Lesbók Morgunblaðsins - 17.01.2004, Page 10

Lesbók Morgunblaðsins - 17.01.2004, Page 10
10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 17. JANÚAR 2004 Á samsýningunni Mynd í Hafnarhúsi Lista- safns Reykjavíkur árið 2002 sýndi Bjarni Sigurbjörnsson blátt málverk undir berum himni á veggnum við endann á löngu grá- máluðu gólfi portsins með hvíta veggi til beggja hliða. Þetta var djúpblár veggur gerður úr fjórum flekum af plexígleri sem hver um sig var fjórir metrar á breidd og tveir á hæð, samtals 32 fermetrar. Það var ekki aðeins að stærðin væri yfirgengilegri en áður hafði þekkst hjá íslensk- um málara heldur báru hinir gríðarmiklu sveipir í málverk- inu vott um að listamaðurinn hefði leyst úr læðingi ofurmann- leg öfl sem hann réð ekki nema að takmörkuðu leyti við. Nálgun Bjarna við efni og tækni er önnur en gengur og gerist. Hann málar á plexigler, notar margar ólíkar tegundir litefna og snýr röngunni á málverkinu út, það sem snýr að áhorfandanum er að öllu jöfnu hin ósýnilega bakhlið mál- verksins. Að einhverju leyti má kannski leita skýringa á með- ferð Bjarna á málaraefnunum í fortíð hans, en hann kynntist fyrst málningu í gegnum vinnu sína við bíla. Bjarni var bíla- smiður á verkstæði, vann m.a. við að mála bíla og stræt- isvagna, og var því vel kunnugur hinum ýmsu iðnaðarefnum áður en hann kynntist hinni hágöfugu olíumálningu. Málningarefni hafa því aðra þýðingu fyrir Bjarna en að vera efniviður til að fanga endurskin náttúrunnar, fyrir hon- um er náttúran beisluð í málningunni, olíunni og leysiefn- unum sjálfum. Upptekinn af þýskum málurum Bjarni nam málaralist við San Francisco Art Institute í Kaliforníu, en það voru þó ekki amerískir vesturstrandarmál- arar sem hann og samnemendur hans voru uppteknastir af á þessum árum, heldur hinir þýsku málarar mikilfenglegra fleka, þeir Gerhard Richter, Sigmar Polke og Anselm Kiefer. Það má greina nokkurn skyldleika við verk Polke, einkum í þeim málverkum þar sem Polke leyfir ýmsum torkennilegum efnum að flæða frjálst um flötinn og búa jafnvel svo um hnút- ana að þau breytast með tímanum, tærast og umbreytast vegna óstöðugs sambands efnanna. Vegna áherslu Polke og Kiefers á áhrifamátt efna og efnasambanda leitaði hann líka í smiðju til ítölsku listamannanna sem kenndir voru við Arte Povera, og þá sérstaklega vegna þeirra hugmynda sem þeir sóttu í hina duldu symbólík sem fylgt hefur efnafræði frá örófi alda. Í fyrstu voru málverk Bjarna efnismikil og litefnunum hlað- ið í þykka kekki á fletinum svo efniskennd verkanna þrengdi sér út úr myndinni. Fljótlega fór Bjarni að notfæra sér plexi- gler sem flöt til að vinna á og uppgötvaði nánast fyrir slysni að glerið leiðir til þess að málverkið eignast aðra hlið, nokk- urs konar þverskurð, sem er málaranum hulin. Málarinn sér aldrei bakhlið þess sem hann málar og því síður getur hann hagað verki sínu með það í huga að mála fyrir bakhliðina, ef svo má að orði komast. En í stað þess að neita að sætta sig við vanmátt sinn gagnvart því sem gerist á fletinum hinum megin frá byrjar hann að notfæra sér þennan óvænta tvískinnung. Með því að hengja verkin neðan úr loftinu frekar en að hengja þau upp á vegg gaf hann báðum hliðum jafnt vægi. Lengst gekk hann í þessa átt á sýningu sem bar yfirskriftina „Mörk málverksins“ í Hafnarborg 1998, þar sem hann sýndi hvít, hálfgegnsæ málverk á plexígleri sem héngu neðan úr loftinu og mynduðu göng í miðjum salnum sem fönguðu áhorfandann eins og samloku á milli sín. Grunnar skúffur Þessar tilraunir voru samt hliðarspor frá því formi sem hann hafði fundið málverkunum. Á samsýningunni „Hverf- ingum“ í Gerðarsafni 1999 sýndi Bjarni í fyrsta sinn málverk sem voru máluð inn í plexíglerkassa, sem hann hefur lýst sem „grunnum skúffum“, og hengdi upp á vegg þannig að botninn sneri að áhorfendum. Meðan hann vinnur að verki sínu liggja skúffurnar á gólfinu og inni í þeim framkvæmir hann efnafræðitilraunir, leyfir efnum, bílamálningu, leysiefnum, línolíu og vatni að leysa upp, hrinda hvert öðru frá sér, renna saman eða aðskiljast. Allar þessar tilraunir verður að vinna án þess að sjá fyrir hver útkoman verður, því ekki er hægt að snúa verkinu við fyrr en efnin hafa sett sig og náð að harðna. Bjarni byrjar ekki með neina fyrirframgefna hugmynd eða sýn um málverkin í endanlegri mynd. Það felst í vinnuferlinu að hann getur í raun ekki haft fulla stjórn á því hvernig myndin þróast, en hann getur lagt upp með ákveðin grunn- skilyrði sem ferlið lýtur. Í stað þess að stjórna byggingu myndarinnar reynir hann að fylgja flæði verksins, sjá hvert það leiðir hann og reynir að magna fram þau áhrif sem eru að gerjast innra með verkinu. Síðan tekur við tímabil íhugunar og endurmats, þar sem afraksturinn verður að sanna sig fyrir fránum augum listamannsins og sýna fram á að hann standi einn og sér. Þessi aðferð Bjarna er ekki sprottin af einhverri þörf fyrir að tjá kenndir eða fá útrás og losa um hömlur. Bjarni nálgast verkið af yfirvegun og íhygli málarans sem einbeitir sér að því sem augað segir honum. Sú upplausn, sundrun og einbeiting sem má sjá í plexígler- málverkunum leiddu til þess að á tímabili urðu þau sífellt ein- faldari og efnisminni, einlit og gegnsæ. Í nýjustu verkunum sem eru til sýnis í Listasafninu á Akureyri hefur Bjarni aftur á móti horfið frá einlitu málverkunum og farið að nýju að tefla saman litum í því skyni að skapa annars konar dýpt sem byggist á samspili lita og breiðari krómatískum skala. Í augum Bjarna er málverk ekki endanlegur hlutur, heldur vitnisburður um athöfn og ferli. Að þessu leyti finnur hann til ákveðinnar samkenndar með hinu vonlausa verki alkemista fyrri alda sem sökktu sér niður í leyndardóma efnisheimsins, þröngvuðu andstæðum öflum til að stríða hvert gegn öðru, splundruðu þeim, í von um að finna yfirnáttúrulegan sam- hljóm. Innan alkemíunnar er vinnan hinn guðdómlegi „ópus“ þar sem ummyndunin er mikilvægust af öllu en takmarkið alltaf rétt utan seilingar. Að vissu leyti eru glerverkin eins og sneiðar í gegnum stöðug umbrot efnahvarfa og liturinn til marks um orkuna sem leysist úr læðingi. Í litablossanum skapast samhljómur og jafnvægi úr kaótískri óreiðu. Arcus Svövu Björnsdóttur Það er óhætt að segja að sýning Svövu Björnsdóttur í Lista- safninu á Akureyri sé í grunnatriðum afar einföld. Hún sam- anstendur af þremur pappírsörkum á vegg. Og hver pappírs- örk myndar keilu, eða pýramídalagað form, sem byrjar í horni hverrar arkar og leitar inn að miðju, inn að flötum rétt- hyrningi. Keilurnar lýsa ekki aðeins hinu einfalda formi fern- ingsins sem minnkar inn að miðju, þær lýsa einnig sjónkeilu fjarvíddarskynjunar eins og henni hafa verið gerð skil á stærðfræðilegu formi frá dögum endurreisnartímabilsins. Pappír, grunnform, myndrými og dýpt – þetta eru klassísk undirstöðuhugtök vestrænnar myndlistar. Kunnuglegustu viðfangsefni myndlistarmanna, en þó svo nýstárleg að sjá í þessari myndbirtingu voldugra pappírsarka. Þótt hér sé talað um arkir er vissulega ekki um neinar venjulegar pappírsarkir að ræða, enda eru þær steyptar sér- staklega fyrir hvert verk úr hráu pappírsbeðmi. Þetta er tækni sem Svava hefur sérhæft sig í og hefur verið einkenn- ismerki á verkum hennar um árabil. Það er sérstakt við verk- in á sýningunni í Listasafninu á Akureyri að þetta eru stærstu verk sem Svava hefur unnið í einni samfelldri pappírörk og eru þau afrakstur af þróun og nýjung í tækni sem hún hefur sjálf uppgötvað. Svava notar sellúlósabeðmi, sem er uppi- staðan í pappírsgerð, leysir beðmið upp og steypir í tilbúin mót sem hún vinnur fyrir hvert verk. Hingað til hefur Svava notað gifs til að gera mót sín, sem hefur sett stærð verkanna skorður, en nýverið hefur hún prófað sig áfram með að nota frauðplast sem gerir alla for- vinnu auðveldari og gefur möguleika á mun stærri verkum. Það kemur áóvart hversu sterkur efniviður pappír er. Hann þolir vel að vera þaninn upp í þessa stærð án þess að eiga á hættu að brotna eða rifna undan eigin þunga. Svava kynntist pappírnum fyrst við Akademie der Bildende Künste í höf- uðborg Bæjaralands á árunum 1978–84 hjá prófessor Edoard Paolozzi. Um þær mundir stofnaði hann pappírsverkstæði við akademíuna og var Svava meðal fyrstu nemenda í hinu nýja verkstæði. Þótt hún hafi haldið tryggð við pappírinn allan þennan tíma er það ekki vegna þess að hún líti á þennan efni- við sem þungamiðju í sínum verkum. Pappírinn er afar hent- ugt efni til að vinna með og ljær verkunum sérstaka eig- inleika í áferð og léttleika, auk þess sem hann gefur færi á að vinna með lit á fjölbreytilegri hátt en mörg önnur efni sem skúlptúrlistamenn nota gjarnan. Þungamiðjan í verkum Svövu er ekki efnið heldur formið og þær ímyndir rýmis og dýptar sem hún skapar með forminu. Aftur til fyrri verka Í þessari sýningu hverfur Svava að nokkru leyti aftur til fyrri verka þar sem hún fékkst við módernísk grunnform og myndhugsun – ferning, hring, þríhyrning og keilu – en jafn- framt er hún að endurvekja gleðina og léttleikann sem ein- kenndi fyrstu verkin. Í einu verkanna er pýramídalöguð keil- an brotin upp af sívölum keilum sem er dreift óreglulega um fletina og brýtur upp hið stranga, reglulega formmunstur. Svava hefur gjarnan byggt verk sín upp á einföldum grunn- stefjum sem hún endurtekur og raðar saman í margvíslegum tilbrigðum. Þessi tilbrigði birtast stundum sem munstur, ein- ingar sem er raðað saman, formum er ýmist fléttað eða víxlað saman. Munstrið brýtur ekki aðeins upp formið með nýjum tilbrigðum, það gegnir einnig því hlutverki að styrkja papp- írsflötinn, en eftir því sem sléttur flötur er stærri því meiri hætta er á að það komi fram veikleikar og pappírinn rifni undan eigin þunga. Svava hugsar hverja sýningu sem eina samstæða heild, verkin eru gerð fyrir tiltekið umhverfi og þau kallast hvert um sig á við umhverfið, bygginguna, og inn- byrðis afstöðu þeirra innan byggingarinnar. Þetta er meðal annars afleiðing af einfaldleika verkanna sjálfra, þau gefa færi á að ríma við umhverfið og þann arkitektúr sem umlykur þau. Slíkt samspil milli skúlptúrverka og þess umhverfis sem þau eru í er líka í samræmi við ríkjandi hugsunarhátt hjá skúlptúrlistamönnum nú á dögum, þar sem ekki er litið á höggmyndina sem lokað verk, svipað og innrammað málverk, heldur sem þrívíðan hlut sem lagar sig að og kallast á við um- hverfið. Litir hafa verið sterkur þáttur í verkum Svövu og það hefur ávallt verið stutt í malerískar tilhneigingar hjá henni. Mörg verka hennar má jöfnum höndum líta á sem skúlptúra og málverk. Jafnvel hvíti liturinn, hinn hlutlausi og eiginlegi litur pappírsins, er notaður til að draga fram skugga í reglulegu munstrinu og gefa áferð efnisins meiri áherslu. Að vissu leyti má líta á hvítu verkin sem sambland af skúlptúr og teikningu, þar sem hún notar skugga til að teikna með og skapa tilfinningu fyrir formi og dýpt. En Svava hefur ekki aðeins fengist við svo létt og, að því er virðist, viðkvæm verk, þótt pappírinn sé sterkari og endingarbetri en mann grunar. Hún hefur nú nýlega lokið við gríðarlega stórt og áhrifamikið verk fyrir opinbera byggingu, hinar nýju höf- uðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur í Reyjavík, sem hefur enn ekki verið formlega afhjúpað þegar þessi orð eru skrifuð. Það er 30 metra há súla úr kínversku, kolsvörtu graníti, sem hef- ur verið staflað upp af keilulaga einingum og liggur í gegnum allar hæðir byggingarinnar. Niður eftir súlunni lekur vatns- taumur sem hlykkjast um hverja keilu. Í þessu sambandi má einnig benda á annað opinbert verk Svövu sem hún gerði fyr- ir Hæstaréttarhúsið í einum af minni réttarsölum hússins, „Hlust“, sem er eins og eyrnakuðungur í einum veggnum sem hlustar eftir öllu sem fram fer í munnlegum málflutningi fyrir dómi – eyra réttvísinnar, ef til vill. Eitt verka Bjarna Sigurbjörnssonar í Listasafninu á Akureyri: Opus I, 2003. Blönduð tækni á plexigler 200 x 200 cm. Svava Björnsdóttir: Án titils, 2003. Trjákvoða og litarefni 168 x 168 x 50 cm. TILFINNINGAR OG VITSMUNIR Höfundur er listheimspekingur. Fyrstu sýningar ársins í Listasafninu á Akureyri verða opnaðar í dag kl. 15. Hér er sjónum beint að tveimur íslenskum samtímalistamönnum, Bjarna Sigurbjörns- syni og Svövu Björnsdóttur, og stöðu óhlutbundinnar myndlistar eins og greinist hvað skýrast í abstrakt ex- pressjónisma og harða geómetríu, eða tilfinningar og vitsmuni eins og gjarnan er litið á það. GUNNAR J. ÁRNASON fjallar um listamennina og sýningarnar.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.