Lesbók Morgunblaðsins - 17.01.2004, Page 14

Lesbók Morgunblaðsins - 17.01.2004, Page 14
14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 17. JANÚAR 2004 Í UM það bil þrjá áratugi lá verk listamannsins Robert Smithson Spiral Jetty undir yfirborði Salt- vatnsins mikla í Utah í Banda- ríkjunum. Frá því 1999 hefur yfirborð vatns- ins hins vegar lækkað um- talsvert vegna þurrka og hef- ur þessi þekkti landskúlptúr í kjölfarið verið að koma upp á yfirborðið á ný, en um er að ræða basalt spíral. Er Smithson reisti verkið, sem er talið meistara- stykki hans, árið 1970 var svart basaltgrjótið algjör andstaða bleiklitaðs vatnsins sem umlykur það. Tíminn og umhverfið hafa hins vegar haft sín áhrif og verk- ið, sem er nú að öllu komið upp úr vatninu, er í dag þakið salt- kristöllum. Eigi að koma Spiral Jetty í upprunalegt horf á ný eiga forverðir því ærið verk fram undan. Ekki eru allir hins vegar sammála um að slíkt eigi að gera. „Spírallinn er ekki jafn áhrifa- mikill og er hann fyrst var reist- ur,“ hefur New York Times eftir Michael Govan hjá Dia myndlist- arsjóðnum í New York, sem á verkið. „[Spiral] Jetty er við það að hverfa í sæ af salti.“ Til að tryggja að verkið verði aðgengi- legt komandi kynslóðum eru uppi hugmyndir meðal stjórn- enda sjóðsins um að hækka verk- ið með því að bæta meira grjóti í það, auk þess sem einnig er verið að kanna hvort náttúran sjálf mun e.t.v. í tímans rás hreinsa saltlagið af grjótinu eða hvort gera þurfi meira. Ekki eru hins vegar allir sáttir við að hreyft verði við Spiral Jetty og óskir listamannsins sjálfs, sem lést 1973, eru óljósar. „Við endurgerð landlistar má ekki gera hana að vaxskúlptúr,“ segir Robert Storr, fyrrv. safnvörður við Museum of Modern Art í New York. „Land- list er ekki ætlað að endast að ei- lífu. Og það er hætta á því þegar hún er endurgerð að nýja útgáf- an verði gerð fullkomnari en sú gamla.“ Meistarar á uppboði RÚMLEGA 40 verk úr einu stærsta bandaríska einkasafninu verða seld á uppboði hjá Sothe- by’s í maí. Um er að ræða verk bæði im- pressjón- ista og módern- ista, m.a. meistara á borð við Edouard Manet, Edgar Deg- as, Claude Monet, John Sing- er Sargent og Pablo Picasso og eru verkin metin á milli 140–190 milljónir dollara eða 9,8–13,3 milljarða króna. Meðal verkanna er að finna Dreng með pípu, mynd frá hinu sjaldséða bleika tímabili Picasso og áætla sér- fræðingar að myndin seljist fyrir um 4,9 milljarða króna. Svo kynni hins vegar vel að fara að verkið seldist enn hærra verði og gæti myndin þá jafnvel orðið dýr- asta listaverk sögunnar. Núver- andi met á portrett Vincent van Goghs, Dr. Gachet, sem selt var fyrir 82,5 milljónir dollara árið 1990. Verkin verða til sýnis í salar- kynnum Sotheby’s frá 28. apríl og fram að uppboðinu sem verð- ur haldið 5. maí. Spírall úr söltum sæ ERLENT Drengur með pípu eftir Picasso. Spiral Jetty eftir Robert Smithson. ÞAÐ er alltaf athyglisvert þegar listamenn vinna með samtíma sinn og samfélag – gera póli- tíska myndlist. Gauthier Hubert er í þeim flokki listamanna. Hann fjallar um kynþáttahatur, stórveldi og stríðsrekstur í verki sem hann kall- ar einu nafni USA USE US. Eins og Hubert skýrir frá því er hér um skammstafanir þriggja nýrra ríkja að ræða; The United States of Art, The United States of Esthetics og Urban Servi- ces. Glöggir sjá aftur á móti út úr þessu setn- inguna Usa use us, eða Bandaríkin nota okkur – sem hefur hápólitíska skírskotun, enda segir í sýningarskrá að listamaðurinn sé að gagnrýna hina „amerísku harðstjórn“ eins og það er orðað. Í þessari gagnrýni sinni leikur hann sér ítrekað með orðið Bush, sem eins og flestir þekkja þýðir runni á ensku. Hann leikur sér með Kennedy með næsta ósmekklegum hætti, og sömuleiðis snýr hann árásunum á tvíburaturnana í New York upp í tölvuleik. Enn fremur vísar Hubert til nasista og til að bæta enn í merkingarþyngd- ina klæðir hann þeldökkan mann í nasistabún- ing, sem er reyndar einkennisbúningur ríkisins USA USE US. Engum dyljast þó tilvísanirnar í heimsveldin þrjú, núverandi og fyrrverandi, Bandaríkin, Sovétríkin og Þýskaland. Maður getur ekki varist þeirri hugsun að listamanninum sé ákaflega í nöp við yfirvaldið sem Bandaríkin eru nú á tímum. Þá leikur listamaðurinn sér með Michael Jackson og hans persónulegu hagi, með því að stilla upp texta í mynd af honum þar sem gefnar eru leiðbeiningar um hvernig eigi að búa til grá- an lit. Michael Jackson er í huga margra orðinn nokkurs konar táknmynd bandarískrar efnis- hyggju og firringar og því er afar vandmeðfarið að vinna með hann. Þessi sýning er full af táknmáli en hún er líka full af fimmaurabröndurum og gömlum lumm- um. Viðfangsefni Huberts er afar vandmeðfarið og því miður bregst honum bogalistin í stórum dráttum. Á neðri hæð er þó að finna eitt verk sem stenst prófið; Following the Nordic Star, Introduction for USA USE US. Þar er mynd af þremur þeldökkum mönnum í Bláa lóninu og yf- ir hljómar lagið Guantanamera, en í íslenskri út- færslu: Láttanavera. Í þessum hluta sýningar- innar nær Hubert að slá mátulega á strengina, þannig að rétt hljómi. Innri líkamsstarfsemi Sýning Guðnýjar Rósu Ingimarsdóttur hefur svipað yfirbragð og sýning Gauthiers Hubert, þ.e. hvað varðar upphengi og miðla sem hún tjá- ir sig með. Inntak verkanna er þó af allt öðrum toga og meira inn á við – persónulegri verk og fínlegri. Verk hennar hafa lífrænt yfirbragð, við skoðun sýningarinnar fær maður á tilfinninguna að listamaðurinn sé að fjalla um innri líkams- starfsemi þó að erfitt sé að benda á hvað það er nákvæmlega, enda er framsetningarmátinn af ljóðrænum toga, en þó tjáningarríkur. Á fyrstu hæð safnsins hefur Guðný skrifað 38 setningar sem saman mynda söguna „Minning um samband sem aldrei var“. Þetta er nokkurs konar ljóðabók á vegg, myndrænir textar. „Að honum fjarverandi leita ég að mjúkhentum hár- skera til að fara um mig höndum. Það má borga fyrir blíðu.“ „Ég sit föst í mynd þinni af mér.“ „Gaddavírinn grætti mig.“ Efnisnotkun Guðnýjar er vel við hæfi og er mikilvægur þáttur í því hve hugmyndafræðin, eða þær tilfinningar sem búa að baki, ná vel til áhorfandans. Sýningin er ekkert léttmeti, þar eru meira að segja verk sem eru af drungalegum toga, eins og verkin (M)einsemd, sem vekur upp vangaveltur um lífið og tilveruna. Verk Guðnýjar eru almennt vönduð og trú- verðug. Sýningin er hins vegar ekki nógu góð í heild sinni. Það er eins og fíngerð verkin henti rýminu illa auk þess sem það að slíta sýninguna í tvennt á milli hæða, styrkir hana ekki. Samtal við listaverk Reiðtúr á nykri heitir sýning Sólveigar Birnu Stefánsdóttur í Galleríi Skugga. Verkin sem öll eru óhlutbundin málverk bera hvert og eitt merkingarþrunginn titil, sem er í litlu samræmi við það sem sést á myndunum og er helst hægt að skilja sem samtal hennar sjálfrar við mynd- irnar. „Dísætur nykur“, „Yfirborð dýpis“, „Klif“, „Að fyrra bragði“ og „Hvítur foli á beit í fífu- engi“, eru dæmi um titla á verkunum. Verk Sólveigar Birnu minna á verk Bjarna Sigurbjörnssonar en það sem einkum gerir verk Bjarna áhugaverð umfram verk Sólveigar er stærð þeirra og málunaraðferð hans, þ.e. að mála með olíu og vatni á plexigler. Verkin eru mjög einsleit og minna meira á prufur af fataefni en sjálfstæð málverk. Lista- maðurinn segir á blaði er fylgir sýningunni að titill sýningarinnar, Reiðtúr á nykri, vísi til hug- lægs ferðalags um lendur málverksins, málarinn kanni hvernig beita megi málunartækni og áferð til að túlka ólík skynhrif. Viðfangsefni hennar felist í þeirri spennu sem myndast á milli hins tvívíða flatar annars vegar og efniskenndrar áferðarinnar hins vegar. Verkin eru tilraunir, samtal listamanns og listaverks, sem vonandi leiðir til innihaldsríkari verka í framtíðinni. Minningar Á neðri hæð hafa tveir listamenn komið sér fyrir, Hulda Vilhjálmsdóttir og Valgarður Bragason. Reyndar er Valgarðs ekki getið í sýn- ingarskrá og því spyr maður sig hvort hann sé þarna boðflenna eða hluti af verki Huldu. Verk hans eru á margan hátt eins og símakrot, þau eru landakort með persónum og leikendum, en teikningin í verkunum er nokkuð skemmtileg. Frágangur er hins vegar slakur. Sýning Huldu er dæmigerð minningasýning, þ.e. sýning þar sem listamaðurinn dregur úr pússi sínu persónulega hluti og stillir saman, eða notar í listaverk, og úr verður fjölbreytt sam- ansafn ýmislegs dóts og drasls, sem og stakra listaverka, sem saman mynda heila innsetningu. Að koma inn á sýninguna er ekki ósvipað því og að stíga inn í vinnurými nemanda í listaskóla. Listsköpun um alla veggi og gólf, og hugmynda- flæðið og hin persónulega tjáning látin ráða för í óreiðukenndri samsetningu. Þetta er eins konar hugarflæðislist, en eins og Hulda segir í formála að sýningunni þá er hún unnin upp úr draumi þar sem hún eignast glermyndavél sem Hulda túlkar sem tákn fyrir það sem hún sér og það sem býr í minningum hennar. Ef rýnt er í einstök verk sem mynda innsetn- inguna má lesa út úr því ýmislegt forvitnilegt. Til dæmis bendir gínuhöfuð þar sem ótal skrúf- ur hafa verið skrúfaðar ofan í höfuðið, til ein- hvers konar hugarvíls og átaka. Málverk þar sem kvenlíkama er haldið uppi af ótal litlum körlum, getur bent til athugunar listamannsins á stöðu sinni í samfélaginu. Þá er ástin þarna viðvarandi, kossar, hjörtu og slíkt. Sýningin ber yfirbragð sjálfskoðunar eða persónulegs upp- gjörs. Það er ýmislegt við sýningu Huldu sem gefur tilefni til skemmtilegra vangaveltna, en í heild- ina skortir á dýpt og þroska til að sýningin nái góðu sambandi við áhorfandann. Sam- tíminn Morgunblaðið/Þorkell Verk Sólveigar Birnu Stefánsdóttur. Innsetning Huldu Vilhjálmsdóttur. Frá sýningu Guðnýjar Rósu Ingimarsdóttur. Frá sýningu Gauthier Hubert. MYNDLIST Nýlistasafnið GAUTHIER HUBERT Blönduð tækni. Opið frá kl. 14–18 miðvikudaga til sunnudags. Til 17. febrúar. Nýlistasafnið GUÐNÝ RÓSA INGIMARSDÓTTIR Blönduð tækni. Opið frá kl. 14–18 miðvikudaga til sunnudags.Til 17. febrúar. Gallerí Skuggi SÓLVEIG BIRNA STEFÁNSDÓTTIR Málverk. Opið fimmtudaga til sunnudags frá kl. 13– 17. Til 1. febrúar. Gallerí Skuggi HULDA VILHJÁLMSDÓTTIR Innsetning. Opið fimmtudaga til sunnudags frá kl. 13– 17. Til 1. febrúar. Þóroddur Bjarnason

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.