Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 17.01.2004, Qupperneq 5

Lesbók Morgunblaðsins - 17.01.2004, Qupperneq 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 17. JANÚAR 2004 5 bókin er yfirleitt, að ósekju, afgreidd sem af- þreyingarverk, hin flokkuð sem fagurbók- menntir. Allt þetta virðist þó sem kusk eitt þegar nánar er að gáð og bækurnar lesnar hvor á eftir annarri. Þá virðast þær helst vera fyrri og seinni hluti sama verks. Báðar skáldsögurnar, Kristnihald undir Jökli og Drakúla, hefjast á því að umboðsmað- ur er sendur á heimsenda þar sem hann síðan kynnist vægast sagt undarlegu fólki. Í Kristni- haldinu er Umbi, eins og nafnið gefur til kynna, umboðsmaður biskups, sendur á Snæ- fellsnes til að kanna ástand kristninnar. Í Dra- kúla er Jonatan Harker, umboðsmaður lög- fræðiskrifstofu, sendur til Transylvaníu í Rúmeníu til að fræða Drakúla greifa um hvernig farið er að við kaup á húsnæði í Lond- on. Báðir þessir menn tjá reynslu sína jafn- óðum og eru lesendur því nálægt þeim í tíma. Umbi tekur mikilvæg samtöl upp á hljóðrita og skráir síðan meginatriði í bók, en Jonatan Har- ker heldur dagbók. Báðar bækurnar enda sem skýrsla. Báðir lenda ferðalangarnir Jonatan og Umbi í hráslagalegu húsnæði með heldur kald- lyndum konum en eru mestanpart hundsaðir af gestgjöfunum, ef orðið gestgjafi gildir þá um þá Jón Prímus og Drakúla greifa. Þegar Drakúla er fjarverandi vegna skyldustarfa er Jonatan Harker einn í hrollköldum kastalan- um með þremur lokkandi fögrum blóðsugum sem hungrar mikið í blóð hans, en Umbi er komin upp á Fröken Hnallþóru, sem telur það fyrir neðan sína virðingu að bjóða gestum ann- að en sautján sortir af kökum, en eldar ekki mat. Umba hungrar því í ærlega máltíð líkt og Jonatan Harker þegar hann er skilinn eftir í kastalanum matarlaus. Á báðum stöðum er ástand guðshúsanna bágt; kirkjan á Snæfells- nesi er að hruni komin, og kapellan þar sem Drakúla greifi liggur er óttalegt greni. Í báð- um bókunum lenda menn í því að dvelja yfir opnum líkkistum um nótt. Jonatan Harker þráir, áður en yfir lýkur, ekkert heitar en að geta skorið hausinn af Drakúla greifa, meðan Umbi þarf að vaka yfir líki dr. Godmans Sýng- mans, til að gæta þess að suður-amerískur hausaveiðari sargi ekki hausinn af líkinu til að þurrka hann. Í þrítugasta og öðrum kafla Kristnihaldsins segir: Nótt, dimt í lofti, súld. Beitarhúsarmenn sofa á dyra- palli búngalósins undir derinu. Líkið er á sínum stað og kistan opin til höfða og verður lokið ekki dregið fyrir til fulls fyren opinberir aðilar hafa borið það saman við gögn sín. Ég afræð að halla mér í klukkutíma og létta af mér áhyggju í von þess að skaparinn muni ein- hvernveginn klóra sig framúr vandamálum morg- undagsins. Varla hef ég legið leingur en mínútu þegar ég heyri flóttalegt fótatak utanaf bæarhlöðum, eru nú beit- arhúsamenn komnir á kreik með höfuðið? Beitarhúsamennirnir í Kristnihaldinu eiga annars margt sameiginlegt með sígaununum og Slóvökunum í Drakúla, til dæmis það að hjálpa til við að færa handanheimsverur milli staða í þungum kössum. Í báðum sögum er spurningin um rasjón- alisma og trú áleitin. Í báðum sögunum koma himnesk fjöll við sögu. Snæfellsjökull er marg- sinnis notaður sem metafóra fyrir almættið í Kristnihaldinu. Í Karpatafjöllum er snæviþak- inn tindur sem nefnist Sæti Guðs og er lýst með eftirfarandi hætti í Drakúla. One of my companions touched my arm as we swept ro- und the base of a hill and opened up the lofty, snow- covered peak of a mountain, which seemd, as we wound on our serpentine way, to be right before us: „Look! Isten szek!“ – „God’s seat!“ – and he crossed himself reverently. Síðast en ekki síst eru líkindin á milli Dra- kúla og Úu óhemjusterk. Ekki nóg með að þau sofi bæði í kistum á köldum stöðum, séu ódauð- leg, lýsandi vel gefin, eigi til að vefja um sig þoku, geti umbreyst í dýr og hafi sterkt kyn- ferðislegt aðdráttarafl, heldur eru þau auk þess andlitslík. Í Kristnihaldinu segir svo um svip Úu: „Sé hægt að kalla andlit sterkvaxið átti það við um konu þessa …“ Í Drakúla segir um svip greifans: „His face was a strong – a very strong – aquiline...“ Megineinkenni andlits beggja er hve sterk- leg þau eru, nokkuð sem venjulega er ekki tek- ið fram um andlit. Kannski þau Úa og Drakúla séu systkin. Ef ekki, þá held ég að stefnumótaskrifstofa væri ekki lengi að sjá með þeim hjónasvip. Þau eru eins og sniðin hvort fyrir annað. Hver veit nema Drakúla hefði orðið besta skinn ef hann hefði fengið að narta dálítið í Úu annað slagið. Svo mikið er víst að hún hefði ekki kippt sér upp við það, jafn æðrulaus kona og hún var. Kannski hafa þau Úa og Drakúla einhvern tíma hist á Íslandi. Allavega er minnst tvisvar á Ísland í Drakúla. Í fyrra skiptið stærir Dra- kúla sig af að vera skyldur Íslendingum með þessum orðum: We, Szekelys have a right to be proud, for in our veins flows the blood of many brave races who fought as the lion fights, for lordship. Here, in the whirlpool of Euro- pean races, the Ugric tribe bore down from Iceland the fighting spirit which Thor and Wodin gave them, which their Berserkers displayed to such fell intent on the seabords of Europe … Auk þessarar vísbendingar bendir meitlað- ur og beinskeyttur stíll Drakúla einnig til að Bram Stoker hafi lesið einhverjar af Íslend- ingasögunum. Það gæti að hluta til skýrt stíl- legan skyldleika Drakúla og Kristnihalds und- ir Jökli, því á sínum efri árum hallaðist Laxness enn frekar að Íslendingasögunum sem stíllegri fyrirmynd. Annað stílatriði er að báðar bækurnar henta svo vel til leikritaupp- setningar að nánast óþarfi er að breyta þeim í leikhandrit, leikarar geta skipt með sér hlut- verkum og lesið beint upp úr bókunum. Í allt er sem sagt hægt að benda á allavega níu mikilvæg atriði sem tengja bækurnar sam- an: 1. Umboðsmaður fer á heimsenda og kynn- ist fólki með mjög sérstök trúarbrögð. 2. Á heimsenda er fjall sem minnir á guð. 3. Á báðum stöðum er húsnæði hráslagalegt og ástand kirkjunnar bágt. 4. Báðir ferðalangar eru hálfpartinn innilok- aðir með undarlegum konum sem tengjast mat. 5. Í báðum sögum lenda menn í því að vaka yfir líkum dauðra um nótt, og í báðum bókum er fjallað um að afhausa lík. 6. Beitarhúsamennirnir í Kristnihaldinu eiga það sameiginlegt með sígaunum og Sló- vökum að vera sérstakur trúarhópur sem not- aður er til að bera líkkistur á milli staða. 7. Drakúla og Úa eiga að minnsta kosti átta eiginleika sameiginlega: 1. Þau sofa bæði í kistum á köldum stað. 2. Þau eru bæði ódauð- leg. 3. Þau eru bæði svo til yfirnáttúrulega fróð og vel gefin. 4. Bæði eiga til að vefja um sig þoku. 5. Bæði geta umbreyst í dýr, hvort sem það er lax eða leðurblaka. 6. Hvorki Drakúla né Úa sjást nokkurn tíma borða mat. 7. Bæði hafa mikið kynferðislegt aðdráttarafl. Og síð- ast en ekki síst númer 8. Þau eru lík í framan. 9. Ofan á þetta bætist að form sagnanna er líkt, þær enda báðar sem skýrslur um hið yf- irnáttúrulega. Eftir lestur þeirra beggja situr maður uppi með þá tilfinningu að lífið sé dularfyllra en maður hélt. Til að komast nánar inn í hvernig sú kennd er töfruð fram hjá lesandanum þyrfti maður að fjalla um hugsunina bak við verkin og dulspekina. Til þess gefst ekki tími hér, en þó má segja að hún snerti eðli og heilagleika lífsins, og það sem er sett upp sem andstæða við þetta, rasjónalismann. Ályktarorð Í fyrstu minningabók sinni, Í túninu heima, þar sem Laxness segir frá fyrstu fundum sín- um við heiminn, er kafli sem heitir: „Að skrifa upp úr sér.“ Þar fjallar hann meðal annars um hvað hann las sem barn. Hann minnist á Ibsen og Björnson, Íslendingasögur, riddarasögur, fornaldarsögur og fleira. Allt líður þetta hjá án nokkurra ummæla. Aðeins einu sinni staldrar hann við. Og ekki má gleyma Makt myrkranna (Bram Stoker) með hinum vinsæla draug Drakúlusi greifa í Karpatafjöllum, sem ekki var síður elskaður þá en núna, og einn besti penni lands- ins var settur til að þýða: Valdimar Ásmunds- son (útg. 1901). Það er augljóst að hann hefur bókina fyrir framan sig þegar þetta er skrifað, sem er um líkt leyti og Kristnihaldið verður til, annars hefði hann ekki getað staðfest útgáfuárið. Það skyldi þó aldrei vera að Drakúla hafi verið eftirlætisbók Halldórs Laxness þegar hann var lítill? Það kæmi mér ekki á óvart, nægilega er hún góð. Í upptalningunni í áð- urnefndum kafla lætur hann persónur hinna ýmsu bóka blandast saman í einn sögusjóð, einn tíma og endar á að segja: Með svona frjálsri afstöðu gagnvart tíman- um eru því lítil takmörk sett hve hægt er að búa til margar bækur. Hann er ekkert að leyna því að þessar sögu- persónur eiga greiða leið inn í ímyndunarafl hans þar sem þær æxlast og fjölga sér og verða að hans eigin skáldsagnapersónum. Kannski er hann jafnvel að gefa til kynna að Úa sé syst- ir Drakúla? Fræðimenn hafa klórað sér mikið í hausnum yfir Kristnihaldi undir Jökli. Hvaðan í ósköpunum kemur þessi bók? Ég held að ef þeir læsu fyrst Drakúla og svo Kristnihaldið mundu þeir klóra sér aðeins minna í hausnum og brosa enn breiðar. Lítill drengur er að skrifa bókina sem hann alltaf óskaði sér að geta skrifað. Æskudraumur um að skrifa og lifa með Bram Stoker rætist, jafningjar mæt- ast og skemmta sér við að segja sögur. Hring- urinn lokast. Eftir þetta eru það mest minn- ingabækur. Þó að Kristnihaldið spegli alls staðar æsku- bókina þá er hún, hvernig sem á hana er litið, sjálfstætt listaverk. En það er áhugavert að lesa bækurnar saman upp á að velta fyrir sér hvers vegna ákveðinn strúktúr, hlaðinn ákveðnum táknum, laðar fram hjá lesandanum ákveðna kennd um dul lífsins, því kenndin sem maður situr uppi með eftir lestur beggja bóka er skyld. Einhver gæti farið að tala um erki- týpur, sameiginlega undirvitund og alla þá súpu frá Carl Gustav Jung. Allt í lagi með það, það er teóría, sem minnir um margt á vanga- veltur Godmans Sýngmans í Kristnihaldinu. Ég geispa af þeim, aðrir hrífast. Maður situr eftir með kenndina um dul lífs- ins, spurn um eðli innsta kjarna þess, og eftir lestur beggja bókanna hvorrar á eftir annarri er þessi dul komin í þrívídd, í miklu meira rými landfræðilega og tímalega. Kenndin er orðin sterkari en ef maður hefði bara lesið aðra bók- ina án þess að þekkja til hinnar, og þeim mun sem kenndin um dul lífsins er orðin sterkari, þeim mun auðveldara er fyrir lesandann að fást við hana upp á eigin spýtur. Þess vegna legg ég til að Drakúla og Kristnihald undir Jökli séu lesnar sem fyrra og seinna bindi sama verks, skrifað af óræðum, hláturmildum höfundi ofar tíma og rúmi. Nokkrar heimildir fyrir utan bækurnar sjálfar: Gunnar Kristjánsson: Liljugrös og járningar. Um séra Jón Prímus. (Andvari.) Peter Hallberg. Kristnihald undir Jökli. (Skírnir.) Vésteinn Ólason. Ég tek það gilt. Hugleiðingar um Kristnihald undir Jökli. Ólafur H. Torfason. Kristnihald undir Jökli. Ástráður Eysteinsson. Í fuglabjargi skáldsögunnar. Um Kristnihald undir Jökli. Halldór Laxness. Í túninu heima. Elizabeth Miller. Bats, vampires, and Drakula. Elizabeth Miller. A Drakula Smorgasbord. Elizabeth Miller. The Shade and the Shadow. Höfundur er rithöfundur. Christopher Lee í hlutverki Dracula í hinni sígildu Dracula (1958). Kristnihald undir Jökli kom út 12. september 1970. Það skyldi þó aldrei vera að Drakúla hafi verið eftirlætisbók Halldórs Laxness þegar hann var lít- ill? Það kæmi mér ekki á óvart, nægi- lega er hún góð. Í upptalningunni í áð- urnefndum kafla læt- ur hann persónur hinna ýmsu bóka blandast saman í einn sögusjóð, einn tíma og endar á að segja: Með svona frjálsri afstöðu gagnvart tímanum eru því lítil takmörk sett hve hægt er að búa til margar bækur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.