fólk hefur verið
mjög örlátt á stórisa og sokkabuxur við okkur.
Auk þess erum við með vídeóverk, teiknimynd,
draugamynd, sérstakar teikningar á tvöfalt
gler – og það verður andi í húsinu. Góður andi.“
Á bak við augun er viðamesta sýning á verk-
um sem Gjörningaklúbburinn hefur haldið á
Íslandi til þessa, þótt hann hafi unnið stóra
gjörninga, meðal annars með Slökkviliðinu.
Það sem kemur kannski á óvart á sýningunni
að þessu sinni er að þríeykið vinnur óvenjulega
mikið með svartan og hvítan lit.
„Við höfum mikið verið að hugsa um hvað er
gott og hvað er vont. Áður einkenndust verk
okkar af yfirmáta bjartsýni og gleði, þannig að
jaðraði við fasisma. En góðmennskan getur
verið svo afstæð. Til dæmis heldur Bush
örugglega að hann sé að gera gott en málið
horfir kannski á annan hátt við öðru fólki.“
Hafið þið kafað djúpt í myrkrið til þess að
kanna gott og illt?
„Nei, við höfum ekkert kafað í myrkrið; bara
rétt stungið tánni í það. En nóg til þess að finn-
ast alveg jafnvænt um það sem er svart og það
sem er rósableikt og þægilegt.“
Endurgerð
Á efri hæð safnsins hefur Pétur Örn Frið-
riksson komið fyrir tveimur verkum, annars
vegar skúlptúr, hins vegar veiðarfærum.
Skúlptúrinn segir hann innhverfa innsetningu
í þrívíðu rými sem er einn rúmmetri. En um
hvað fjallar sýningin?
„Hún fjallar um það hvernig maður skoðar
hlutina. Skúlptúrinn er endurgerð á eldri verk-
um, sem er verkefnið sem ég setti mér fyrir,
fyrir þessa sýningu. Eldra verkið er margskipt
og þótt þetta verk sé einnig margskipt, er
þetta verk í rauninni einn hluti af eldra verkinu
sem ég magna upp.“
Hvað ertu að fara með þessum verkum?
„Um tíma gerði ég mikið af vísindaverkum,
það er að segja, ég kynnti hluti sem voru vís-
indalegs eðlis, hvort sem þeir voru af raunvís-
indalegum toga, eða félagsvísindalegum. Þá
notaði ég mjög eðlisfræðilega hluti til þess að
fjalla um félagsfræðilega þætti. Þetta verk er
félagsfræðilegs eðlis þar sem ég er að setja
upp módel að þjóðfélagi.“
Hvaða samhengi er á milli eðlisfræði og fé-
lagsfræði?
„Ef maður skilur eitthvert fyrirbæri, er auð-
velt að nota það til þess að skilja annað fyr-
irbæri.“
Hvert er sambandið við veiðarfærin?
„Það er enginn munur á veiðarfærum og
verki sem ég ætla að gera. Þetta er veiðarfæri
sem þarf að ná niður á mikið dýpi. Ég hvorki
heyri né sé þetta dýpi. Það sama á við þegar
verið er að skoða félagsleg fyrirbæri. Þá þarf
maður að skoða þau í gegnum rör vegna þess
að maður hefur ekki reynslu og yfirsýn til þess
að skilja hvað virkar og hvað ekki. Kosturinn
við að skoða þetta í gegnum myndlistina er sá
að ég ræð reglunum sjálfur. Ég þarf ekki að
koma með neina klára niðurstöðu sem er orðin
geld þegar hún birtist. Ég þarf ekki heldur að
verja niðurstöðuna vegna þess að hún er alveg
opin – og er í rauninni hráefni fyrir næsta
mann.“
Gott er allt
sem vel endar
Á efri hæð safnsins er sýning Heimis Björg-
úlfssonar einnig staðsett. Heimir, sem býr og
starfar í Amsterdam, segist hafa ákveðið að
blanda saman ólíkum verkum, sem þó fjalla öll
um sama málefnið – sem er hvað?
„Mitt persónulega samband við umhverfi
mitt,“ segir hann.
Hvað áttu við?
„Til dæmis þráhyggju mína, langanir og
væntingar í því umhverfi sem ég bý við. Í flest-
öllum mínum ljósmyndum og vídeóverkum er
ég sjálfur í aðalhlutverki. Þetta byrjaði allt eft-
ir að ég flutti frá Íslandi þar sem náttúran er
ósnert yfir til Hollands þar sem hver fermetri
er skipulagður, byggður, ræktaður. Á slíkum
stað verður maður meira meðvitaður um bak-
grunn sinn. Hjá mér gerðist þetta án þess að
ég reyndi að hindra það, eða ýkja. Ég hef alltaf
haft áhuga á náttúrunni, jafnvel svo mikinn að
þegar ég var krakki ætlaði ég að verða fugla-
fræðingur þegar ég yrði stór. Það er kannski
þess vegna sem ég teikna mikið af fuglum.
Kannski er það þráhyggja …
Síðan snýst sýningin um samband manns og
náttúru; hvernig manninum tekst að beygja
hana undir sig og hvernig hún bregst við því.
Allt hefur þetta orðið persónulegra með ár-
unum og snúist yfir í það hvað ég er að gera
hér og hvað það er sem ég vil. Til þess að skoða
þetta vinn ég með alls konar miðla. Það er von-
laust fyrir mig að skorða mig við einn miðil.
Fyrir því er engin sérstök meðvituð ákvörðun.
Ég bara verð að gera það.“
GÓÐMENNSKAN
GETUR VERIÐ AFSTÆÐ
Gjörningaklúbburinn,
Pétur Örn Friðriksson og
Heimir Björgúlfsson opna
einkasýningar í Nýlista-
safninu í dag. SÚSANNA
SVAVARSDÓTTIR ræddi
við listamennina um verk
þeirra og sýningarnar.
Heimir Björgúlfsson
Gjörningaklúbburinn
Pétur Örn Friðriksson